Morgunblaðið - 17.06.2006, Page 51

Morgunblaðið - 17.06.2006, Page 51
arfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Stykk- ishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18. Bol- ungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþ- ólska kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagils- stræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. Tilbeiðslu- stund á hverjum föstudegi kl. 17 og messa kl. 18. KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja- vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu- maður: Don McFarlane. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Bibl- íufræðsla kl. 10. Guðþjónusta kl. 11. Ræðumaður Osi Carvalho. Safnaðarheim- ili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Bibl- íufræðsla kl. 10.15. Guðþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. Aðvent- kirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Rachel Ludwig. BRAUTARHOLTSKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Aðalsafnaðarfundur eftir messu. Dagskrá: Venjuleg aðalfund- arstörf. Gunnar Kristjánsson, sókn- arprestur og sóknarnefndin. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Létt- messa kl. 11 í Landakirkju. Félagar úr kór Landakirkju syngja. Gengið verður að borði drottins. Prestur sr. Þorvaldur Víðisson. LÁGAFELLSKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta 17. júní kl. 11. Ræðumaður: Ásgeir Eiríks- son, frv. formaður sóknarnefndar Lága- fellssóknar. Einsöngur: Margrét Árnadótt- ir. Kirkjukór Lágafellskirkju. Organisti. Jónas Þórir. Prestur: sr. Ragnheiður Jóns- dóttir. Skátar úr Mosfellsbæ standa heið- ursvörð. Prestarnir. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgunsöngur kl. 10.30. Ath. breyttan messutíma. Ræðuefni: Opinberun Jóhannesar og talan 666. Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Org- anisti Antonia Hevesi. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs- þjónusta fellur niður nk. sunnudag vegna sumarleyfis. VÍDALÍNSKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta verður 17. júní kl. 13.15. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar í guðsþjónustunni ásamt Ástu Maríu Harðardóttur, forseta nemendafélags FG, og nýstúdentunum Unu Emilsdóttur, Hafdísi Helgadóttur og Helgu Láru Grétarsdóttur. Ragnheiður Helga Sæmundsdóttir nýstúdent flytur ávarp. Jóhann Baldvinsson leiðir lofgjörð- ina ásamt kór Vídalínskirkju, en Jökull Ern- ir Jónsson nemandi í FG syngur einsöng og spilar sjálfur undir á gítar. GARÐAKIRKJA: Messa sunnudagskvöld kl. 20. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar ásamt Jóhanni Baldvinssyni organista og kór Vídalínskirkju. Sjá: www.gadasokn.is. Allir velkomnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta 17. júní kl. 12.30. Prestur er sr. Skúli S. Ólafs- son og organisti er Hákon Leifsson. Les- arar í messu verða þeir Árni Sigfússon, bæjarstjóri, og Stefán Bjarkason, fram- kvæmdastjóri Menningar-, íþrótta- og tóm- stundasviðs Reykjanesbæjar. Ath. breytt- an messutíma. BORGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta með þátttöku skáta kl. 13. Sóknarprestur. SÚÐAVÍKURKIRKJA: Ferming laugardag- inn 17. júní kl. 11. Fermd verður Anna El- ísa Karlsdóttir, Hlíðargötu 1. Prestur sr. Valdimar Hreiðarsson. HÓLADÓMKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Prestur sr. Magnús Gunnarsson. Sam- kór Svarfdæla syngur, stjórnandi Petra Björk Pálsdóttir. AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa sunnu- dag kl. 20.30. Sr. Sólveig Halla Kristjáns- dóttir. Félagar úr Kirkjukór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergs- son. LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA: Messa sunnudag kl. 20.30. Sr. Gunnlaugur Garð- arsson þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju leiða söng. Organisti er Hjörtur Stein- bergsson. Allir velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Almenn samkoma sunnudag kl. 20. Sigurður Ingi- marsson talar. Allir velkomnir. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Prestsvígsla sunnudag kl. 14. Guðbjörg Arnardóttir cand. theol. verður vígð til þjónustu í Oddaprestakalli. Vígslubiskup. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Léttur hádegisverður framreiddur í safnaðarheimilinu eftir athöfnina. 17. júní, þjóðhátíðardagur Íslendinga: Helgistund við Miðgarð kl. 14.15. HVERAGERÐISKIRKJA: Hátíðarguðsþjón- usta 17. júní kl. 11. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta 17. júní kl. 14. Dr. Pétur Pétursson, pró- fessor, prédikar, sr. Kristján Valur Ingólfs- son þjónar fyrir altari. Björn Davíð Krist- jánsson leikur á flautu. Sönghópur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur syngur. Org- anisti Guðmundur Vilhjálmsson. Messa fellur niður sunnudaginn 18. júní. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 51 KIRKJUSTARF Nýstúdentar þjóna í Vídalínskirkju HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verð- ur 17. júní kl. 13.15 í Vídalínskirkju. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar í guðsþjónustunni ásamt Ástu Maríu Harðardóttur forseta nemenda- félags FG og nýstúdentunum Unu Emilsdóttur, Hafdísi Helgadóttur og Helgu Láru Grétarsdóttur. Ragnheiður Helga Sæmundsdóttir nýstúdent flytur ávarp. Jóhann Baldvinsson leiðir lofgjörðina ásamt kór Vídalínskirkju, en Jökull Ernir Jónsson nemandi í FG syngur ein- söng og spilar sjálfur undir á gítar. Á sunnudagskvöldið 18. júní kl. 20 verður messa í Garðakirkju. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar að helgihaldinu ásamt Jóhanni Bald- vinssyni organista og kór Vídal- ínskirkju. Sjá www. gardasokn.is. Allir velkomnir. 17. júní-kaffisala Kvenfélags Fríkirkj- unnar í Reykjavík ÁRLEG kaffisala Kvenfélags Frí- kirkjunnar, sem er elsta starfandi kirkjukvenfélag landsins, er í safn- aðarheimili kirkjunnar á Lauf- ásvegi 13, frá kl. 14 hinn 17. júní. Kaffi, vöfflur og safi fyrir börnin. Frelsið í Fríkirkjunni í Reykjavík FYRRI þemamessa júnímánaðar verður á sunnudag kl. 20. Í þetta sinn er frelsið viðfangsefni okkar í tali og tónum. Anna Sigga og Alla leiða tónlistina, en Ása Björk, Frí- kirkjuprestur, leiðir messuna og prédikar jafnframt. Gengið verður til altaris. Hugljúf stund í miðju miðborgarinnar. Halldórsmessa í Neskirkju SJÖ prestar hafa starfað í þágu Nessafnaðar í nær fimmtíu ára sögu safnaðarins í vesturbæ Reykjavík- ur. Sr. Halldór Reynisson var fimmti Neskirkjupresturinn og þjónaði söfnuðinum í sex ár. Hann stýrir nú fræðslusviði á Bisk- upsstofu. Sunnudaginn 18. júní prédikar sr. Halldór í Neskirkju og þjónar fyrir altari. Organisti er Friðrik V. Stef- ánsson. Félagar úr kór Neskirkju syngja en kórinn er nýkominn heim úr tónleikaferð til Ítalíu. Messan hefst kl. 11. Barðstrendinga- guðsþjónusta í Áskirkju Í ÁR er liðin hálf öld síðan sr. Tóm- as Guðmundsson vígðist til Patreks- fjarðarprestakalls, sem hann þjón- aði í 15 ár, en hann gegndi síðar embætti sóknarprests í Hveragerði í aldarfjórðung. Á árum sínum vestra þjónaði sr. Tómas flestum ef ekki öllum sóknum í Vestur- Barðastrandarsýslu lengur eða skemur ásamt eigin kalli, allt norð- an frá Bíldudal og vestur um Ket- ildali, einnig sóknum Rauðasand- shrepps hins forna og sóknum Barðastrandar. Hann markaði djúp spor í kirkjulífið vestra á þeim ár- um, og var ódeigur að rækja þjón- ustuna við erfiðar aðstæður, þegar samgöngur voru með öðru móti en nú. Á sunnudaginn kemur, hinn 18. júní nk., kl. 11, verður guðsþjónusta í Áskirkju í Reykjavík, þar sem sr. Tómas Guðmundsson prédikar, en nýskipaður sóknarprestur Ásprestakalls, sr. Sigurður Jónsson, sem þjónaði Patreksfjarð- arprestakalli á árunum 1988–1991, þjónar fyrir altari. Brottfluttir Vestur-Barðstrend- ingar eru sérstaklega hvattir til að fylkja sér til guðsþjónustu í Ás- kirkju á sunnudaginn. Sigurður Jónsson, sóknarprestur. Kvennamessa við Þvottalaugarnar í Laugardal MÁNUDAGINN 19. júní, á kven- réttindadaginn, heldur Kvenna- kirkjan útimessu við Þvottalaug- arnar í Laugardal kl. 20.30. Messan er haldin í samstarfi við Kvenrétt- indafélag Íslands og Kvenfélaga- samband Íslands. Messan hefst á því að Ásdís Þórð- ardóttir leikur lagið Áfram stelpur á trompet. Séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir prédikar. Anna Sigríð- ur Helgadóttir syngur einsöng. Kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan söng við undirleik Aðalheiðar Þor- steinsdóttur. Að lokinni messu verð- ur hægt að kaupa kaffi í Café Flóru í Grasagarðinum. Séra Kristján Valur og Kammerkórinn í Langholtskirkju SUNNUDAGINN 18. júní mun séra Kristján Valur Ingólfsson, prestur á Þingvöllum, predika við messu í Langholtskirkju. Efni messunnar verður að nokkru tileinkað þjóðhátíðardeg- inum og mun Kammerkór Lang- holtskirkju syngja ættjarðarlög og sálma. Morgunsöngur í Hafnarfjarðarkirkju ÞÁ er runnin upp sumartími í Hafn- arfjarðarkirkju og starfsemin skipt- ir um gír eftir vetrarannir. Í sumar verður boðið upp á morgunsöng á sunnudagsmorgnum kl. 10.30 í stað hefðbundinnar guðsþjónustu og messutóns. Við morgunsöng er lögð áhersla á bænahald og söng en stutt hugvekja rammar inn íhugunarefni dagsins. Hugvekjurnar munu tengj- ast þemum úr Biblíunni. Sunnudaginn 18. júní verður fjallað sérstaklega um Opinber- unarbók Jóhannesar og töluna 666. Eftir morgunsöng er kaffi í safn- aðarheimilinu þar sem tóm gefst til að spjalla saman áður en haldið er út í sumarið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vídalínskirkja Ævintýraferðir á ári Hundsins til Kína með KÍNAKLÚBBI UNNAR Haustferð: 7. - 28. september Farið verður til TÍBET (Lhasa, Gyantse, Shigatse), BEIJING, XIAN, CHENGDU, GUILIN, og á KÍNAMÚRINN Heildarverð á mann kr. 350 þús. Allt innifalið: Þ.e. skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 60 þ.), fullt fæði, skattar/gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjóns- dóttur, sem er sérfræðingur í skipulagningu ferða til Kína, en þangað fór hún með fyrsta hópinn 1992. Jóla- og nýársferð: 21. desember - 2. janúar Farið verður til BEIJING, XIAN, SHANGHAI, SUZHOU og á KÍNAMÚRINN. Heildarverð á mann kr. 250 þús. Allt innifalið: þ.e. skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 40 þ.), fullt fæði, skattar/gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar. Þetta verður 24. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Kínakvöld: Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínakvöld“, á Njálsgötunni eða úti í bæ, með myndasýningu og mat, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum. Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 R símar: 551 2596 og 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.