Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 25
ERLENT
Mogadishu, París. AFP, AP. | UM tíu
þúsund manns komu saman í mið-
borg Mogadishu í Sómalíu í gær og
mótmæltu svonefndri bráðabirgða-
stjórn landsins, sem á miðvikudag
lagði til að farið yrði fram á að er-
lendar friðargæslusveitir kæmu til
landsins í því skyni að stilla til frið-
ar. Fólkið styður samtök íslamista,
sem nýverið tóku völdin í Mogad-
ishu og á stórum svæðum í landinu
og vildi það lýsa óánægju sinni með
ákvörðun bráðabirgðaþingsins.
„Við getum séð um að velja okkar
eigin stjórnarherra,“ hrópaði fólkið,
en formlegt þing landsins, sem í
reynd ræður ekki lengur ferðinni,
fór fram á það í vikunni að her-
sveitir frá Úganda og Súdan kæmu
til að aðstoða ríkisstjórnina við að
tryggja eigin völd og stöðugleika.
Mótmælendur beindu spjótum
sínum einnig að Bandaríkjastjórn,
sem er talin hafa stutt við bak
stjórn stríðsherra í Sómalíu, sem
síðustu vikur hefur farið halloka
fyrir sveitum íslamista. „Bush er
stríðsglæpamaður sem drepið hefur
fjölda fólks,“ sagði á einu spjaldi,
sem haldið var á lofti. „Til fjandans
með ykkar lýðræði,“ sagði á öðru.
Engin ein starfhæf ríkisstjórn
hefur verið í Sómalíu frá því ein-
ræðisherranum Mohammed Siad
Barre var steypt af stóli 1991,
a.m.k. engin sem í reynd hefur full
yfirráð yfir landinu. Hafa svonefnd-
ir stríðsherrar því ráðið ríkjum allt
þar til nú að íslamistar hafa hrifsað
til sín völdin.
Fréttaskýrendur telja Bandaríkin
hafa verið að leika háskalegan leik
með stuðningi sínum við stríðsherr-
anna, sem átt hafa óformlegt
bandalag sín í millum. Virðist enda
sem afskipti Bandaríkjanna – sem
einkum eru talin hafa falist í fjár-
stuðningi – hafi orðið til þess, að
stuðningur óx við íslamistana. Var
andúð enda mikil gagnvart stríðs-
herrabandalaginu og harðneskju-
legum stjórnarháttum þess. Banda-
ríkjamönnum mun hins vegar hafa
gengið það til, að koma í veg fyrir
að eins konar talibanastjórn kæmist
til valda í Sómalíu, álíka þeirri sem
réði ríkjum í Afganistan til 2001.
Mótmæltu afskiptum
Bandaríkjastjórnar
AP
Þeim var heitt í hamsi, Sómölunum sem tóku þátt í mótmælunum.
Washington. AFP. | Írösk fangelsi eru
yfirfull af herskáum sjíta múslímum
sem misþyrma og myrða samfanga
sína og er ástandið svo slæmt, að
bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að
fresta tímabundið flutningi á stjórn
fimm fangelsa til Íraka.
„Fangelsi varnarmála- og innan-
ríkisráðuneytisins eru vettvangur al-
varlegustu mannréttindabrotanna,“
sagði Muhammed al-Dayni, þing-
maður úr röðum súnníta, sem fyrir
skömmu fór í óvænta heimsókn í
fangelsi á vegum innanríkisráðu-
neytisins í Baqouba, norður af Bag-
dad.
Að sögn al-Dayni er allt að 120
föngum komið fyrir í 126 fermetra
klefum. „Þeir sögðu okkur að þeim
hefði verið nauðgað,“ sagði al-Dayni.
„Fjölskyldur þeirra voru látnar
mæta í fangelsin þar sem þær voru
pyntaðar til að þvinga fanganna til
að bera vitni gegn öðru fólki.“
Kúrdinn Pusho Ibrahim Ali Daza
Yei, aðstoðardómsmálaráðherra
írösku stjórnarinnar, tók í sama
streng og sagði að Írakar gætu „ekki
stjórnað fangelsunum“ .
„Þræðir vígamanna tengjast alls-
staðar í fangelsunum, frá Basra til
Bagdad,“ sagði Yei. Þá sagðist ráð-
herrann hafa sent bandarískum yf-
irmanni fangelsismála í Írak bréf
þar sem þess var óskað að fallið yrði
tímabundið frá áætlun um að flytja
stjórn fimm fangelsa með yfir 15.000
föngum yfir til írösku stjórnarinnar,
vegna þess að hún væri „ekki tilbú-
in“ til að taka við stjórn þeirra.
Mannréttindabrot í
íröskum fangelsum
Genf. AFP. | Ef ekkert verður að gert
mun 1,4 milljarðar manna, eða sem-
svarar íbúafjölda Kína, búa í hreys-
um í fátækrahverfum árið 2020.
Fjöldi fólks, sem býr við slíkar að-
stæður, eykst nú um 4,5 prósent á ári
á svæðinu sunnan Sahara-eyðimerk-
urinnar í Afríku og er því spáð að ár-
ið 2020 muni því fjölga um 27 millj-
ónir á heimsvísu.
Þessu er haldið fram í nýrri
skýrslu Búsetunefndar Sameinuðu-
þjóðanna (UN-Habitat) um borgir
jarðarinnar, en þar segir að um einn
milljarður manna búi í dag í fátækra-
hverfum, eða einn af hverjum þrem-
ur í þéttbýli. Þá segja höfundar
skýrslunnar að mikill meirihluti
íbúaaukningar í þéttbýli muni fara
fram í þróunarlöndunum, eða 95 pró-
sent. Fyrir vikið munu 5 af þeim 8,1
milljarði fólks, sem er talið munu búa
á jörðinni 2030, búa í borgum.
Markmið nefndarinnar er að fækka
íbúum fátækrahverfa um 700 milljón-
ir fyrir árið 2020. Í þessu markmiði
felst mikil áskorun, enda hefur hag-
vöxtur víða verið góður á undanförn-
um árum á sama tíma og íbúum fá-
tækrahverfa hefur fjölgað.
„Hagvöxtur leiðir ekki endilega til
þess að íbúum fátækrahverfa fækk-
ar,“ sagði Eduardo Moreno, einn höf-
unda skýrslunnar. Hins vegar sagði
Moreno að það markmið nokkurra
Norður-Afríkuríkja, sérstaklega
Egyptalands, fyrir 10 til 15 árum, um
að fækka íbúum fátækrahverfa hefði
borið árangur og að þeim hefði fækk-
að síðan.
Fátækrahverfi vaxa stöðugt