Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 33
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Undir Jökli á Jónsmessu
TVÆR göngur verða í boði undir Jökli
um Jónsmessuna. Allir eru velkomnir
hvort sem þeir ganga langt eða
skammt. Göngustjórar verða dr. Pétur
Pétursson prófessor og Sæmundur
Kristjánsson, sagnamaður í Rifi, leið-
sögumaður og landvörður. Lagt verður
af stað frá nýjum krossum sem reistir
verða við tvo forna en aflagða kirkju-
staði undir Jökli. Fyrri daginn verður
farið frá Saxhóli að Ingjaldshólskirkju.
Seinni daginn verður farið frá Einarslóni
að Hellnakirkju. Á leiðinni sjá göngu-
stjórarnir um sögu- og helgistundir.
Sagt verður frá merkum sögulegum at-
burðum, minnistæðu fólki, helgisögum
og þjóðlegum fróðleik sem tengjast
leiðinni og lífi fólks að fornu og nýju.
Minnst verður fornra og nýrra helgi-
staða, merkra sagna og atburða í sögu
kristnihalds undir Jökli. Gengið verður í
áföngum, ýmist í þögn eða samræðum.
Nauðsynlegt er að hafa drykkjarvatn
með sér sem og annað nesti.
Á MORGUN, sunnudaginn 18. júní kl. 9:00,
hefst sala á ferðum í nýju vetrarflugi Iceland
Express til Friedrichshafen sem verður alla
laugardaga frá 30. desember í vetur og fram til
3. mars nk.
Iceland Express hóf beint áætlunarflug til
borgarinnar í vor en auk þess að vera sumar-
dvalarstaður er Friedrichshafen talinn ákjósan-
legur áfangastaður fyrir þá, sem hyggja á skíða-
ferðir á veturna. Í fréttatilkynningu frá Iceland
Express kemur fram, að þar séu margir af
þekktustu skíðastöðum heims og fjölbreyttir val-
kostir í boði. Með tilkomu þessa vikulega vetrar-
flugs Iceland Express gefst skíðafólki enn-
fremur kostur á því að velja, undirbúa og panta
skíðaferðir sínar sjálft, til dæmis á Netinu.
Grunnverð á flugi til Friedrichshafen er 7.995
kr. aðra leið með sköttum, hið sama og á öðrum
leiðum Iceland Express.
ICELAND EXPRESS | Flogið vikulega til Friedrichshafen við Bodensee í Þýskalandi næsta vetur
Ný leið fyrir skíðafólk
Allar upplýsingar um skíðaferðir í nágrenni
Friedrichshafen er að finna á slóðinni www.ice-
landexpress.is/skidi
Dæmi um þekkta skíðastaði nálægt Friedrichs-
hafen:
Lech/Zürs er í 125 km fjarlægð frá Friedrichs-
hafen og þangað er u.þ.b. 90 mínútna akstur.
Yfir 250 gististaðir eru í Lech/Zürs og 280 km
af skíðabrekkum. Íslenskur skíðakennari er á
svæðinu.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni
www.lech-zuers.at
St. Anton er einnig í um 125 km fjarlægð frá
Friedrichshafen. Þar eru 80 skíðalyftur, góðir
skíðaskólar og fjölda gististaða.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni
www.stantonamalberg.com
Ischgl er 180 km frá Friedrichshafen og tekur
aksturinn þangað um 2 klukkustundir.
Aðalskíðasvæðið,sem er í 2.000–2.900 m hæð
er kjörið fyrir þá sem gera kröfur í brekkunum og
þar er einnig aðstaða fyrir brettafólk.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni
www.ischgl.com
Schruns er í um 100 km fjarlægð frá Fried-
richshafen. Schruns er meðal 11 þorpa í Montafon
dalnum. Þar eru 290 km af gönguskíðabrautum
og 10 skíðaskólar.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni
www.schruns-tschagguns.at
Davos er 150km frá Friedrichshafen.
Í Davos er öruggt snjósvæði og þar er að finna
skíðasvæðin Jakobshorn, Parsenn, Pischa,
Madrisa og Rinerhorn.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni:
www.davos.ch
Góðar aksturleiðbeiningar á alla helstu staði
eru á www.multimap.com _
Frá 30. desember og fram í mars verður Iceland Express með vikulegt flug til Friedrichshafen.
ÚTIVISTAR- og göngusvæðið í
Kerlingarfjöllum hefur verið opn-
að formlega fyrir sumarumferð.
Eftir að skíðaiðkun var lögð af í
Kerlingarfjöllum árið 2002 og öll
áhersla lögð á að byggja upp úti-
vistar- og göngusvæði hefur að-
sókn almennra ferðalanga farið
stigvaxandi, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Kerlingar-
fjöllum.
„Gistipantanir í sumar eru nú
þegar hátt á fjórða þúsundið ásamt
því að átta hundruð hestar koma
við í fjöllunum í sumar. Kjalvegur
er nýheflaður og með besta móti.
Fært er í Kerlingarfjöll á öllum bíl-
um – bæði stórum og smáum.
Staðarhaldari í sumar verður
sagnfræðingurinn Þóra Fjeldsted,
segir enn fremur.
Í Kerlingarfjöllum er nú að finna
fjölmargar merktar og ómerktar
gönguleiðir og útsýni af toppunum
í Kerlingarfjöllum er með því
mesta sem gerist á Íslandi.
Á vegum Hópferðamiðstöðvar-
innar verður komið við í Kerling-
arfjöllum á daglegum ferðum bæði
norður og suður Kjöl. Þá hefur
Ferðafélag Íslands ákveðið að setja
saman þrjár hópferðir með leið-
sögumönnum í fjöllin í sumar.
KERLINGARFJÖLL | Formlega búið að
opna svæðið fyrir ferðamenn í sumar
Fallegt útivistar-
og göngusvæði
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
www.kerlingarfjoll.is
27.200
Vika í Þýskalandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
32
54
6
05
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá
Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
22
3
0
3
Barcelona
í allt haust
frá 19.990 kr.
Flugsæti með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð
6. og 13. nóv. Netverð á mann.
Prag
í okt. og nóv.
frá 19.990 kr.
Flugsæti með sköttum.
m.v. 2 fyrir 1 tilboð
6. nóv. Netverð á mann.
Búdapest
allan október
frá 19.990 kr.
Flugsæti með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð
10. okt. Netverð á mann.
Róm
17. nóv.
frá 64.300 kr.
Flug, skattar og gisting
í tvíbýli á Hotel Archimede
í 4 nætur. Netverð á mann.
Kraká
í okt. og nóv.
frá 37.930 kr.
Flug, skattar og gisting í tvíbýli á
Hotel Eljot í 3 nætur 23. okt.
með 8.000 kr. afslætti.
Netverð á mann.
Ljubljana
27. okt.
frá 54.990 kr.
Flug, skattar og gisting í tvíbýli á
Hotel City í 4 nætur.
Netverð á mann.
Aukaflug
veisla
í beinu flugi
í haust
Borgar