Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 39
UMRÆÐAN
REYNSLAN hefur sýnt að próf-
kjör verða Sjálfstæðisflokknum yf-
irleitt til framdráttar. Prófkjör er
lýðræðisleg aðferð til að velja fram-
bjóðendur á opinn hátt
samkvæmt fyrirfram
settum reglum. Fólkið
velur en ekki fámenn-
ur hópur flokksforyst-
unnar. Niðurstaðan
mun því endurspegla
vilja þeirra sem taka
þátt og þannig styrkja
flokkinn og tryggja
breiða skírskotun til
íbúa bæjarins.
Þessi aðferð gerir þá
kröfu til okkar sem
tökum þátt í prófkjöri,
eins og því sem fram-
undan er á Seltjarnarnesi, að við etj-
um kappi við félaga okkar af dreng-
skap og heiðarleika. Við leggjum
spilin á borðið og gerum kjósendum
grein fyrir stefnu okkar og verkum
og ekki síst framtíðarsýn.
Fólkið ræður. Við verðum að und-
irgangast að taka niðurstöðunni eins
og þroskaðar manneskjur og að
prófkjöri loknu standa allir sjálf-
stæðismenn saman eins og einn mað-
ur og takast þannig á við andstæð-
inginn í kosningum að vori. Vel hefur
tekist til um margt hjá okkur hér á
Seltjarnarnesi á því kjörtímabili sem
senn er á enda. En einnig hefur verið
tekist á. Ég hygg að flestir geti tekið
undir það að fjármálastjórn okkar
sjálfstæðismanna hefur verið til fyr-
irmyndar nú sem jafnan áður og
skattlagning er hér með
því lægsta sem þekkist.
Þetta eru grundvall-
aratriði sem við leggj-
um mikla áherslu á. Þá
eru hafnar fram-
kvæmdir við byggingu
gervigrasvallar og
gagnger endurnýjun
sundlaugarinnar er í
gangi. Það er hins vegar
engin launung á því að
mjög skiptar skoðanir
hafa verið um skipu-
lagsmál á Seltjarn-
arnesi og leiddi það til
kosninga á síðasta sumri um leiðir í
þeim málum.
Mikilvægt er að sem best sam-
staða náist meðal íbúanna um fram-
tíðarskipan mála á þessu sviði sem
og öðrum. Þess vegna verður að gera
ráð fyrir því að frambjóðendur í
prófkjöri sjálfstæðismanna á Sel-
tjarnarnesi geri nú skýra grein fyrir
afstöðu sinni til mikilvægra mála og
ekki síður að þeir flokkar sem bjóða
fram í kosningunum næsta vor geri
glögga grein fyrir sinni stefnu.
Kjósendur hljóta að fagna því að
eiga val í prófkjöri okkar sjálfstæð-
ismanna. Ég er tilbúinn að axla þá
ábyrgð að veita Sjálfstæðisflokknum
á Nesinu og sveitarfélagi okkar for-
ystu næstu árin. Ég mun leggja
megináherslu á að ná sem mestri
samstöðu meðal íbúanna um skipu-
lagsmálin og aðra mikilvæga mála-
flokka.
Þá legg ég megináherslu á að við
sjálfstæðismenn stöndum saman um
stefnu okkar. Flokkurinn er sameign
okkar. Enginn einstaklingur er
stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.
Prófkjör efla
Sjálfstæðisflokkinn
Eftir Bjarna Torfa Álfþórsson
Bjarni Torfi Álfþórsson
’Ég er tilbúinn að axlaþá ábyrgð að veita Sjálf-
stæðisflokknum á Nes-
inu og sveitarfélagi okk-
ar forystu næstu árin.‘
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins og frambjóðandi til 1. sæt-
is í prófkjöri Sjálfstæðisfélags Sel-
tirninga 4. febrúar.
Prófkjör Seltjarnarnes
ENN á ný hélt bæjarstjórinn í
Kópavogi því fram í grein hér í
blaðinu í gær að kjarasamningar
Reykjavíkurborgar við starfs-
menn sína væru með þeim hætti
að þeir sem hæst hefðu launin
bæru mest úr býtum. Þessi rang-
færsla Gunnars I. Birgissonar
hefur þegar verið leiðrétt á opin-
berum vettvangi og því hlýtur
henni að vera haldið á lofti nú sök-
um þekkingarleysis eða af póli-
tískum hvötum.
Níu af fjórtán kjarasamningum
sem Reykjavíkurborg hefur gert
síðustu vikur vegna ófaglærðra,
tæknifræðinga, verkfræðinga,
sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa og
bókasafnsfræðinga, svo dæmi séu
tekin, hafa tekið mið af því starfs-
matskerfi sem Reykjavíkurborg
og stéttarfélög borgarstarfs-
manna hafa þróað síðustu ár.
Helstu markmið þess kerfis eru
að draga úr kynbundnum og öðr-
um ómálefnalegum launamun og
að hækka lægstu launin. Allir
þessir kjarasamningar – en þeir
ná til 96% þeirra starfsmanna sem
samið hefur verið fyrir – hafa falið
í sér að því hærra sem viðkomandi
starf er metið, því minni er hlut-
fallsleg hækkun launanna.
Sé þessi staðreynd ofvaxin
skilningi bæjarstjórans í Kópa-
vogi tjóir e.t.v. lítið að munn-
höggvast við hann á opinberum
vettvangi, en fræðslufundur um
starfsmatskerfið og kjarasamn-
inga Reykjavíkurborgar stendur
honum vitaskuld til boða.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Bull bæjarstjórans
Höfundur er borgarstjóri í
Reykjavík.
HEIMILIÐ er
griðastaður fjölskyld-
unnar. Þar eigum við
flest góðar stundir,
okkar bestu minn-
ingar og þar safnast
saman munir sem eru
okkur kærir og hlutir
sem eiga einhverja
sögu. Eitt það erf-
iðasta sem hendir
fólk er að þurfa að yf-
irgefa heimili sitt,
óundirbúið fyrir
breytingar eða af
nauðsyn. Eldri borg-
arar þurfa oft að yf-
irgefa heimili sín mun
fyrr en þörf er á.
Skipulag íslensks
samfélags í málefnum
eldri borgara hefur
ekki verið í takt við
aðra stefnumótun og
skipulag þar sem við
kappkostum að
tryggja einstaklingum
val um þjónustu . Við
bjóðum eldri borg-
urum landsins, þeim
sem byggðu grunninn
undir þetta gnótta-
samfélag, ekki upp á
þann kost sem flestir
myndu velja sér – að
búa heima þegar ald-
urinn færist yfir.
Þau byggðu bæinn
Eldri Garðbæingar
ættu að fá þá þjónustu sem er í
samræmi við kröfur okkar hinna.
Við sem yngri erum skuldum
eldra fólki í Garðabæ, sem byggði
bæinn okkar og hefur lagt svo mik-
ið af mörkum, að málefnum þeirra
sé sinnt af myndarskap og heil-
indum. Tryggja þarf viðunandi og
vel skipulagða heimaþjónustu sem
samhæfir félagslega þjónustu og
hjúkrunarþjónustu. Að auki er
mikilvægt að tryggja að í boði sé
húsnæði sem hentar fólki sem vill
minnka við sig. Fjölga þarf veru-
lega þjónustuíbúðum,
dagvistarplássum og
efla þjónustu við íbúa í
fjölbýlishúsum sem
byggð hafa verið fyrir
aldraða. Fjölga þarf
hjúkrunarrýmum í
bænum. Það er hlut-
verk kynslóðarinnar
sem nú byggir Garða-
bæ að taka til hendinni
og búa vel að eldri
borgurum í bænum.
Fjölbreytt framboð
og ólíkar leiðir
Til þess að tryggja
að komið sé sem best
til móts við þann stóra
og ólíka hóp sem aldr-
aðir eru tel ég lyk-
ilatriði að lögð verði
áhersla á fjölbreytt
framboð afþreyingar
og ólíkar leiðir til að
uppfylla þá þjónustu
sem aldraðir ættu að
eiga kost á. Það má
ekki gerast að öllum
eldri borgurum sé boð-
in einsleit þjónusta
eins og gefið sé að allir
þeir ólíku einstak-
lingar sem byggðu
landið velji sömu kosti.
Eldri borgarar eru
einstaklingar eins og
þeir sem yngri eru.
Við erum öll mikil-
vægir þátttakendur í samfélaginu
sama á hvaða aldri við erum.
Garðabær á að tryggja val fyrir
alla aldurshópa.
Allir aldurshópar
eigi val um þjón-
ustu í Garðabæ
Eftir Ragnhildi Ingu
Guðbjartsdóttur
Ragnhildur Inga
Guðbjartsdóttir
’Skipulag ís-lensks sam-
félags í mál-
efnum eldri
borgara hefur
ekki verið í takt
við aðra stefnu-
mótun og skipu-
lag þar sem við
kappkostum að
tryggja ein-
staklingum val
um þjónustu.‘
Höfundur er frambjóðandi í 2.–3. sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Garðabæ.
Prófkjör Garðabær
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00r f í i i .i i : f t kl. : : lau ar a a kl. : :00
Fyrir enn lengra komna.
2.790.000,-*
Glænýr Saab
Beinskiptur SAAB 9-3 á 2.290.000 kr. er uppseldur eins og er. Erum að bæta á biðlistann.
9-3 línan frá SAAB hefur slegið í gegn á Íslandi.
Við kynnum nú kröftugri meðlim fjölskyldunnar:
SAAB 9-3 Turbo. Kraftmeiri, sjálfskiptur og
á ótrúlega skynsamlegu verði. Prófaðu SAAB
9-3 Turbo í dag.
* Skynsemin hefur aldrei verið skemmtilegri.