Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 54

Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 54
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG Á AFMÆLI Í DAG FYRIRGEFÐU, ÉG HAFÐI EKKI TÍMA TIL AÐ PAKKA ÞESSU INN ENN VANDRÆÐALEGT ÞÚ ÞARFT ELD TIL AÐ GRILLA EN YNDISLEGUR DAGUR EF ÞAÐ GERIST EKKI EITTHVAÐ BRÁÐUM, ÞÁ BRJÁLAST ÉG HANN LÍTUR KANSKI SAKLEYSISLEGA ÚT EN HANN ER ALLTAF MEÐ EITTHVAÐ RÁÐABRUGG EF ÉG GÆTI BARA SÉÐ HVAÐ LEYNIST Í HANS ILLA KOLLI ÞAÐ VERÐUR SÝNT FRÁ KRINGLUKASTINU KLUKKAN ÁTTA Í KVÖLD ÞETTA ER HREINT HRÆÐILEG DAGSKRÁ. HVER NENNIR AÐ HORFA Á FULLT AF FÓLKI VERSLA Á METHRAÐA? HAUSTIÐ ER EKKI SVO SLÆMT MAÐUR FÆR TÆKIFÆRI TIL AÐ BYRJA UPP Á NÝTT. ÞAÐ ER SVO MARGT SEM MAÐUR HEFUR AÐ HLAKKA TIL EN ÉG ER ORÐINN ÞREYTTUR Á ENDURSÝNINGUM ÉG VAR NÚ EKKI AÐ TALA UM SJÓNVARPS- DAGSKRÁNA ÉG VERÐ ALLTAF SVOLÍTIÐ NIÐURDREGINN Á HAUSTIN VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ERT FÚLMENNI AÐEINS RÓSA GÆTI HAFA SAGT ÞÉR ÞAÐ. HVAR ER HÚN? ÞETTA ER FURÐULEG LEIÐ TIL AÐ SPYRJA SPURNINGA HVÍ REYNDIR ÞÚ AÐ SNARA MIG? Dagbók Í dag er laugardagur 14. janúar, 14. dagur ársins 2006 Víkverji kom heim ádögunum eftir kvöldvakt, þreyttur og uppgefinn, til þess eins að komast að því að hann gat hvergi lagt. Hann býr í einni af einstefnugötunum í Hlíðunum, þar sem ekki er reiknað með mörgum bílastæðum, sem er allt í lagi, þar sem Víkverji kýs að aka aðeins einum bíl. Einhver nágranni Víkverja hafði ákveðið að halda innflutnings- teiti og gestafjöldinn tók upp öll laus bílastæði í Hlíðinni hans Víkverja, svo kappinn kaus ill- skásta kostinn og lagði uppi á gang- stétt. Hann passaði þó að gangandi vegfarendur fengju nóg pláss og að enginn brunahani væri fyrir. Daginn eftir fékk Víkverji sekt fyrir að leggja ólöglega. Lögreglan hafði árvökul mætt á svæðið og kom- ið auga á lögbrot hins örmagna laun- þega. Víkverji hringdi í Bílastæðasjóð, skýrði fyrir þeim stöðu mála og að ekkert stæði hefði verið laust í göt- unni. „Við getum ekkert gert í því ef þú lagðir ólöglega,“ sagði konan í símann. Víkverji spurði hvar annars staðar hann hefði átt að leggja, kannski uppi í Kringlu? Þá benti Víkverji á að engin truflun hefði verið af stöðu bílsins, enda yrði oft krappt að leggja í íbúðahverfinu. Nei var svarið. Sendu erindi. Víkverji nefndi þetta við kunningja sinn, sem kunni mun spaugilegri sögu. Hann hafði verið að aka í miðbænum og leita að stæði. Fann hann hvergi stæði fyrr en hann kom að einu sem var laust og þar var enginn stöðumælir, þótt stöðumælar væru allt um kring. Kunninginn lagði í stæðið og fór sinna erinda. Þegar hann kom til baka var komin sekt á rúðuna. Þegar kunninginn forvitnaðist um sektina fékk hann svarið: „Þú borg- aðir ekki í stöðumæli.“ En það var enginn stöðumælir, sagði kunn- inginn. „Það átti eftir að setja hann upp,“ sagði embættismaðurinn. Kunninginn hváði, fékk Kafka- kenndar hugrenningar og maldaði í móinn. Fór að lokum alla leið með málið og tapaði. Hann borgaði ekki í stöðumælinn sem aldrei var. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Leikhús | Æfingar eru hafnar á nýju leikriti eftir Árna Ibsen hjá Stopp- leikhópnum en hann fagnar 10 ára leikafmæli sínu í næsta mánuði. Vinnu- heiti verksins er Emma og Ófeigur. Leikritið fjallar á grátbroslegan hátt um tvö ungmenni og fjölskyldur þeirra en verkið er unnið undir áhrifum frá Hamlet Shakespeares. Þetta er ferðasýning, ætluð unglingum í grunn- og framhaldsskóla. Auk Árna Ibsen koma að verkinu Ágústa Skúladóttir leik- stjóri, Guðrún Öyahals sem hannar búninga og leikmynd og leikararnir Egg- ert Kaaber, Katrín Þorkelsdóttir og Sigurþór Albert Heimisson. Leikritið verður frumsýnt í lok febrúar næstkomandi. Morgunblaðið/Ásdís Nýtt leikrit Árna Ibsens MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. (Hebr. 10, 36.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.