Morgunblaðið - 23.07.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.07.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 198. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Söng í símann með tilþrifum Stuart Murdoch forsprakki Belle & Sebastian er kurteis en líflegur | 24 Tímarit og Atvinna í dag Tímarit | Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson  Systkini í nektarhlaupi Fyrsta sumarvinnan Atvinna | Opið rými eða skrifstofa Munurinn á Dönum og Bretum 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 2006 –2007 Vetrarfrí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 3 35 62 07 /2 00 6 Bæklingurinn fylgir blaðinu í dag! LUNDAVEIÐIN í Vestmannaeyjum er það sem af er svipuð og í fyrra, að sögn Magnúsar Bragason- ar, lundaverkanda í Eyjum. Hann hamflettir og reykir lunda fyrir lundaveiðimenn. „Þetta fór frekar rólega af stað en er að glæð- ast. Allt að lifna við og kominn mikill fugl á sjóinn hér í kring, sem veit á gott,“ sagði Magnús. Fugl- inn á sjónum bendir til að geldfuglinn sé mættur á svæðið, en hann er uppistaðan í lundaveiðinni. „Þeir í Ystakletti eru langduglegastir og komn- ir með langmest. Það verður minna og minna um að menn liggi lengi við í eyjunum við veiðar. Í sumum stærri eyjunum hefur ekki verið mikill mannskapur það sem af er,“ sagði Magnús. Varp lundans virtist ganga vel í vor, að sögn Magnúsar. „Menn voru hræddir fyrir þetta tímabil vegna þess hvernig þetta endaði í fyrra. Nú virðist allt vera eðlilegt og ekki það ástand sem menn ótt- uðust.“ Fyrst eftir að pysjan kemur úr egginu ber lund- inn í hana glærátu og hefur verið að gera það, að sögn Magnúsar. „Það fer að reyna á sandsílið þessa dagana og hann virðist vera að bera það upp svo það virðist allt vera í lagi.“ Á myndinni er Heimir Hallgrímsson, tannlæknir með meiru, á lundaveiðum í Ystakletti. Morgunblaðið/RAX Mikið af lunda á sjónum veit á gott TÓLF dagar eru nú síðan Ísraelsmenn hófu stríðs- aðgerðir sín- ar í Líbanon sem hafa beint sjónum heimsins að þessu svæði í æ ríkara mæli. Ingi- björg Þórð- ardóttir, sem starfar hjá News 24, BBC, er á leið á átakasvæðin í Beirút með bíl frá Damaskus, en flugvöllurinn í Beirút var sprengdur upp þegar stríðs- aðgerðirnar hófust. Ingibjörg mun ásamt samstarfsfólki annast fyrir BBC fréttaflutning frá Beirút og Suður-Líbanon næstu daga. „Ég býst við að þetta verði erf- itt, að vinnusvæði sem við getum unnið á verði takmarkað af örygg- isástæðum,“ segir Ingibjörg í sam- tali við Morgunblaðið, sem mun birta á næstunni fréttir frá henni af ástandinu á stríðssvæðinu. Ingibjörg er alþjóðastjórnmála- fræðingur og ritstjóri hjá News 24, BBC, og hefur m.a. mikið kynnt sér málefni tengd Ísrael og Líbanon. Hún kveður ástandið á svæðinu mjög tvísýnt og ómögu- legt að spá um hvað gerist, hvern- ig þessum átökum muni lykta. Þetta segir hún m.a. í ítarlegu við- tali um þessi mál og fjölmörg önn- ur í blaðinu í dag. | 10 Fer á átaka- svæðin fyrir BBC Ingibjörg Þórð- ardóttir á BBC Ankara. AFP | Lögreglan í Tyrk- landi handtók í fyrradag vopn- aðan tilvonandi bankaræningja sem hafði dulbúist sem kona með því að klæðast síðum svörtum kufli og andlitsblæju. Undir kufl- inum bar hann hlaðna vélbyssu sem hann ætlaði að nota til að fremja vopnað rán. Kauði hefði hins vegar átt að huga að lengd kuflsins eða fóta- búnaðinum því grunsemdir tóku að vakna hjá einum öryggisverði bankans þegar hann tók eftir því að frekar stórir strigaskór komu undan kuflinum, sem var helst til stuttur. Lögreglan var kölluð til og kom þá í ljós að þarna var á ferðinni karlmaður vopnaður AK-47-riffli sem var hlaðinn 30 skotum. Hann játaði að hafa ætl- að að ræna bankann en lögregla rannsakar nú hvort hann hafi tekið þátt í bankaránum áður. Klikkaði á skónum Jerúsalem. Beirút. AFP. AP. | Ísraelski herinn hefur hertekið þorp í suður- hluta Líbanon en í gær hafði herinn gert árásir á 150 skotmörk á einum sólarhring. Þar á meðal var sprengju sem vó hálft tonn varpað á vígi Hiz- bollah, rétt við þorpið um hálfan kíló- metra frá landamærunum. Í gær eyðilagði herinn fjarskipta- möstur á tveimur stöðum í landinu, bæði sjónvarpsturna og sendistöðv- ar fyrir farsímakerfi. Dagurinn í gær var ellefti dagurinn sem Ísraelar gera árásir á Líbanon. Þeir hafa sent hermenn inn í landið undanfarna daga til að gera skyndiárásir á vígi Hizbollah en segjast ekki ætla að gera stóra innrás í landið þrátt fyrir að þeir hafi flutt mikinn herafla að landamærunum við Líbanon. Meira en 340 Líbanar hafa látið lífið í átökunum, þar af 300 óbreyttir borgarar, en 34 Ísraelar hafa fallið. Hizbollah-liðar hafa skotið hundr- uðum flugskeyta að bæjum í norður- hluta Ísrael og hafa 16 óbreyttir ísr- aelskir borgarar látið lífið þar. Víða um heim hefur fólk mótmælt átökunum í Mið-Austurlöndum und- anfarna daga, meðal annars í evr- ópskum borgum. Þannig voru skipu- lagðar göngur í borgum og bæjum í Bretlandi í gær til að mótmæla hern- aðaraðgerðum Ísraela og meira en tíu þúsund manns gengu um götur Sydney í Ástralíu í mótmælaskyni í gær. Ísraelsher hertekur þorp í Suður-Líbanon Reuters Líbani stendur við rústir blokkar, sem áður var heimili hans, í Beirút í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.