Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
F
immtán menn á Dauðs manns
kistu, hæ, hó og flaska af
rommi!“ kyrja Jón Silfri og
kumpánar hans í Gulleyjunni
eftir Robert Louis Steven-
son og auðsætt hvert höf-
undar handritsins, Ted El-
liott og Terry Rossi, sækja
innblásturinn. Það er vel við
hæfi að kalla framhaldsmyndina Dead Man’s
Chest, og heiðra þannig bestu sjóræningja-
sögu heimsbókmenntanna og dagljóst orðið
að nafngiftin gefur góða raun, myndin slær
glæsileg aðsóknarmet á degi hverjum um öll
heimsins höf. Vestanhafs er hún þegar orðin
sú sem skilað hefur mestum gróða fyrstu
sýningarhelgina og fyrstu tíu sýningardagana
í allri kvikmyndasögunni.
Ef svo heldur fram sem horfir getur Dead
Man’s Chest endað í eftirsóttum félagsskap
hinna 10 vinsælustu, áður en ágúst er allur.
Sjóræningjaskútan hefur gjörsamlega kaf-
siglt keppinauta sína og sjálfur Superman
sýpur hveljur undan ágjöfinni frá Jack Spar-
row.
Myndin stendur vel að vígi, hún er lauflétt
afþreying sem höfðar greinilega til allra ald-
urshópa og samkeppnin er í rénun þar sem
kvikmyndaverin eru nánast búin að spila út
flestöllum trompum sumarmánaðanna. Næstu
tvær vikurnar þurfa sjóræningjarnir ekki að
eyða púðri á grimmustu hákarla árstíðarinn-
ar, þó þeir séu til alls vísir; Lady in the Wa-
ter, nýi spennuhrollurinn hans M. Night
Shyamalan (The Sixth Sense, Signs); My Su-
per Ex-Girlfriend eftir Ivan Reitman (Ghost-
busters, Twins) og Miami Vice, nýja spennu-
myndin eftir Michael Mann (The Last of the
Mohicans, Heat.)
Ævintýrið áhættunnar virði
Keppinautar Walt Disney héldu ró sinni
þegar fréttist að kvikmyndaverið væri með í
smíðum Pirates of the Caribbeans: The
Curse of the Black Pearl, stórmynd af fáséð-
um stofni sjóræningjamynda. Ástæðan að
þær höfðu reynst arfaléleg fjárfesting á und-
anförnum áratugum, þ. á m. Pirates (’86) e.
Roman Polanski og Cutthroat Island (’95),
sem var nánast banabiti ferils hjónakornanna
Rennys Harlin og Geenu Davis.
Á hinn bóginn var framleiðandinn enginn
annar en Jerry Bruckheimer, einstaklega far-
sæll og áræðinn, en honum hefur orðið á í
messunni líkt og öðrum. Þá var afrekaskrá
leikstjórans, Gores Verbinski, frekar smá í
sniðum en á móti vó að með aðalhlutverkið
fór Johnny Depp, einn snjallasti og ástsælasti
leikari samtímans. Þá voru aukahlutverkin
vel mönnuð Geoffrey Rush, Orlando Bloom,
Keiru Knightley og Jonathan Pryce og yf-
irhöfuð var hvergi til sparað.
Útkoman var glæsileg, tveggja og hálfs
tíma, ómenguð skemmtun sem kitlaði hlát-
urtaugarnar óspart og halaði inn á fjórða
hundrað milljónir dala sumarið ’03. Framleið-
endurnir voru fljótir að átta sig á að þeir
voru rétt búnir að finna reykinn af réttunum
og ákváðu í snatri að gera tvær myndir til
viðbótar um kaptein Sparrow. Myndin er
fjarri því að vera gallalaus, er t.d. slítandi
langdregin á köflum, en Depp er í rífandi
fantaformi á sjóræningjatúttunum, enda
sagðist hann sækja fyrirmyndina í þann þræl-
sukkaða rokkguð Keith Richards! Verbinski
sýnir lítið síðri takta og reyndist réttur mað-
ur á réttum stað. Þessir tveir menn, auk pen-
ingaflæðisins frá Bruckheimer, eiga mikið til
heiðurinn af vinsældum myndarinnar.
Kameljónið Johnny og kapteinn Jack
Johnny Depp hefur heldur betur sannað
sig sem einn, ef ekki fjölhæfasti leikari kvik-
myndanna og virðist ekkert hlutverk ómögu-
legt. Best lætur honum að skapa óvenjulega
furðufugla sem eru nánast orðnir að sérgrein:
Benny í Benny & Joon; Ichabod Crane í
Sleepy Hollow; Willy Wonka í Charlie and
the Chocolate Factory; Edward Scissorhands
og Ed Wood í samnefndum myndum, svo fátt
eitt sé til talið. Þessa dagana er hann að búa
sig undir að bæta Sweeny Todd í hópinn, enn
eina ferðina undir stjórn Tims Burton.
Sjaldan hefur Depp umturnast á jafn-
hressilegan hátt og sem sjóræningjakapteinn-
inn Sparrow, glottandi með gull í tann, bik-
svartur um augun eins og íslensk afturganga,
rámur og rommleginn undir bláum ævintýra-
himni Karíbahafsins.
Sparow er sem fyrr hin óbifanlega þunga-
miðja, í Dead Man’s Chest, siglir hann aftur
til móts við forlögin eftir að hafa sloppið
naumlega frá bölvun Aztekagullsins í The
Curse of the Black Pearl. Starf kapteins á
sjóræningjaduggu er sannaralega ekki heigl-
um hent, tvísýnt óþverrastarf og félagsskap-
urinn vafasamur. Í nýju myndinni verður
hann að endurgjalda Davy Jones (Bill
Nighy), hinum skuggalega kollega sínum á
draugaskútunni Hollendingnum fljúgandi,
gamla en ekki gleymda lífgjöf, og hún út-
heimtir blóð, svita
og tár. Til sögunn-
ar eru kallaðar
mannætur, risa-
kolkrabbar, leynd-
ardómsfullur spámaður, draugar, dísir og
djöflar, auk hefðbundins mannsora Karíba-
hafsins.
Depp segist ekki furða sig á vinsældum
sjóræningjamyndanna.
„Ég var orðinn vanur því að leika í mynd-
um sem nutu ekki vinsælda svo það var mér
gífurlegt áfall þegar að því kom. En ég er
áhorfendum afar þakklátur fyrir að taka vel á
móti persónunni og framleiðendunum að
standa með mér, því á vissum tímapunkti
áttu prúðbúnir Disneymenn í vandræðum
með að kyngja túlkun minni á Sparrow. Vel-
gengni myndarinnar var fullnaðarsigur fyrir
mig.“ Depp segist hafa gælt við þá hugmynd
að leika Jack Sparrow á eðlilegum nótum, en
hann er harður á þeirri skoðun að öll erum
við að einhverju leyti rugluð í kollinum, þar
með talinn Kapteinn Jack.
„Allir eru geggjaðir á sinn hátt en við neit-
um því gjarnan, þar sem enginn vill vera tal-
inn skrítinn, galinn, klikkaður, eða hvað menn
vilja kalla það, svo við skellum á okkur grím-
unni og leikum með. En Jack gerir ekki
minnstu tilraun til að taka þátt í leiknum, því
lætur honum vel að koma til dyranna eins og
hann er klæddur. Að auki held ég að nóg sé
af leikurum sem eru flinkir í að vera „venju-
legir“, ef til vill er ég að reyna að gefa áhorf-
endum eitthvað öðruvísi, reyna að láta þá fá á
tilfinninguna að það sé allt í lagi að vera mað-
ur sjálfur, að vera léttbilaður.“
Þrátt fyrir velgengnina segist Depp hafa
jafngaman af að leika og þegar hann kom
fyrst fram.
„Jafnvel meira, því nú get ég valið hlut-
verkin sjálfur. Það er eins gott að það nái
ekki eyrum Disney, en það furðar mig að þeir
borga mér fyrir að leika í Sjóræningjum Kar-
íbahafsins. Jack skipstjóri gefur mér tæki-
færi til að vera eins óheflaður og hugsast get-
ur – án þess að lenda í skömm fyrir það. Ég
nýt þess fram í fingurgóma, einkum ef eitt-
hvað óvænt gerist, einhver gleymir setningu,
eða maður segir kolranga setningu og allt fer
úrskeiðis, það eru ósviknir töfrar.
Sjóræningjar Karíbahafsins:
Á heimsenda, kemur að ári
Jafnskjótt og handritið var tilbúið, hóf Ver-
binski vinnu við þriðju og síðustu sjóræn-
ingjamyndina, Pirates of the Caribbean: At
World’s End, og verður hún frumsýnd 25.
maí, nk. Ferlið er í fullum gangi en Verbinski
gat tekið hluta hennar samhliða Dead Man’s
Chest. Auk allra helstu aðal- og aukaleikara
koma þeir við sögu; Hong Kongbúinn Yun-
Fat Chow, Svíinn Stellan Skarsgård, og síð-
ast en ekki síst, maestro Keith Richards, sem
vonir standa til að taki að sér hlutverk föður
Jacks Sparrow. Eins gott að hann hætti að
fíflast uppi í pálmatrjám, harðfullorðinn mað-
urinn. Í myndinni, sem lokar þríleiknum, fær-
ist atburðarásinn út á heimsenda og er ætl-
unin að slagsmálin, sverðaglammið,
geggjunin og brellurnar slái þeim fyrri al-
gjörlega við.
Depp segist sakna Jacks skipstjóra.
„Það er engin spurning, þó það hljómi aula-
lega frá miðaldra manni, þá færist yfir mig
fáránlegt fyrirframþunglyndi þegar mér
verður hugsað til þess að að því kemur að
maður á aldrei eftir að umgangast þessa
náunga oftar. Ég sakna þeirra. Ég hlakka
ekki til að kveðja Jack Sparrow, og vonandi
verður dráttur á því – ef Disney og Bruckhei-
mer dettur í hug að gera þá fjórðu …
Ship O’Hoy.
Móttökur framhaldsmyndarinnar Pirates of the
Caribbean: Dead Man’s Chest, hafa farið fram úr björt-
ustu vonum. Sæbjörn Valdimarsson tók sólarhæðina
um borð og komst að því að skútan hans Jo-
hnnys Depps stefnir harðbyri að því að verða
fengsælli en aðrar útgerðir sumarvertíð-
arinnar. Með sama skriði næstu vikurnar á hún
möguleika á að ná inn á listann yfir 10 mest
sóttu kvikmyndir sögunnar. Sjóræningjarnir
gera strandhögg hérlendis eftir helgina.
Johnny Depp sem
sjóræningjakap-
teinninn Sparrow,
með gull í tann,
biksvartur um
augun, rámur og
rommleginn.
Aukahlutverkin eru eins og í fyrri myndinni, The Curse of the Black Pearl, einkar vel mönnuð með
þau Keira Knightley og Orlando Bloom í broddi fylkingar.
saebjorn@heimsnet.is
’Depp er í rífandi fantaformi á sjóræn-ingjatúttunum enda sagðist hann
sækja fyrirmyndina í þann þrælsukk-
aða rokkguð Keith Richards!‘
Svarta perlan svífur
seglum þöndum
Mest sóttu myndir sumarsins til þessa:
Pirates of the Caribbean:
Dead Man’s Chest 258 (millj. dala)
X-Men: The Last Stand 235 “
Cars 220 “
The Da Vinci Code 215 “
Ice Age: The Meltdown 195 “
Superman Returns 164 “
Over the Hedge 151 “
Mission: Impossible II 133 “
Click 120 “
The Break Up 116 “
Stolt siglir fleyið mitt …
(Samkv. The Hollywood Reporter um miðjan júlí)