Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 31 Marteinn gæsasteggurbíður þess á Skániað gæsirnar komisunnan að á leiðsinni norður í Lapp- land. Þegar þær koma reynir hann að hefja sig til flugs. Einu sinni tókst það. Þá var hann með Nilla Hólm- geirsson á bakinu og úr varð æv- intýri sem Selma Lagerlöf skrifaði niður. Ævintýri um heimkynni sænskra barna, ævintýri um landið, náttúruna, dýrin og mennina. Fyrsti hlutinn birtist á bók fyrir nákvæm- lega hundrað árum. Sagan hefst 20. mars, Marteinn gæsasteggur er van- ur að líta til himins um þetta leyti árs. Nú getur hann það ekki lengur, það er búið að loka hann inni og hæpið að hann muni nokkurn tíma aftur líta dagsins ljós. Um daginn fannst dauð gæs í Oskarsham. Von- andi var það ekki Akka gæsa- mamma, leiðtogi villtra gæsa á leið- inni norður í land. Hænur líta aldrei til himins, ekki heldur þær sem hafa hingað til fengið að spígspora úti. Þær horfa stöðugt á jörðina í leit að æti en blimskakka stundum augunum hver á aðra og segja gvúaaag. Í afkekktum firði á vesturströnd Noregs er lítill bær sem heitir Dale. Barnaskólinn þar heitir Dingemoen- skule. Börnin í skólanum hafa rekið hænsnabú á skólalóðinni. Hænurnar voru marglitar eins og íslensku land- námshænurnar og þær hafa fengið að vera úti. Börnin hafa gefið hæn- unum korn og matarafganga og feng- ið egg að launum. Um daginn voru allar hænurnar drepnar. Börnunum var sagt að það væri út af fuglaflens- unni. Uppi á brattri hæð fyrir ofan þorp- ið er norræn listamiðstöð með miklu útsýni. Þar eru líka nokkrar litskrúð- ugar hænur sem hafa búið við svipuð lífsgæði og hænurnar í barnaskól- anum. Um daginn nefndi for- stöðukonan að nú þyrfti að drepa tvo hana og líklega þyrfti að drepa allar hænurnar áður en farfuglarnir kæmu. Ég bauðst til að drepa hanana og stakk upp á að við myndum halda veislu um helgina og borða coq au vin. Ég veit ekki hvað kom yfir mig. Forstöðukonan leit hissa á mig, sagði svo að ég myndi fá tvo 18 ára gamla aðstoðarmenn. Þeir eru frá Afríku en eru í alþjóðlegum menntaskóla hérna rétt hjá, sagði hún. David er frá Sierra Leone, Múhabí frá Lesotho. Við gripum tvo hana, annan mó- rauðan, hinn rauðleitan með hvítum flekkjum. Ég var með flugbeittan, bláan Fiskarshníf í annarri hendinni og hélt um vængina á mórauða han- anum með hinni. Hann var með eld- rauðan kamb og gul augu sem störðu út í tómið. Múhabí kenndi mér að taka vængina saman, draga þá út, leggja til hliðar á jörðina og stíga létt á þá með vinstri fæti. Eins gerir mað- ur með lappirnar og stígur á þær með hægri fæti. Síðan er tekið undir hálsinn, þétt upp við haus- inn svo han- inn nái ekki að pikka í mann, og fiðrið greitt frá hálsinum þar sem mað- ur ætlar að bregða hnífn- um. Það er erfitt að skera lifandi dýr á háls. Erfiðast er þó að halda fuglinum niðri haus- lausum. Hann er svo sterkur. Þykkt og heitt blóðið lekur úr strjúpanum. Hausinn með stoltum kambinum liggur í hálfs metra fjarlægð frá búknum. Ein, tvær, þrjár mínútur: Hann er enn að berjast um. Blóðugur, sinaber strjúpinn teygist út úr búkn- um og reigist upp og niður eins og hann vilji lyfta hausnum upp eða berja honum í jörðina. Það er hræði- legt, það er dásamlegt. Lífið er sterk- ara en dauðinn. Upp úr strjúpanum heyrist gvúaaag, gvúaaag. Hvernig ætli það sé að skera hausinn af manni? David treystir sér ekki til að slátra en hann hreinsar fiðrið af skrokk- unum, þótt það sé nú álitið kven- mannsverk heima hjá mér segir hann hlæjandi. Hann fjarlægir úr þeim inn- yflin og tekur hjartað, lifrina og nýr- un frá. Þetta steikjum við sér, segir hann, þetta fá slátrararnir. Upp- skriftin The perfect coq au vin fannst á netinu. Eftir matinn var rætt um og deilt um hvort fuglaflensan væri hyst- ería og hvort mennirnir hefðu skilyrð- islausan rétt til að drepa dýr. Coq au vin Bréf frá Noregi Hjálmar Sveinsson Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante í vor og sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti á lægsta verðinu á www.heimsferdir.is. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Alicante í vor og sumar frá kr.10.799 Kr. 10.799 Flugsæti aðra leið með sköttum. Netverð. Ath. takmarkað sætamagn í boði. Kr. 22.188 Flugsæti báðar leið með sköttum. Netverð. Ath. takmarkað sætamagn í boði. Munið Mastercard ferðaávísunina Tryggðu þér lægsta verðið! Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.