Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 23
ið 2001 vann Andlát, og 2002 sigruðu
piltarnir í Búgdrýgindum. Ári síðar,
árið 2003, sigruðu Dáðadrengir með
sína undarlegu samsuðu af gleði-
poppi og hipphoppi, en árið 2004 náði
Mammút að spila til sigurs. Þess má
til gamans geta að krakkarnir í
Mammút eru um þessar mundir að
senda frá sér sína fyrstu breiðskífu.
Í fyrra sigraði Jakobínarína, og hef-
ur nær ekkert lát verið á spila-
mennsku hjá þeim síðan, og í fyrra-
dag sigraði Vestmannaeyjabandið
The Foreign Monkeys með sínu
kraftmikla indírokki sem endur-
speglar vel það sem er að gerast í
tónlist í dag.
Mikilvægi keppninnar
Eftir að hafa farið yfir söguna sést
best að þær sveitir sem sigra þessa
keppni hafa langflestar fengið heil-
mikið fyrir sinn snúð. Verðlaunin eru
oftast upptökutímar í hljóðverum og
úttektir úr hljóðfærabúðum, en
þarna hefur líka átt sér stað þróun. Í
upphafi voru um 30 sveitir sem tóku
þátt, en í dag eru þær 50. Verðlaun-
unum hefur að sama skapi fjölgað,
og nú eru, ásamt hinum hefðbundnu
efstu þremur sætum, veitt verðlaun í
flokki bestu hljóðfæraleikaranna og
söngvaranna, og einnig fær athygl-
isverðasta hljómsveit Músiktilrauna
ár hvert sérstök verðlaun.
Vinningshafar ársins 2006 eru nú
heima hjá sér að handfjatla verð-
launagripi, en þeir fá einnig að koma
fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í
október nk, úttektir í ýmsum búðum,
upptökutíma í hljóðveri og flugmiða
til Manchester til að kíkja á músíklíf
þar í borg. Þessi verðlaun öll eru
greinilega heilmikil verðmæti, en hin
raunverulegu verðmæti liggja þó í
ómetanlegri reynslu sem þessi
keppni skilar sveitunum.
Það má fullyrða að allar þær
hljómsveitir sem taka þátt í Músik-
tilraunum, hvort sem þær komast á
verðlaunapall eða ekki, hafa unnið,
því þær hafa þurft að vinna saman
sem einn maður við þrotlausar æf-
ingar og skipulag. Það eru mjög
raunveruleg og eftirsóknarverð
verðlaun að fá að taka þátt í ein-
hverju sem hefur jafn mótandi áhrif
á ungt fólk og svona tónlistarveisla
er. Þetta skiptir máli upp á fé-
lagsmótun, sjálfsstyrkingu og víð-
sýni allra sem þetta reyna, en þó hef-
ur þetta mest áhrif á þá sem taka
keppnina alvarlega og gera sitt
besta.
Alltaf sami nördinn!
Ég sótti fyrst undanúrslitakvöld
Músiktilrauna árið 1986, þegar fé-
lagar mínir úr Keflavík voru að taka
þátt, og smöluðu þeir öllum sem
vettlingi gátu valdið inn í rútu sem
brunaði beint í gamla Tónabæjar-
húsið. Á leiðinni var sungið og trallað
og allir voru handvissir um að sveitin
myndi ekki bara komst í úrslit, held-
ur vinna þessar Músiktilraunir.
Stemmningin þarna í rútunni hefur
því ekkert verið ósvipuð því sem Ís-
lendingar upplifa árlega við að taka
þátt í Evróvisjón-söngvakeppninni.
Þetta var alveg gjörsamlega ný
reynsla fyrir mér. Ég tilheyrði hópi
af fólki sem átti það eitt sameiginlegt
að elska tónlist nógu mikið til að
leggja á sig rútuferðir fram og til
baka til þess eins að styðja það sem
það trúði á. Tilfinningin um að allir
legðust saman á eitt til að ná ein-
hverjum árangri var framandi og
jafnframt spennandi, og þarna í rút-
unni hef ég eflaust fengið mitt fyrsta
námskeið í hópefli. Í minningunni
var kvöldið ógleymanlegt, þrátt fyrir
að okkar band hafi ekki sigrað. Í
staðinn hitti ég skemmtilega krakka
frá öllum landshlutum, skiptist á
upplýsingum um góðar plötur sem
voru nýkomnar út, fékk ábendingar
um skóla um allt land sem væru að
gera góða hluti, frétti af bestu búð-
unum til að kaupa flíkur og fylgihluti
og gleymdi öllu nema því sem ég
hafði mestan áhuga á í heiminum;
nefnilega tónlist.
Þegar ég sit í dómnefnd Músiktil-
rauna, nú tuttugu árum síðar, sé ég
að það hefur í raun og veru ekki mik-
ið breyst. Ég hitti enn skemmtilegt
fólk og skiptist á upplýsingum um
bestu plöturnar sem eru nýút-
komnar, um góðar búðir sem selja
áhugaverða hluti fyrir tónlistarelsk-
andann og um nýjar sveitir. Ég hitti
fólk af öllu landinu og fæ fregnir um
það sem er í gangi hjá því. Mikilvæg-
ast af öllu er þó að ég gleymi stund
og stað og upplifi það sem mestu
skiptir máli í lífinu, en það er tónlist
beint í æð. Líklega er ég og verð tón-
listarnörd, og þakka bara fyrir að fá
að vera það í hópi annarra. Takk fyr-
ir mig.
fyrir alla
Who Knew Furstaskyttan