Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 67
DAGBÓK
Dummy texti,Dummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
• Stór heildverslun með byggingavörur.
• Meðalstórt iðnfyrirtæki á sérhæfðum markaði. 11 starfsmenn.
• Þjónustufyrirtæki með vinnuvélar. Föst verkefni. Góð afkoma.
• Heildverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 60 mkr. Góður hagnaður.
• Dalakjör. Verslun, veitingasala og bensínstöð í Búðardal. Góður og vaxandi rekstur
með ágætan hagnað. Einstakt tækifæri fyrir duglegt fólk.
• Sérverslun - heildverslun með rafvörur.
• Heildverslun í Bretlandi með leikföng. Ársvelta 1.100 mkr.
• Matvælavinnsla með góða markaðsstöðu.
• Heildverslun í Bretlandi með náttúruleg vítamín. Ársvelta 2.000 mkr.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 400 mkr.
• Meðalstór trésmiðja. Leiðandi fyrirtæki á sínu sérsviði.
• Stór heildverslun með þekktar vörur, m.a. fyrir byggingariðnaðinn.
• Glæsileg lítil gjafavöruverslun í Kringlunni.
• Traust fasteignasala óskar eftir framsæknum fasteignasala sem meðeiganda. 5
starfsmenn í dag en þörf á fleirum.
• Lítið málmiðnaðarfyrirtæki með mikla sérstöðu.
• Umboðs- og heildverslun á Vesturlandi. Ársvelta 150 mkr.
• Mjög arðbært sandblástursfyrirtæki. Mikil föst verkefni. Gott tækifæri.
• Þekkt heildsala með byggingavörur.
• Lítil heildverslun með fjölbreyttar vörur og góðan sölumann óskar eftir sameiningu
við stærra fyrirtæki. Góð framlegð.
• Arðbært vinnuvélaverkstæði með föst verkefni.
• Stórt þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
• Þekkt heildverslun með gólfefni.
• Meðalstórt framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 150 mkr.
• Rótgróið fyrirtæki í hreinsun og útflutningi æðadúns. Góð afkoma. Hentar til
flutnings út á land.
• Stórt tréiðnaðarfyrirtæki.
• Deildir úr heildverslunum með ýmsar vörur. Hentugar sem viðbót fyrir
heildverslanir.
Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989
• Mjög stór tískuvöruverslun. Góður rekstur.
• Umboðsfyrirtæki í útflutningi á ferskum fiski. Góð sambönd.
• Þekkt iðnfyrirtæki með góðri afkomu. Ársvelta 120 mkr.
• Efnalaug og þvottahús í stóru hverfi.
• Stórt veitingahús í Grindavík.
• Skilta- og merkjagerð. Ágæt afkoma.
• Stór innflutningsverslun með tæknivörur. Ársvelta 1200 mkr.
• Heildverslun með matvörur. Selur mikið í mötuneyti. Ársvelta 300 mkr.
• Núðluhúsið. Veitingastaður með sérstöðu í eigin húsnæði í miðbænum. Góð afkoma
og miklir möguleikar.
• Lítið en rótgróið umboð í heilsuvörum, m.a. fyrir matvörumarkaði.
• Meðalstórt bílafyrirtæki. Þekkt umboð.
• Lítið ljósmyndafyrirtæki í fullum rekstri með góða fasta samninga. Stór
viðskiptamannahópur.
• Rótgróið danskt fyrirtæki í álaeldi. Ársvelta 100 mkr. Góður hagnaður.
• Lítið sérhæft hreingerningafyrirtæki með fasta viðskiptavini.
• Meðalstórt framleiðslufyrirtæki með matvæli. Leiðandi á sínu sviði.
• Þekkt þjónustufyrirtæki, leiðandi á sínu sviði, óskar eftir meðeiganda sem tæki á
nokkrum árum við af núverandi eiganda. Leitað er að heiðarlegum og
þjónustuliprum dugnaðarforki.
• Heildverslun með þekkt bjórumboð o.fl. Ársvelta 100 mkr.
• Lítil sérverslun fyrir konur í Kringlunni.
• Meðalstórt iðnfyrirtæki á sérhæfðum markaði. 11 starfsmenn.
• Þjónustufyrirtæki með vinnuvélar. Föst verkefni. Góð afkoma.
• Heildverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 60 mkr. Góður hagnaður.
• Dalakjör. Verslun, veitingasala og bensínstöð í Búðardal. Góður og vaxandi rekstur
með ágætan hagnað. Einstakt tækifæri fyrir duglegt fólk.
• Sérverslun-heildverslun með rafvörur.
• Matvælavinnsla með góða markaðsstöðu.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 400 mkr.
• Meðalstór trésmiðja. Leiðandi fyrirtæki á sínu sérsviði.
Í smíðum
Af sérstökum ástæðum er til sölu
mjög falleg 115 fm íbúð á efstu hæð
í fjölbýlishúsi í Sóltúni.
Upplýsingar í síma 699 6280
Kjarval og Þórarinn B. óskast
Óska eftir að kaupa fallegt olíumálverk eftir Kjarval.
Einnig mynd eftir Þórarinn B. Þorláksson.
Tilboð merkt: „Málverk“
75 ÁRA afmæli. Í dag, 2. apríl,verður 75 ára Þórir S. Her-
sveinsson, Klapparstíg 1a. Þórir og
kona hans, Guðbjörg Ármannsdóttir,
verða að heiman.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 2. apríl, ersjötug Alda Ármanna Sveins-
dóttir, myndlistarkona og kennari,
Logafold 46, Reykjavík.
Gljúfrin þrjú
25. MARS sl. birtist pistill eftir Mar-
gréti Jónsdóttur, Akranesi, um
Gljúfrin þrjú í Yangtze fljótinu í
Kína. Undrast hún þar yfir því að
ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsi
ferð um þessi gljúfur þar sem þau,
eins og hún segir, „eru ekki lengur
til“.
30. mars sl., skrifar Ása María
Valdimarsdóttir, fararstjóri og
framleiðslustjóri sérferða hjá
Heimsferðum, pistil, sem byrjar á
setningunni: Hafa skal það sem
sannara reynist. Hér rengir hún það
sem Margrét Jónsdóttir skrifar.
Ég legg hér orð í belg. Árið 1994,
um haustið, fór ég um Gljúfrin þrjú í
skemmtiferðaskipi. Ferðin var hin
ánægjulegasta, því gljúfrin voru
stórkostleg. Ég fór svo sömu leið
aftur, vorið 2004. Þess er skemmst
frá að segja, að ekki var þá um
gljúfraferð að ræða, vegna þess hve
mikið vatn var komið í uppistöðulón-
ið, sem er verið að gera, vegna stóru
virkjunarinnar. Nú sá maður bara
fjallshlíðar á bökkum fljótsins, en
gljúfrin voru farin. Síðan eru liðin 2
ár og allan tímann hefur vatnsborðið
hækkað, og enn síður hægt að sigla
um Gljúfrin þrjú í dag.
Enn á eftir að hækka í lóninu, en
áætlað er að það verði árið 2009, sem
nóg verði komið, en miðað er við að
yfirborð fljótsins verði aldrei hærra
en 180,4 m.
Ég vil líka hafa það sem sannara
reynist, því skrifa ég þessar línur.
Margrét Jónsdóttir hefur rétt fyrir
sér.
Unnur Guðjónsdóttir,
Kínaklúbbi Unnar.
Um réttan og
rangan framburð
MIG langar til þess að vekja athygli
á lélegri stöðu íslenska Rík-
isútvarpsins í framburði á tungu
frænda okkar, Dana. Þetta er gömul
sambandsþjóð og Íslendingar ættu
enn að kunna skil á framburði
danskrar tungu. Það er leitt að
heyra starfsmenn Ríkisútvarpsins
kalla mann Maddsen sem heitir
Madsen eins og hann sé geðsjúkur.
Sama er að segja með Nilsen. Fræg-
asta tónskáld Dana var Karl Nielsen
(Nílsen) en útvarpsmenn segja Niel-
sen.
Fleiri dæmi mætti nefna. Þetta er
til vansa, við eigum að sýna tungum
annarra þjóða þá virðingu sem við
sýnum eigin tungu.
Pétur Pétursson, þulur.
3 kisur óska
eftir góðum heimilum
MATUR og rúm fylgja með. Ara-
gorn er svartur 2½ árs köttur (geld-
ur). Ófeigur Legolas er bröndóttur
3½ árs köttur (geldur). Og Snædís
Sól er 4 ára læða. Uppl. í síma
691 0190.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | ATH.! Göngu-
Hrólfarnir fara frá Aflagranda alla
miðvikudaga kl. 11 til 12, létt ganga,
allir velkomnir.
Breiðfirðingabúð | Félag Breið-
firskra kvenna heldur fund 3. apríl
kl. 20.
Dalbraut 18 - 20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Handverksstofa Dalbrautar 21-
27 opin frá 8-16. Uppselt í menning-
arferðina í Skálholt. Upplýsingar as-
dis.skuladottir@reykjavik.is og síma
588 9533. Hvernig væri að líta inn,
kíkja í blöðin og fá sér kaffisopa?
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Caprí-tríó leikur. Næsta leiksýning
Snúðs og Snældu á Glæpum og
góðverkum verður föstudaginn 7.
apríl kl. 14 í Iðnó. Miðasala í Iðnó í
síma 562 9700 og við innganginn.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20 í
Stangarhyl 4, Caprí-tríó leikur fyrir
dansi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Þeir sem hafa pantað á Sparidag-
ana á Örk vinsamlegast hringið í
Garðaberg, 525 8590 á næstu dög-
um og staðfestið. Í Garðabergi hefur
Atli Örn Jensen opnað myndlist-
arsýningu. Þetta er yfirlitssýning til
minningar um Guðfinnu Árnadóttur,
eiginkonu Atla Arnar, sem lést 12.
ágúst síðastliðinn. Á sýningunni eru
verk allt frá árinu 1942 og til dags-
ins í dag. Sýningin stendur til 5.
maí.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13-16
,,Margræðir heimar“, opin myndlist-
arsýning Vals Sveinbjörnssonar. Á
morgun kl. 13: fræðsla og kynning á
heilsuvernd aldraðra, allir velkomnir.
Miðvikud. 5.apríl kl. 10.30 koma
nemendur frá Fellaskóla og dansa
með danshópnum, eftir hádegi
koma eldri Hrunamenn í heimsókn.
Hæðargarður 31 | Það eru allir allt-
af velkomir í félagsstarfið í Hæð-
argarði 31. Fastir liðir eins og venju-
lega. Uppselt í menningarferðina í
Skálholt. Munið Páskabingóið 11. apr-
íl. Byrjað að selja kl. 13. Glæsilegir
vinningar. Allar upplýsingar í síma
568 3132 asdis.skuladottir@reykja-
vik.is
Kvenfélag Garðabæjar | Fé-
lagsfundur verður að Garðaholti
þriðjudaginn 4. apríl og hefst kl. 20.
Kaffinefndir 14-16-18.
Kvenfélagið Heimaey | Kvenfélagið
Heimaey verður með óvissuferð
mánudaginn 3. apríl. Mæting er kl.
18, við kirkjuna í Mjóddinni. Þátttaka
tilkynninst til stjórnar félagsins.
Lífeyrisþegadeild Landssambands
lögreglumanna | Lífeyrisþegadeildin
heldur sinn reglulega sunnudags-
fund sunnudaginn 2. apríl kl. 10 og
verður hann haldinn að þessu sinni í
kaffistofu lögreglustöðvarinnar á
Hverfisgötu 113-115, 4. hæð, gengið
inn um aðaldyr. Athugið breyttan
fundarstað.
Vesturgata 7 | Kl. 12.45 verður
spilað páskabingó. Jarðaberj-
arjómaterta í kaffitímanum. Allir eru
velkomnir.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Kvenfélag Háteigs-
sóknar verður með páskabingó,
þriðjudaginn 4 apríl. Dagsskrá:
Klukkan 20. Taizébæn í kirkju. Kaffi
og Bingó í Safnaðarheimilinu. Bingó-
spjald og kaffi, 1000 kr. Aðrar Kven-
félagsvinkonur okkar velkomnar.
KFUM og KFUK | Enginn fundur í
kvöld. Sameiginleg ferð með AD
KFUM í Sólheima í Grímsnesi
fimmtudag 6.apríl. Brottför frá
Holtavegi 28 kl. 18.30. Fundarefni:
Pétur Sveinbjarnarson, hugleiðing:
Sr. Birgir Thomsen. Kaffiveitingar.
Skráning í s.588 8899 til 4.apríl.
Greitt við brottför. Allar konur eru
velkomnar.
Saklaus sögufölsun.
Norður
♠D63
♥Á6432
♦103
♣D93
Vestur Austur
♠KG105 ♠87
♥D1075 ♥KG8
♦K6 ♦DG9872
♣1065 ♣82
Suður
♠Á942
♥9
♦Á54
♣ÁKG74
Þetta er spil gærdagsins aftur (frá
Íslandsmótinu) með þeirri mikilvægu
breytingu að norður og vestur hafa
skipt á einum tromphundi – laufníu og
sexu.
Rifjum upp: Suður spilar fimm lauf
eftir opnun vesturs á veikum tveimur í
tígli:
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar 3 lauf
3 tíglar 3 hjörtu Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 5 lauf
Dobl Allir pass
Út kemur tígulkóngur, sem er dúkk-
aður, og meiri tígull. Suður drepur og
spilar nú strax hjartaás og trompar
hjarta. Síðan þriðja tíglinum.
Það er augljóst að vestur má hvorki
missa hjarta né spaða – þá færir hann
sagnhafa slag á silfurfati. Hann verst
því best með því að HENDA trompi í
þriðja tígulinn!
En það afkast er ekki ókeypis, því nú
hefur sagnhafi ráð á að trompa hjarta
tvisvar í viðbót. Sem sagt: Hann yf-
irtrompar með laufníu og stingur
hjarta hátt. Tekur hátt lauf heima og
spilar blindum inn á drottninguna. Nú
er lauf varnarinnar búið. Þá er hjartað
trompað frítt með síðasta laufinu
heima og loks smáum spaða spilað að
drottningunni þar sem hjartafríslag-
urinn bíður.
Þreföld þvingun á vestur í spaða,
hjarta og TROMPI.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða