Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Klukkan er sjö að morgni íveiðihúsinu Hofi við urr-iðasvæðið í Laxá í Mý-vatnssveit og einungiseinn veiðimaður er á fót- um. Þetta er Bandaríkjamaðurinn Harry Crofton og hann flettir þögull myndum sem sýna veiðistaði þessa margbrotna svæðis. Hann er byrjað- ur að veiða í huganum. Smám saman fyllist matsalurinn af glaðværum veiðimönnum og konum sem taka hraustlega til matar síns. Þarna hefst veiðin klukkan átta og það er hugur í fólki eftir fyrstu vakt hópsins kvöldið áður. „Þetta fór stórkostlega af stað,“ segir Sigurbrandur Dagbjartsson, sem veitt hefur þarna ásamt félögum sínum á þessum tíma, um Jónsmess- una, í tuttugu ár. „Fiskurinn tók alls staðar í gær. Ég veiddi svo vel að ég var eiginlega hættur um sjö í gær- kvöldi – var farinn að skjálfa eftir átökin!“ Hefur farið í allar eyjarnar Himinninn er skýjaður og svalur norðanblástur; þrátt fyrir að hilli undir lok júnímánuðar er landið enn í hálfgerðum vorham, sinugulir tónar áberandi. „Við erum öllu vanir hérna,“ segir Sigurbrandur þegar hann kemur út. Hann er einn margra veiðimanna sem hafa bundist þessu svæði afar sterkum böndum. „Það hefur snjóað á okkur á þessum tíma. Einn morg- unn vorum við hér í frosti en klukkan 11 var kominn 20 stiga hiti!“ Mest er veitt með 18 stöngum á þessu margbrotna svæði, þar sem áin streymir fram milli ótal eyja og hólma, í misstríðum strengjum. Sig- urbrandur leggur bílnum við brúna skammt frá veiðihúsinu, nú á að veiða austurbakka Hofsstaða. Magnið af stórum og sterkum urriðanum er gíf- urlegt í ánni, þótt hann geti verið dyntóttur og erfitt af fá hann til að taka. Margir eru þeirrar skoðunar að þetta hljóti að vera eitt besta urriða- veiðisvæði heimsins. „Þegar ég veiði hér fer ég hratt yf- ir,“ segir Sigurbrandur þar sem við göngum upp með ánni. „Sumir geta verið endalaust að berja á sama stað, staðið jafnvel kyrrir heila vakt. Kannski vegna þess að þeir fengu einu sinni fisk á þessum stað – og drápu hann! Þá er sá fiskur löngu farinn.“ Við göngum upp að mörkum Hofs- staða og Geirastaða, þar er kastað yf- ir hraðan streng yfir að kjarri vöxn- um hólma; flugan þýtur hratt niður strauminn en fiskar á skilunum reyna að ná straumflugunni. „Sástu! Þarna elti einn. Það er ótrúlegt hvað hann sér. Þetta er ekki mjög fallegur staður miðað við marga hér, en hann er veiðilegur.“ Hann veiðir sig niður strenginn, bregður tvisvar eða þrisvar við fiski en festir ekki í þeim. Á ánni svamla endur og óðinshanar á lygnum milli strengjanna. Sigurbrandur segist hrifinn af öllum svæðum árinnar en viðurkennir þó að hann verði sér- staklega kátur þegar hann eigi að veiða Hofsstaðaey. „Veiðistaðirnir þar eru sérstaklega fjölbreytilegir, mikið af skemmtilegum púpustöðum. En fjölbreytileikinn er svo mikill hér,“ segir Sigurbrandur, horfir nið- ur eftir ánni og hristir höfuðið. „Allt þetta vatn flæðir hér alla daga og í því er allur þessi fiskur.“ Það fer ekki á milli mála að hann er heillaður af Laxá. „Sumum finnst ég bilaður en ég er búinn að fara út í allar eyjarnar hér á svæðinu. Var með ankeri sem ég henti yfir og dró mig síðan yfir strauminn á bandinu. Ég er búinn að detta um alla steina sem hægt er að detta um hér og fara mörgum sinnum á bólakaf. Smám saman lærir maður hvar fiskurinn er og hvar hann tekur. Ég var ekki kominn með bílpróf þegar ég kom fyrst og fór að rannsaka ána. Á sumum stöðum fékk maður fisk aldrei til að taka en þá tók maður tíma í að leysa gátuna, finna lausnina. Ég sætti mig ekki við að fara bara á merkta og þekkta veiðistaði, ég vildi læra sjálfur á ána og finnst skemmti- legt að enginn kenndi mér á hana. Þetta er Vatnsgjá, fyrir ofan veiði- stað sem kallast Steinrass,“ segir Sigurbrandur og bendir. „Þarna eru ofsalega fallegir fiskar innan um. Fólki getur brugðið þegar það fær fisk hérna, því þótt vatnið sé grunnt geta þeir verið svo stórir.“ Hann gerir sig kláran að kasta á spegil langt handan straumsins. „Þennan stað held ég mikið upp á, hann er ekki merktur en ég hef skoð- að hann vel. Hef farið út í eyjarnar báðum megin á bandi og veitt allar kvíslarnar á milli þeirra. Það er fullt af fiski þarna. Ég var einu sinni hér með Lárusi Karli og held ég hafi náð 15 eða 16 fiskum og fékk fullt af tök- um. Maður kastar á spegilinn og sér þá oft elta.“ Notar eina straumflugu – Eykur það ekki möguleika veiði- manna hér að ráða yfir margbreyti- legri veiðitækni; kunna á allt vopna- búrið? „Jú, það er mikilvægt. Mér finnst alltaf jafnskrýtið að sjá fréttir héðan, þegar menn alhæfa að eitthvað eitt sé að virka, bara púpur og ekkert gangi með straumflugu. Það er ekki rétt. Þarna hinum megin er gamla tjaldsvæðið, þar gistu veiðimenn áð- ur fyrr.“ – Og létu hinar landsfrægu Lax- ármýflugur bíta sig? „Þær bíta suma. Ég gerði samning við flugurnar hér um að þær létu mig vera. Þær bíta mig mjög sjaldan en ég bregst vel við þessu biti. Ég nota aldrei flugnanet, nenni ekki að hafa það á mér. Sjáðu hvað straumurinn er falleg- ur hér? Já, þetta er ótrúlegt svæði.“ Fyrsta og eina straumflugan sem Sigurbrandur velur að setja undir er Black Ghost með marabúavæng. „Ég nota ekki aðrar straumflugur. Ekki til í dæminu.“ Í boxi hans eru raðir af þessari veiðnu flugu. „Mér finnst þetta falleg fluga og gaman að veiða á hana. Þótt ein- hverjir séu að fá fisk á nobbler hleyp ég ekki til og skipti. Ég veiði bara á þær flugur sem ég hef trú á. Það er eins í laxveiði. Ef fluga er veiðileg, þá nota ég hana.“ Sigurbrandur segir að svo virðist fiskarnir eigi sín ból í ánni, hann hef- ur verið við merkingar í Laxá og þá sjáist það vel. „Þeir eiga sína staði og veiðast jafnvel þar aftur og aftur. Sumir hafa sagt að fiskarnir verði svekktir og færi sig til við ágang, en það er ekki mín reynsla.“ Fyrir nokkrum árum komst í tísku og þótti bylting, að veiða urriðann í Laxá með púpum andstreymis. Sig- urbrandur segist þá hafa veitt í mörg ár með þeirri tækni. „Menn héldu að ég væri eitthvað skrýtinn, að veiða hér með flotlínu og litlum púpum; sumir sögðu hreinlega að þetta gerði maður ekki hér, það ætti bara að veiða með sökklínu! Það er að sjálfsögðu ekki rétt.“ Eins og sturtað í klósett Sigurbrandur gengur um bakkana með tvær stangir, eina með sökklínu og Black Ghost, hin er með flotlínu og tökuvara, fyrir púpuveiðar. „Þeir kalla þetta rakettuprik, sum- ir gömlu kallarnir,“ segir hann og hampar stönginni sem er nett, fyrir línu fimm. „Þeim finnast þessar stangir of léttar og asnalegar, fyrir línu fjögur og fimm eins og ég kýs að nota hérna, og líka í laxi. Það er meiri axjón.“ Í púpuveiðinni er hann yfirleitt með sex til átta punda taum, en fyrir straumfluguna en styrkur taumsins tíu pund. Púpan sem hann hnýtir nú undir er bústin Pheasant Tail en dag- inn áður fóru urriðarnir og beittar tennur þeirra með átta slíkar. „Þá kom eiginlega fiskur við fluguna í hverju kasti. Í strengjunum við Hofs- staðaey var eins og sturtað væri í kló- sett þegar tökuvarinn fór niður! Það var botnlaus veiði og í eitt skipti próf- aði ég að bregða ekki við þótt tökuv- arinn færi niður, en ég var þá að sýna Bandaríkjamanni sem var með mér þessa veiðiaðferð. Flugan fór aftur og aftur niður, búmp, búmp, búmp, síðast þegar hún var komin alveg nið- ur að löppunum á mér og þá kippti ég í – og fiskur var á. Silungurinn spýtir púpunni út úr sér um leið og hann finnur að þetta er ekki rétt æti.“ Uppistaðan í veiði Sigurbrands daginn áður var urriði í kringum 48 upp í 59 cm, feitur og pattaralegur. Tveir voru minni. Nú gengur hann að grunnri kvísl, veiðir hana andstreym- is og á stuttum tíma setur hann í, landar og sleppir þremur litlum urr- iðum, í kringum pundið. Hér lágu ægilegir drekar Stærsti fiskur sem Sigurbrandur hefur fengið í Laxá var 13 pund, sá tók á Mjósundi fyrir nokkrum árum. „Það var ævintýraviðureign. Hátt í klukkutími. Jónas var sem betur fer með mér, án hans hefði ég ekki land- að fiskinum. Mjósund er lygn staður, mikill dammur, og fiskurinn hafði mikið pláss til að berjast. Hérna þarf langt kast yfir á speg- ilinn þarna,“ segir hann og línan leggst nákvæmlega þar sem hann ætlast til. „Oftast nær þarf samt ekki að kasta langt hér. Stundum hefur maður séð menn þenja sig við að kasta langt yfir góða tökustaði.“ – Hvenær eru bestu tökuaðstæð- urnar hér? „Þær eru að mínu mati ekki til. Það er alltaf gaman að veiða hérna. Þó getur verið svolítið leiðinlegt að eiga við slýið þegar það kemur upp, sem er oftast í enda júlí.“ Sigurbrandur kastar á fleiri staði niður með veiðisvæðinu, þar til skammt ofan brúarinnar, þar sem hann bendir mér á hvar gamla brúin stóð. Þarna stendur Sandvík á skilti. „Hérna við stólpana á gömlu brúnni lágu alveg ægilegir drekar. Ef maður setti í þá fóru þeir alltaf niður strenginn og slitu. Ég setti í nokkra. Ég náði að halda í við einn en að lok- um lak úr honum. Það var risafiskur – sá stærsti sem ég hef glímt við í ánni.“ Sigurbrandur veður út á svartan sandinn í víkinni, kastar langt og Black Ghost flugan hverfur í streng- inn. Örskömmu síðar lyftir veiðimað- urinn stönginni og tekur fast á fiski sem hamast snælduvitlaus í hylnum. Eftir nokkrar mínútur er Sigur- brandur búinn að lempa þriggja punda pattaralegan fisk að háfnum; þar í fer hann þó ekki fyrr en hann hefur tekið eina roku til, í gegnum klof veiðimannsins. Þessi fiskur end- ar líf sitt uppi á grösugum bakkan- um. Sigurbrandur tekur um bakið þeg- ar hann bröltir upp úr ánni, hann segist oft eiga við slæman bakverk að stríða í kalsömum veiðiferðum. „Vinur minn, sem er læknir og veiðir hér með mér, skrifaði upp á verkjalyf fyrir mig og fólkið í apótek- inu verður alltaf jafnskrýtið á svip- inn, þegar það sér notkunarleiðbein- ingarnar frá honum. Á lyfseðlinum stendur nefnilega „Við veiðiverkj- um!““ STANGVEIÐI | VEITT MEÐ SIGURBRANDI DAGBJARTSSYNI Í LAXÁ Í MÝVATNSSVEIT Alltaf gaman að veiða hérna Morgunblaðið/Einar Falur Allt í keng. Sigurbrandur lempar vænan urriða inn í lygna vatnið. Sigurbrandur Dagbjartsson hefur í tuttugu ár komið til veiða í Laxá í Mývatnssveit. Hann er tölvunarfræðingur að mennt og rekur eigið fyrirtæki, SR lausnir. Hlæjandi segir hann að með því að vera sjálfstæður atvinnurekandi eigi hann auð- veldara með að komast í veiði. „Svo er ég alltaf með ferða- tölvuna með mér og tek syrpu í vinnunni þegar ég kemst í netsamband.“ Í fyrra gaf hann út margmiðlunardisk um Laxá í Mývatns- sveit, ásamt Jónasi Magnússyni, með ljósmyndum Lárusar Karls Ingasonar. „Þegar fólk kemur að þessu víðfeðma svæði í fyrsta skipti sýpur það bara hveljur. Við vildum auðvelda fólki að skoða ána og lesa sér svolítið til. Við merkt- um veiðistaðina og settum líka inn vaðleiðir. Þessar upplýsingar hjálpa ókunnug- um og svo geta kunnugir líka velt þessu fyrir sér, fram og til baka.“ Vildum auðvelda fólki að skoða ána Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Allt um íþórttir helgarinnar á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.