Morgunblaðið - 17.06.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 39
UMRÆÐAN
MIKILVÆGT er að framhalds-
skólanemendur hafi tækifæri til að
ígrunda vel náms- og
starfsval þegar kemur
að háskólanámi. Mikið
hefur skort á heild-
arsýn yfir framtíð-
arhorfur og mannafla-
þörf í einstaka
atvinnugreinum m.a.
til að auðvelda nem-
endum ákvörðun um
val á námi.
Með aðgengilegum
upplýsingum um þarfir
atvinulífsins fyrir
vinnuafl til langs tíma
litið, sem reglulega
væri kannað, væri stuðlað að meira
jafnvægi á eftirspurn í ýmsar at-
vinnugreinar. Þannig myndi mennt-
un og mannauður nýtast betur, bæði
fyrir námsmenn, atvinnulífið og
þjóðarbúið í heild.
Lög sett sem auðveldar náms-
val nemenda
Til að ná þessu markmiði flutti ég
ásamt nokkrum öðrum þingmönnum
tillögu á sl. vetri á Alþingi um þetta
mál. Það varð til þess að lög voru
sett í þinglok um að kannað verði
reglubundið mannaflaþörf og fram-
tíðarhorfur í atvinnugreinum með
það að markmiði að
meta atvinnumöguleika
námsmanna eftir
námsleiðum og efla
þannig ráðgjöf við
nemendur í framhalds-
og háskólanámi.
Samstaða náðist um
að fella mína tillögu inn
í löggjöf um vinnu-
markaðsaðgerðir sem
varð að lögum á nýaf-
stöðnu þingi. Verkefni
þetta verður falið
Vinnumálastofnun.
Lagði félagsmálanefnd
áherslu á það við meðferð málsins á
Alþingi að við alla framkvæmd, und-
irbúning og uppbyggingu verkefn-
isins yrði leitað eftir samvinnu við
Samtök atvinnulífsins, náms- og
starfsráðgjafa í háskólum og Félag
náms- og starfsráðgjafa.
Gæti skipt sköpum
Sá þekkingarskortur sem verið
hefur á horfum í einstaka atvinnu-
greinum hefur gert námsmönnum
erfiðara að gera sér grein fyrir at-
vinnumöguleikum sínum og á hvaða
starfssviðum menntun þeirra nýtist
sem best. Fram til þessa hafa ein-
staklingar ekki getað reitt sig á
áreiðanlegar upplýsingar heldur
frekar fylgt tilfinningu um hvort og
hvar yrði þörf fyrir þekkingu þeirra
og menntun í framtíðinni.
Ástæða er til að benda á umsögn
Stúdentaráðs Háskóla Íslands um
þá tillögu sem ég flutti og nú er orð-
in að lögum. Þar kemur fram að það
sé í raun furðulegt að ekki sé fyrir
löngu búið að gera slíka reglu-
bundna könnun á mannaflaþörf og
framtíðarhorfum í einstaka atvinnu-
greinum sem sé afar mikilvæg fyrir
nemendur. Í umsögn rektors Há-
skóla Íslands kom fram að fram-
ganga þessarar tillögu gæti skipt
sköpum hvað varðar stefnumótun í
mennta- og atvinnumálum, auk þess
að efla náms- og starfsráðgjöf til
muna. Með því verður grannt fylgst
hvernig stjórnvöld standa að fram-
kvæmd þessara laga.
Nemendum auðveldað námsval
Jóhanna Sigurðardóttir skrifar
um mennta- og atvinnumál ’Lög hafa verið settum að kanna reglubundið
mannaflaþörf og
framtíðarhorfur í
einstaka atvinnu-
greinum.‘
Jóhanna Sigurðardóttir
Höfundur er alþingismaður.
Rétt er að segja: Mig vantar, þig vantar, hann vantar, hana vantar,
barnið vantar.
Alla vantar allt til alls.
Gætum tungunnar
Mjög hlýleg og rúmgóð íbúð á tveimur hæðum í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í
tvær bjartar stofur, rúmgott eldhús og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæðinni
eru tvö herbergi og miðrými. Stórar norðvestursvalir eru nú á íbúðinni en gert
er ráð fyrir mjög stórum suðursvölum samkvæmt samþykktum teikningum.
Glæsileg eign á besta stað í bænum.
OPIÐ HÚS sunnudaginn 18. júní
milli 16 og 18 að Klapparstíg 40, Reykjavík.
Halldór I. Andrésson
sölumaður, sími: 840-4042
Guðrún Árnadóttir
lögg. fasteignasali
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Melahvarf - m. hesthúsi
Vandað einlyft 182,8 fm einbýli ásamt 70,7
fm hesthúsi. Húsið skiptist í forstofu, innra
hol, 2 saml. vinkilstofur, eldhús, 3 svefnh.,
bað, þvottahús og innb. 33,9 fm bílskúr.
Hesth., sem auðvelt er að breyta í sér
íbúð, skiptist í gang/forstofu, kaffistofu,
baðh., heygeymslu og 8 bása. Eign sem
býður upp á mikla möguleika. Fallegur
garður m. heitum potti o.fl. V. 65 m. 5894
Vel skipulögð 4ra-5 herb. 111 fm íbúð á
efstu hæð ásamt innbyggðum 20 fm bíl-
skúr í þessu þekkta fjölbýlishúsi. Húsið er
skemmtilega hannað, opin og ljós rými
nýtast vel, öll herbergi eru rúmgóð, sér-
þvottahús í íbúð. Stórar svalir og einstakt
útsýni. Arkitekt er Sigvaldi Thordarson.
V. 24,4 m. 5883
Mjög falleg og rúmgóð 5 herb. endaíbúð á
3. hæð. Íbúðin skiptist þannig:
2 stofur, eldhús, baðherbergi, 3 herbergi,
svefnálma og forstofa.
Innbyggður bílskúr með sjálfvirkum hurða-
opnara. V. 28,0 m. 5900
Hellisgata - Einbýli m/aukaíbúð
Vel skipulögð og frábærlega vel staðsett
eign. Húsið er á tveimur hæðum. Efri hæð
skiptist í anddyri, sjónvarpsh., tvö svefnh.,
eldhús, baðherb. og stofur, innangengt er
á neðri hæð. Neðri hæð skiptist í anddyri
og stigahol, wc, eldhús, svefnh., stofu/
svefnh., þvottah., lítið vinnuherb.
(geymsla) og bílskúr. V. 45,0 m. 5792
Mururimi - Fallegt parhús
Mjög fallegt u.þ.b. 180 fm parhús á eftir-
sóttum stað í Grafarvogi. Eignin skiptist í
tvær hæðir og innb. bílskúr, 3-4 svefnh.
Fallegar innr., ljóst parket og mikil lofthæð
í stofu. Planið er hellulagt og upphitað.
Góður hellulagður sólp. með skjólveggj-
um. Fallegur garður í góðri rækt. Húsið er
staðasett í enda botnlanga. Stutt er í
skóla og alla þjónustu. V. 40,5 m. 5809
OPIÐ HÚS - Stóragerði 11 - 1. hæð
140,8 fm neðri sérhæð ásamt geymslu í
kjallara og 30 fm bílskúr. Húsið er teiknað
af Sigvalda Thordarson og var klætt að
utan árið ‘99. Hæðin skiptist í forstofu,
snyrtingu, hol, stofu, borðstofu, eldhús,
þrjú svefnh., þvottah., og baðhb. Sér-
geymsla fylgir í kjallara og bílskúr sem er
næst húsi. Eignin verður til sýnis á
morgun, sun. 18. júní frá kl. 16-18.
Guðrún og Ólafur sýna. V. 39,5 m. 5831
OPIÐ HÚS - Melabraut 16 - Seltj.nesi
Falleg og mikið standsett efri sérhæð og
ris í 4-býlishúsi við Melabraut. Íbúðin
skiptist þannig að á hæðinni eru stór
stofa, eldhús, tvö herb., baðh., og hol.
Glæsilegt nýstandsett baðh. Í risi er eitt
herb. og þvottah. Bílastæði fylgir íbúðinni.
Stór lóð. Íbúðin verður til sýnis á morgun,
sunnudag frá kl. 17-18. V. 27,7 m. 5867
Ferjubakki - Neðra Breiðholt
Góð 4ra herb. íbúð á efstu hæð. Íbúðin
skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eld-
hús, bað og mjög stóra geymslu í kjall-
ara. Góðar suðursvalir. V. 18,8 m. 5879
Falleg og snyrtileg 3ja herb., íbúð á 3.
hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin er snyrtileg og
skipulag er gott. Íbúðin skiptist á tvær
hæðir. Skipting íbúðarinnar er eldhús,
baðh., barnah., og stofa á neðri hæðinni
og í risi er hjónaherb. undir súð. Geymslur
eru í risi og á jarðhæð. Þak og hús málað
í fyrra. V. 16,5 m. 5895
Berjarimi - Glæsilegar svalir
Kambsvegur - Fallegt hús
Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á efstu
hæð með sérlega stórum svölum og út-
sýni í litlu fjölbýlishúsi. Stæði í bíla-
geymslu. V. 19,4 m. 5769
Boðagrandi
Háaleitisbraut - Útsýnisíbúð