Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 52
52 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VW Passat 1,8 1998
ek. 90.000 km 2 eig. frá upph.
Álfelgur. Sjálfsk. MP3, góðir
hátalarar. Verð 850.000 kr.
Upplýsingar í síma 898 4202.
Toyota Tacoma TRD, off road,
árg. 2005, ekinn 6 þús. km. V6 245
hestöfl, sjálfskiptur, frábær bíll
til breytinga, fullt af aukahlutum
t.d. AC, læst drif, dráttarpakki,
stærri geymir, segl yfir skúffu, 6
diska CD o.m.fl. Allar nánari uppl.
í síma 893 3390.
Toyota Landcr. 90 VX árg. '01,
ek. 148 þ. km. 35" breyting. Nýja
vélin. Sumar- og vetrard. á felg-
um. Margs konar aukabúnaður.
Fallegur bíll. Smur- og þjónustu-
bók. Upplýsingar í síma 663 5987
og 693 1916.
Toppeintak! Corolla '97, ek. 117
þús. km. Virkilega vel með farið
eintak af Toyotu Corollu XLI 1,6.
Sjálfsk., ný vetrardekk, smurbók,
cd. Skipti möguleg á ódýrari.
Verð 420 þús. Upplýsingar í síma
849 6065.
Toppbíll á toppverði - Nissan
Primera, ljósgrár, sjálfskiptur, 2L
vél, dökkar rafdrifnar rúður,
geislasp., nýskoðaður og mikið
endurnýjaður, ný sumar- og vetr-
ardekk, flottur bíll á enn betra
verði. Sími 899 2000.
Til sölu M. Benz 0614 D árg.
1996. 20 farþega (25 farþega til
skólaaksturs). Uppl. í síma 452
7143 eða 690 9866.
Til sölu Ford KA
Árg. '98, ek. 85 þús. km. Grár. 3
d. 5 g. 1300cc. Bíll í góðu ástandi.
Verð kr. 300 þ. Upplýsingar í síma
898 8476.
Smáauglýsingar 5691100
Gott tækifæri. Afbragðs góður
Reno árg. 1999, sjálfsk., ek. 114
þ., til sölu. Reglulegt viðhald,
listav. 860 þ., tilboð 650 þ. Upplýs-
ingar í síma 893 0878.
ÁHUGAHÓPUR samkyn-
hneigðra um trúarlíf (Á.S.T.)
hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem orð biskups Íslands,
Karls Sigurbjörnssonar, í
sjónvarpsviðtali á NFS 2. jan-
úar, eru hörmuð, en hann
ræddi þar um samkynhneigð.
„Í áðurgreindu viðtali, sem
og í áramótapredikun sinni,
hvatti hann til þess að löggjaf-
arvaldið hugsaði sinn gang.
Orðrétt sagði biskup í ofan-
greindu viðtali á NFS: „Hjóna-
bandið á það inni hjá þjóðinni
að því sé ekki kastað á sorp-
haugana.“ Ekki er hægt að
túlka þessi ummæli á annan
hátt en þann að biskup líti á
hjónabandið sem sorphaug ef
hommar og lesbíur geti farið
með heit sín og staðfest sam-
vist sína í guðshúsum þjóð-
kirkjunnar. Getur verið að
biskup Íslands líti svo á að
sambúð homma og lesbía sé
einber ruslahaugasambúð og
ekki þess verð að hljóta náð í
húsum þess trúfélags sem
hann stýrir?
Biskup Íslands hefur ítrek-
að hvatt til samræðu um mál-
efni samkynhneigðra og kirkj-
unnar. Orð hans í viðtalinu 2.
janúar eru sannarlega ekki til
þess fallin að gera þá samræðu
opnari né vonbetri. Hætt er við
að orð hans geti spillt því
margháttaða og góða starfi
sem nú þegar á sér stað innan
þjóðkirkjunnar í því skyni að
auka skilning og byggja brýr
og auka þar með vonir okkar,
skírðra homma og lesbía um að
fá brátt sjálfsagða viðurkenn-
ingu á heitum okkar og ást í
guðshúsum þjóðkirkjunnar.
Hér skal einnig minnt á að
þjóðkirkjan er ein af mörgum
trúfélögum landsins og ef Al-
þingi heimilar að forstöðu-
menn trúfélaga geti fram-
kvæmt þann löggerning sem
felst í staðfestri samvist, varð-
ar það fleiri en þjóðkirkjuna.
Slík heimild, sem forstöðu-
menn annarra trúfélaga hafa
óskað eftir, yrði ómetanlegur
stuðningur við trúfrelsi á Ís-
landi og til að efla virðingu fyr-
ir ólíkum siðum og trúarskoð-
unum. Þessi heimild er ekki
einkamál þjóðkirkjunnar og
forystumanna hennar, heldur
varðar hún ýmsa fleiri.
Áhugahópur samkyn-
hneigðra um trúarlíf skorar á
Alþingi að samþykkja þær
breytingatillögur á lögum um
staðfesta samvist og lögum um
stofnun og slit hjúskapar, sem
Guðrún Ögmundsdóttir hefur
boðað í tengslum við frumvarp
um lagabreytingar er varða
réttarstöðu samkynhneigðra,
en réttaráhrif tillagna hennar
miða að því að prestar og for-
stöðumenn trúfélaga gætu
staðfest samvist homma og
lesbía í guðshúsum sínum með
löggerningi ef þeir æskja þess.
Annar kostur er sá að prestar
og trúfélög láti alfarið af þeim
vígslusið sem felur í sér lög-
gerning þannig að þáttur trú-
félaga og fulltrúa þeirra felist
eingöngu í blessun til handa
þeim pörum sem hana vilja
þiggja. Hér skal jafnrétti ríkja
án tillits til kynhneigðar.“
Harma orð biskups Íslands
Náttúruverndarsamtök Ís-
lands segja að stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum sé
ódýr kostur. Í tilkynningu frá
samtökunum segjast þau
byggja upplýsingarnar á út-
reikningum Landsvirkjunar.
„Í kjölfar ábendinga iðn-
aðarráðherra, Valgerðar
Sverrisdóttur, um hugsanleg-
an skaðabótarétt Landsvirkj-
unar fái Þjórsárver þá vernd
sem þeim ber hefur fyrirtæk-
ið sent frá sér minnisblað um
Norðlingaölduveitu, dagsett
9. janúar. Þar segir að „ætla
[megi] að kostnaðarauki
Landsvirkjunar ef hætt yrði
við Norðlingaölduveitu nemi
samtals 6.000–6.500 milljón-
um króna“
Sé dæminu snúið við og
spurt hver verði kostnaður
Íslendinga af stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum
kemur í ljós að hann er 20
þúsund krónur á hvert
mannsbarn miðað við að
verðgildi veranna sé 6 millj-
arðar. Verði stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum
keypt á uppsettu verði
Landsvirkjunar og kaupin
fjármögnuð með láni sem
samsvarar húsnæðisláni til
40 ára með 4,35% vöxtum
myndu árlegar greiðslur
samsvara 1.064 krónum á
mann.
Þetta er sá kostnaður sem
stjórnmálamönnum ber að
hafa í huga þegar rætt er
hvort beri að vernda Þjórs-
árver eða þrengja að lífríki
þeirra enn frekar. Verndun
Þjórsárvera er ódýr kostur.“
Náttúruverndarsamtök Ís-
lands skora á Alþingi, Ak-
ureyrarbæ og Borgarstjórn
Reykjavíkur að styðja stækk-
un friðlandsins í Þjórsárver-
um og leggjast gegn Norð-
lingaölduveitu.
Ódýrt
að stækka
friðland
Þjórsár-
vera
Grandagarði 2, sími 533 1414
Stórsýning alla helgina
2006 árgerðin komin
Tökum gamla vagninn upp í nýjan. Óvenjuhagstæð vagnalán í boði.
Kaupauki fylgir staðfestum pöntunum.
Sendum myndalista um allt land.
Upplýsingar á www.evro.is
Rangar sölutölur bíla
Vegna mistaka við vinnslu taflna um
bílasöluna á síðasta ári, sem birtust í
bílablaði í gær, verða töflurnar birtar
réttar nk. föstudag. Ekki er rétt, eins
og kom fram í frétt sem unnin var
upp úr töflunum, að Toyota RAV4
hefði verið jafn Toyota Yaris yfir
mest seldu gerðirnar á síðasta ári.
Postulínsverslun í
Hlíðasmára
Þau mistök urðu í blaðinu í gær að
gleymdist að geta um staðsetningu á
stærstu sýningu á postulínsmunum
sem haldin hefur verið hérlendis.
Sýningin er til húsa í Hlíðasmára 15.
LEIÐRÉTT
Á VEFNUM www.geirinn.is fer nú
fram undirskriftasöfnun vegna mót-
mæla vörubifreiðastjóra á auknum
völdum vegagerðarmanna til stöðv-
unar ökutækja.
Fram kemur að stuðningsmenn
telji að slíkt eigi einungis heima í
höndum lögreglu.
Undirskriftalistinn hóf feril sinn á
Akureyri og hafa nokkur hundruð
manns nú þegar skráð sig á listann.
Nú er hægt að skrá sig á hann í
gegnum netmiðillinn www.geir-
inn.is og taka aðstandendur fram að
þeir sem hafa þegar skráð sig þurfi
ekki að gera það aftur.
Vörubifreiða-
stjórar mótmæla
TENGLAR
..............................................
www.geirinn.is
NÝR sýningar- og sölusalur
fyrir Mazda verður opnaður
um helgina á Bíldshöfða 8, en
Brimborg hf. tók við umboði
Mazda í október á síðasta ári.
Að sögn Egils Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Brim-
borgar, er lóðin um 6.000 fer-
metrar og húsnæðið er á 1.820
fermetrum, þar af verður
Mazda-sýningarsalurinn á
400 fermetrum og hægt verð-
ur að koma þar fyrir tólf bíl-
um. Einnig verður Citroën-
umboðið flutt í húsnæðið í
byrjun febrúar og verður það
á 350 fermetrum. Síðan verð-
ur þjónusturými og verkstæði
fyrir aftan Citroën-salinn sem
tekur tíu bíla sem opnað verð-
ur í lok febrúar. Afköst verk-
stæðis Brimborgar eykst við
þetta um 50%.
Á árum áður var Bifreiða-
eftirlit ríkisins þar sem nýr
sýningarsalur Mazda verður
opnaður í dag en Brimborg
hefur varið nær 500 milljón-
um kr. til að koma upp hús-
næði undir fyrirtækið og í
markaðsaðgerðir. Brimborg
reiknar með að selja um 500
Mazda bíla á þessu ári. Egill
kveðst áætla að samanlagt
verði sala á Mazda og Citroën
um 1.000 bílar í góðu ári.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mazda opnar nýjan sýningarsal
mbl.is
smáauglýsingar