Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MS drykkjarvörur í garðveisluna MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í handhægum umbúðum í næstu verslun. ÁRÁSIR HALDA ÁFRAM Ísraelski herinn hefur hertekið þorp í suðurhluta Líbanons og í gær eyðilagði hann fjarskiptamöstur í landinu, bæði sjónvarpsturna og sendistöðvar fyrir farsímakerfi. Herinn hefur sent hermenn inn í landið til að gera skyndiárásir á vígi Hizbollah en segist ekki ætla að gera stóra innrás í landið þótt hann haldi áfram að flytja herafla að landamær- unum. Lifnar yfir lundaveiðum Lundaveiði í Vestmannaeyjum er svipuð og í fyrra eftir frekar rólega byrjun. Mikill fugl er á sjónum í kringum Eyjar og bendir það til þess að geldfuglinn sé mættur á svæðið, en hann er uppistaðan í lundaveiðinni Kennitöluumsóknum fjölgar Umsóknir vinnuveitanda vegna beiðna um útgáfu kennitalna fyrir erlenda ríkisborgara hjá Þjóðskrá hafa oft farið vel yfir 100 á dag. Stríður straumur umsókna hefur leitt til þess að starfsmenn Þjóð- skrár hafa orðið fyrir auknu álagi sem hefur leitt til lengri afgreiðslu- tíma kennitöluumsókna. Samið við Nick Faldo Golfklúbbur Reykjavíkur hefur samið við breska kylfinginn Nick Faldo um að halda unglingamót í golfi á Korpuvelli daganna 7. til 9. ágúst nk. Er þetta í fyrsta skipti sem unglingamót undir nafni Faldos er haldið utan Bretlands og munu tveir leikmenn úr unglingaliði Faldos leika á mótinu. Öskuhaugur sögunnar Við fornleifauppgröft á Hólum í Hjaltadal hefur einstakt mannvirki frá 13. eða 14. öld komið í ljós. Vonir eru bundnar við að húsið, sem fannst í öskuhaug sunnan við bæjarstæði Hóla, geti hjálpað mönnum við að fylla upp í eyður íslenskrar bygging- arsögu. Y f i r l i t Í dag Fréttakýring 8 Víkverji 40 Forystugrein 26 Velvakandi 41 Bréf 28 Staður og stund 42 Umræðan 28/31 Menning 44/49 Hugvekja 32 Bíó 46/49 Auðlesið 33 Ljósvakamiðlar 50 Minningar 34/37 Veður 51 Dagbók 40 Staksteinar 51 * * * Kynning - Morgunblaðinu í dag fylgir bæklingurinn Vetrarfrí frá Úrvali Út- sýn Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is MORGUNHRESSIR göngugarpar lögðu af stað í gær frá Þingvallakirkju í svonefnda pílagríms- göngu, þar sem leiðin lá á Skálholtshátíð, sem fram fer um helgina til að minnast þess að 950 ár eru liðin frá biskupsvígslu Ísleifs Gissurarsonar. Frá Þingvöllum var gengið sem leið lá upp Gjá- bakka og biskupaleið yfir Lyngdalsheiði. Fyrri hluta göngunnar lauk með helgistund við Vígðu- laug á Laugarvatni í gærkvöldi. Gönguhópurinn áætlar að vera kominn til hátíðarinnar í Skál- holti í dag, sunnudag, í tæka tíð fyrir messuna sem hefst kl. 14. Göngustjóri pílagrímsgöng- unnar er Guðbrandur Magnússon. Mikið verður um dýrðir í Skálholti, að messu lokinni og kirkjukaffi verður hátíðarsamkoma í kirkjunni. Morgunblaðið/Jim Smart Í pílagrímsgöngu á Skálholtshátíð „VIÐ lýsum yfir vantrausti á hann vegna þessara vinnubragða,“ segir Guðmundur Johnsen, formaður Fé- lags lesblindra á Íslandi og aðal- stjórnarmaður hjá Öryrkjabanda- lagi Íslands (ÖBÍ), um kæru á hendur formanni ÖBÍ, Sigursteini Mássyni, sem leggja á inn hjá félags- málaráðuneytinu á næstunni. Hópur innan ÖBÍ er ekki sáttur við þau vinnubrögð sem voru viðhöfð m.a. við ráðningu núverandi fram- kvæmdastjóra og uppsögn Arnþórs Helgasonar, fv. framkvæmdastjóra, s.s. að ekki hafi verið gefnar út við- hlítandi skýringar á brottrekstrinum og að ekki hafi verið gert upp við Arnþór með fullnægjandi hætti. „Ákveðin hefð hefur verið fyrir því að blindir menn sem starfað hafa lengi innan ákveðins fyrirtækis hafa fengið árs uppsagnarfrest, en það er viðurkennd staðreynd að þeir eiga erfiðara með að fá ný störf. Við höf- um undir höndum tölvupóst frá Arn- þóri um hans uppgjör [við ÖBÍ] og við fáum ekki betur séð en að það sé ófullnægjandi og ekki í samræmi við það sem talað var um á síðasta að- alstjórnarfundi,“ segir Guðmundur og bætir við að einnig sé mikil óánægja með að Sigursteinn semji um laun framkvæmdastjóra banda- lagsins. „Það var ákveðin hefð fyrir því að formaður hefði um 30% laun miðað við framkvæmdastjóra og eft- ir því sem okkur skilst er þetta nú orðið fullt stöðugildi. Því er það nokkuð merkilegt að hann sé í raun að semja um leið um sín eigin laun.“ Ekki náðist í Sigurstein Másson þegar leitað var eftir því í gærdag. Óánægja með vinnu- brögð formanns ÖBÍ Eftir Andra Karl andri@mbl.is VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur farið þess á leit við forráðamenn tí- volísins við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi að snúnings- hraði á svokölluðu Kolkrabbatæki verði minnkaður, enda þótt ekki hafi verið farið yfir mörk leyfilegs hámarkshraða tækisins. Ástæða þessa er sú að Vinnueft- irlitinu og lögreglu hafa að und- anförnu borist kvartanir frá tívolí- gestum sem farið hafa í tækið og komið lemstraðir úr því. Þrír full- orðnir hafa ýmist marist eða rif- beinsbrotnað og eitt barn hlotið minniháttar áverka eftir ferð með tækinu. Fólk lemstrast í tívolítæki við Smáralind HAFT er eftir Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra í breska dag- blaðinu Daily Telegraph að staðan á Norður-Atlantshafi breytist hratt og það sé mikil skammsýni hjá Banda- ríkjamönnum ef þeir geri sér ekki grein fyrir því. Þessar öru breyting- ar kunni að leiða til þess að Banda- ríkjamenn vilji snúa aftur til Íslands „og sú aðferð sem beitt var við að til- kynna um brottflutninginn gæti haft pólitísk áhrif á það hvernig móttök- urnar verða.“ Dagblaðið fjallaði í vikunni um brotthvarf Bandaríkjahers frá Ís- landi og segir þar m.a. að þótt hern- aðarlegt mikilvægi Íslands virðist ekki mikið um þessar mundir kunni það að breytast vegna aukins mik- ilvægis norðurslóða vegna orku- flutninga frá Evrópu til Norður-Am- eríku. Segir að Rússar og Norðmenn muni í framtíðinni flytja stóraukið magn af olíu og gasi til Norður-Am- eríku og flutningsleiðin liggi nálægt ströndum Ís- lands. Blaðið hef- ur eftir Espen Barth Eide, varn- armálaráðherra Noregs, að hann telji ekki að hætta steðji að Íslandi vegna árása en ljóst sé að áhersla á öryggismál muni aukast vegna flutninganna og Atlantshafsbandalagið (NATO) kunni að taka þátt í öryggisgæslu með eftirlitsflugvélum, ratsjárstöðv- um og loftvörnum. Blaðið segir Björn líta það jákvæðum augum. „Ég held að við þurfum að skoða hvers vegna Norðmenn eru að end- urnýja her sinn. Brátt munu olíu- og gasflutningaskip fara yfir Atlants- hafið til Kanada og Bandaríkjanna frá Barentshafinu og það mun gjör- breyta eðli sjóflutninga á svæði okk- ar,“ segir Björn. Eðli sjóflutninga að gjörbreytast Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.