Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 32
Daglegtlíf júní Þ egar Jóhanna Sesselja Erludóttir, eða Lella eins og hún er kölluð dagsdaglega, býður vin- um og ættingjum heim búast gestir orðið við því að fá súkkulaðikökuna sem hún er fræg fyrir meðal þeirra. Súkkulaðikök- unni kynntist Lella í Svíþjóð. „Ég bjó í Svíþjóð í eitt ár og allstaðar sem ég fór í veislur eða kaffiboð var þessi kaka borin fram, þeir kalla hana Kladdköku sem myndi útlegg- jast á íslensku sem klísturkaka. Hún er yfirleitt borin fram með vanilluís en stundum með rjóma,“ segir Lella og viðurkennir að þar sem hún sé mikill súkkulaðifíkill hafi hún virki- lega saknað þessarar köku þegar hún flutti frá Svíþjóð. „Þegar ég kom heim leitaði ég á netinu og í uppskriftabókum þangað til ég fann hina fullkomnu Kladdkökuuppskrift sem ég aðlagaði aðeins að mínum smekk. Mér finnst kakan betri eftir því sem hún er blautari auk þess sem ég fór að setja ýmsar tegundir af berjum ofan á kökuna en það gera Svíar ekki, mér finnst það betra því þau koma fersk á móti súkkulaðinu. Þetta er orðin svona Kladdkaka a’la Lella.“ Aðspurð hvort hún sé búin að baka Kladdkökuna oft svarar hún að þessi kaka sé orðin eins og vöru- merkið sitt. „Yfirleitt, ef ég fæ gesti, býð ég upp á þessa köku því það er einfalt og fljótlegt að baka hana. Gestirnir búast líka orðið við að ég beri þessa köku á borð fyrir þá.“ Skoðar mikið uppskriftabækur Lella segist annars ekki baka mik- ið. „Ef ég baka þá er það oftast Kladdkakan mín eða smákökurnar sem ég gef líka uppskrift að hér. Ég nenni ekki að eyða of miklum tíma í bakstur en mér finnst mjög gaman að borða kökurnar.“ Furuhnetu- og fíkjuklattana fann Lella í uppskriftabók fyrir ein jólin þegar hún var í smákökuhugleið- ingum og hefur bakað þá reglulega síðan. „Ég baka þessar smákökur þegar mig langar í, ég er ekkert að baka þær við einhver sérstök tæki- færi. Það besta við þessar kökur er að þær líta út fyrir að vera rosalega hollar en þegar maður bítur í þær eru þær sætar en samt ferskari en hefðbundnar smákökur,“ segir Lella og bætir við að furuhnetu- og fíkjuk- lattana sé tilvalið að baka fyrir garð- boðin í sumar. Að eigin sögn segist Lella ekkert hafa sérstakan áhuga á mat en að henni finnist mjög gaman að prófa sig áfram með uppskriftir. „Ég á fullan skáp af uppskriftabókum sem mér finnst rosalega gaman að skoða en ég fer aldrei eftir þeim. Ég fæ hugmyndir héðan og þaðan úr hin- um ýmsu uppskriftum og sameina þær í einn rétt. Það er skemmtilegt að elda eitthvað öðruvísi og frumlegt og halda matarboð, en að elda hefð- bundinn heimilismat finnst mér ekki eins skemmtilegt þó ég geri það fyr- ir fjölskylduna,“ segir Lella að lok- um með bros á vör.  MATARKISTAN | Jóhanna Sesselja Erludóttir er svolítil kökukerling Kladdkaka frá Svíþjóð í uppáhaldi Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Jóhanna Sesselja Erludóttir býður vinum og ættingjum gjarnan upp á súkkulaðiköku sem hefur slegið í gegn. Kladdkaka Lellu 100 g smjör 11/2 dl hveiti 4 msk kakó 11/2 tsk van- illusykur 2 egg 3 dl sykur Hitið ofninn í 175°. Bræðið smjörið. Blandið því næst sykrinum saman við smjörið og svo öllu hinu hráefninu. Hellið deiginu í eldfast mót eða form og bakið í ofninum í 15 mínútur(sumir vilja hafa bökunartímann styttri, aðrir lengri, fer algjörlega eftir því hversu klístraða þú vilt hafa kökuna. Hún er að sjálfsögðu langbest þegar hún er sem blautust, en bragðið er ekkert síðra þótt hún sé bökuð í gegn, þá verður hún stíf og kara- mellukennd). Best er að hlaða svo á kök- una jarðarberjum, bláberjum og hindberjum, strá slatta af flórsykri yfir og bera hana fram volga með ísköldum van- illu ís... nammi namm... Furuhnetu- og fíkjuklattar 1 ¼ bolli hveiti ¼ tsk salt 1 tsk kanill ¾ bolli smjör við stofuhita 2/3 bolli púðursykur 1 bolli þurrkaðar fíkjur, brytjaðar í smáa bita ¾ bolli furuhnetur Hitið ofninn í 170° Þeytið saman smjöri og púð- ursykri í u.þ.b. eina mínútu þar til blandan verður mjúk og ljós að lit. Blandið þurrefnum saman við og hrærið því næst fíkj- unum varlega út í deigið. Myndir kúlur úr deiginu og setjið á bökunarplötu. Stráið því næst veglega af furuhnetum á hverja köku. Bakið í u.þ.b. 20 mínútur eða þangað til kantarnir eru orðnir fallega gullinbrúnir. MARÍA Guðbrandsdóttir, kennari í mynd- mennt og heimilisfræði við grunnskólann í Ólafsvík, hefur notað sinn frítíma frá kenn- arastarfinu í að mála tréfígúrur. Sveinbjörn Dýrmundsson, eiginmaður Maríu og kennari við grunnskóla Ólafsvíkur, sker fígúrurnar út, í alls konar stærðir og síðan tekur María við og málar þær. María heldur mikið upp á peysuföt og upphlut sem hún málar á trédúkk- urnar. María er búin að vera í 15 ár í þessu og kemur með ný form á hverju ári. Engin dúkka er eins, það er munurinn á handverki og fjöldaframleiðslu. Þessar trédúkkur hefur hún selt í pakkhús- inu á sumrin og annar ekki eftirspurn og það eru ekkert síður íslenskir ferðamenn sem kaupa dúkkurnar þótt útlendingarnir geri það auðvitað líka. Um jólin setur hún trédúkkurnar í jólaföt og er það gífurlega vinsæl söluvara. Einnig málar María akrýl á mdf-plötur, kon- ur í þjóðbúningnum með jökulinn í baksýn. María hyggst mála meira þegar hún er orðin gömul og hætt að kenna. „Ég vildi gera mikið meira en tíminn leyfir það ekki vegna kennslunnar á veturna en ég nota sumrin aðallega í þetta áhugamál mitt,“ sagði hún.  ÁHUGAMÁL | Hann sker út dúkkur og hún málar föt á þær Trédúkkur í þjóðbúningum Morgunblaðið/Alfons María heldur mikið upp á trékonuna í peysufötunum. var athugað og kom þetta þá í ljós. Viðbrögð við reyk, ilmvatni, blóm- um var m.a. könnuð, að því er fram kemur í frétt TT-fréttastofunnar. Ofnæmið getur valdið einkenn- um eins og nefrennsli, kláða í slím- húð eða andþrengslum. Þeir sem þjást af ofnæminu hafa margir ver- ið meðhöndlaðir eins og þeir væru með astma en astmalyf hafa ekki linað þrautir þeirra. NÝ SÆNSK rannsókn bendir til þess að ofnæmi fyrir lykt eða ilm- efnum er algengara en áður var tal- ið. Talið er að 6% fullorðinna geti þjáðst af slíku ofnæmi, að því er vís- indamenn við Sahlgrenska sjúkra- húsið í Gautaborg telja. 1.400 manns tóku þátt í rannsókn þar sem næmi gagnvart mismunandi lyktum Ofnæmið getur valdið kláða í slímhúð eða nefrennsli. Nefrennsli vegna ilmvatnsins?  RANNSÓKN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.