Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 27
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Grindavík | Bláa lónið – heilsulind
hlaut Norrænu lýsingarverðlaunin
2006 en verðlaunin voru veitt á nor-
rænni ráðstefnu ljóstæknifélaga
sem lauk í Reykjavík í gær. Þetta er
í fyrsta skipti sem íslenskt verk hlýt-
ur þessi verðlaun en markmið þeirra
er að vekja athygli á vandaðri nor-
rænni lýsingu.
Lýsingarhönnun heilsulind-
arinnar var í höndum Guðjóns L.
Sigurðssonar, lýsingarhönnuðar hjá
Rafteikningu hf. en VA arkitektar
ehf. hönnuðu bygginguna. Í áliti
dómnefndar kemur fram að lýsingin
í heilsulindinni spili af alúð með arki-
tektúr byggingarinnar, lóninu og
hraunbreiðunni. Samspil lýsingar
úti og inni sé gott en auk raflýsingar
er dagsljósið markvisst notað.
Í lýsingunni er sérstaklega tekið
tillit til áberandi sára á húð fólks
með psoriasis sem kemur til með-
höndlunar í heilsulindinni og val á
lithitastigi ljósgjafa er valið svo
psoriasis-blettir verði sem minnst
áberandi. Í þá lýsingu eru notaðar
kaldbakskautsperur sem eru ekki
ósvipaðar flúrperum nema hvað
velja má hvaða lithitastig sem er og
litendurgjöf þeirra er mjög hátt.
Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem
þessi gerð af ljósgjöfum er notaður
til almennrar innanhússlýsingar á
Norðurlöndunum, segir í frétta-
tilkynningu frá Bláa lóninu.
Viðurkenning Tekið við norrænu lýsingarverðlaununum, f.v. Daði Ágústsson, formaður LFÍ, Guðni Gíslason,
fulltrúi Íslendinga í dómnefndinni, Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt,
Guðjón L. Sigurðsson frá Rafteikningu og Eirik Bjelland, formaður dómnefndar.
Bláa lónið fær norræn lýsingarverðlaun
FERÐAMÁLASAMTÖK Suður-
nesja, Neyðarlínan og Girðir ehf.
hafa gert með sér samkomulag um
að Neyðarlínan taki að sér vöktun
stikaðra gönguleiða á Reykjanes-
skaganum.
Ferðamálasamtökin hafa haft
forgöngu um að stika gönguleiðir á
Reykjanesskaganum og er það
verk komið vel á veg. Þegar verk-
efninu lýkur verða 23 gönguleiðir
stikaðar, samtals um 357 km að
lengd.
Stikurnar eru appelsínugular að
lit og er hver stika merkt með
upphafsstöfum gönguleiðarinnar
og númeri stikunnar. Leiðirnar
eru mjög misjafnlega langar og
sem dæmi þá er Ketilstígur sem
liggur frá Seltúni í Krísuvík að
Reykjavegi 4,5 km langur og er
merktur með 56 stikum. Hver
stika er númeruð og merkt með
upphafsstöfum í nafni stígsins, í
þessu tilviki KETIL. Allar stik-
urnar á leiðunum eru mældar út
með GPS tæki og stígarnir hnit-
aðir niður.
Það er fyrirtækið Girðir ehf.
sem hefur tekið að sér að setja
stikurnar niður, mæla þær út og
merkja. Neyðarlínan hefur fengið
hnitin af öllum þeim stikum sem
komnar eru upp og mun Neyð-
arlínan hér eftir aðstoða þá sem
lenda í villu eða óhappi á fyrr-
nefndum gönguleiðum og hringja í
númer Neyðarlínunnar, 112.
Gönguleiðirnar eru merktar á
gönguleiðakorti Ferðamálasamtak-
anna, Reykjanes, sem selt er í
bókabúðum og upplýsingamið-
stöðvum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Ferðamála-
samtökum Suðurnesja. Einnig er
hægt að fá upplýsingar um leið-
irnar á upplýsingaskrifstofum
ferðamála á Suðurnesjum.
Neyðarlínan vaktar
stikaðar gönguleiðir
Morgunblaðið/Eyþór
Samvinna Þórhallur Ólafsson, hjá Neyðarlínunni, Kristján Pálsson, frá
Ferðamálasamtökunum, og Árni G. Svavarsson, forstjóri Girðis.
Fréttir
í tölvupósti
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið
á um að fé úr sjóðnum megi veita „1. til verðlauna fyrir vel
samin vísindaleg rit, 2. til að styrkja útgáfur slíkra rita annars
kostar og 3. til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildar-
rita.“ Enn fremur segir: „Öll skulu rit þessi lúta að sögu
Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum.“ Á
árinu 1974 var bætt við ákvæði þess efnis „að þegar sérstök
ástæða þyki til, megi verja fé til viðurkenningar á viðfangs-
efnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum.“
Umsækjendur um verðlaun úr sjóðnum skulu senda nefnd-
inni þrjú eintök þeirra rita er þeir óska að tekin verði til álita.
Miðað er við rit, gefin út eftir síðustu úthlutun úr sjóðnum.
Æskilegt er að þeim fylgi umsögn viðurkenndra fræðimanna,
sérfróðra um efnið.
Framangreind gögn skulu send forsætisráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykjavík, merkt verðlaunanefnd
Gjafar Jóns Sigurðssonar, fyrir 1. september næstkomandi.
Reykjavík, 2. júní 2006
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Jón G. Friðjónsson
Ragnheiður Sigurjónsdóttir
Ólafía Ingólfsdóttir
Í Fornalundi Reykjavík 585 5050 Suðurhrauni 6 Hafnarfirði 585 5080
V/Súluveg Akureyri 460 2200 Ægisgötu 6 Reyðarfirði 477 2050
Höfðaseli 4 Akranes 433 5600
www.bmvalla.is
Gæðavörur
fyrir garðinn þinn.
Söludeildir:
Hallarsteinn