Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 eee S.V. MBL. Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen ! RV kl. 4, 8 og 10 The Omen kl. 10 B.i. 16 ára 16 Blocks kl. 8 B.i. 14 ára Da Vinci Code kl. 5.15 B.i. 14 ára X-MEN 3 kl. 6 B.i. 12 ára Rauðhetta kl. 3.45 (kr. 400) RV kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10 The Omen kl. 5.30*, 8 og 10.30 B.i. 16 ára X-Men 3 kl. 2, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 5, 8, og 11 B.i. 14 ára Da Vinci Code LÚXUS kl. 2, 5, 8, og 11 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 1.30 og 3.40 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 1.30 og 3.40 ROBIN WILLIAMS 1 fjölskylda. - 8 hjól. Engar bremsur. Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins. Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum! Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006 mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó? Yfir 51.000 gestir! SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR 17. OG 18. JÚNÍ SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR 17. OG 18. JÚNÍ Gleðilegan þjóðhátíðardag ! Gleðilegan þjóðhátíðardag *aðeins laugardag Á undanförnum árum hef- ur risið upp nýtt af- brigði af tónlistarfólki. Rétt eins og í tilviki trúbadora er þetta fólk sem syngur eigin lög og texta og spil- ar sjálft undir, en ólíkt þeim hefð- bundnu hugmyndum sem við gerum okkur um trúbadora er undirspilið ekki bundið við eitt eða tvö hljóðfæri heldur birtist gjarnan sem margbrot- inn hljóðheimur þar sem brugðið er á margvíslegan leik. Það er við hæfi að kalla þetta fólk fartölvu-trúbadora. Með fartölvu- trúbadorum er átt við trúbadora sem hafa tileinkað sér möguleika nýrrar tækni og nýta þá í listsköpun sinni. Tölvutæknin gerir þeim kleift að skapa hljóðheim upp á eigin spýtur þar sem áður hefði þurft til fjöldann allan af tónlistarmönnum auk margra mánaða vinnu í hljóð- upptökuveri. Framsækinn Íslenski listamaðurinn Eberg (Einar Tönsberg) er einn framsækn- asti fartölvu-trúbadorinn í dag, alla- vega ef marka má tónlistargagnrýn- anda vefútgáfu Independent. Til grundvallar þeirri niðurstöðu leggur gagnrýnandinn plötuna Voff Voff, sem kom út nú á dögunum. Voff Voff er önnur plata Ebergs en fyrir þrem- ur árum gaf hann frá sér plötuna Plastic Lions. „Tæknin hefur náttúrulega haft svo gífurlega miklar breytingar í för með sér,“ segir Eberg um fartölvu- trúbadorana. „Ég hugsa að þetta sé aðallega þróun sem hafi átt sér stað vegna þess að menn eru ekki lengur bundnir við að fara í stúdíó með öllu tilheyrandi. En þetta tengist held ég líka því að við teljumst til ákveðinnar kynslóðar sem hefur alist upp við fjölbreytta tónlist – t.d. rokktónlist, danstónlist og elektrónik – og er ekki alveg viss um hvar á að staðsetja sig tónlistarlega. Svo við blöndum bara öllu saman. Það má segja að þetta sé svona einn grautur.“ Aðspurður segir Eberg að hinir nýju trúbadorar eigi ekki með sér nein samtök og séu ekki í neinu sam- bandi. „Við erum allir svo miklir ein- farar, bæði einmana og þrjóskir. En það væri náttúrulega gaman að koma saman og jafnvel halda tónleika.“ Með upptökunám að baki Eberg á það sammerkt með öðrum vinsælum, íslenskum fartölvu- trúbador, Mugison, að hafa bak- grunn í upptökufræðum. Það vill meira að segja þannig til að þeir sóttu sama skóla, School of Audio Engineering, þó þeir væru þar ekki samtíða. „Upprunalega afsökunin mín til að flýja land var að fara út til að stúdera upptökustjórn,“ segir Eberg um aðdraganda þess að hann fluttist til London fyrir níu árum. Platan ber þess enda vitni að Eberg veit hvað hann syngur í upptöku- og hljóðvinnslumálum. Persónuleg plata Einyrkjaplötur eiga það til að vera persónulegri en plötur sem margir koma að, jafnvel þó að sama tón- skáldið og textahöfundurinn sé þar að baki. Hins vegar er það einnig til- hneiging hjá sumum fartölvu- trúbadorum að týna sér í tilrauna- mennsku og ofhlaða verk sín alls kyns hljóðbrellum. Eberg hefur hins vegar ekki fallið í þá gryfju, eins og einn gagnrýnandi bendir á. „Voff Voff er persónulegri en fyrri platan mín,“ útskýrir Eberg þegar þetta er borið upp við hann. „Meðan ég var með ákveðnar leikreglur við gerð fyrri plötunnar þá er þessi meira beint frá hjartanu. Ég hef líka að- gang að betri tækjakosti og þekkingu núna sem gefur mér meira svigrúm.“ Viðtökurnar framar vonum Platan kom út í Bretlandi snemma í mánuðinum og hafa viðtökurnar verið mjög góðar, Eberg skiljanlega til mikillar ánægju. Áður er vitnað til gagnrýnanda Independent en einnig má nefna að Plan B review hrósar „hinum ótrúlega“ Eberg fyrir að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega og þakk- ar fyrir góða plötu. „Svo gáfum við út eina smáskífu í febrúar sem fékk fína útvarpsspilun. Þetta er allt framar mínum vonum.“ Áhugasömum Íslendingum mun gefast tækifæri til að berja Eberg augum á næstunni. Hann verður einn af listamönnum Innipúkans um verslunarmannahelgina og er bókað- ur á Airwaves í október. Auk þess eru tónleikar í Bretlandi á döfinni hjá Eberg sem er hvergi nærri hættur. „Ég er reyndar langt kominn með þriðju plötuna. Þetta er svolítið skrít- inn bransi að því leyti að það líður venjulega nokkuð langur tími frá því að maður leggur lokahönd á plötu og þar til hún kemur í verslanir. Það eru til dæmis alveg átta mánuðir síðan ég kláraði Voff Voff. Þannig að mér hef- ur gefist tími til að leggja drög að nýrri plötu og gott betur. Ég set enga tímapressu á mig en ætli það megi ekki búast við henni að ári.“ Tónlist | Fartölvu-trúbadorinn Eberg með nýja plötu sem hlotið hefur góða dóma í Bretlandi Blandar öllu saman í einn graut Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is Eberg spilar lög af nýju plötunni sinni á Innipúkanum um verslunarmannahelgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.