Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ sjálfu. Þessi útfærsla verður eins og teiknistíllinn einkennandi fyrir myndirnar og virðist þjóna því hlut- verki að skapa persónulegan stíl frekar en að aðferðarfræðin sé hug- myndafræðilega merkingarbær. Það er gott og gilt í sjálfu sér enda er bakgrunnur Gunnsteins á sviði myndskreytinga áberandi þáttur í ferli hans og myndirnar sjálfar gerð- ar fyrir fólk og vistarverur þess. Í samanburði við samtíma- myndlist sem kennd er við fram- sækni í dag er áhugavert að skoða tengsl sýningarinnar við áhorfendur en sá þáttur hefur verið mjög í sviðs- ljósinu undanfarinn áratug. Á sýn- ingu Gunnsteins var margt um manninn á opnuninni þar sem heimafólk og aðrir gestir skegg- ræddu um myndirnar af þó nokkrum SÝNING Gunnsteins Gíslasonar í Óðinshúsi á Eyrarbakka saman- stendur af teikningum og máluðum myndum á pappír. Allar myndirnar eru stílfærðar landslagsmyndir þar sem grár litur blýantsins og svartir tónar ráða ríkjum en annaðhvort gulur, blár eða grænn spila með. Frágangurinn á sumum myndanna er nokkuð sérstakur þar sem sam- ansoðin járngrind er ekki einungis notuð til að strekkja myndina á held- ur einnig hluti af myndverkinu áhuga. Rauðir punktar við sumar myndanna gáfu til kynna hvaða verk höfðu fallið best í kramið og hvaða verðflokkur var vinsælastur. Lands- lagsmyndirnar sem vísuðu í láréttan sjóndeildarhring umhverfisins og stundum líka sjálfan þjóðveginn hafa eflaust áhrif á upplifun og tengsl áhorfandans. Það eru þessi gamalkunnu hefðbundnu tengsl áhorfanda við myndlist sem óðum eru að víkja í samtímalistinni sem eru að verða aftur áhugaverð jafnvel frá nýju sjónarhorni. Þótt undirrituð hafi ekki sjálf fallið fyrir þessum ákveðna myndstíl þá var sýningin af- ar jákvæð upplifun þar sem virtist skapast eining milli listamanns, verka áhorfenda og umhverfis. Listin og fólkið MYNDLIST Gunnsteinn Gíslason Sýningin stendur til 18. júní Opið föstudaga til sunnudaga og helgidaga kl. 14–18 Óðinshús, Eyrarbakka „Allar myndirnar eru stílfærðar landslagsmyndir þar sem grár litur blýantsins og svartir tónar ráða ríkjum en annaðhvort gulur, blár eða grænn spila með,“ segir m.a. í umsögn um sýninguna. Þóra Þórisdóttir LEIÐSÖGN í fylgd Evu Heisl- er um sýningu Birgis Andrés- sonar verður í Listasafni Ís- lands á morgun kl. 14. Eva Heisler er listfræðingur og sýningarstjóri sýningar- innar um Birgi. Hún hefur skrifað fjölmargar greinar um íslenska myndlist og skrifaði m.a. grein um listamanninn í nýútkominni bók um hann, sem Listasafn Íslands gaf út í tengslum við sýninguna. Leiðsögn í fylgd Evu Heisler ÞRIÐJU tón- leikar sumar- tónleikaraðar Jómfrúarinnar við Lækjargötu verða á morg- un, laugardag. Tónlist- armenn dags- ins eru Jóel Pálsson saxó- fónleikari og tríóið Flís, en tríóið skipa Davíð Þór Jónsson píanó- leikari, Valdi- mar Kolbeinn Sigurðsson kontrabassa- leikari og Helgi Svavar Helgason trommuleikari. Hefjast tónleikarnir kl. 16 og standa til 18 og verður leikið utan- dyra á Jómfrúartorginu ef veður leyfir, annars innandyra. Aðgangur er ókeypis. Jóel Pálsson og Flís djassa á Jómfrúnni Tríóið Flís: Helgi, Valdimar og Davíð, en þeir félagarnir leika ásamt Jóel Páls- syni á Jómfrúnni. TVÆR nýjar ljóðabækur komu út á dögunum hjá Lafleur-útgáfunni. Önnur heitir Bleikt eins og kærleikurinn og er eftir Rut Gunnarsdóttur, alls 57 bls. Rut lést nýverið aðeins 54 ára gömul og skildi eftir sig ný ljóð á bana- beð sínum. Þessi ljóð eru í nýju bók- inni ásamt völdum ljóðum úr fyrri bók Rutar, Orðin sem liggja í loftinu af sama þema. Hin bókin er Að veiða drauminn eft- ir Svein Snorra Sveinsson. Þetta er sjötta ljóðabók ljóðskáldsins sem er frá Egilsstöðum og eru ljóðin í senn hlaðin tóni spurnar og áskorunar. Bókin er 71 bls. Nýjar bækur Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 17. júní kl. 12.00: Br. Andreas Warler, orgel 18. júní kl. 20.00: Br. Andreas Warler leikur m.a. verk eftir J.S. Bach, F. Mendelssohn, C. Ingenhoven og P. Fletcher FOOTLOOSE Fi 29/6 kl. 20 Frums. UPPS. Fö 30/6 kl. 20 Lau 1/7 kl. 20 UPPS. Fi 6/7 kl.20 Fö 7/7 kl. 20 Lau 8/7 kl. 20 VILTU FINNA MILLJÓN Su 18/6 kl. 20 UPPS. Síðasta sýning í vor. Miðasala hafin á sýningar í haust. OPNUNARTÍMI MIÐASÖLU Í sumar er miðasalan opin sem hér segir: Mán, lokað. Þri, mið 12-18, fim, fös, lau 12-20 Sun, lokað. Mr. Skallagrímsson - leiksýning í Borgarnesi MIÐAPANTANIR Í SÍMA 437 1600 Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist Sýningar í júní Sun.18. júní kl. 20 laus sæti Fös. 23. júní kl. 20 laus sæti Lau. 24. júní kl. 20 laus sæti Fös. 30. júní kl. 20 laus sæti Leikhústilboð. Matur, leiksýning og frítt í Hvalfjarðargöngin til baka. Landnámssetur Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga Símasala kl. 10-18. þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Óperuvefnum allan sólarhringinn www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 „Besta söngleikjauppfærsla ársins” S.S - Fréttablaðið LITLA HRYLLINGSBÚÐIN Sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar SUN. 18. JÚNÍ KL. 19 - LAUS SÆTI FÖS. 23. JÚNÍ KL. 19 - LAUS SÆTI LAU. 24. JÚNÍ KL. 19 - LAUS SÆTI FIM. 29. JÚNÍ KL. 19 - LAUS SÆTI SÍÐUSTU SÝNINGAR Í REYKJAVÍK ! FÖS. 30. JÚNÍ KL. 19 - LAUS SÆTI Það gisti óður Snorri Hjartarson 1906-2006 Síðasta sýningarhelgi Ókeypis aðgangur á 17. júní Þjóðmenningarhúsið Hverfisgötu 15 Opið alla daga kl. 11-17 Sýningar-veitingar-verslun www.thjodmenning.is Frumsýning 29. júní – Uppselt 30. júní 1. júlí – Uppselt 6. júlí 7. júlí 9. júlí Miðasalan er í síma 568 8000 www.borgarleikhus.is www.minnsirkus.is/footloose Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is MIÐASALA OPIN ALLAN SÓLAR- HRINGINN Á NETINU. Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september! Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september! Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar að nýju í ágúst. Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi. Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní. Euro Mover ❋ Nýtt frá Rafmagnsdrif til að aka hjólhýsum. Einnig mögulegt fyrir hestakerrur, fellihýsi, tjaldvagna og fleira. Kefli sem leggst við dekkið og knýr það áfram, stjórnað með fjarstýringu, allt að 6 m frá. ● Tilvalið til að aka á dráttarkúlu ● Aka inn á tjaldsvæði ● Aka í þröng stæði ● Aka inn í bílskúr o.fl. Eins öxla fyrir 1.800 kg, tveggja fyrir 2.250 kg Ekur upp 25% halla miðað við 1.200 kg Ryðfrítt Ekkert streð, láttu Euro Mover færa til vagninn umboðið, Bílaraf, Auðbrekku 20, s. 564 0400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.