Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NOKKUR órói hefur verið um starfsemi Strætó að undanförnu. Okkur virðist sem hámarki hafi verið náð í fjöl- miðlum á und- anförnum dögum og vonum að svo sé. Það er staðreynd að þorri vagnstjóra er ánægð- ur í starfi. Það sýnir m.a. yfirgnæfandi fylgi við nýlega gerða kjarasamninga sem samþykktir voru með einu mótatkvæði. Yf- irgnæfandi fjöldi vagnstjóra hefur óbeit á þeim vær- ingum sem hafa verið innan hópsins og vill ekkert frekar en fá að vinna sín störf í fullri sátt og veita viðskiptavinum Strætó góða þjón- ustu. Sameinuð get- um við gert góða hluti því við erum bundin órjúfandi böndum; við- skiptavinir, starfsmenn og Strætó bs. Miklar breytingar hafa átt sér stað á störfum okkar á síðustu mánuðum með breyttu leiðakerfi, tímatöflum og vaktakerfi. Leiða- kerfisbreytingin 23. júlí sl. var gíf- urlega umfangsmikil og má segja að um byltingu hafi verið að ræða frekar en breytingu. Flestir undu glaðir við sitt en samt báru stórir og litlir hópar skarðan hlut frá borði og undu hag sínum illa. 5. mars sl. voru aftur gerðar breytingar á leiða- kerfinu og voru þær byggðar á at- hugasemdum frá vagnstjórum og við- skiptavinum Strætó. Meðal annars var bætt við fjórum leið- um og sýnist flestum að vel hafi til tekist. Kerfið nálgast gamla leiðakerfið aftur og margir tóku gleði sína á ný. Ógerningur er að útbúa leiðakerfi sem er fullkomið frá fyrsta degi. Á sumum leiðum nýja kerfisins hefur tímaáætlun verðið í þrengra lagi og það hefur skapað óþæg- indi hjá sumum við- skiptavinum okkar og vagnstjórum. Þetta er auðvelt að laga og verður komið í lag innan tíðar, því yfirmenn Strætó hafa unnið að lagfæringum á tíma- töflunum sem líta dagsins ljós á næstu dögum, til úrbóta fyrir far- þega og vagnstjóra. Þessar breytingar hafa reynt á þolrif margra og margt hefur ver- ið sagt og gert í ljósi þess aukna álags sem á vagnstjórum hefur hvílt. En nú er mál að linni. Nú þurfa allir starfsmenn Strætó að taka höndum saman um að gera gott fyrirtæki betra. Við megum ekki eitra líf okkar með baktali og Gróusögum. Það skemmtir engum nema skrattanum. Nýtt vaktakerfi á að taka gildi 9. apríl nk. Kerfið býður upp á ýmsa möguleika fyrir vagnstjóra sem geta nú valið vaktir eftir sín- um þörfum. Meðal annars er boðið er upp á möguleika á sveigjanleika í starfi, til dæmis með því að vinna eingöngu á morgunvöktum, dagvöktum, kvöldvöktum eða blönduðum vöktum, svo eitthvað sé nefnt. Lögmæti vaktakerfisins og samræmi við kjarasamninga liggur ekki fyrir þegar þessar lín- ur eru skrifaðar. En sérfræðingar Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar og BSRB eru að vinna að skoðun á lagalegum og samn- ingslegum ákvæðum og hljótum við að una úrskurði þessa mæta fólks. Nú er komið leiðakerfi sem sátt er um. Almenn ánægja er með nýjan kjarasamning og nú eigum við öll að einbeita okkur að því að gera almenningssamgöngur að raunverulegum valkosti hér á höf- uðborgarsvæðinu. Við viljum frið um Strætó Heimir L. Fjeldsted og Úlfur Einarsson fjalla um almenningssamgöngur ’Almenn ánægja er meðnýjan kjarasamning og nú eigum við öll að ein- beita okkur að því að gera almenningssam- göngur að raunveruleg- um valkosti hér á höf- uðborgarsvæðinu.‘ Heimir L. Fjeldsted Höfundar eru vagnstjórar og trúnaðarmenn hjá Strætó bs. Úlfur Einarsson Hvort sem þú þarft að selja eða leigja atvinnuhúsnæði, þá ertu í góðum höndum hjá Inga B. Albertssyni. Nú er góður sölutími framundan, ekki missa af honum. Vandaðu valið og veldu fasteignasölu sem er landsþekkt fyrir traust og ábyrg vinnubrögð. Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali ATVINNUHÚSNÆÐI HAFÐU SAMBAND Lóðir undir atvinnuhúsnæði Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17. Kópavogi er með til sölu tvær áhugaverðar lóðir undir atvinnuhúsnæði við Iðndali í Vogum á Vatnsleysuströnd. 150088/150089 Nánari upplýsingar á skrifstofu FM Sími 550-3000. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS - Ásvallagata 15 1.h. Glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja til 4ra herbergja, 96,7 fm íbúð á 1. hæð og aukaherbergi í kjallara, sem er í útleigu. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu, sem er samliggjandi við eldhús, tvö herbergi, gang og baðherbergi. Íbúðin er mikið endurnýjuð, m.a. eldhús, gólfefni, baðherbergi o.fl. Öll ljós og lýsing er frá Lumex. Rósettur og gifslistar eru í loftum. Mikil lofthæð og stórir gluggar gera íbúð- ina mjög bjarta og skemmtilega. Suðursvalir eru frá eldhúsi út í fal- legan bakgarð. Um er að ræða fallegt þríbýlishúsi í gamla vestur- bænum í göngufæri frá miðbænum og verslunum. Verð 27,5 millj. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG FRÁ KL. 14-17. Rannveig á bjöllu. Um er að ræða húsnæði sem er glæsilega innréttað fyrir rekstur snyrtistofu og verslunar. Húsnæðið er til leigu ásamt innréttingum og mjög góðri vinnuað- stöðu. Einnig er mögulegt að kaupa eða leigja núver- andi rekstur sem er í hús- næðinu. Tækifæri fyrir snyrti-, nagla- og förðunarfræðinga. Mjög góð staðsetning, næg bílastæði. Til leigu 130 fm verslunarhúsnæði við Engjateig - Listhúsið Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. www.valholl.is Sími 588 4477 Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, símar 588 4477 og 822 8242. Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasteignasali www.klettur.is 3ja herbergja íbúð í fallegu fjöleignahúsi við Álfkonuhvarf á Vatnsenda í Kópavogi. Íbúðin er alls 92,7 fm (þar af geymsla 6,7), íbúðin er á fyrstu hæð og gengið er inn í hana úr sameign, með íbúðinni fylgir stæði í bíla- geymslu og sérafnotaflötur í garði sem snýr í suðurátt. Nánari lýsing á íbúðinni: Komið er inn í snyrtilega sameign og inngangur íbúðarinnar er strax til hægri, þar er komið inn í forstofu með gráum flísum á gólfi, til vinstri úr forstofu er þvottahús, þar er einnig flísalagt á gólfi. Úr forstofu er komið að eldhúsi og stofu, eldhúsið er rúmgott með fallegri og rúmgóðri eikar- innréttingu, gaseldavél er í eldhúsinu og fallegur háfur yfir henni. Góður borðkrókur með glugga, flísar á gólfi. Stofan er með fallegu eikarparketi á gólfum, útgangur er út á sérafnotaflöt í garði og í stofu er rúmgóð borð- stofa. Herbergi íbúðarinnar eru á sérgangi sem og einnig baðherbergi. Gólfefni á herbergjum er parket og í þeim báðum eru fallegir eikarfata- skápar, herbergin er bæði með gluggum og frekar rúmgóð. Baðher- bergið er með flísum á gólfi, fallegri innréttingu úr eik og góðu baði með sturtu í. ÁSETT VERÐ 23,9 MILLJ. EIGENDUR ÍBÚÐARINNAR TAKA Á MÓTI GESTUM OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 17.00 OG 18.00 ÁLFKONUHVARF 25 - ÍBÚÐ 0106 Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.