Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 49
MINNINGAR
✝ Kristjana Hall-grímsdóttir
fæddist í Grafargili
við Önundarfjörð
25. september 1919.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
29. maí síðastliðinn.
Kristjana var dóttir
Jónu Guðbjargar
Reinharðardóttur
og manns hennar
Hallgríms Stefáns
Guðmundssonar,
ábúenda á Grafar-
gili. Börn þeirra
voru, auk Kristjönu, Guðmundur,
Guðrún, Ríkharður, Valborg,
Anna Ingibjörg, Fríða, María og
drengur sem lést í frumbernsku.
Kristjana giftist
Hermanni Karli
Guðmundssyni sem
nú er látinn. Stjúp-
börn hennar eru
Edda og Sverrir.
Kristjana nam við
Núpsskóla í Dýra-
firði og Samvinnu-
skólann á Bifröst.
Dídí eins og hún var
oftast kölluð starf-
aði um árabil hjá
Skógrækt ríkisins
og sem símstöðvar-
stjóri bæði í Þor-
lákshöfn og í Reynihlíð í Mývatns-
sveit.
Útför Kristjönu var gerð frá
Garðakirkju í kyrrþey 2. júní.
Genginn er vestfirskur kvenskör-
ungur um aldur fram, aðeins 86 ára.
Við segjum um aldur fram því svo
ungleg var Dídí að við héldum oft að
hún myndi hrista af sér þau erfiðu
veikindi sem hún átti í síðustu árin.
Einnig truflaði það dómgreind okkar
að þrátt fyrir mikla vanlíðan hélt hún
persónuleika sínum og skarpskyggni
fram á hinstu stundu þar sem hún
kom með athugasemdir og spurning-
ar sem ekki pössuðu dauðvona
manneskju. Hún varð aldrei gömul.
Fyrir okkur var Dídí móðursystir
okkar ímynd kjarnakonunnar sem
óx upp við lítið og fátt en samt svo
mikið, því nóg reyndist það til að
skapa heilsteypta manneskju,
gædda þeim kostum sem hvaða lista-
maður, hönnuður, náttúrufræðingur,
ættfræðingur, mannfræðingur eða
annarskonar fræðimaður hefði verið
fullsæmdur af. Fljúgandi gáfur og
gullhjarta prýddu hana. Hún var
smekkkona og lagði mikið upp úr að
hafa fallega hluti í kringum um sig.
Og aldrei missti hún áhugann á fatn-
aði sem endurspeglaðist í hnyttnum
athugasemdum um snið, efni og
tískustrauma. Hún var konan sem
fékk útrás fyrir sköpunargáfuna í
fullkomnu handverki, hekli og prjóni
og eigum við auðvelt með að draga
fram myndir af henni í því samhengi,
svo sem þar sem hún sté út úr Scout
jeppanum þeirra Kalla á Byggðaveg-
inum fyrir norðan og rétti fram fullt
fang af peysum og sagði: „Huh,
hérna stelpur, ég prjónaði þetta á
leiðinni.“ Þau höfðu farið Sprengi-
sand.
Já, Dídí var prjónavél rétt eins og
bókhákur. Önnur nærtæk minning
er frá móður okkar Önnu, sem sér
eldri systur sína fyrir sér við skil-
vinduna á Grafargili, æskuheimili
þeirra, þar sem hún knýr skilvind-
una með annarri hendi og heldur á
námsbók í hinni. Hún kunni að gera
tvennt í einu eins og gömul skóla-
systir hennar og vinkona rifjar upp.
Hún hafði undrast hvernig hún fór
að því að prjóna listilega tvíbanda
um leið og hún las á dönsku. Reynd-
ar gerði hún þrennt þegar hún svar-
aði spurningunni á eftirfarandi hátt:
„Jú, ég hef tvær hendur og kann að
lesa. Lítill er vandinn.“ Geri aðrir
betur, segjum við.
Hún las flest sem hún komst yfir
og átti ekki í vanda með að mynda
sér skoðanir á því eða öðru því sem
hún heyrði. Sumir lentu líka illa í því
þegar Dídí lét skoðanir sínar í ljós
því ekki lá hún á þeim. Og húmorinn
föttuðu ekki allir.
Einhverja hefur hún eflaust
móðgað en fleiri voru þeir sem
kynntust hlýju hjartalagi, rausnar-
skap og góðvild. Við sem stóðum
henni næst fengum að kynnast þessu
öllu en í huga okkar stendur eftir
minning um glæsilega, gáfaða konu
sem við óskum að fleiri hefðu fengið
að kynnast. Hún var eins og nátt-
úruöflin, hrjúf en mjúk í senn.
Einmitt sú líking kemur okkur í
hug þessa dagana, þegar landið okk-
ar er selt á útsölu og það grafið og
sprengt í sundur. Frænka okkar var
mikill náttúruunnandi sem sá strax
hverskyns óráðsía er í gangi í virkj-
anamálum. Þó rödd hennar hafi ver-
ið mjóróma eins og svo margra í því
samhengi munum við geyma skoð-
anir hennar í hjarta okkar, og elska
landið eins og hún gerði.
En við minnumst hennar ekki síst
sem góðrar frænku, sem hreifst af
öllu lífi, dýrum, börnum, blómum og
kvaki vorfuglanna sem hún saknaði
að geta ekki notið nú á erfiðum vor-
mánuðum.
Blessuð sé minning Kristjönu
Hallgrímsdóttur.
Valborg, Sigríður og
Jóna Ingólfsdætur.
KRISTJANA
HALLGRÍMSDÓTTIR
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Útför
SVEINBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR,
Melabraut 9,
Blönduósi,
fer fram frá Blönduóskirkju miðvikudaginn
21. júní kl. 14.00.
Börnin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns, stjúp-
föður, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR S. JÓSEFSSONAR
bónda,
Fremri Hrafnabjörgum,
Dalasýslu.
Ólafía Hjartardóttir,
Hinrik Hinriksson, Ólafía Bjargmundsdóttir,
Ólafía Magnea Hinriksdóttir,
Halldóra Guðrún Hinriksdóttir, Páll L. Sigurðsson,
Bjargey Una Hinriksdóttir, Róbert E. Jensson,
Hinrik Ingi Hinriksson.
Innilegar þakkir fyrir ómetanlega hjálp, hlýhug og
samúð við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, stjúpföður okkar, sonar, tengdasonar og
bróður,
BERGS MAGNÚSAR GUÐBJÖRNSSONAR
vélstjóra,
Reynigrund 47,
Akranesi.
Oddný Guðmundsdóttir,
Þórhildur Kristjánsdóttir,
Svavar Kr. Kristjánsson,
Áslaug Ármannsdóttir, Guðbjörn Páll Sölvason,
Þóra Benediktsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson,
Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir,
Gunnhildur Guðbjörnsdóttir
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
BJÖRNDÍS ÞÓRUNN BJARNADÓTTIR,
Seljahlíð,
(áður Rauðalæk 63),
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 9. júní verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 19. júní kl. 15.00.
Lúðvík Andreasson, Guðný Hinriksdóttir,
Margrét Andreasdóttir, Hafsteinn Ágústsson,
Jórunn Andreasdóttir, Steinar Viktorsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
AÐALBJARGAR JÓAKIMSDÓTTUR
frá Hnífsdal,
Drápuhlíð 27.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild H 1 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir
góða umönnun.
Fyrir hönd vandamanna,
Ólafur Geirsson,
Gunnar J. Geirsson,
Aðalsteinn Geirsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar systur okkar,
SIGRÍÐAR M. STEPHENSEN
hjúkrunarkonu,
Sólheimum 27,
Reykjavík.
Steinunn M. Stephensen,
Guðrún Magnúsdóttir Stephensen
og fjölskylda.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og sendu samúðarkveðjur við and-
lát elskulegrar eiginkonu og móður okkar,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR,
Maddý,
Barðastöðum 7.
Af öllu hjarta þökkum við öllum þeim sem voru
við útför hennar föstudaginn 9. júní sl. og kunnum
við ykkur öllum bestu þakkir fyrir virðingu og yndislegt viðmót.
Bestu þakkir færum við starfsfólki og Kjartani lækni á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi fyrir ómetanlegan tíma og frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Árnason,
Ásta Gunnarsdóttir, Oddur Halldórsson,
Jóna Gunnarsdóttir,
Valdís Gunnarsdóttir,
Eyrún Gunnarsdóttir,
Trausti Kristjánsson, Therese Grahn
og ömmustrákarnir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
UNNAR AGNARSDÓTTUR,
Sóltúni 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni fyrir frábæra umönnun og umhyggju.
Óskar H. Gunnarsson,
Gunnhildur Óskarsdóttir, Arnór Þ. Sigfússon,
Agnar Óskarsson, Margrét Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ERLU CORTES,
Æsufelli 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustu Karitasar
og starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítala
Hringbraut.
Gunnar J. Árnason, Soffía Karlsdóttir,
Kristinn H. Árnason,
Snorri Örn Árnason, Ásdís Ásbjörnsdóttir,
Kristín Björg Cortes,
Guðrún Cortes
og barnabörn.