Morgunblaðið - 17.06.2006, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.06.2006, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nei, nei, þetta er misskilningur, skipstjóri, þetta er bara kona. Annan júní sam-þykkti Alþingifrumvarp um breytingar á lögum um tóbaksvarnir. Breyting- arnar, sem taka gildi 1. júní 2007, fela það með- al annars í sér að tób- aksreykingar verða óheimilar á veitinga- og skemmtistöðum. Lögin hafa það að markmiði að vernda starfsmenn og gesti veitinga- og skemmtistaða gegn óbeinum reykingum. Þegar meginmark- miðið er uppfyllt búast frum- varpshöfundar við ýmsum öðrum ávinningi af banninu, bæði fyrir samfélagið og einstaklinga. Brýnir hagsmunir mæla með banninu Við frumvarpsgerðina var haft samráð við Lýðheilsustöðina og Samtök ferðaþjónustunnar. Lýð- heilsustöð skilaði greinargerð um frumvarpið þar sem heilsutjón er hlýst af óbeinum reykingum er rakið. Þar kemur fram að fyrir ut- an vel þekkta fylgifiska óbeinna reykinga, á borð við óþægindi í augum og nefi, geti óbeinar reyk- ingar valdið miklum heilsuskaða. Eru í því samhengi nefndar al- þjóðlegar rannsóknir sem allar benda til þess að óbeinar reyk- ingar auki til muna líkur á alvar- legum sjúkdómum á borð við krabbamein, astma og hvers kyns hjarta- og æðasjúkdóma. Hópar starfsfólks vínveitingabara hafa verið rannsakaðir og kom þá í ljós að starfsfólkið var með svipaða þéttni nikótíns í blóði og þeir sem reykja daglega. Lýðheilsustöð bendir að lokum á það að árið 2000 hafi Hagfræðistofnun metið framleiðslutap vegna óbeinna reykinga á Íslandi og hafi það numið 448 milljónum króna. Það séu því mjög brýnir heilsufarsleg- ir og fjárhagslegir hagsmunir sem styðji bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum. Mælist vel fyrir erlendis Þótt íslensk stjórnvöld státi sig oft af því að vera framarlega á sviði heilsuverndar er fjarri lagi að Íslendingar séu fyrstir þjóða til að taka upp löggjöf sem mælir fyrir um blátt bann gegn reyk- ingum á veitinga- og skemmti- stöðum. Bandaríkjamenn riðu fyrstir á vaðið, en árið 1998 voru sett lög í Kaliforníu sem banna tóbaksreykingar á öllum vinnu- stöðum og eru engir vinnustaðir undanskildir. Þrátt fyrir miklar hrakspár hafa lögin sannað gildi sitt og voru til að mynda sett við- móta lög í New York-ríki árið 2003 með góðum árangri. Frænd- ur okkar í Noregi og á Írlandi stigu skref í sömu átt árið 2004. Eftir að bannlögin tóku gildi á Ír- landi voru áhrifin metin af heil- brigðisyfirvöldum. Í þeim rann- sóknum kom í ljós að 92% Íra sögðust fara jafnoft eða oftar á bari í kjölfar bannsins auk þess sem 97% þeirra sögðust hlýða banninu. Bakslag varð hins vegar í rekstri skemmtistaða í Noregi og til að byrja með dró úr veltu, sérstaklega á börum sem aðeins seldu drykkjarföng. Hins vegar hefur veitingaiðnaðurinn verið í mikilli sókn þar nyrðra að und- anförnu og veltan aukist á milli ára, að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdarstjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, sem nýverið sat samnorræna ráðstefnu þar sem bannmálin voru rædd. Tímabundnar fórnir eða of hár fórnarkostnaður? Að sögn Ernu er þó ljóst að menn þurfa að færa tímabundnar fórnir til þess að bannið nái fram að ganga. Harðast bitni bannið á skemmtistöðum og kaffihúsum sem aðeins séu með drykkjarföng á boðstólum. Þrátt fyrir það telur Erna að ávinningur fyrir veitinga- iðnaðinn verði mikill. Hann losni við þann gríðarlega óþrifnað sem fylgi reykingum, gestum sem illa þoli reyk fjölgi auk þess sem heilsufar almennings batni til muna. „Ef fólk hefur verið um það bil að hætta að reykja hefur þetta þótt gott tækifæri til þess,“ segir Erna. Gestur Páll Reynisson, fram- kvæmdarstjóri á Kaffibarnum, tekur ekki í sama streng og Erna. Hann telur að ef stjórnvöld hafi tekið afstöðu gegn reykingum eigi þau að vera samkvæm sjálfum sér og banna þær algjörlega. Það vilji þau hins vegar ekki gera vegna þess að með því yrðu þau af gríð- arlegum tekjum. Markmið lag- anna sé því óljóst og þau mót- sagnakennd í eðli sínu. „Sama höndin og réttir mér pakkann bannar mér að neyta innihaldsins víðs vegar um bæ- inn,“ segir Gestur. Hann telur of snemmt að segja fyrir um hvort Kaffibarinn verði af tekjum vegna bannsins. Reynir segir það í það minnsta ljóst að fjárhagslegur fórnarkostnaður staðanna sé miklu hærri heldur en heilsufars- legur kostnaður sem aldrei sé hægt að koma í veg hvort sem er. Aðspurður um sjónarmið um vinnuvernd starfsmanna skemmtistaðanna segir Gestur að flestir sem sæki um vinnu á skemmtistöðum þoli reykingar ágætlega og í raun reyki meiri- hluti starfsfólks Kaffibarsins. Fréttaskýring | Breytingar á lögum um tóbaksvarnir samþykktar á Alþingi Reykmettaðir barir kveðja Veitinga- og skemmtistaðir verði alfarið reyklausir frá og með 1. júní 2007 Ekki lengur hægt að reykja á næsta bar. Reykingabannið hefur víðast hvar mælst vel fyrir  Í hópi ríkja sem gripið hafa til þess að banna reykingar á veit- inga- og skemmtistöðum eru Bandaríkin, Noregur, Írland, Svíþjóð, Ítalía, Ástralía og Kan- ada. Lögin hafa reynst vel að mati flestra og þykir sú stað- reynd að ekki hefur staðið meiri styr um þau en raun ber vitni benda til þess að samstaða ríki um að halda áfram á sömu braut. Ljóst er að afdráttarlaus afstaða þessara ríkja hefur sett tals- verðan þrýsting á íslensk stjórnvöld. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Dreifing tónleikum Frummanna á Arnarhóli Diskurinn kemur formlega út í dag kl 20:10 með i i f l t í l : AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.