Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
Leitið Sannleikans
- Hverju Trúir Þú?
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
eee
V.J.V.Topp5.is
FULL AF LÉTTLEIKANDI
GÁLGAHÚMOR ÞAR SEM
ROWAN ATKINSON
(MR BEAN & LOVE ACTUALLY)
ER Á HEIMAVELLI.
AÐRIR LEIKARAR ,
KRISTIN SCOTT THOMAS
(FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL),
MAGGIE SMITH (HARRY POTTER)
OG KVENNAGULLIÐ
PATRICK SWAYZE.
eee
VJV, Topp5.is
GRÍNHROLLUR BEINT Í ÆÐ.
SHAGGY DOG kl. 6 FRÍTT INN
SLITHER kl. 8 - 10 B.I. 16.ÁRA.
SHE´S THE MAN kl. 6 - 8
POSEIDON kl. 10 B.I. 14.ÁRA.
KEEPING MUM kl. 5:45 - 8 B.I. 12 ÁRA
16 BLOCKS kl. 10:10 B.I. 14 ÁRA
X - MEN 3 kl. 5:45 B.I. 12 ÁRA
POSEIDON kl. 8 B.I. 16 ÁRA
THE DA VINCI CODE kl. 10 B.I. 14 ÁRA
SHAGGY DOG kl. 4
SLITHER kl. 6- 8 - 10 B.I. 16.ÁRA.
SHE´S THE MAN kl. 4 - 6
POSEIDON kl. 8 - 10 B.I. 14.ÁRA.
KEEPING MUM kl. 3 - 5:45 - 8 B.I. 12 ÁRA
16 BLOCKS kl. 10:10 B.I. 14 ÁRA
X - MEN 3 kl. 3 - 5:45 B.I. 12 ÁRA
POSEIDON kl. 8 B.I. 16 ÁRA
THE DA VINCI CODE kl. 10 B.I. 14 ÁRA
KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
DA VINCI CODE kl. 6 - 8 - 10 B.I. 14.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA.
SHAGGY DOG kl. 6
MI : 3 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.I. 14.ÁRA.
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
LEPJULEGASTI GRÍNHROLLUR ÁRSINS ER KOMINN.
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ENDURGERÐINA AF
„DAWN OF THE DEAD“
SÝNINGARTÍMAR 17.OG 18 JÚNÍ
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ
Í
þessari nýjustu gamanmynd
sinni þeysist hinn galgopa-
legi Williams um Colorado-
fylki í forláta húsbíl ásamt
konu sinni og tveimur börn-
um. Er hann í hlutverki Bob nokk-
urs Munro, góðglaðs æringja sem
má muna sinn fífil fegri, en þegar
hér er komið sögu er hann lítið ann-
að en andlaust möppudýr. Fjöl-
skyldan hafði ætlað í frí til Hawaii
en þegar hinn grimmlyndi yfirmað-
ur Munro neyðir hann á ráðstefnu í
nefndu Colorado-fylki í staðinn
ákveður hann að gera gott úr því og
býr til fjölskylduferð samhliða at-
vinnuferðinni, konu hans og börnum
til mikillar armæðu. Ekki bætir úr
skák að allt fer úrskeiðis sem getur
farið úrskeiðis og til að bæta gráu
ofan á svart rekast þau á aðra fjöl-
skyldu, hina óþolandi hamingjusömu
og bjartsýnu Gornicke-fjölskyldu,
en húsbóndinn þar er leikinn af Jeff
Daniels. Leikstjóri R.V. er svo hinn
kunni Barry Sonnenfeld (Wild, Wild
West, Get Shorty og Men in Black).
Í brennidepli
– Samskipti foreldra og táninga
eru eitt af því sem einkennir mynd-
ina …
„Já, úff, það er erfitt maður …
þetta er í brennidepli á mínu heimili
í augnablikinu. Dóttir mín er sextán
ára, annar sonurinn fjórtán ára og
hinn tuttugu og tveggja. Yngri son-
ur minn er alveg eins og sonur minn
í myndinni. Dóttir mín er þá á mjög
svo áhugaverðum aldri. Þetta eru
ennþá börnin manns, en um leið er
einhver gjá að myndast. Það er það
erfiðasta við þetta allt saman.“
– Er þetta ástæðan fyrir því að
þig langaði til að gera þessa mynd?
„Ég held að aðalástæðan hafi ver-
ið Barry Sonnenfeld. Tilhugsunin
um að fá að vinna með honum var
það sem landaði þessu í restina. Ég
var ekkert sérstaklega heitur fyrst
um sinn, hugsaði: „Jæja … ein af
þessum orlofsmyndum.“ En svo fór
ég að hugsa þetta lengra og ég vissi
að Barry hefur frábært auga fyrir
tökum [hann var tökumaður fyrir
Coen-bræður í upphafi ferils síns] og
hefur auk þess frábæra kímnigáfu.“
– Hvernig var að hafa Cheryl [Hi-
nes] sem eiginkonu í myndinni?
„Stundum óska ég þess að hún
gæti verið eiginkona mín utan
tjaldsins líka. Hún er frábær og við
náðum vel saman í myndinni. Hún er
auðvitað fráleitt blaut á bak við eyr-
un, hefur starfað með The Ground-
lings [spunaleikhópur í Los Angeles]
og það að vinna með Larry David
[hún leikur eiginkonu David í þátt-
unum Curb your Enthusiasm] gefur
þér einkar traustan grundvöll í gam-
anfræðum.“
– Spunnuð þið mikið?
„Ó, já.“
– Hvernig þá?
„Ja … allar senurnar eiginlega, ég
get ekki pikkað neina sérstaka út.
Stundum byrjaði hún, stundum ég.
Hún var ótrúlega fær í því að tosa
upp senur sem ég var kannski að
klúðra og spinna út frá mistök-
unum.“
– Það er svolítið verið að stilla upp
rauðum fylkjum á móti bláum [þ.e.
repúblikönum (rauð) á móti demó-
krötum (blá)] í myndinni …
„Já. Þarna er blái gaurinn með öll
réttu tækin og tólin og svo hinn
mjög svo vinalegi gaur sem skelfir
mann í fyrstu. Svo klikka öll tækin
og þessi uppspennti heimilisfaðir
þarf að glíma við mannleg samskipti.
Þetta er athyglisverður punktur í
myndinni.“
– Barry Sonnenfeld sagði að á ein-
um stað í handritinu hefði eftirfar-
andi verið hripað niður: „Robin segir
eitthvað fyndið.“ Hvað finnst þér um
svona háttsemi …
„Mjög gott … svo fremi að ég segi
eitthvað fyndið! Ef það gerist ekki
finnst manni dagurinn hálf-
ónýtur …“
Burt með tæknidótið
– Eitt af því sem slær mann við
persónu þína í myndinni er að hann
[Bob Munro] gefst aldrei upp …
„Já, honum finnst eins og hann
geti allt. Og hann er með allt þetta
tæknidót sem blæs honum fölsku ör-
yggi í brjóst. Hann hefur auk þess
blinda bjartsýni á að allt muni redd-
ast þó hann hafi ekki hugmynd um
hvað sé á seyði. Hann þráir einfald-
lega að geta þetta allt, fyrir fjöl-
skylduna. Þetta er oft dálítið snúið,
því að sem foreldri þarf maður líka
að búa yfir raunsæi og viðurkenna
fyrir sjálfum sér og börnunum að
það séu til hlutir sem maður ræður
ekki við.“
– Það er frábært að fylgjast með
þessum föður sem reynir allt sem
hann getur til að tengjast krökk-
unum sínum …
„Sumarfrí og fjölskylduferðalög
almennt eru oft til þess fallin að
hrista fjölskylduna saman. Í þeim
detta allir óþarfir hlutir út, um leið
og maður er laus við allt tæknidrasl-
ið og hefur bara sjálfan sig og ástvini
sína þá fer manni að líða vel. Maður
byrjar að tala, leika sér og gera það
sem manni er áskapað að gera. Fjöl-
skyldan verður loks að „fjöl-
skyldu“.“
– Hversu mikilvæg eru frí í þínum
augum?
„Mjög. Þau eru mjög mikilvæg því
að í þeim myndar maður tengsl og
treystir gömul. Í þeim slakar fólk á
saman og setur allt þetta rugl, sem
einkennir grámóskulegan hvers-
dagsleikann, til hliðar. Lífið er erfitt,
það finnst mér að a.m.k. Maður er í
einhverjum tökum og alls kyns
stússi og sér fjölskylduna kannski
sjaldan. Í fríinu er maður laus við
þennan takt og getur slakað á.“
– Hvort er meiri áskorun fyrir
þig, gamanleikur eða drama?
„Ég held að gamanleikurinn sé
mun erfiðari. Vinur minn gaf mér
kodda en á honum stendur „Það er
auðvelt að deyja en erfitt að grín-
ast“. Ég meina, hversu margar grín-
myndir koma manni raunverulega
til að hlæja? Myndir eins og One Ho-
ur Photo og Insomnia gáfu mér færi
á því að rannsaka mannlega hegðun
sem manni yrði stungið í steininn
fyrir í raunveruleikanum. Þess
vegna gerði ég líka The Night Liste-
ner [síðasta mynd Williams á undan
þessari]. Mér finnst gott að skipta á
milli þessara tveggja forma og það
er langt síðan ég hef leikið í „stórri“
mynd. Mér finnst það hressandi, því
að þar eru mötuneyti og fínerí.“
Arnar Eggert Thoroddsen þýddi
Kvikmyndir | Rætt við Robin Williams vegna R.V.
„Það er auðvelt að deyja
en erfitt að grínast“
Gamanmyndin R.V. var frumsýnd á miðvikudag-
inn en þar fer leikarinn Robin Williams á kostum
í hlutverki seinheppins fjölskylduföður. Í viðtali
sem framleiðendur myndarinnar létu útbúa ræðir
Williams um myndina og þátt sinn í henni.
„Ég meina, hversu margar grínmyndir koma þér raunverulega til að
hlæja?“ Jeff Daniels og Robin Williams í R.V.