Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 46
46 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Gestur IngviKristinsson
fæddist á Þingeyri
við Dýrafjörð 21.
ágúst 1935. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísa-
firði að kvöldi
fimmtudagsins 5.
janúar síðastliðins.
Foreldrar hans voru
Jóna Jónsdóttir, f. á
Dynjanda í Auðkúlu-
hreppi, 3.6. 1905, d.
1974, og Kristinn
Erlendsson, f. á
Bakka í Brekkudal í Dýrafirði, 9.2.
1901, d. 1944. Eftirlifandi bróðir
hans er Gísli Erlingur Kristinsson
skipstjóri, f. 26.1. 1938.
Hinn 21. ágúst 1954 hóf Gestur
búskap með Sólveigu Huldu Krist-
jánsdóttur, f. á Suðureyri við Súg-
andafjörð, 14.7. 1937. Foreldrar
hennar voru Sveinbjörg Elín Júl-
íusdóttir og Kristján Guðmunds-
son. Börn þeirra Gests og Sólveig-
ar eru: 1) Þuríður Kristín, f. 6.7.
1953. Maki Páll Ólafsson, f. 1953.
mannsson, f. 1980 og Arnar Frið-
rik, f. 1989. 5) Jón Arnar, f. 26.4.
1968. Börn hans og Hildar Eiðs-
dóttur eu Kristín Ósk, f. 1988, Arn-
dís Dögg, f. 1990, og Laufey Hulda,
f. 1996. 6) Sveinbjörn Yngvi, f. 12.8.
1971.
Gestur ólst upp á Þingeyri við
Dýrafjörð og bjó þar til 18 ára ald-
urs. Hann lauk landsprófi frá
Núpsskóla 1951, mótornámskeiði
Fiskifélags Íslands á Ísafirði 1953
og fiskimannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1971.
Hann var farsæll skipstjóri frá
1959–1974 en þá fór hann að vinna
í landi sem starfsmaður Rarik og
síðar arftaka þess, Orkubús Vest-
fjarða, frá árinu 1975 til 2005. Gest-
ur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
í samfélaginu, sat í stjórnum ým-
issa félaga og var meðal annars
hreppstjóri Suðureyrarhrepps og
sat í sveitarstjórn um árabil. Hann
var formaður stjórnar Sparisjóðs
Súgfirðinga frá 1986 til 1994 og
eftir sameiningu sjóðsins við Spari-
sjóð Bolungarvíkur var hann vara-
formaður stjórnar frá 1994 til
2003. Gestur gegndi stöðu for-
manns stjórnar Sparisjóðsins frá
2003 til 2005 er hann lét af störfum.
Gestur verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Börn þeirra eru
Hulda, f. 1974, sam-
býlismaður Eggert
Eggertsson, f. 1972,
Gestur, f. 1975, sam-
býliskona Sonja
Steinsson Þórsdóttir,
f. 1976, og Þóra Krist-
ín, f. 1988. 2) Kristinn,
f. 2.4. 1955. Sambýlis-
kona Jóhanna Sigur-
björg Vilhjálmsdótt-
ir, f. 1964. Börn
Kristins og Sólveigar
Pálsdóttur eru Páll
Eiríkur, f. 1983, sam-
býliskona Brynja Björnsdóttir, f.
1982, Gestur Yngvi, f. 1986, Anna
Margrét, f. 1990, og Guðríður
Dröfn, f. 1994. 3) Óðinn, f. 15.6.
1959. Maki Pálína Pálsdóttir, f.
1959. Börn þeirra eru Tinna, f.
1982, maki Skafti Elíasson, f. 1974,
sonur þeirra Óðinn Freyr, f. 2002,
Tara, f. 1987, og Vera, f. 1994. 4)
Gunnhildur, f. 8.7. 1961. Maki Al-
bert Marsellíus Högnason, f. 1960.
Börn þeirra eru Sif Huld, f. 1985,
sambýlismaður Hákon Her-
Uppskerutími
Og ég sá, og sjá: Hvítt ský, og einhvern sá
ég sitja á skýinu, líkan mannssyni. Hann
hafði gullkórónu á höfðinu og í hendi sér
bitra sigð.
Og annar engill kom út úr musterinu. Hann
kallaði hárri röddu til þess sem á skýinu sat:
„Ber þú út sigð þína og sker upp, því að
komin er stundin til að uppskera, sáðland
jarðarinnar er fullþroskað.“
Og sá, sem á skýinu sat, brá sigð sinni á
jörðina og upp var skorið á jörðinni.
(Opinberunarbókin, 14:14-16.)
Ég þakka þér, elsku pabbi, fyrir
þann heiður að hafa fengið að vera
sonur þinn. Núna þegar þú ert farinn
þá streyma fram í huga minn minn-
ingar um þær yndislegu stundir sem
við áttum saman. Alltaf varst þú til
staðar þegar ég þurfti á því að halda,
þú hafðir alltaf tíma til þess að tala við
mig, sama hvernig aðstæðurnar voru.
Alltaf átti ég öruggt skjól á Hlíðar-
veginum hjá þér og mömmu og marg-
ar ánægjustundirnar áttum við þar.
Þú umvafðir allt þitt fólk ótrúlegri
hlýju og kærleika og allir heilluðust af
kröftugri nærveru þinni. Alveg fram í
endinn stóðst þú þína vakt og gott
betur en það með hjálp stórkostlegr-
ar eiginkonu. Það er satt sem er sagt
að enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. Ég kveð þig með sorg í
hjarta og þakka þér fyrir öll árin sem
ég fékk að eiga með þér. Eitt hefur þú
kennt mér öðru fremur en það er að
njóta andartaksins og lifa í núinu og
er það dýrmætasta gjöfin sem þú hef-
ur gefið mér.
Eilífðin er alltaf núna,
andartakið krafti fyllt.
Hvíli hér mitt höfuð lúna,
hugsanahafið orðið stillt.
Sveinbjörn Yngvi Gestsson.
Elsku besti afi, þú kvaddir þennan
heim eftir langa og hetjulega baráttu,
okkur langaði að skrifa til þín nokkur
orð í þakklætisskyni fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir okkur. Þú hefur ávallt
verið kletturinn okkar, svo hlýr og
góður og yndislegur, og alltaf verið til
staðar fyrir okkur þegar við höfum
þurft á hjálp þinni að halda, sama
hvort það var að aðstoða okkur við
heimalærdóminn, skutla okkur í skól-
ann eða bara vera afinn okkar. Það
yndislegasta í heimi var að koma í
heimsókn á Hlíðarveginn til ykkar
ömmu og það var alltaf svo mikil ást
og hlýja í loftinu, oftast sast þú og last
blaðið með kaffibollann sem bannað
var að vaska upp og drakkst kaffið
þitt og hlustaðir á litla útvarpið þitt,
og oftast var amma að vaska upp og
þegar maður gekk inn þá brostir þú
út að eyrum og gekkst á móti okkur,
kysstir okkur og straukst okkur um
vangann, við sáum alltaf gleðina í
augunum þínum því barnabörnin þín
voru þér svo mikið. Ótal minningar
koma upp í hugann og ekki er hægt að
skrifa um þær allar, t.d. varst þú bú-
inn að endurskíra okkur systurnar:
Tinnfríður Fjóla, Vera Villirós og
Tara Túlípani.
Það gat enginn í heiminum skorið
epli eins vel og þú með vasahnífnum
sem þú notaðir í allt. Alltaf varst þú
tilbúinn að taka okkur með þér í vinn-
una, en manstu elsku afi, þegar þú
leyfðir okkur alltaf að vera á pallinum
á bílnum og gast aldrei sagt nei við
okkur þó svo að amma yrði alveg
brjáluð yfir því? En enginn mun kom-
ast með tærnar þar sem þú hafðir
hælana í ljóðagerð, við eigum safn af
ljóðum sem þú ortir við hin ýmsu
tækifæri og þau hjálpa okkur að
muna eftir því hvernig þú hugsaðir til
okkar.
Við erum svo glaðar, elsku afi,
vegna þess að við náðum allar að fá að
kveðja þig og áttum hver í sínu lagi
fallega stund með þér og rifjuðum
upp frá æsku okkar og fengum jafn-
framt að segja þér hvað við elskuðum
þig mikið en þessi stund mun alltaf
geymast í hjarta okkar.
Elsku fallegi og góði afi, við sökn-
um þín og elskum þig, og við lofum að
hugsa vel um ömmu fyrir þig.
Tinna, Tara og Vera.
Þú ert látinn eftir langa baráttu og
þó að þú að uppruna værir Þingeyr-
ingur, varðir þú þínum bestu fimmtíu
árum á Suðureyri. Þú kvæntist hing-
að og eignaðist þína „Sollu“ og börnin
fæddust hér. Þú varst einhver mesti
skipstjóri sem Suðureyri hefur átt og
þó að ég væri aldrei með þér til sjós,
kynntist ég þér sem mesta dreng-
lundarmanni sem hægt væri að hugsa
sér.
Allir þekktu bara einlægni og tak-
markalausa tryggð þína til þinna. Þú
varst einlægur félagi og kvöld eftir
kvöld skiptumst við á vísum og kvæð-
um. Ég var vinur allrar þinnar fjöl-
skyldu og þótti vænna um þig en
marga óskylda menn.
Þú varst hreppstjóri, bankaráðs-
maður, sveitarstjórnarmaður og skip-
stjóri, en síðast en ekki síst Orkubús-
starfsmaður og fjölskyldumaður með
afbrigðum og þú varst vinur. Svo góð-
ur vinur.
Svo kveð ég þig um sinn og bið Guð
að blessa þig og alla þína nánustu.
Það er söknuður í hjarta, en góður
maður hefur kvatt.
Vertu sæll og takk fyrir allt og inni-
lega samúð til þeirra sem sakna.
Kveðja frá Suðureyri, með þökk
fyrir allt.
Ævar Harðarson, Suðureyri.
Nú í lok jólahátíðarinnar barst okk-
ur sú fregn að samstarfsmaður okkar
til áratuga, Gestur Kristinsson, hafði
látist að kvöldi 5. janúar. Hversu
grimm þykja okkur örlögin oft vera,
svo miskunnarlaus og magnþrota
stöndum við. Gestur Kristinsson kom
til starfa í landi hjá Rarik 1975 sem
umsjónarmaður rafmagnsmála á
Suðureyri. Fram að þeim tíma stund-
aði hann sjómennskuna af krafti og
aflaði sér skipstjórnarréttinda ásamt
vélstjóraréttindum. Gestur var far-
sæll skipstjóri og aflaði vel. 1978 var
Orkubú Vestfjarða stofnað og gerðist
Gestur þá starfsmaður Orkubúsins
og frá þeim tíma höfum við verið sam-
starfsmenn. 1993 keypti Orkubú
Vestfjarða hitaveitu Suðureyrar og
jókst þá umfangið og starfið hjá Gesti
er hann tók við umsjón við rekstri
hennar. Fram að 1996 er göng voru
boruð á milli Suðureyrar og Flateyr-
ar voru þessir staðir oft einangraðir í
vegasambandi, því um háa fjallvegi
var að fara. Í vondum veðrum og í raf-
magnsleysi reyndi því mikið á um-
sjónarmanninn Gest að sjá um raf-
magnskeyrslu og leysa úr
margvíslegum vandamálum er upp
gætu komið og var því vinnudagar of
langir.
Glaðværðin og lífsgleðin sem skein
frá honum við okkur hér hjá Orkubúi
Vestfjarða og ég held við alla er áttu
samleið með honum, gerði það að
verkum, að öllum leið vel í návist
hans. Hetja hversdagslífsins var hann
víst, svo sem þeir hafa verið nefndir,
sem sinntu lífsstarfi sínu af alúð og
elju og lögðu alltaf allt af mörkum til
léttis og lífsyndis. Leiftrandi kátur og
lífsglaður var hann í allri sinni atorku
og óþreytandi sinnti hann hverju því
verki sem að höndum bar. Í litlu sam-
félagi er nálægðin við íbúana mikil og
samskipti umsjónarmanns í raf-
magns- og hitaveitumálum við íbú-
anna eru mikil. Lesa af mælum og
hafa lausn á hinum mörgu spurning-
um er íbúarnir spyrja. Þetta starf
leysti hann vel af hendi, bæði var það,
að hjá honum fór saman hógværð og
glaðværð og öll þau störf sem hann
sinnti, leysti hann á vandvirkan og
fullkominn hátt. Vegna mannkosta
sína þá hlóðust á hann margvísleg
trúnaðarstörf, sat í hreppsnefnd Suð-
ureyrar, í stjórn Sparisjóðs Suður-
eyrar, fulltrúi Suðureyrar á aðalfund-
um Orkubús Vestfjarða. Gestur var
hagmæltur vel og setti saman vísur
um starfsmenn og um fyrirtækið á
skemmtilegan hátt við hinar ýmsar
uppákomur og á hátíðarstundum.
Eftir áratuga samstarf er margs að
minnast og margt að þakka, við vilj-
um þakka fyrir samstarfið og við
munum minnast hans með kæru
þakklæti. Suðureyri var heimabyggð
hans allt æviskeiðið, einlægur og
sannur var hann í elsku sinni til Suð-
ureyrar og vildi veg hennar og Súg-
firðinga sem mestan og bestan. Gest-
ur varð 70 ára í lok ágúst á síðasta ári
og helt þá mikla afmælisveislu, og lét
þá hann af störfum hjá Orkubúi Vest-
fjarða. Í byrjun árs 2005 greindist
Gestur með krabbamein og barðist
hann hetjulega allt til hins síðasta.
Solla mín, ég og Olla sendum þér
og börnum þínum og öðrum ástvinum
einlægustu samúðarkveðjur. Svo allt-
of skjótt hefur sól brugðið sumri og
söknuður tregans hefur gripið huga
margra. Lífssaga Gests Kristinsson-
ar var dárík saga dugnaðar og sam-
viskusemi. Þökkum fyrir allt og allt,
blessuð sé hans mæta minning.
Kristján og Ólöf.
GESTUR INGVI
KRISTINSSON
Fleiri minningargreinar um Gest
Ingva Kristinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Þuríður Kristín;
Eðvarð Sturluson; Ásgeir Sólbergs-
son; Kristján Haraldsson.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
DAVÍÐS STEFÁNSSONAR
bónda á Fossum í Landbroti.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A7 á
Landspítala Fossvogi. Guð blessi ykkur öll.
Karítas Pétursdóttir.
Pétur Davíðsson, Þórdís Marta Böðvarsdóttir,
Ólafía Davíðsdóttir, Páll Helgason,
Hörður Davíðsson, Salóme Ragnarsdóttir,
Agnar Davíðsson, Ragnhildur Andrésdóttir,
Steinar Davíðsson, Berglind Magnúsdóttir,
Guðni Davíðsson, Brit Johnsen,
María Davíðsdóttir, Björgúlfur Þorsteinsson,
Sólveig Davíðsdóttir, Kristján Böðvarsson
og afabörn.
Sendum innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
INGIMUNDAR ÓLAFSSONAR
kennara,
Langholtsvegi 151.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir,
Böðvar Ingi Ingimundarson, Halldóra Þórdís Guðmundsdóttir,
Ólafur Örn Ingimundarson, Guðrún Þorsteinsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum fyrir auðsýnda
samúð við andlát og útför elskulegrar systur okk-
ar, mágkonu, frænku og vinkonu,
KRISTGERÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Skagabraut 25,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
A-deild Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun,
sem og öllum öðrum sem að umönnuninni komu á einhvern hátt.
Geir Þórðarson,
Valdimar Þórðarson, Helga Jóhannesdóttir
og fjölskyldur,
Pálina St. Pálsdóttir
og fjölskylda.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ALBERT ÞORVALDSSON
frá Hrísey,
andaðist þriðjudaginn 3. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Ingveldur Gunnarsdóttir,
Sigurður M. Albertsson, Hildur Gísladóttir,
Emil Albertsson, Jóhanna S. Gunnarsdóttir,
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og bróður,
SR. ÓLAFS ODDS JÓNSSONAR
sóknarprests
í Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við sóknarnefnd og starfs-
fólki Keflavíkurkirkju ásamt starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Birgir Örn Ólafsson, Helga Ragnarsdóttir,
Ólafur Ragnar Ólafsson,
Kristinn Jón Ólafsson, Bergþóra Hallbjörnsdóttir,
barnabörn og systur.