Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 37
AUÐLESIÐ EFNI
Hjálpar-stofnanir vöruðu í
vikunni við því að
neyðar-ástand það sem
skapast hefur í Líbanon
gæti orðið til þess að allt
að milljón manns gætu þurft
að flýja heimili sín á
næstunni ef átökin halda
áfram.
Þegar hefur um hálf
milljón manna flúið heimili
sín til svæða innan landsins
sem eru talin öruggari. Slíkir
fólks-flutningar geta haft
mjög alvarlega afleiðingar
þar sem aðstæður fólks
versna vegna verri
aðbúnaðar, matar- og
lyfja-skorts en um þriðjungur
flótta-fólksins eru börn.
Kofi Annan krafðist þess í
gær að átökin á milli Ísraela
og Hizbollah yrðu stöðvuð
svo koma mætti í veg fyrir
frekara mannfall og lagði
hann sömuleiðis til að
friðar-gæslusveitir yrðu
sendar á vettvang til að
draga úr spennunni.
Fordæmdi Kofi Annan
mannrán
Hizbollah-hreyfingarinnar og
þá hörku sem Ísraelsmenn
hafa beitt í kjölfar
mann-ránanna.
Flóttamenn gætu
orðið allt að milljón
Leikfang liggur við rústir höfuðstöðva Hizbollah í Beirút,
Líbanon eftir sprengjuárás Ísraela.
Vasa-peningar verða hækkaðir um
25%, heima-þjónusta við aldraða
verður bætt, starfslok verða
sveigjanleg og lífeyris-greiðslur munu
þá hækka ef töku lífeyris er frestað
og að lokum verður auknu fjármagni
varið til framkvæmda við
hjúkrunar-rými á næstu fjórum árum.
Áætlað er að heildar-kostnaður
ríkisins þegar aðgerðirnar eru komnar
í fulla framkvæmd muni nema um 12
milljörðum króna að sögn Geirs H.
Tekju-skerðing mun minnka, starfslok
verða sveigjanleg og heima-þjónusta
mun verða aukin í aðgerðum
ríkis-stjórnarinnar eftir að
samkomulag náðist við
Lands-samband eldri borgara.
Lífeyris-greiðslur
almanna-trygginga hækka um 15
þúsund krónur á mánuði frá 1. júlí,
skerðing bóta frá Trygginga-stofnun
ríkisins vegna tekna maka og annarra
tekna bótaþega mun minnka.
Haarde forsætis-ráðherra. „Þetta er
verulega aukning bóta-greiðslna og
mun skipta verulega miklu máli fyrir
bóta-þegana, sérstaklega þá sem
hafa ekkert annað en bætur,“ sagði
forsætis-ráðherra.
Breytingarnar á lífeyris-bótunum ná
líka til örorku-lífeyrisþega að sögn
forsætis-ráðherra „við erum að tala
um að stórauka bætur til beggja
þessara hópa“ sagði Geir og þakkaði
forystu-mönnum Lands-sambands
eldri borgara fyrir samstarfið.
Ólafur Ólafsson fagnaði
sérstaklega verulegri hækkun á
lífeyris-greiðslum, sérstaklega til
þeirra sem væru með lægstu
lífeyris-greiðslurnar. „Maður nær ekki
alltaf öllu fram þegar gengið er til
samninga en margur vandinn hefur
þó verið leystur en sumt ekki“ sagði
Ólafur. Hækkanirnar munu fela í sér
um 5–6% kaup-máttar-aukningu
ellilífeyris-þega.
Kjör og aðbúnaður aldraðra bætt
„Maður metur það svo mikils
að vera Íslendingur, hér er
hvert mannslíf svo mikils
metið,“ sagði Arndís
Kjartansdóttir í biðsal
Icelandair á Kastrup-flugvelli
eftir 60 tíma linnulaust
ferðalag til að komast frá
átaka-svæðinu í Beirút í
Líbanon til Íslands.
Arndís sagði að allar
útgöngu-leiðir hefðu verið að
lokast og staðan hefði verið
orðin mjög erfið enda
Íslendingar ekki vanir slíkri
frelsis-sviptingu.
Íslendingarnir nutu aðstoðar
utanríkis-ráðuneytisins og
Hreins Pálssonar
starfsmanns þess við að
komast heim.
Alma Hannesdóttir, sem
var líka í Líbanon ásamt
manni sínum og dóttur, sagði
að Íslendingar hefðu staðið
sig vel í að koma fólkinu
heim. „Við hefðum aldrei
komist burt án hjálpar.
Íslendingarnir hjálpuðu okkur
frá A til Ö og það er ótrúlegt
að finna hve vel þjóðin
stendur á bak við okkur.“
Nokkur hræðsla hafði sótt að
henni þar sem dóttir þeirra er
bara 4 mánaða gömul og því
var ákveðið að flýja en öðrum
kosti hefði verið hægt að
halda ástandið út í smátíma.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Íslendingarnir þurftu að takast á hendur langt og strangt
ferðlag til að komast heim og voru að vonum glaðir með að
vera komnir úr hættu.
Íslendingar á
flótta frá Líbanon
Það er vel fylgst með fyrstu
skrefum Eiðs Smára
Guðjohnsens eftir að hann
flutti sig til Barcelona frá
Chelsea og hóf æfingar með
sínum nýju samherjum á
mánudaginn.
Þar sem Eiður Smári er eini
leikmaðurinn sem Barcelona
hefur keypt í sumar hefur
verið fylgst sérlega vel með
honum í fjölmiðlum og hjá
félaginu.
„Ég hitti nýju samherjana
þegar ég mætti í
rannsóknina. Fyrsti dagur
undirbúnings-tímabils var
áþekkur því sem ég hef þekkt
hjá öðrum félögum, þó sumt
hafi verið öðruvísi,“ er haft
eftir Eiði á heimasíðu
Barcelona.
Eiður viðurkenndi að
hitinn, en hann er að jafnaði
um 40 gráður á þessum tíma
árs, væri sér frekar erfiður og
svo sagði hann hafa verið
óvanalegt að sjá áhorfendur
á æfingunni.
Eiður Smári í sviðsljósinu
Reuters
Sóknarmaður Barcelona,
hinn franski Ludovic Giuly
spjallar við Eið Smára Guð-
johnsen á fyrstu æfingu
þeirra félaga.
það knúið áfram að auki með tveimur vélum.
Skipið mun verða búið miðstöð og kælingu og
mun ekki rista djúpt og því ætti að vera hægt
að sigla um ár og skurði víða um Evrópu enda
uppfyllir skipið strangar alþjóðlegar
siglinga-kröfur.
Áætlað er að smíðinni ljúki í maí á næsta
ári.
Í Stykkishólmi stendur nú yfir smíði á 16,6
metra löngu víkinga-skipi sem ætlað er til
sölu og er það Sigurjón Jónsson, fyrrverandi
útgerðar-maður og eigandi
skipasmíða-stöðvarinnar Skipavíkur, sem
stendur fyrir smíðinni. Sigurður telur að skipið
verði einstætt og munu kaupendur þurfa að
greiða um 100 milljónir króna fyrir skipið sem
hefur fengið nafnið „Rerr“ og helst er búist
við því að skipið verði selt úr landi.
„Skipið er eftirlíking Gaukstaða-skipsins
sem fannst í Noregi og svipar því einnig til
Íslendings sem Gunnar Marel [Eggertsson]
smíðaði. Mitt skip er þó ívið styttra eða um
16,6 metrar en þau eru yfir 20 metra löng,“
segir Sigurjón.
Þó skipið muni líta út eins og víkinga-skip
verður það líkara snekkju, með hátækni-legu
segli og mastri úr koltrefjum. Skrokkur
skipsins er smíðaður úr mahóní-viði og verður
16,6 metra löng snekkjan í víkinga stíl mun
uppfylla ströngustu alþjóðlegar siglingakröf-
ur og verða búin hátækni búnaði.
Víkinga-
skemmtisnekkja