Morgunblaðið - 14.01.2006, Side 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Jóhanna
Thorsteinson
– þinn liðsmaður
2. sætiðwww.johanna.is
Framboð til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
21.janúar 2006
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
BANASLYS varð á Sæbraut í
Reykjavík í gærmorgun þegar
strætisvagn og flutningabíll lentu í
árekstri. Maðurinn sem lést var
vagnstjóri hjá Strætó bs. og var
með tóman vagn þegar slysið varð.
Tveir aðrir bílar lentu í árekstr-
inum en ekki urðu teljandi meiðsl
á neinum í þeim.
Tildrögin voru þau að strætis-
vagninum var ekið norður Sæ-
braut á hægri akrein við Súðarvog
en fór einhverra hluta vegna utan
í flutningabíl sem ók í sömu akst-
ursstefnu á vinstri akrein. Við
áreksturinn fór vagninn utan í
snjóruðning meðfram hægri veg-
kanti og hafnaði aftan á öðrum
flutningabíl. Við höggið snerist
flutningabíllinn á götunni og rakst
við það utan í fjórða bílinn sem var
jeppi. Vagnstjórinn mun ekki hafa
kastast út úr vagninum við slysið,
að sögn lögreglu.
Slysið varð kl 9.22 og var fjöl-
mennt lið lögreglu og sjúkraliðs
kallað á vettvang auk rannsókn-
arnefndar umferðarslysa. Vegna
umfangs slyssins þurfti að grípa
til víðtækra vettvangslokana og
var Sæbraut lokað frá Súðarvogi
að Kleppsmýrarvegi við Skeiðar-
vog. Lokað var til kl. 14 á meðan
unnið var á vettvangi.
Þetta er annað alvarlega slysið
sem strætisvagnstjóri verður fyrir
á nokkrum mánuðum, en skemmst
er að minnast árekstursins á mót-
um Laugavegar og Suðurlands-
brautar í byrjun september sl.
þegar Björn Hafsteinsson vagn-
stjóri missti báða fæturna í
árekstri við vörubíl.
Í yfirlýsingu frá starfsfólki og
stjórn Strætó bs. vegna slyssins í
gær kemur fram að bílstjórinn
hafi verið að ferja vagninn að at-
hafnasvæði Strætó bs. við Kirkju-
sand.
Í yfirlýsingunni kemur einnig
fram, að starfsfólk og stjórn fyr-
irtækisins séu harmi slegin vegna
slyssins. Hugur allra hjá Strætó
sé hjá fjölskyldu mannsins og er
aðstandendum hans vottuð sorg
og samúð.
Ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
Morgunblaðið/Júlíus
Mikill viðbúnaður var á Sæbrautinni þegar lögregla og sjúkralið var á vettvangi slyssins í gærmorgun. Gatan var lokuð í yfir fjóra tíma.
Strætisvagnastjóri beið
bana í umferðarslysi
ÁSGEIR Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir allt
enn óljóst um tildrög slyssins.
„Við munum skoða alla þætti
málsins eftir því sem tilefni gefst
og eiga m.a. fundi með þeim sem
sjá um mokstur og söltun á götum
borgarinnar,“ segir Ásgeir. „Það
er alltof snemmt að vera með ein-
hverjar vangaveltur um hvaða
þættir höfðu áhrif á aðdraganda
slyssins.“
Óljóst um tildrög slyssins
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær frumvarp
til nýrrar rammalöggjafar um háskóla. Með því
er ætlunin að til verði heildstæður lagarammi
um starfsemi háskóla sem taki mið af örri þróun
á háskólastiginu hérlendis og erlendis undan-
farin ár og á hann að ná til allra háskóla landsins
óháð rekstrarformi þeirra.
Þurfa að uppfylla skilyrði
Háskólar sem sækjast eftir viðurkenningu
menntamálaráðuneytisins á grundvelli frum-
varpsins munu þurfa að laga starfsemi sína að
fyrirmælum laganna og að þeim reglum og
stjórnvaldsfyrirmælum sem sett verða í fram-
haldinu innan tveggja ára frá gildistöku.
Meðal helstu atriða frumvarpsins er að
rammalög um háskóla munu varða jafnt alla há-
skóla í landinu óháð rekstrarformi. Gert er ráð
fyrir að háskólar sem starfi á grundvelli laganna
afli sér viðurkenningar menntamálaráðuneytis-
ins og til að svo megi verða þurfa þeir að upp-
fylla ákveðin skilyrði sem tíunduð eru í lögun-
um. Þá er frumvarpinu ætlað að tryggja áfram
sveigjanleika í skipulagi háskóla og er gert ráð
fyrir að þeir geti sjálfir ákveðið hvaða nám og
prófgráður þeir bjóða innan þeirra fræðasviða
sem viðurkenning þeirra nær til.
Lögð er áhersla á gæðaeftirlit með háskólum
og samræmingu prófgráða til að tryggja aukna
möguleika til samstarfs háskóla hérlendis og er-
lendis. Einnig er réttarstaða nemenda styrkt
miðað við núgildandi lög þannig að háskólaráð
geti að fenginni umsögn samtaka nemenda í við-
komandi skóla sett reglur um réttindi og skyld-
ur nemenda og um málskotsrétt þeirra innan
háskóla.
Næst hugað að sérlögum
um ríkisháskóla
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra skipaði í maí 2005 nefnd til að
endurskoða lög um háskóla. Var henni gert að
taka mið af þróun sem orðið hefur síðustu ár á
umhverfi háskólastarfs, kennslu og rannsókn-
um hérlendis og í öðrum OECD-ríkjum. Skyldu
tillögur nefndarinnar vera til þess fallnar að efla
íslenskt menntakerfi og gæði háskólamenntun-
ar hérlendis. Frumvarpið er afrakstur starfs
nefndarinnar en hún mun næst huga að endur-
skoðun gildandi sérlaga um ríkisháskólana sem
heyra undir menntamálaráðherra.
Frumvarp um nýja rammalöggjöf um háskóla kynnt í ríkisstjórn
Nái til allra háskóla
óháð rekstrarformi
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
HAFÞÓR Yngvason, sem tók við starfi for-
stöðumanns Listasafns Reykjavíkur síðast-
liðið haust, segir í viðtali sem birtist í Les-
bók í dag að nauðsynlegt sé að ala upp nýja
kynslóð reyndra sýningarstjóra til þess að
takast á við myndlistarvettvanginn. Slíkt
uppeldi álítur hann vera eitt hlutverk safn-
anna.
„Það verður að leyfa fólki að læra af
reynslunni og ala það upp til þessara starfa.
Að öðrum kosti munu listamenn ekki fá þau
tækifæri sem þeir eiga að fá innan safn-
anna; þ.e.a.s. njóta þess að fá að vinna í um-
hverfi þar sem þeir fá listrænt aðhald, fjár-
hagslegt svigrúm og raunverulega mögu-
leika á því að sýna það besta sem þeim er
mögulegt að skapa.“
Hann telur jafnframt mikilvægt að fá
aukið fjármagn til lista í menningarstarf.
„Ég sé ekki annað en að hér á Íslandi sé til
það mikill auður, að það ætti að vera hægt
að sækja fé út í atvinnulífið. [...] Allt frá því
að ég byrjaði að vinna í listunum hef ég unn-
ið við þann skilning að það þurfi að fjár-
magna listina með einkaframtaki líka.“
Leitað hefur verið leiða til að breyta
stöðu Listasafns Reykjavíkur gagnvart
samfélaginu og mynda sterkari tengsl við
atvinnulífið og þjóðfélagið sem heild, og hef-
ur í þeim tilgangi verð stofnað safnráð sem
nýverið var skipað í.
Skipað í safnráð
Listasafns Reykjavíkur
Nægur auð-
ur á Íslandi
til að fjár-
magna listir
Vill vera skrefinu á undan | Lesbók
NÝ ritstjórnarstefna DV rúmast inn-
an siðareglna Blaðamannafélags Ís-
lands að sögn Björgvins Guðmunds-
sonar, sem ásamt Páli Baldvini
Baldvinssyni hefur tekið við ritstjórn
DV eftir að Jónas Kristjánsson og
Mikael Torfason sögðu af sér sem rit-
stjórar í gærmorgun.
„Nýjum mönnum fylgja nýir siðir og
við munum móta ritstjórnarstefnu eft-
ir okkar áherslum,“ segir Björgvin.
„Ég tel að sú ritstjórnarstefna muni
rúmast innan siðareglna Blaðamanna-
félags Íslands. Áherslurnar verða fjöl-
breyttari, við munum leggja meiri
áherslu á málefni sem tengjast stjórn-
málum og viðskiptum auk þess að
halda áfram að fjalla um dóms- og lög-
reglumál.“ Björgvin segir ljóst að DV
muni ganga lengra en Fréttablaðið og
Morgunblaðið í nafna- og myndbirt-
ingum í sakamálafréttum, en þó verði
tekið tillit til þeirrar gagnrýni sem
fram hefur komið undanfarið.
Í yfirlýsingu Jónasar og Mikaels
segir að nauðsynlegt sé að skapa að
nýju ró um DV og til að svo megi verða
segi þeir upp störfum sínum sem rit-
stjórar.
Fjölbreyttari
áherslur nýrra
ritstjóra
Ritstjóraskipti | 4 og 6