Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 39 UMRÆÐAN MIKILVÆGT er að framhalds- skólanemendur hafi tækifæri til að ígrunda vel náms- og starfsval þegar kemur að háskólanámi. Mikið hefur skort á heild- arsýn yfir framtíð- arhorfur og mannafla- þörf í einstaka atvinnugreinum m.a. til að auðvelda nem- endum ákvörðun um val á námi. Með aðgengilegum upplýsingum um þarfir atvinulífsins fyrir vinnuafl til langs tíma litið, sem reglulega væri kannað, væri stuðlað að meira jafnvægi á eftirspurn í ýmsar at- vinnugreinar. Þannig myndi mennt- un og mannauður nýtast betur, bæði fyrir námsmenn, atvinnulífið og þjóðarbúið í heild. Lög sett sem auðveldar náms- val nemenda Til að ná þessu markmiði flutti ég ásamt nokkrum öðrum þingmönnum tillögu á sl. vetri á Alþingi um þetta mál. Það varð til þess að lög voru sett í þinglok um að kannað verði reglubundið mannaflaþörf og fram- tíðarhorfur í atvinnugreinum með það að markmiði að meta atvinnumöguleika námsmanna eftir námsleiðum og efla þannig ráðgjöf við nemendur í framhalds- og háskólanámi. Samstaða náðist um að fella mína tillögu inn í löggjöf um vinnu- markaðsaðgerðir sem varð að lögum á nýaf- stöðnu þingi. Verkefni þetta verður falið Vinnumálastofnun. Lagði félagsmálanefnd áherslu á það við meðferð málsins á Alþingi að við alla framkvæmd, und- irbúning og uppbyggingu verkefn- isins yrði leitað eftir samvinnu við Samtök atvinnulífsins, náms- og starfsráðgjafa í háskólum og Félag náms- og starfsráðgjafa. Gæti skipt sköpum Sá þekkingarskortur sem verið hefur á horfum í einstaka atvinnu- greinum hefur gert námsmönnum erfiðara að gera sér grein fyrir at- vinnumöguleikum sínum og á hvaða starfssviðum menntun þeirra nýtist sem best. Fram til þessa hafa ein- staklingar ekki getað reitt sig á áreiðanlegar upplýsingar heldur frekar fylgt tilfinningu um hvort og hvar yrði þörf fyrir þekkingu þeirra og menntun í framtíðinni. Ástæða er til að benda á umsögn Stúdentaráðs Háskóla Íslands um þá tillögu sem ég flutti og nú er orð- in að lögum. Þar kemur fram að það sé í raun furðulegt að ekki sé fyrir löngu búið að gera slíka reglu- bundna könnun á mannaflaþörf og framtíðarhorfum í einstaka atvinnu- greinum sem sé afar mikilvæg fyrir nemendur. Í umsögn rektors Há- skóla Íslands kom fram að fram- ganga þessarar tillögu gæti skipt sköpum hvað varðar stefnumótun í mennta- og atvinnumálum, auk þess að efla náms- og starfsráðgjöf til muna. Með því verður grannt fylgst hvernig stjórnvöld standa að fram- kvæmd þessara laga. Nemendum auðveldað námsval Jóhanna Sigurðardóttir skrifar um mennta- og atvinnumál ’Lög hafa verið settum að kanna reglubundið mannaflaþörf og framtíðarhorfur í einstaka atvinnu- greinum.‘ Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er alþingismaður. Rétt er að segja: Mig vantar, þig vantar, hann vantar, hana vantar, barnið vantar. Alla vantar allt til alls. Gætum tungunnar Mjög hlýleg og rúmgóð íbúð á tveimur hæðum í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í tvær bjartar stofur, rúmgott eldhús og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæðinni eru tvö herbergi og miðrými. Stórar norðvestursvalir eru nú á íbúðinni en gert er ráð fyrir mjög stórum suðursvölum samkvæmt samþykktum teikningum. Glæsileg eign á besta stað í bænum. OPIÐ HÚS sunnudaginn 18. júní milli 16 og 18 að Klapparstíg 40, Reykjavík. Halldór I. Andrésson sölumaður, sími: 840-4042 Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Melahvarf - m. hesthúsi Vandað einlyft 182,8 fm einbýli ásamt 70,7 fm hesthúsi. Húsið skiptist í forstofu, innra hol, 2 saml. vinkilstofur, eldhús, 3 svefnh., bað, þvottahús og innb. 33,9 fm bílskúr. Hesth., sem auðvelt er að breyta í sér íbúð, skiptist í gang/forstofu, kaffistofu, baðh., heygeymslu og 8 bása. Eign sem býður upp á mikla möguleika. Fallegur garður m. heitum potti o.fl. V. 65 m. 5894 Vel skipulögð 4ra-5 herb. 111 fm íbúð á efstu hæð ásamt innbyggðum 20 fm bíl- skúr í þessu þekkta fjölbýlishúsi. Húsið er skemmtilega hannað, opin og ljós rými nýtast vel, öll herbergi eru rúmgóð, sér- þvottahús í íbúð. Stórar svalir og einstakt útsýni. Arkitekt er Sigvaldi Thordarson. V. 24,4 m. 5883 Mjög falleg og rúmgóð 5 herb. endaíbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist þannig: 2 stofur, eldhús, baðherbergi, 3 herbergi, svefnálma og forstofa. Innbyggður bílskúr með sjálfvirkum hurða- opnara. V. 28,0 m. 5900 Hellisgata - Einbýli m/aukaíbúð Vel skipulögð og frábærlega vel staðsett eign. Húsið er á tveimur hæðum. Efri hæð skiptist í anddyri, sjónvarpsh., tvö svefnh., eldhús, baðherb. og stofur, innangengt er á neðri hæð. Neðri hæð skiptist í anddyri og stigahol, wc, eldhús, svefnh., stofu/ svefnh., þvottah., lítið vinnuherb. (geymsla) og bílskúr. V. 45,0 m. 5792 Mururimi - Fallegt parhús Mjög fallegt u.þ.b. 180 fm parhús á eftir- sóttum stað í Grafarvogi. Eignin skiptist í tvær hæðir og innb. bílskúr, 3-4 svefnh. Fallegar innr., ljóst parket og mikil lofthæð í stofu. Planið er hellulagt og upphitað. Góður hellulagður sólp. með skjólveggj- um. Fallegur garður í góðri rækt. Húsið er staðasett í enda botnlanga. Stutt er í skóla og alla þjónustu. V. 40,5 m. 5809 OPIÐ HÚS - Stóragerði 11 - 1. hæð 140,8 fm neðri sérhæð ásamt geymslu í kjallara og 30 fm bílskúr. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson og var klætt að utan árið ‘99. Hæðin skiptist í forstofu, snyrtingu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnh., þvottah., og baðhb. Sér- geymsla fylgir í kjallara og bílskúr sem er næst húsi. Eignin verður til sýnis á morgun, sun. 18. júní frá kl. 16-18. Guðrún og Ólafur sýna. V. 39,5 m. 5831 OPIÐ HÚS - Melabraut 16 - Seltj.nesi Falleg og mikið standsett efri sérhæð og ris í 4-býlishúsi við Melabraut. Íbúðin skiptist þannig að á hæðinni eru stór stofa, eldhús, tvö herb., baðh., og hol. Glæsilegt nýstandsett baðh. Í risi er eitt herb. og þvottah. Bílastæði fylgir íbúðinni. Stór lóð. Íbúðin verður til sýnis á morgun, sunnudag frá kl. 17-18. V. 27,7 m. 5867 Ferjubakki - Neðra Breiðholt Góð 4ra herb. íbúð á efstu hæð. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eld- hús, bað og mjög stóra geymslu í kjall- ara. Góðar suðursvalir. V. 18,8 m. 5879 Falleg og snyrtileg 3ja herb., íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin er snyrtileg og skipulag er gott. Íbúðin skiptist á tvær hæðir. Skipting íbúðarinnar er eldhús, baðh., barnah., og stofa á neðri hæðinni og í risi er hjónaherb. undir súð. Geymslur eru í risi og á jarðhæð. Þak og hús málað í fyrra. V. 16,5 m. 5895 Berjarimi - Glæsilegar svalir Kambsvegur - Fallegt hús Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á efstu hæð með sérlega stórum svölum og út- sýni í litlu fjölbýlishúsi. Stæði í bíla- geymslu. V. 19,4 m. 5769 Boðagrandi Háaleitisbraut - Útsýnisíbúð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.