Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björn Þórðar-son fæddist á
Hraunum í Fljótum
19. sept. 1913. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnun
Siglufjarðar 5. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Þórunn Ólafsdóttir,
f. í Reykjavík 14.
apríl 1884, d. 18.
nóvember 1972, og
Þórður Guðni Jó-
hannesson, f. á Sæv-
arlandi í Skefil-
staðahreppi í Skagafirði 13. júlí
1890, d. 15. mars 1978. Þórður og
Þórunn hófu sambúð á Hraunum,
hún var lærður klæðskeri en hann
trésmíðameistari. Til Siglufjarðar
fluttu þau 1915. Systkini Björns
eru Davíð, f. 29. september 1915,
Sigríður Ólöf, f. 2. janúar 1917, d.
20. apríl 2002, Jóhannes , f. 29.
september 1919 og Guðbjörg Auð-
ur, f. 14. júlí 1921, d. 20. nóvember
1928. Auk þessara alsystkina er
hálfsystir Björns sammæðra Jó-
hanna Soffía Pétursdóttir, f. 3.
nóvember 1904, d. 13. júní 1970,
og hálfsystir hans samfeðra Anna
Pálína, f. 8. apríl 1935.
Eiginkona Björns var Júlía Jón-
ína Halldórsdóttir, f. á Vermund-
arstöðum í Ólafsfirði 8. maí 1911,
d. á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 25.
október 1997. Foreldrar hennar
voru hjónin Halldór
Jónsson, f. á Þverá í
Svarfaðardal 7.
mars 1864, d. á
Siglufirði 19. mars
1941 og Margrét
Friðriksdóttir, f. í
Brekkukoti í Svarf-
aðardal 10. nóvem-
ber 1865, d. á Siglu-
firði 21. apríl 1954.
Þau bjuggu fyrst í
Böggvisstaðagerði
á Dalvík 1890-1894,
síðan á Vermundar-
stöðum í Ólafsfirði
1898-1916 og á Staðarhóli í Siglu-
firði 1919-1924, er þau fluttu á
Siglufjörð. Júlía var yngst 9 systk-
ina sem öll eru látin.
Börn þeirra Björns og Júlíu
eru: 1) Þórir, f. 18.6. 1934, maki
Jónína Víglundsdóttir, þau eiga
sex börn. 2). Auður, f. 16.2. 1936,
maki Sverrir Sveinsson, þau eiga
fimm börn. 3) Birgir, f. 17.9. 1937,
maki Hrafnhildur Stefánsdóttir,
þau eiga fimm börn. 4) Sverrir, f.
4.1. 1939, maki Ragnheiður Rögn-
valdsdóttir, þau eiga þrjú börn. 5)
Ægir, f. 25. 4. 1940, hann á fjögur
börn, sambýliskona nú Christine
Johannsson. Afkomendur Björns
og Júlíu eru orðnir fleiri en eitt
hundrað.
Útför Björns verður gerð frá
Siglufjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku pabbi, þakka þér samfylgd-
ina gengum árin, þær eru svo margar
minningarnar sem ég á um þig, sem
ég ætla að geyma vel í huga mínum.
Ég mun aldrei gleyma brosinu og
öllum stundunum sem við höfum átt
undanfarin ár.
Pabbi minn, þú varst líka svo
traustur og góður og ekki var hún
mamma mín síðri, við systkinin hefð-
um ekki getað hlotið betra uppeldi en
á okkar stóra og ástríka heimili.
Pabbi minn, það er nú erfitt að
kveðja, nú ertu farinn til mömmu sem
ég veit að þú saknaðir svo mikið og ég
veit að vel verður tekið á móti þér af
henni og öðrum ættingjum og vinum.
Starfsfólki á Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar vil ég þakka þá um-
hyggju og góðvild sem það sýndi þér
bæði á góðum stundum og erfiðum.
Elsku pabbi.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Takk fyrir allt og góður guð geymi
þig.
Þín dóttir
Auður.
Björn var aðeins rúmlega tveggja
ára þegar foreldrar hans flytja frá
Hraunum til Siglufjarðar, en góðar
óskir fékk hann frá Guðmundi Dav-
íðssyni bónda á Hraunum þegar hann
átti eins árs afmælið.
Blíðar stundir auðnist æ
ungum Þórðar hlyni.
Fríðar grundir brosi bæ
barns og smáum vini.
Til að sigra í lífsins leik
löngum þarfnast harma.
Reynast má ei vonin veik
þó vökni oft um hvarma.
Hljóttu ró og þrek og þrótt
þrátt kann urigt blása.
Kvíddu aldrei kaldri nótt,
né krepjubylnum hása.
Guð sé ætíð gestur þinn
óði „litli kútur“.
Endaður er óður minn
enda kominn hnútur.
Þessar ljóðlínur frá Guðmundi eru
í senn heilræðavísur og ósk um að
standa sig í lífinu, trúa á Guð, öðlast
þrek til að sigrast á öllum erfiðleik-
um. Birni þótti mjög vænt um þessar
vísur, og mér finnst að hann hafi nán-
ast lifað eftir boðskap þeirra.
Þórður faðir hans byggði húsið á
Hafnargötu 6 á Siglufirði og ólst
Björn þar upp hjá foreldrum sínum.
Björn gekk í barnaskóla á Siglufirði
en fór snemma að vinna eins og al-
gengt var á þeim tíma og nauðsyn var
en mikil umsvif voru hafin á Siglufirði
á þeim tíma í fiskveiðum og síldar-
söltun á sumrin.
Björn kynnist Júlíu Halldórsdótt-
ur sumarið 1932, þegar hún vinnur
við beitningu við vélbátinn Magnús
sem Ingólfur Árnason átti og gerði út
frá Siglufirði. Júlía fór til Reykjavík-
ur í vist sem kallað var um veturinn
en sumarið eftir takast með þeim
kynni sem urðu til þess að þau fara að
búa á efri hæðinni að Hafnargötu 6,
hjá Þórunni móður hans. En þá höfðu
þau Þórður slitið samvistum og hann
flutt til Sauðárkróks.
Hinn 17.9. 1938 ganga Júlía og
Björn í hjónaband, höfðu þau þá eign-
ast þrjú börn, en börnin urðu fimm á
sex árum. Trúlega hefur oft verið
nokkuð mikið að gera hjá Júlíu, þar
sem Björn stundaði sjómennsku á
þessum árum og var oftast á vertíð-
um á vetrum bæði í Vestmannaeyj-
um, Sandgerði, Reykjavík og víðar og
síld á sumrin.
Ég man að Júlía sagði mér að ver-
tíðin 1936 hafi brugðist, þann vetur
fæðist Auður og Björn var á vertíð í
Vestmannaeyjum, það hefur því ekki
alltaf verið úr miklu að spila hjá þeim.
Árið 1946 byggir Björn ofan á hús
móður sinnar að Hafnargötu 6, og
stóð heimili þeirra þar alla tíð.
Á stríðsárunum 1943–45 siglir
Björn á Dagný SI 7 með fisk til Bret-
lands og má nærri geta hvað Júlía
hefur átt erfiða daga og andvökunæt-
ur þegar ekkert fréttist af skipinu
dögum saman meðan þeir voru í hafi
og hún með fimm lítil börn heima.
Björn tók hið minna fiskimanna-
próf á Siglufirði árið 1943 og þar með
skipstjórnarréttindi á sjötíu og fimm
rúmlesta bát. Hann var á Eyfirðingi á
Hvalfjarðarsíldinni árið 1947 en réðst
til Kaupfélags Siglfirðinga sem verk-
stjóri við síldarsöltun og fiskverkun
um páska það ár. Björn tekur próf
sem eftirlitsmaður með síldarverkun
í ágúst 1955. Hann hættir hjá Kaup-
félaginu það ár og fer í samstarf við
Jón Hjaltalín um síldarsöltun til árs-
ins 1960. Þá kaupir hann dýpkunar-
skipið Björninn í félagi við Aage
Johansen og er með það þar til í
ágúst 1978 að það sekkur inni á Siglu-
firði.
Björn fór að starfa með Sverri syni
sínum við fiskveiðar á Viggó SI 32 og
fiskverkun þar til hann lét af störfum.
Björn var farsæll á sínum sjó-
mannsferli, þó komst hann einu sinni
í hann krappan út við Grímsey.
Björn var með dýpkunarskipið
Bergfors sem Johansen og Snorri
Stefánsson áttu og voru við hafnar-
gerð við Grímsey. Þeir voru að lag-
færa vélina og lágu í vari austan við
eyna, þegar vindáttin breyttist og
skipið rak upp í fjöru. Komust þeir í
land á gúmmíbjörgunarbáti og með
hjálp þaulkunnugra heimamanna
voru þeir leiddir eftir einstigi upp
klettana heim á bæi í Grímsey, þar
sem tekið var vel á móti þeim. Voru
þeir fjórir á bátnum og björguðust
allir.
Um morguninn þegar birti og þeir
fóru að skoða ástand skipsins, voru
þeir félagar sammála að þetta ein-
stigi sem við þeim blasti og þeir fóru
upp hefðu þeir aldrei farið í björtu.
Björn og Johansen voru miklir
mátar, samhentir og áttu auðvelt
með að vinna saman. Unnu þeir nán-
ast við allar hafnir frá Siglufirði aust-
ur á Raufarhöfn.
Björn fékk í arf frá móður sinni
mikið andlegt þrek, og hugarró. Má
segja að ef mikið gekk á þá haggaðist
hann ekki, en hann var dulur og flík-
aði ekki tilfinningum sínum.
Hinsvegar fékk hann frá föður sín-
um mikla kímnigáfu og átti létt með
BJÖRN
ÞÓRÐARSON
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Tindaflöt 3,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn
17. janúar kl. 14.00.
Hilmar Njáll Þórarinsson,
Þórður H. Hilmarsson, Hjördís Kristinsdóttir,
Valgerður Hilmarsdóttir, Elvar Holm Ríkarðsson
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
JÓHANNES KRISTINN ÁRNASON
fyrrum bóndi á Moldnúpi,
Vestur-Eyjafjöllum,
lést að kvöldi miðvikudagsins 11. janúar.
Guðrún Einarsdóttir,
Árný Jóna Jóhannesdóttir, Kjartan Kristófersson,
Sveinn Borgar Jóhannesson, Guðbjörg J. Tómasdóttir,
Eyja Þóra Einarsdóttir, Jóhann G. Frímannsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Lágholti 6,
Mosfellsbæ,
lést á Víðinesi föstudaginn 13. janúar.
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristján Þorgeirsson.
Faðir minn, tengdafaðir, frændi og vinur,
BJARNI PÁLSSON
sjómaður,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 10. janúar.
Kristín Bjarnadóttir, Sigurður B. Stefánsson,
Ólöf Benediktsdóttir, Höskuldur Jónsson.
Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BJARNI HALLDÓRSSON
skólastjóri,
Skúmsstöðum,
Vestur-Landeyjum,
andaðist miðvikudaginn 11. janúar.
Guðríður B. Ársælsdóttir,
Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Ófeigur Grétarsson,
barnabörn og langafabarn.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Elskulegur einkasonur minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SÆVIN BJARNASON,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudag-
inn 16. janúar kl. 15.00.
Guðný Hallgrímsdóttir,
Guðný Sævinsdóttir, Símon Bahraoui,
Haraldur Sævinsson, Ásgerður Þ. Ásgeirsdóttir,
Sigrún Dóra Sævinsdóttir, Birgir Sævarsson,
Bjarney Sævinsdóttir, Bjarni Fannar Bjarnason
og barnabörn.