Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 29
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Það líst mörgum mjög
vel á þetta hjá okkur og sjálfur
ætla ég að byggja mér hús á
þessu svæði í einhverjum þeirra
stíla sem fram kom í samkeppn-
inni,“ sagði Ólafur B. Snorrason,
framkvæmdastjóri Rækt-
unarsambands Flóa og Skeiða,
sem eru eigendur Hagalands á
Selfossi. Fyrirtækið stóð nýlega
fyrir hönnunarsamkeppni í sam-
vinnu við Arkitektafélag Íslands
um hönnun húsa í nýlega deili-
skipulögðu íbúðahverfi.
Samkeppnin er einstök að því
leyti að einkaaðilar hafa ekki áður
staðið fyrir sambærilegri keppni
þar sem markmiðið er að ná fram
heildstæðri mynd af byggðinni.
Fimm tillögur bárust í keppnina
og voru þær metnar af dómnefnd.
Fyrstu verðlaun fyrir einbýlishús,
parhús á einni hæð og raðhús á
tveimur hæðum hlaut arkitektur.is
og einnig fyrir átta íbúða hús á
tveimur hæðum. Fyrir 22ja íbúða
hús á þremur hæðum hlaut fyrstu
verðlaun Ali Tabatabai arkitekt,
Andersen & Sigurðsson arkitektar
í samvinnu við Steinar Sigurðsson
FAÍ.
Tillögurnar verða til sýnis í júní
á Hótel Selfossi við veitingastað-
inn Riverside.
Það sem fólk vill
„Okkur langaði til að fá fram
hugmyndir um hvort hægt væri að
fá fram nýja mynd af hverfi sem
fólk hefði áhuga á að búa í. Einnig
vorum við með í huga að fá fram
góðar teikningar af húsum í svip-
uðum stíl sem gæti verið hag-
kvæmt að nota aftur og aftur með
einhverjum breytingum. Maður
veit til þess að bæjarfélög hafa
látið gera þetta eins og til dæmis
Kópavogur þar sem þetta tókst
mjög vel og íbúðirnar á svæðinu
eru eftirsóttar. Svona íbúðasvæði
eiga það sammerkt að íbúðirnar
eru vinsælar. Við vildum fá fram
tillögur frá fagfólki um lausnir í
þessu sambandi, arkitektarnir vita
hverju fólk er að sækjast eftir.
Markmiðið var að finna hug-
myndir sem nýtast í framtíðinni.
Núna eigum við eftir að fá álit
byggingameistara á þessum til-
lögum og við erum að móta hug-
myndir okkar. Við viljum ganga
rösklega til verks og sjálfur er ég
að velta fyrir mér að þarna verði
reist nokkur hús, svona til að
finna viðbrögð markaðarins. Í því
efni erum við í viðræðum við verk-
taka um að skoða möguleika í
framhaldi af samkeppninni og auð-
vitað geta verktakar haft samband
við okkur ef þeim sýnist svo,“
sagði Ólafur.
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða er með um 100 manns í
vinnu við umfangsmikla verktaka-
starfsemi í jarðvinnu, jarðbor-
unum, og slitlags- og klæðning-
arverkefnum á vegum. „Svo erum
við að fikra okkur inn á bygg-
ingamarkaðinn,“ sagði Ólafur sem
kveðst hafa mikla ánægju af starf-
inu, „maður slakar best á í
vinnunni með því að hafa gaman
af því sem maður er að gera og
þannig erum við hérna. Svo er líka
mjög gott að slaka á í laxveiðinni
og í garðinum heima, það má nú
ekki alveg láta starfið taka allan
tímann, þó það sé gaman í
vinnunni,“ sagði Ólafur Snorrason,
framkvæmdastjóri Rækt-
unarsambands Flóa og Skeiða.
Nýlokið er arkitektasamkeppni um íbúðahverfi á Selfossi
Morgunblaðið/Egill Bjarnason
Góð niðurstaða Fulltrúar arkitektur.is sem sigruðu í samkeppni um hönnun bygginga í Hagalandi, ásamt eig-
endum landsins, forráðamönnum Ræktunarsambands Flóa og Skeiða, eftir að niðurstöður voru kynntar.
Leitað að hugmyndum
fyrir framtíðina
Eftir Sigurð Jónsson
Árborg | Í málefnasamningi Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sem myndað hafa meirihluta í bæj-
arstjórn Sveitarfélagsins Árborgar
kemur fram að foreldrum sem
kjósa að vera heima með börn sín
frá níu til átján mánaða aldri verð-
ur boðin greiðsla upp á 20 þúsund
kr. á mánuði. Jafnframt er því lýst
yfir að öllum börnum frá átján
mánaða aldri verði tryggð leik-
skólavist á kjörtímabilinu.
Lofað er að uppbygging á full-
nægjandi húsnæði Barnaskólans á
Eyrarbakka og Stokkseyri verði í
báðum þorpunum. Hönnun hefjist
í ár og framkvæmdir ekki síðar en
2008.
Endurbætur á Sundhöll Selfoss
hefjast í ár og byggður verður upp
aðalleikvangur við Engjaveg og
fjölnota íþróttahús á kjörtíma-
bilinu.
Þá er stefnt að framtíðar
íþrótta- og afþreyingarsvæði við
Flugvöll Selfoss.
Fram kemur að æfinga- og tóm-
stundagjöld barna á grunnskóla-
aldri verða greidd niður um 10
þúsund kr. á ári.
Greiða foreldrum 20 þúsund á mánuði
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Rimini
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
22
3
0
1
Króatía
Costa del Sol
Fuerteventura
Benidorm
Mallorca
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
21. eða 28. júní og 5. júlí í viku.
26. júlí - uppselt
2. ágúst - nokkur sæti
9. ágúst - 17 sæti
29.995 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
21. og 28. júní í viku.
26. júlí - uppselt
2. ágúst - 21 sæti
9. ágúst - nokkur sæti
34.990 kr.
39.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð
21. júní í 6 nætur. 27. júní í
7 nætur, kr. 5.000 aukalega.
25. júlí - nokkur sæti
1. ágúst - 18 sæti
8. ágúst - 23 sæti
29.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
22. eða 29. júní og 6. júlí í viku.
27. júlí - nokkur sæti
3. ágúst - 14 sæti
10. ágúst - nokkur sæti
29.990 kr.
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð.
29. júní og 6. júlí í viku.
27. júlí - uppselt
3. ágúst - 7 sæti
10. ágúst - nokkur sæti
34.990 kr.
Bókaðu núna!
að seljast upp!
Síðustu
sætin
Netverð á mann, m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára, í íbúð á
Aquamarina, 6. eða 13. júlí í viku.
20. júlí - nokkur sæti
27. júlí - uppselt
3. ágúst - uppselt
10. ágúst - nokkur sæti
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
ER PABBI
DÍLERINN ÞINN?
Foreldrar og aðrir fullorðnir mega ekki
kaupa áfengi handa börnum yngri
en 20 ára. Það er lögbrot.