Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÍSLENSKIR ráðherrar, alþing- ismenn og æðstu menn dómsvalds: Í fyrra bréfi mínu til ykkar, sakaði ég ykkur um óafsakanlegt áhugaleysi á fíkniefnavanda ís- lenskra ungmenna og leyfði mér að benda á alvarleg mistök í með- ferð fíkla sem teknir eru fyrir afbrot. Í stað þess að ljúka slíkum málum strax í einum áfanga, eru þau dregin á langinn og valda því í raun auknum skaða. „Strangasta réttlætið er stundum mesta óréttlætið,“ sagði Ci- cero forðum. Þau orð standa enn, og eiga því miður við um meðferð eiturlyfjasjúklinganna. Í dæmi þeirra virðist afstaða dómsvaldsins því miður vera hið gamaldags viðhorf að refsa, en hvorki að betra né stuðla að lækningu, hvernig sem á því getur staðið. Kannski hefur þetta aldrei verið hugsað, hvorki af hálfu dómsvalds né löggjafarvalds. Það ber að mínu viti vott um furðulegan van- skilning að dæma helsjúkt fólk til al- mennrar fangelsisvistar. Það kemur aftur út jafnsjúkt og jafnvel verr statt en áður. Allir vita að almenn fangelsi eru opin eiturlyfjum. Í vissum til- vikum geta sjúklingarnir setið inni með þeim sem stóðu að sölu til þeirra. Vitað er um dæmi þess að sjúklingum er beinlínis séð fyrir eiturlyfjum upp í skuld sem greiða á þegar fangels- isvist lýkur. Þá er tryggt að fíkillinn losnar hvorki úr fjötrum fíknarinnar né þeirra sem hagnast á sjúkleika hans. Það er tryggt með ofbeldi hand- rukkara ef annað dugir ekki. Þetta vitið þið vel. Ég er ekki að biðja um neina lin- kind. Ég er að biðja um skilning og einhvern tilgang. Ég er þeirrar skoð- unar að handtaka eigi alla fíkla strax og þeir eru staðnir að afbrotum, hvort heldur það eru fíkniefnabrot eða auðgunarbrot af einhverju tagi til að fjármagna fíknina. Það á að hand- taka þá strax og dæma þá strax. En það á ekki að dæma þá til almennrar fangelsisvistar, heldur til vistar á sér- hæfðum, lokuðum meðferðarstofn- unum. Ég veit að ég fæ það svar að slíkar stofn- anir séu ekki til. En þá er að búa þær til. Til þess þarf húsnæði og starfsfólk. Það ætti ekki að vera svo erfitt að finna hentugt húsnæði. Ég bendi til að mynda á gamla héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði, – og kannski eru fleiri slíkir heimavistarskólar sem enginn veit hvernig nýta megi. Þessar stofnanir eiga að reyna að koma fíklunum á réttan kjöl á ný, í stað þess eins og nú er, að afstaða stjórn- valda virðist sú ein að gera fíklunum leiðina til baka eins erfiða og nokkur kostur er. Það er ykkur til skammar og veldur meiri ógæfu fíkl- anna og saklausra að- standenda þeirra en þið getið nokkurn tíma skilið. Þið hafið ekki einu sinni skilning á að búa sómasamlega að þeim meðferð- arstofnunum sem til eru. Sífelldar fjárkröggur SÁÁ eru til vitnis um það. Kaldrifjaðir fantar Þá er eftir hlutur þeirra kaldrifj- uðu fanta sem gera sér leik að því að græða fé á ógæfu annarra. Sem gera sjúklingana háða sér og nota eymd þeirra til að gera fleiri háða sér. Þeir eru hinir raunverulegu glæpamenn þótt þeir náist sjaldan og geti falið óþverraskap sinn á bak við það hrukkulitla yfirborð sem fjármunir þeirra tryggja þeim. Þeir teygja anga sína víðar en okkur grunar. Mútur geta stundum dugað vel til þagnar. Og hvernig búið þið að þeim sem eiga að eltast við þá? Á að segja okk- ur endalaust að ekki sé hægt að finna sölumenn eiturlyfja í smábæjum á borð við Akureyri, Ísafjörð og Blönduós, ef vilji er fyrir hendi? Trúir því einhver? Trúið þið því sjálfir? Eða á maður að fara að halda að þessir menn njóti einhvers konar verndar? Hvernig búið þið að lögreglu og tollgæslu? Á ég að segja ykkur það? Illa. Ég hef oft talað við ágæta menn í fíkniefnalögreglunni og meira að segja fengið hjálp þeirra í minni litlu einkabaráttu. Þeir eru góðir menn og skilningsríkir, en búa við svo skamm- arlegar aðstæður að þær hamla starfi þeirra. Sama máli gegnir um tollgæsluna. Sagt er frá fundum hennar stöku sinnum, eins og um sigur sé að ræða. En í raun er það sífelldur ósigur. Það er nefnilega aldrei sagt frá því sem tollgæslan finnur ekki. Ef vel tekst til finnur hún kannski um 5% af þeim eiturlyfjum sem berast inn í landið. Og það reikna fínu glæpamennirnir einfaldlega inn í verðið sem „eðlileg afföll“. Og hlæja kannski að öllu sam- an. Þessum mönnum á sannarlega ekki að sýna linkind eða miskunn- semi. Þeir eiga að fá að dúsa lengi á Litla-Hrauni, helst í þvílíkri ein- angrun að þeir geti ekki haldið áfram að stjórna glæpastarfsemi sinni. Ég á ekki von á því að þessi bréf mín til ykkar skili miklum árangri. Þið hafið ekki sýnt að mesta böl þjóð- arinnar angri ykkur mikið. Þið látið það viðgangast að ykkar eigin lög um bann við áfengisauglýsingum séu þverbrotin á hverjum einasta degi í öllum fjölmiðlum landsins. Til hvers settuð þið þessi lög? Til þess að láta hlæja að ykkur? Þið vitið eins vel og ég, að áfengið er enn almennari bölv- aldur en eiturlyfin, og er að auki oft- ast eiginlegt upphaf vímuefnafíkn- arinnar. Auðvitað vona ég að þið vaknið til nýs skilnings á þessari skelfingu sem ég hef áður líkt við hamfarir. En reynsla mín hefur kennt mér að í þessari baráttu breyt- ist vonin því miður oft í vonbrigði. Samt skrifa ég ykkur þessi bréf. Af því að ég get ekki orða bundist. Strangasta réttlætið er stundum mesta óréttlætið Njörður P. Njarðvík fjallar um vímuefnavanda unglinga í síðara opna bréfi sínu til stjórnvalda Njörður P. Njarðvík ’Ég er ekki aðbiðja um neina linkind. Ég er að biðja um skilning og einhvern tilgang.‘ Höfundur er prófessor emeritus og rithöfundur. WWW.EBK.DK Grafningur, Nesjavallavegur nr. 360, c/a 6 km frá gatnamótum Þingvallavegar nr. 30 Glæsileg dönsk hönnun með fallegum úthugsuðum smáatriðum. Stórir útsýnisgluggar, háar framhliðar, hátt upp í mæni i öllu húsinu, sem hleypa inn mikilli birtu og skapa gott loft og vellíðan. EBK býður 4 tegundir húsa og 35 útfœrslur. Möguleiki er á sérútfœrslum á innréttingum og að fá húsin á mismunandi byggingarstigum. Við höfum verið hluti af sumar húsalífi á Íslandi og í Danmörku i 30 ár. Sölumenn okkar og ráðgjafar Morten Eistorp GSM + 45 21 61 58 56 eða Anders Jensen GSM +45 20 86 46 59 gefa allar upplýsingar á dönsku/ensku og senda sölubœklinga (á dönsku). Nýtt: OPIÐ HÚS laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. júní kl. 13-16 Aðalskriftstofa: +45-58 56 04 00 Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Mán.- fös.: 8-16.30 Sun. og helgidaga: 13-17 BELLA CENTER: +45-32 52 46 54 C.F. Møllers Allé, Ørestaden, København Mán.- mið. og lau. 13-17 Sun. og helgidaga: 10-17 6 32 9 EBK Lyngholm 80; 72 fm stórglæsilegt, bjart sumarhús á einni hæð með yfirbyggðum sólpalli. Inngangur, 2 herbergi, bað, eldhús og stofa með stórum gluggum, sem ná niður í gólf með dyrum út á sólpall. Á heimasíðu okkar er hægt að sjá husin sem við bjóðum. Sýningahús eru staðsett við aðalskrifstofu okkar og við Bella Center: OPIÐ HÚS Í GRAFNINGI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Mjög gott 233 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk 29 fm bílskúrs. Aðal- hæðin sem er 145 fm að stærð skiptist í stofu með útgangi á svalir til suðurs og vesturs, eldhús með nýlegri innréttingu og nýlegum tækjum, 3 herbergi, öll með skápum og flísalagt baðherb. auk gesta w.c. Parket og flísar á gólf- um. Sér 3ja herb. er á neðri hæð, góðar leigutekjur. Ræktuð lóð. Gott útsýni yfir borgina. Stutt í Elliðaárdalinn og góðar gönguleiðir. Verð 45,9 millj. Eignin verður til sýnis á morgun, sunnudag, frá kl. 15.30 - 16.30 Verið velkomin. Vesturhólar 15 Tvílyft einbýlishús á útsýnisstað Opið hús á morgun, sunnudag, frá kl. 15.30-16.30 FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali BÁRUGATA - GLÆSILEG NEÐRI HÆÐ Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is Stórglæsileg 187 fm íbúð í þessu virðulega tvíbýlishúsi á einum besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Eignin hefur verið umtalsvert endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt á þessu ári í samráði við arkitekta. Íbúðin, sem er hæð og kjallari, skiptist í tvær stofur, flísalagt baðherbergi með sturtu, svefnherbergi, geymslu og eld- hús. Stigi með kókosteppi tengir hæðirnar saman. Í kjallara er inngangur, gangur, tvö rúmgóð herbergi, flísalagt baðherbergi með hornnuddbaðkari, þvottahús með innréttingu og geymslur. Hiti er í gólfum. Vönduð gólfefni og innréttingar. Glæsileg eign fyrir vandláta sem er laus strax. fasteignasala Höfðabakka 9, Reykjavík - Sími 534 2000 Ísak V. Jóhannsson Sölustjóri Við höfum fengið í sölu vel rekið sérhæft þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði. Um er að ræða fyrirtæki með 70-80 m. kr. ársveltu, með traust viðskiptasambönd og góða framlegð. Verkefnastaða er góð. Hjá fyrirtækinu, sem hefur verið starf- rækt í 15 ár, starfa nú 8-10 manns. Þórunn Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. Stórhús fasteignasala www.storhus.is Uppl. í s. 534 2000 agnar@storhus.is isak@storhus.is Sérhæft þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði til sölu Gsm 822 5588 isak@storhus.is Gsm 820 1002 agnar@storhus.is Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.