Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 59
MENNING
Snjóblásari
Snjóblásari 5,5 hestöfl,
vinnslubreidd 50 cm.
Fæst í BYKO Breidd,
Glerártorgi og Selfossi.
Vnr. 497103641
Snjóskófla
GINGE snjóskófla.
Vnr. 55629764 1.990
2.430
Snjóýta
GINGE snjóýta.
Vnr. 55629770 2.490
3.490
89.900
FYRIR
snjómoksturinn!
ALLT
Snjóblásari
Snjóblásari 1600W,
vinnslubreidd 38 cm.
Vnr. 55500004
9.990
FYRSTA sýning ársins í Listasafn-
inu á Akureyri, Hraunblóm, verður
opnuð í dag kl. 15. Sýningin er unnin í
samstarfi við Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar og hefur að geyma verk
eftir Danina Else Alfelt og Carl-
Henning Pedersen og félaga þeirra
Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafs-
son.
Í lok síðari heimsstyrjaldar haslaði
abstraktlistin sér völl hér á landi og
réð ríkjum næstu tvo áratugina, en
fram að því hafði natúralismi og ís-
lensk náttúra verið aðalviðfangsefni
listamanna. Sýningin er öðrum þræði
yfirlit yfir feril Svavars Guðnasonar á
tímabilinu frá 1942–49 og eru margar
af hans dýrmætustu perlum fengnar
að láni frá Listasafni Íslands og
Listasafni ASÍ, þar á meðal Gullfjöll,
Íslandslag, Stuðlaberg, Einræð-
isherrann og Hágöngur. Ennfremur
eru á sýningunni verk í eigu Menn-
ingarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Tilgangur þess að sýna saman verk
þessara listamanna er að varpa ljósi á
afmarkaðan þátt dansk-íslenskrar
listasögu. „Þessi kafli hófst á fjórða
áratug síðustu aldar þegar Svavar og
Sigurjón störfuðu báðir í Danmörku
og teygði sig til Íslands eftir stríð er
Svavar kom því til leiðar að danska
Høstudstillingen frá 1947 var sett
upp í Listamannaskálanum vorið
1948,“ segir Hannes Sigurðsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Ak-
ureyri. „Á sýningunni voru verk eftir
helstu framúrstefnulistamenn Dana
eins og Asger Jorn, Egill Jacobsen og
Ejler Bille, auk þeirra Carl-Henning
Pedersen og Else Alfelt sem komu til
að setja sýninguna upp í Reykjavík.
Þau hjónin dvöldust hér á landi sum-
arlangt, Carl-Henning í sex mánuði
en Else og dætur þeirra tvær styttra.
Tilgangur ferðar þeirra var einnig sá
að upplifa íslenska náttúru og komast
burt frá þéttbýlinu og borgarmenn-
ingunni.“
Einstakt tímabil
Á sýningunni í Listasafninu á Ak-
ureyri getur að líta hluta af þeim
myndum sem Carl-Henning og Else
Alfelt máluðu á Íslandi þetta sumar,
ásamt olíu-, krítar- og vatnslita-
verkum eftir Svavar Guðnason og
höggmyndum úr tré eftir Sigurjón
Ólafsson frá þessum tíma, sem byggj-
ast á svipuðum hugmyndum. Auk
þess er á sýningunni syrpa af mynd-
um sem Carl-Henning teiknaði með
túss á pappír þegar hann vann að
skreytingu tímaritsins Helhesten.
Hannes Sigurðsson segir að Lista-
safnið á Akureyri hafi á umliðnum ár-
um verið duglegt að hafa frumkvæði
að sýningum en það sé jafnframt
brýnt að eiga samstarf við söfn sunn-
an heiða. „Þegar Birgitta Spur, for-
stöðumaður Listasafns Sigurjóns,
sagði mér að hún hefði þetta á prjón-
unum varð ég strax mjög spenntur.
Þó aðalhlutverk Listasafnsins á Ak-
ureyri sé að sýna samtímalist er líka
mikilvægt að sinna sögunni og þarna
er einstakt tímabil á ferðinni.“
Hannes segir að sýningin nyrðra
sé talsvert frábrugðin sýningunni
sem sett var upp í Listasafni Sig-
urjóns í fyrra. „Húsakynni þessara
tveggja safna eru mjög ólík og þess
vegna þurftum við að endurskoða
sýninguna talsvert mikið. Við
ákváðum að hrófla ekkert við verkum
þeirra Else og Carls-Hennings en
skiptum alfarið um verk eftir Sig-
urjón. Á þessari sýningu erum við
einvörðungu með verk úr tré. Svo
lagði ég áherslu á að hafa yfirlitssýn-
ingu á Svavari með mörgum af hans
helstu perlum. Þetta rímar afar vel í
formi.“
Skemmtilegur samanburður
Hannes segir gaman að bera Ís-
lendingana og Danina saman. „Else
er svona kvenleg og fíngerð og maður
þarf að gefa henni næði. Hún var
undir miklum áhrifum frá íslensku
landslagi en yfirskrift sýningarinnar,
Hraunblóm, er einmitt sótt í verk eft-
ir hana. Ekki sést í fljótu bragði undir
hvaða áhrifum Carl-Henning er í sín-
um ævintýraheimi, nema þá helst frá
Paul Klee. Næmi hans fyrir áferð og
lit er hins vegar mikið og maður
skynjar mjög sterkt vissa alþjóðlega
fágun. Sigurjón situr þétt við hliðina
á honum hvað þetta varðar. Fágun
hans er fremur mið-evrópsk en ís-
lensk. Skúlptúrar Sigurjóns eru
hreinlega eins og þrívíddarútfærslur
á tússverkum Carls-Hennings. Svav-
ar er svo auðvitað lykilmaður í okkar
sögulega samhengi. Það er einhver
draugagangur í hans list. Hann ásæk-
ir mann. Svavar er svo ómstríður að
maður veit ekki alltaf hvort maður
vill hafa verkin hans hjá sér. En það
er mikill andi í þeim.“
Spurður nánar um Svavar segir
Hannes að hann sé með réttu hátt
skrifaður í íslenskri listasögu. „Björn
Th. Björnsson hefur sagt að þegar
Svavar opnaði sýningu sína í Lista-
mannaskálanum 1945 hafi verið sem
loftsteini hafi lostið niður í miðbæ
Reykjavíkur. Svo langt var Svavar á
undan sinni samtíð. Ég er þeirrar
skoðunar að hann hafi verið á undan
abstraktexpressjónismanum í Banda-
ríkjunum og þarna verða algjör kafla-
skil í íslensku listalífi. Eftir þetta tek-
ur abstraktið við og ræður ríkjum í
langan tíma.“
Hannes segir að list Svavars hafi á
þessum tíma verið fyllilega sambæri-
leg við það besta sem var að gerast
erlendis. Eigi að síður hafi hann aldr-
ei sóst eftir frama í öðrum löndum.
Sýningunni lýkur 26. febrúar, en
Listasafnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 12–17.
Myndlist | Sýningin Hraunblóm í Listasafninu á Akureyri
Rímar afar vel í formi
Svavar Guðnason: Hágöngur (Fjalla-Eyvindur), 1947, olía á striga.
Carl-Henning Pedersen: Helhestur, 1941, túss á pappír.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is