Morgunblaðið - 17.06.2006, Page 61

Morgunblaðið - 17.06.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 61 MENNING Þjóðráð“ taldi ég það vera aðskrifa nokkur orð um þjóð-legar listir í dag. Allt þar til ég fór að uppgötva að þær er hvergi að finna. Þær eru ekki til. Ekki misskilja mig, við eigum okkar þjóðmenningu sem samnefn- ara yfir alls konar listræn fyr- irbæri. Við höfum hannyrðir og út- saum sem lengi voru greinar sem hver kona varð að kunna. Út- skurður er sömuleiðis þjóðleg grein, og höfðaletrið sem notað var til að skera út er alíslenskt. Við eigum okkar þjóðlög, langspil og fiðlur, sem og þjóðdansa og vikivaka. Ekkert þessa getur hins vegar talist listgrein í hefðbundinni merkingu orðsins, er það? Finnum við eitthvað af þjóðlegu fyrirbær- unum á listasöfnunum? Það sem líklega kemst næst því að vera þjóðleg listgrein er ljóða- gerðin; kveðskapur og rímurnar. Þó er fljótt á litið einhverja að- greiningu þar að finna. Rímurnar teljast varla vera mik- il „list“, þó ljóðagerð teljist vera það. Það skýtur skökku við að nota orðin á þennan hátt. Rímurnar eru aftur á móti rammþjóðlegar þótt nútímaljóðlist sé það alls ekki. Mitt á milli mætti nefna hefð- bundinn kveðskap, með stuðlum, rími og höfuðstaf sem líklega einu listgreinina, þjóðlega og hefð- bundna í senn. Og sú grein lifir góðu lífi eins og aðdáendur hag- yrðingahornsins vita. Stakan virðist samt vera eitt- hvað svo plebbaleg og gamaldags að hún getur varla talist mikil list- grein, eða hvað? Ég man t.d. ekki eftir mörgum stökusöfnum sem fengu tilnefningar sem bestu fag- urbókmenntirnar að mati kjör- nefnda íslensku bókmenntaverð- launanna.    Listin virðist einfaldlega ná útfyrir hið þjóðlega, stað- bundna. Hún er í eðli sínu þannig að heimóttarlegar venjur teljast seint listir, hún gerir kröfu um að vera alltaf ný og ná út fyrir landa- mæri eða bæjamörk.    Hins vegar er ekki hægt aðneita því að listhugtakið sjálft er skemmtilega loðið. Þannig er hægt að segja að ýmis verk, vel unnin, séu listavel eða jafnvel listi- lega vel gerð. Og ýmis störf fá endinguna list, því þau þykja erfið eða krefjast lagni. Læknislistin er augljósasta dæmið en einnig mætti nefna listina að elda og listina að lifa (prófið bara að gúggla orðin „listin að“ og sjá sjálf.) Samkvæmt þessari málnotkun ætti ekki að vera lítið mál að tala um „listina að dansa þjóðdans“ „listina að vinna gott handverk“ og „listina að semja stöku“. En að sama skapi er þessi múr sem ég benti á að ofan þarna á milli, þann- ig að þessar athafnir eru ekki list- greinar, eða hvað? Það er semsagt hægt að tala um listina að vinna gott handverk, en samt er hand- verk ekki list. Annars mætti allt eins telja hverja einustu venjutítlu sem Ís- lendingar halda upp á eða taka upp eftir hver öðrum, til listgreina. Listina að demba kokkteilsósu á mat til dæmis eða listina að vera fegurðardrottning; nú eða listina að safna skuldum, listina að stressast og vinna mikið, og svo allar hinar „listirnar“ sem fólk kannast við.    Annars hef ég ekki hugmyndum hvað list „sé“ en efast stórlega um að það sé eitthvað eitt. Gleðilegan þjóðhátíðardag! Í leit að þjóðleg- um listgreinum ’Stakan virðist samtvera eitthvað svo plebba- leg og gamaldags að hún getur varla talist mikil listgrein, eða hvað?‘ hsb@mbl.is AF LISTUM Hjálmar S. Brynjólfsson Morgunblaðið/Eggert Listhugtakið er loðið, listin nær út fyrir hið þjóðlega og staðbundna en samt er málnotkunin svo víðfeðm að þjóðvenjurnar geta verið „listir“. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 Tilboð til áskrifenda Morgunblaðið býður áskrifendum að kaupa hina vönduðu og stórbrotnu heimildarmynd um Heim farfuglanna á DVD á aðeins 1.000 kr. Myndin er til sölu í Morgunblaðshúsinu í Kringlunni 1. Einnig er hægt að kaupa myndina á mbl.is Tilboðið gildir til 1. júlí Heimur farfuglanna er stórmerkileg heimildarmynd sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim. Í myndinni er áhorfendum boðið í flug með farfuglum heimsins á milli áfangastaða. BERGVÍK Kynnir nýjasta meistaraverk Jacques Perrin: Leikstjóri: Jacques Perrin Handrit: Stéphane Durand og Jacques Perrin Kvikmyndatökumenn: Michael Benjamin, Sylvie Carcedo-Dreujou, Laurent Charbonnier, Luc Drion, Laurent Fleutot, Philippe Garguil,Dominique Gentil, Bernard Lutic, Thierry Machado, Stéphane Martin, Fabrice Moindrot, Ernst Sasse, Michael Terrasse og ThierryThomas Klipping: Marie-Josèphe Yoyotte Tónlist: Bruno Coulais. Frönsk. Sony Pictures Classics. Sýningartími: 98 mínútur. Eyes Weekly bbc films rolling stone roger ebert Á ÞAKINU Frumsýnt 29. júní í Borgarleikhúsinu ÞORVALDUR DAVÍÐ HALLA VILHJÁLMS www.minnsirkus.is/footloose Miðasala er í síma 568 8000 www.borgarleikhus.is 17. júní dansleikur Karma í kvöld Opnum kl. 17 fyrir matargesti www.kringlukrain.is sími 568 0878

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.