Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 55
DAGBÓK
Ósáttur við DV
ÉG ætla að byrja á að segja að ég
er ekki mjög sáttur við DV. Ég á
erfitt með að trúa að vinnubrögð-
um blaðamannanna á DV sé svona
háttað, og hvað þá ritstjóra DV.
Þeir beinlínis ásökuðu Gísla Hjart-
arson heitinn um að hafa framið
kynferðisbrot án þess að hafa bein-
ar sannanir fyrir því. Eina rótin
sem þeir höfðu í málinu er að tveir
piltar, sem höfðu verið hjá honum í
sérkennslu, höfðu kært Gísla fyrir
kynferðisafbrot. Þetta var ekki
einu sinni komið lengra en það að
þessir tveir piltar höfðu lagt fram
kæru á hendur Gísla en var
„varla“ komið úr höndum piltanna
þegar DV ákvað að skrifa grein
um að Gísli Hjartarson væri sagð-
ur nauðga ungum piltum og ekki
einu sinni reynt að fela andlitið.
Auðvitað eiga svona grafalvarleg
afbrotamál að vera á yfirborðinu
en það fer eftir því hvernig rithátt-
ur blaðamanna er, unglingarnir
sem lögðu fram kæru eru eflaust
verr staddir núna ef eitthvað er.
Í þessu tilfelli er þetta bara
hreinn og beinn rógburður og er
það eitt það versta sem hægt er að
bendla við einn mann án beinnar
sönnunar. Þó svo ég sé ekki að
verja DV þá finnst mér sumar af
þessum ásökunum vera frekar
þungar. Margir í þjóðfélaginu eru
mjög sárir út í DV og er það full-
komlega skiljanlegt.
Ég er líka frekar ósáttur við það
að Jónas Kristjánsson, ritstjóri
DV, skuli ekki vilja viðurkenna
mistök sín.
Steinar Arason Ólafsson.
Tek undir með Ólínu
ÉG vil taka undir orð Ólínu Sig-
urðardóttur í pistlinum. Fjöldinn
er valdið láglaunafólk, sem birtist í
Velvakanda sl. miðvikudag. Sér-
staklega vil ég taka undir þar sem
hún skrifar um að ef ríkisstjórnin
haldi sínu striki áfram, þá eigi hún
von á því að henni verði ekki
greidd atkvæð í næstu kosningum.
Svo vil ég séstaklega áminna
forseta okkar að hafa ekki aftur
þau orð sem hann hafði í ræðu
sinni á nýársdag, þar sem hann
talar um eldri borgara og segir að
hann sé á leið með að verða eldri
borgari. Ég held að hann og for-
sætisráðherra þurfi ekki að kvíða
því að þeirra búi sömu örlög og
okkur.
Gunnar,
130219-4899.
Frábær þáttur
ÉG vil senda Herði Torfasyni, sem
er með þáttinn Sáðmenn söngv-
anna, kærar þakkir fyrir frábæran
þátt. Í þættinum rifjar hann upp
gamlar lagaperlur sem maður hef-
ur ekki heyrt árum saman og er
hann laginn við að finna góða flytj-
endur og góða tónlist.
Helga.
Gleraugu týndust
GLERAUGU í gylltri umgjörð, tví-
skipt, týndust líklega í Austur-
bænum rétt eftir áramót. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
554 0652.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Haj-hátíðin í Mekka er ein af mestutrúarhátíðum múslíma en það ermisskilningur, að öllum múslímumberi helst skylda til að sækja hana
að minnsta kosti einu sinni um ævina. Það á
fyrst og fremst við um þá, sem hafa efni á
ferðalaginu og eru ekki skuldunum vafðir. Sem
sagt fólk, sem getur gefið ölmusu og létt þann-
ig meðbræðrum sínum lífsbaráttuna,“ sagði
Amal Tamimi, fræðslufulltrúi í Alþjóðahúsinu,
um Haj-hátíðina, sem nú er nýlokið. Amal, sem
er fædd og uppalin í Palestínu, í Jerúsalem,
segist sjálf aldrei hafa sótt Haj-hátíðina í
Mekka af þeirri einföldu ástæðu, að hún hafi
ekki haft efni á því.
Amal sagði, að konur mættu ekki fara í þessa
ferð nema í fylgd með eiginmanni, föður eða
bróður en þó með þeirri undantekningu, að þær
mega fara nokkrar saman fái þær umboð til
þess frá karlmanni í fjölskyldunni.
Í myndartexta í Morgunblaðinu slæddist inn
sú villa, að Haj-hátíðin væri haldin til minn-
ingar um það, að Múhameð spámaður hefði
ætlað að fórna syni sínum að boði guðs en rétt
er auðvitað eins og Amal benti á, að það var
Abraham, sem ætlaði að fórna syni sínum Ísak,
sem kallaður er Ísmael hjá múslímum. Þannig
vildi guð reyna trúfesti Abrahams en færði
honum síðan lamb til að fórna.
„Múslímar hér á landi halda hátíðina með
sínum hætti og ég var með mat fyrir fjölskyld-
una, að sjálfsögðu lamb,“ sagði Amal, sem sett-
ist að hér á landi árið 1995 með fimm börn sín.
Var hún menntuð í bókhaldsfræðum og var um
skeið aðstoðarframkvæmdastjóri rann-
sóknamiðstöðvar í ættborg sinni, Jerúsalem.
Eftir komuna vann hún fyrst í fiski en 2004
lauk hún námi í félagsfræði við Háskóla Ís-
lands. Segir hún, að aðlögunin hafi vissulega
verið erfið og sinn tíma tekið að ná tökum á ís-
lenskunni. Hún hafi hins vegar alltaf verið
staðráðin í, að börnin aðlöguðust íslensku sam-
félagi sem best.
„Við erum múslímar heimafyrir,“ sagði Amal
en hlutverk hennar sem fræðslufulltrúi hjá Al-
þjóðahúsinu felst meðal annars í því að fræða
grunnskólanemendur um íslam. Segir hún, að
þar gæti oft margvíslegs misskilnings, ekki síst
í fjölmiðlum.
Trúmál | Amal Tamimi fræðir grunnskólanemendur um íslam
„Við erum múslímar heimafyrir“
Amal Tamimi er
fædd 10. janúar árið
1960 í Jerúsalem.
Lagði hún þar stund
á viðskipta- og bók-
haldsfræði og var um
tíma aðstoðar-
framkvæmdastjóri
rannsóknamið-
stöðvar í borginni.
Lauk hún námi í fé-
lagsfræði við Há-
skóla Íslands 2004 og er nú fræðslufulltrúi
hjá Alþjóðahúsinu. Á hún sex börn, sem
heita Faldsdin, Fida, Wala, Majd, Ahd og
Bissan.
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 250-300 fm einbýlishúsi
á einhverju framantaldra svæða. Staðgreiðsla í boði.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNI,
SKERJAFIRÐI EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
Til sölu
nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir
2ja, 4ra og 5 herbergja
• Tveggja herbergja 80 m²
• Fjögurra herbergja 135 m²
• Fimm herbergja 143 m²
Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og
fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum.
Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum.
Stofurnar eru 30-40 m².
Á gólfum eru flísar og gott eikarparket.
Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni. Stutt í golfvöll.
Hrauntún ehf. byggir
Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari,
í símum 896 1606 og 557 7060.
Allir í dansskóna
Harmonikuball í Glæsibæ
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, heldur dansleik í Glæsibæ
Laugardaginn 14. janúar kl. 21.30
Hljómsveitir undir stjórn Sveins Sigurjónssonar, Ingvars Hólmgeirssonar og
G.H. duoið, leika fyrir dansi, ásamt söngvaranum Þorvaldi Skaftasyni.
Mætum öll og tökum með okkur gesti
Allir velkomnir.
F.H.U.R
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
Fréttir á SMS
Reykjavíkurmótið.
Norður
♠Á4
♥DG987 A/NS
♦92
♣DG72
Vestur Austur
♠K9 ♠10876532
♥K1065 ♥432
♦ÁK875 ♦64
♣54 ♣3
Suður
♠DG
♥Á
♦DG103
♣ÁK10986
Suður spilar fimm lauf og fær út
tígulás.
Er þetta einfalt verkefni og ekki
lesandanum samboðið?
Kannski, því allir kunna að svína.
En hvaða svíningu á að taka? Það er
spurningin.
Spilið kom upp í Reykjavíkurmótinu
á þriðjudagskvöld. Helgi Jóhannsson
var einn af mörgum í vestursætinu og
hann fann eitraða vörn. Sagnir höfðu
gengið:
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar * 3 lauf
3 spaðar 5 lauf Pass Pass
Pass
Björn Eysteinsson vakti á „multi“
tveimur tíglum, sem sýnir venjulega
sexspila hálit og veik spil. Suður kom
laufinu á framfæri og Helgi meldaði
þrjá spaða „leitandi“ – til að spila á
móti spaða, en krafa í fjögur hjörtu á
móti hjarta. Norður batt svo enda-
hnútinn á sagnir með stökki í fimm
lauf.
Helgi lagði niður tígulás og sá að
þriðji slagurinn yrði að koma á spaða
eða hjarta. Fyrst var að kanna spað-
ann og Helgi valdi til þess níuna –
ekki kónginn, eins og margir aðrir
gerðu í sömu stöðu.
Sagnhafi reiknaði skiljanlega með
spaðakóngnum í austur og ákvað að
stinga upp ásnum og reyna tromp-
svíningu í hjarta. Helgi fékk þannig
þriðja slaginn á hjartakóng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. cxd5
exd5 5. Bg5 Be7 6. e3 Rbd7 7. Rf3
0-0 8. Bd3 He8 9. 0-0 c6 10. Dc2 Rf8
11. Hab1 a5 12. a3 Bd6 13. Hfe1 Bg4
14. Rd2 Rg6 15. e4 Bf4 16. Bxf4
Rxf4 17. e5 R6h5 18. g3 Re6 19. f3
Rxd4 20. Bxh7+ Kh8 21. Dd3 Be6
22. Dxd4 Kxh7 23. b4 axb4 24. axb4
Dg5 25. f4 Dg4 26. Rf1 Ha3 27. Re3
Dg6 28. Kf2 f6 29. exf6 Rxf6 30. Kg1
Bh3 31. b5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem fram fór í Búdapest í Ungverja-
landi í desember á síðasta ári. Ung-
verski alþjóðlegi meistarinn Laszlo
Gonda (2.448) hafði svart gegn koll-
ega sínum og landa David Berczes
(2.475). 31. ... Hxe3! 32. Dxe3 svart-
ur hefði einnig fengið unnið tafl eftir
32. Hxe3 Hxc3. 32. …Dc2 33. He2
Dxc3 34. Dxc3 Hxc3 svarta staðan
er nú léttunnin. 35. He7 cxb5 36.
Hxb7 Hc2 37. H7xb5 Hg2+ og hvít-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Fréttir
í tölvupósti