Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ORGELKVARTETTINN Appa-
rat heldur tónleika í Stúdenta-
kjallaranum í kvöld, en þetta eru
fyrstu tónleikar sveitarinnar hér
á landi síðan á Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni í október. Í
millitíðinni fór kvartettinn þó í
tónleikaferðalag til nokkurra
Evrópulanda, þar á meðal til
Þýskalands, Danmerkur og Hol-
lands.
Úlfur Eldjárn, einn organista
sveitarinnar, segir það meðvitaða
ákvörðun að spila ekki of oft.
„Við pössum upp á að spila ekk-
ert alltof oft. Þetta kemur bara í
rispum,“ segir Úlfur, og bætir
því við að tíminn á milli tónleika
hafi meðal annars verið nýttur til
þess að búa til nýtt efni, sem tón-
leikagestir megi búast við að
heyra í kvöld.
„Já það verður eitthvað af nýju
efni. Það verður heilmikið af efni
sem var ekki á síðustu plötu, sem
er reyndar orðin svo gömul að
hún var endurútgefin núna rétt
fyrir áramót.“
Aðspurður segir Úlfur að
Apparat sé í stöðugri þróun og
að alltaf megi greina nýtt hljóð
og nýjar stefnur frá einum tón-
leikum til annarra. „Það er yf-
irleitt þannig að á milli tónleika
er einhver búinn að eignast nýtt
hljóðfæri, eða þá að eitthvert
hljóðfæranna er búið að gefa upp
öndina og þá þarf eitthvert annað
hljóðfæri að fylla skarðið. Það dó
til dæmis eitt hljómborð í upphafi
síðasta tónleikaferðalags,“ segir
Úlfur. „Svo er alltaf mjög spenn-
andi ef jólin eru á milli tónleika,
að sjá hvort menn hafi fengið
einhver ný hljóðfæri í jólagjöf.“
Útrás og ný plata á leiðinni
Eina breiðskífa kvartettsins
hingað til kom út árið 2002, og
hét hún einfaldlega Apparat Org-
an Quartet. Úlfur segir að verið
sé að leggja drög að nýrri plötu,
þó óvíst sé hvenær hún komi út.
„Við erum farnir að safna í plötu
og erum að semja á fullu. En svo
þarf alltaf að trimma svolítið á
milli,“ segir Úlfur. „Við erum
ekki farnir að taka upp, en það
verður spennandi að sjá hvernig
við gerum það. Það er engin leið
að segja hvenær þessi hljómsveit
klárar eitt né neitt. En við skul-
um vona að það komi ný plata,
það er allavega stefnan.“
Apparat hefur notið nokkurra
vinsælda á erlendri grundu og
segir Úlfur að platan þeirra sé að
koma út í Evrópu á næstu mán-
uðum. „Dreifingin á henni er að
fara af stað og svo förum við út í
vor til þess að koma henni á
framfæri,“ segir Úlfur og bætir
því við að af einhverjum ástæðum
hafi sveitin mest sótt til Belgíu
og Hollands. „Það er bara ein-
hver stemning þar, eitthvert
skrifræði sem kallar á svona tón-
list, eða einhverjir þreyttir
starfsmenn. Við höfum spilað í
flestum stærstu borgunum í
Belgíu og Hollandi, og eigum
bara eftir að fara til Lúxem-
borgar. Við stefnum að því að
loka Benelúx þríhyrningnum í
vor,“ segir Úlfur að lokum.
Tónleikar | Orgelkvartettinn Apparat í Stúdentakjallaranum
Loka Benelúx-
þríhyrningnum í vor
Orgelkvartettinn Apparat: Úlfur Eldjárn, Jóhann Jóhannsson, Arnar
Geir Ómarsson, Hörður Bragason og Sighvatur Ómar Kristinsson.
Orgelkvartettinn Apparat í Stúd-
entakjallaranum í kvöld.
Húsið verður opnað kl. 22.00.
Forsala fer fram í Stúdentakjall-
aranum. 700 kr. í forsölu og 1.000
kr. við hurð.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Strákarnir snúa aftur ámánudaginn eftir stutt frí,endurnærðir og ferskir,en þeir verða á nýjum
tíma, klukkan 19.35 mánudaga til
fimmtudaga. Ýmsar nýjungar
verða á nýju ári og á meðal þess
sem þeir ætla að gera er að fjölga
leiknum atriðum, auk þess sem
þeir ætla að kynna til sögunnar
glænýja tegund af falinni mynda-
vél.
Stærsta breytingin er þó vænt-
anlega sú að þeim hefur fjölgað um
tvo. Þeir Auddi, Pétur, Sveppi og
Hugi hafa nefnilega fengið til liðs
við sig tvo fjörkálfa sem báðir hafa
getið sér gott orð fyrir almennt
sprell og frumlegheit. Annars veg-
ar er um að ræða Atla Þór Alberts-
son, sem er nýútskrifaður úr leik-
listarskólanum og er þekktur fyrir
að hafa leikið í eftirminnilegum
Atlas-auglýsingum, og nú síðast í
auglýsingum fyrir Idol-stjörnuleit.
Hins vegar gengur til liðs við
strákana Gunnar nokkur Sigurðs-
son, en hann vakti töluverða at-
hygli fyrir vasklega framgöngu í
Kvöldþættinum á Sirkus, auk þess
sem hann fór mikinn í auglýsingum
fyrir Lengjuna, þar sem hann lék
sérlegan aðdáanda enska knatt-
spyrnuliðsins West Bromwich Al-
bion.
Gunnar segir ekki auðvelt að
ganga í þetta nýja starf. „Þetta er
bara streita, því nýjum störfum
fylgir oftast mikil þreyta. Ég held
að það sé þriðji mesti streituvaldur
hjá fólki. Fyrst koma dauðsföll, svo
skilnaður og loks ný vinna. Mig
minnir að ég hafi lært þetta ein-
hvern tímann,“ segir Gunnar, sem
veit lítið um væntanlegt hlutverk
sitt í þáttunum.
„Ég hef ekki hugmynd, ég renni
bara blint í sjóinn. En væntanlega
verða þetta einhver fíflalæti fyrst
þetta byggist upp á einhverju
svona glensi. En ég veit ekkert
hvernig á að nota mig,“ segir
Gunnar, sem skapaði fremur sér-
stakan húmor í innslögum sínum í
kvöldþætti Guðmundar Stein-
grímssonar.
„Í rauninni var það fólkið sjálft
sem bjó til þennan húmor, ég get
ekki sagt að ég hafi verið á bak við
þennan húmor,“ segir Gunnar og
bætir því við að sá húmor eigi
örugglega vel við Strákana. „Þetta
var bara notaleg stemning sem
blandast vel saman við Strákana.
Ég tel enga hættu á öðru,“ segir
Gunnar að lokum.
Sjónvarp | Grínararnir Auddi, Pétur, Sveppi og Hugi fá liðsauka
Strákarnir orðnir sex
Morgunblaðið/Þorkell
Strákarnir eru orðnir sex: Auddi, Pétur, Hugi, Sveppi, Gunnar og Atli.
Gunnar Sigurðsson.Atli Þór Albertsson.