Morgunblaðið - 17.06.2006, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRÍLITI (hvíti, rauði og blái) fáninn
var vígður þjóðfáni Íslands, hins
frjálsa og fullvalda íslenska ríkis,
sunnudaginn 1. desember 1918.
Hugmyndin að gerð og gildi neð-
anskráðs ljóðs, Til þjóðfánans, er að
miklu leyti sótt í ljóð Einars skálds
Benediktssonar: Til fánans, þ.e.
Hvítbláans, „Rís þú unga Íslands
merki“.
Einar Benediktsson var, eins og
kunnugt er, mikill hvatamaður þess
að íslenski fáninn yrði þannig gerð-
ur: Hvítur kross á bláum feldi. Þegar
á reyndi að þessi yrði gerð fánans
kom í ljós að hann líktist of mikið
gríska fánanum og reyndar þeim
sænska líka, til þess að sú hugmynd
næði fram að ganga. Úr því bætti
Matthías Þórðarson, síðar þjóð-
minjavörður.
Á fundi í Stúdentafélagi Reykja-
víkur þann 27. september 1906 lagði
hann fram og sýndi mynd af nýjum
krossfána með þeirri breytingu að
inni í þeim hvítbláa miðjum var nú
kominn rauður kross. Þar með voru
komnar tvær gerðir, hinn tvíliti og
þríliti fáni fyrir Ísland. Deilt var
lengi og allhart um þessar tvær fána-
gerðir, bæði utan þings og innan.
En áfram miðaði að langþráðu
takmarki. Hin þrílita fánagerð varð
sérfáni og siglingafáni Íslendinga.
Dagurinn rann upp sunnudaginn
1. desember 1918, þegar sam-
bandslögin gengu í gildi og Ísland
varð frjálst og fullvalda ríki. Fjöl-
mennt var fyrir framan stjórn-
arráðshúsið, íslenski fáninn var
dreginn að húni. Af þrepum hússins
flutti settur forsætisráðherra, Sig-
urður Eggerts, ræðu til mannfjöld-
ans og sagði þá m.a.: „Og í gær hefur
konungurinn gefið út úrskurð um
þjóðfána Íslands, sem blaktir frá því
í dag yfir hinu íslenska ríki … Fán-
inn er tákn fullveldis vors … Fáninn
er ímynd þeirra hugsjóna, sem þjóð-
in á fegurstar, hvert stórverk sem
unnið er af oss, eykur veg fánans,
hvort sem það er unnið á höfum úti í
baráttu við brim og úfnar öldur, eða
á svæði framkvæmdanna, eða í vís-
indum og fögrum listum. Því göfugri,
sem þjóð vor er, þess göfugri verður
fáni vor. Vegur hans og frami er
frægð þjóðar vorrar … Vér biðjum
alföður að styrkja oss til að lyfta fán-
anum til frægðar og frama …“
Á Stjórnarráðshúsinu blakti ís-
lenski fáninn við hún í fyrsta skipti
sem þjóðfáni hins íslenska frjálsa og
fullvalda ríkis. Þannig fór það saman
– vígsludagur þjóðfánans og fullveld-
isdagurinn. Og vígsluorð þjóðfánans
áðurnefnd, vel mælt lýsingar- og
bænarorð ráðherrans – hins eldheita
hugsjónamanns, sem undirritaður
þekkti mjög vel af persónulegum
kynnum.
Með þetta tákn þjóðarinnar erum
við í dag Íslendingar. Leitast er við
að gera orðum ráðherrans skil í ljóð-
inu um þjóðfánann.
Til þjóðfánans
Sjá, friðarbogi í skýjum skín,
svo skartar Íslands fáni.
Þitt geislar útlit - ásýnd þín,
hér eins og sól og máni.
Kær fagurbláinn helgist hann
sem hvítt og rautt kross merkið,
næst jökulísnum eldhraun brann,
er Íslands kraftaverkið.
Skín yfir fáni Alþingis
og æðst á vakt hann standi
til forsjónar og fulltingis,
þar fyrir þjóð og landi.
Í musterum og menntasal,
á miðum – landsbyggð yfir,
á ystu strönd sem innst í dal,
hjá öllum fáninn lifir.
Hér ruddi braut Jón Sigurðsson,
vor sómi lands og þjóðar.
Og frelsið kom hans fremsta von,
varð fáni tákn þess óðar.
Ó, vernda, Drottinn, borg sem byggð
og bæði loft og sæinn.
Þín eilíf varir ást og tryggð,
þú Íslands blessar daginn.
(Í greinargerð þessari er stuðst við Ágrip af
sögu íslenska fánans eftir Birgi Thorlacius
ráðuneytisstjóra.)
PÉTUR SIGURGEIRSSON,
biskup.
Til þjóð-
fánans
Frá Pétri Sigurgeirssyni:
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðblár, mjallhvítur og eldrauður: Íslenski fáninn var vígður þjóðfáni Ís-
lands sunnudaginn 1. desember 1918.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
20. JÚNÍ er al-
þjóðadagur flótta-
manna. Hér á Íslandi
munu Rauði krossinn
og Flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóð-
anna nota 17. júní til
að vekja athygli á
stöðu flóttamanna og
allra þeirra sem vegna
stríðsátaka, ofsókna eða ofbeldis
eru neyddir til að vera fjarri heim-
ilum sínum.
Flóttamenn eru ósköp venjulegt
fólk sem hefur orðið fórnarlömb
hörmulegra aðstæðna í heimalandi
sínu. Öfugt við Íslendinga og aðra
sem kjósa að flytjast á milli landa
af ýmsum ástæðum, þá kjósa
flóttamenn ekki að flytjast búferl-
um í ókunnugt og framandi land.
Flóttamenn neyðast til að flýja
heimili sín, neyðast til að fara frá
fjölskyldu sinni og vinum. Bak-
grunnur og saga hvers flóttamanns
er mismunandi.
Sumir eru efnaðir,
aðrir fátækir
Sumir vel menntaðir og aðrir
ómenntaðir. Sumir eru ungabörn á
meðan aðrir eru háaldraðir. Allir
eiga þeir þó einn sameiginlegan
draum sem tengir þá saman: þá
dreymir um og vonast eftir bjartari
framtíð og möguleika á friðsælu lífi
í öruggu landi eins og annað fólk.
Þema alþjóðadagsins í ár er
VON en það er einmitt í krafti
vonarinnar sem flóttamenn um all-
an heim hafa yfirunnið gífurlega
erfiðleika til þess að reyna að
byggja líf sitt upp að nýju. Hver
flóttamaður á sína sögu en saga
allra er sigur vonar yfir örvænting-
unni.
Samkvæmt flóttamannasamningi
Sameinuðu þjóðanna er flóttamað-
ur sá sem er utan heimalands síns
„og af ástæðuríkum ótta við að
verða ofsóttur vegna kynþáttar,
trúarbragða, þjóðernis, aðildar í
sérstökum félagsmálaflokkum eða
stjórnmálaskoðana, og getur ekki,
eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa
sér í nyt vernd þess lands …“.
Það er mikilvægt að hafa í huga
að flóttamenn eru ekki aðeins fórn-
arlömb. Flóttamenn koma með
mikinn mannauð og lífga upp á
menningu landa. Allir vita hver Al-
bert Einstein var. Það vita hins
vegar ekki allir að hann var flótta-
maður. Madeleine Albright, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, var líka flóttamaður og
sömuleiðis Miriam Makeba sem ný-
lega söng á Listahátíð í Reykjavík.
Árið 1950 var Flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóðanna stofnuð.
Mikilvægasta hlutverk hennar er
að tryggja að grundvallarmannrétt-
indi flóttamanna séu virt og að
enginn sé sendur nauðugur til
lands þar sem hætta er talin á að
viðkomandi verði fyrir ofsóknum.
Flóttamannastofnun vinnur oft náið
með ríkisstjórnum og biðlar stund-
um til þeirra um að taka á móti
flóttafólki sem getur ekki snúið til
heimkynna sinna og vantar öruggt
land til að búa í.
Flóttamannastofnun SÞ hefur á
síðastliðnum 55 árum hjálpað yfir
50 milljónum manna við að byggja
líf sitt upp að nýju og það starf
heldur áfram í 100 löndum. Í dag
aðstoðar Flóttamannastofnunin um
20 milljónir einstaklinga. Stofnunin
hefur tvívegis fengið friðarverðlaun
Nóbels fyrir störf sín í þágu flótta-
fólks, árin 1954 og 1981. Rauða
kross hreyfingin hefur aðstoðað
flóttamenn frá árinu 1875.
Íslensk stjórnvöld hafa frá árinu
1956 tekið á móti um 450 flótta-
mönnum í samvinnu við Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna, Rauða krossinn og
sveitarfélög á Íslandi. Á síðasta ári
tók Reykjavíkurborg í samvinnu
við Rauða krossinn á móti 31
flóttamanni frá Kólumbíu og Kos-
ovo. En einnig koma hingað til
lands einstaklingar sem óska eftir
hæli á Íslandi sem flóttamenn og á
undanförnum 10 árum hafa um 500
einstaklingar sótt um hæli á Ís-
landi. Hefur hluta þeirra verið veitt
landvistarleyfi af mannúðar-
ástæðum og einn fengið stöðu
flóttamanns.
Í tilefni alþjóðadags flóttamanna
munu Rauði kross Íslands og
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna standa saman að kynn-
ingu á málefnum flóttamanna og
hælisleitenda heima og heiman og
verður dagskrá í Mæðragarðinum í
Lækjargötu á milli kl. 14 og 18
hinn 17. júní. Fulltrúar frá Reykja-
víkurborg og Rauða krossinum
kynna flóttamannaverkefnið í
Reykjavík. Einnig verður ljós-
myndasýning með myndum úr
flóttamannabúðum, spil og fræðslu-
efni af ýmsu tagi.
Atli Viðar Thor-
stensen og Ómar H.
Kristmundsson
fjalla um flóttamenn
á Íslandi
’Íslensk stjórnvöldhafa frá árinu 1956
tekið á móti um 450
flóttamönnum í sam-
-vinnu við Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu
þjóðanna, Rauða kross-
inn og sveitarfélög
á Íslandi.‘
Atli Viðar er verkefnisstjóri hjá
Rauða krossi Íslands. Ómar er for-
maður Rauða kross Íslands.
Ómar H.
Kristmundsson
Alþjóðadagur
flóttamanna
haldinn hátíðlegur
Atli Viðar
Thorstensen_
LÍKLEGA horfa fleiri Íslendingar á
fótbolta þessar vikurnar en nokkru
sinni áður. Í gegnum þann áhuga er
líklega málkennd fleiri Íslendinga
ógnað eða henni spillt en nokkru sinni
fyrr. Með orðskrípinu knattspyrna.
Eins og Kristján Albertsson benti
á fyrir bráðum sjötíu árum er orðið
knattspyrna vanskapningur. Í fót-
bolta er ekki leikið með knött heldur
bolta. Fornmenn léku með knött, sem
er gegnheill hlutur úr viði eða málmi.
Bolti er hins vegar léttur og holur að
innan, fylltur af lofti. Það liggur í
orðsins hljóðan.
Og þessum bolta er ekki spyrnt,
heldur er honum
sparkað. Það er
spyrnt í það sem
veitir viðnám,
þungan hlut eða
illhagganlegan.
Bolti er hvorugt.
Það eru helzt
íþróttafréttamenn
sem tala um „að
spyrna knettinum
vel“ þegar bolta er sparkað af list.
Þetta gera þeir líklega gegn betri
málvitund, kannske af ótta við að
vera skammaðir enn einu sinni fyrir
slæmt málfar. Þegar upphefst óform-
legt spjall í myndveri kemur hins
vegar í ljós hver máltilfinning þeirra
er. Þá er bolta sparkað eins og eðli-
legt er.
Afleidd orð, svo sem aukaspyrna,
vítaspyrna, markspyrna og horn-
spyrna, eru ekki bara vitlaus heldur
óþörf. Þær heita aukaspark (eða
fríspark), víti, útspark og horn á eðli-
legu íslenzku máli.
Sem betur fer er ekki svo komið að
strákar hringi dyrabjöllu hjá vinum
sínum og spyrji: „Viltu koma út í
knattspyrnu?“ Þeir fara enn í fót-
bolta. Við ættum að gera slíkt hið
sama. Og sparka knettinum út í hafs-
auga.
KARL TH. BIRGISSON,
áhugamaður um fótbolta.
Spyrnum við fótum fyrir boltann
Frá Karli Th. Birgissyni:
Karl Th. Birgisson
Magnea Sverrirsdóttir, löggiltur fasteignasali
MURURIMI - FALLEGT PARHÚS
Mjög fallegt u.þ.b. 180
fm parhús á eftirsóttum
stað í Grafarvogi. Eign-
in skiptist í tvær hæðir
og innbyggðan bílskúr.
3-4 svefnherbergi. Fal-
legar innréttingar, ljóst
parket og mikil lofthæð
í stofu. Planið er hellu-
lagt og upphitað. Góður
hellulagður sólpallur
með skjólveggjum.
Fallegur garður í góðri
rækt. Húsið er staðsett í enda botnlanga. Stutt er í skóla og alla þjónustu.
V. 40,5 m. 5809
Hraunhamar kynnir: Glæsileg, ný
sumarhús á kjarrivöxnu eignar-
landi í Grímsnesinu. Húsin eru
fjögur, nr. 1, 3, 5 og 7 við
Álfahraun í landi Miðengis,
afleggjari til vinstri rétt fyrir ofan
Kerið. Húsin eru 60 fm og auk
þess eru 25 fm gestahús, samtals
85 fm og 150 fm afgirt verönd
með potti. Húsunum verður skilað
algjörlega fullbúnum að utan sem
innan með öllum tækjum, parketi
á gólfum en án húsgagna. Allur
frágangur er til mikilla fyrirmyndar.
Frábær staðsetning, ca 50 mín.
frá Rvk. Verð 24,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sumarhús - Grímsnesi