Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Klemenz Erl-ingsson fæddist í Reykjavík 30. maí 1937. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi föstudaginn 7. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Erlingur Klemens- son og Valgerður Stefánsdóttir. Klemenz giftist eftirlifandi eigin- konu sinni, Sigríði Erlu Haraldsdóttur, hinn 4. júlí 1959. Foreldrar henn- ar voru Haraldur Runólfsson og Guðrún Laufey Ófeigsdóttir. Börn Klemenzar og Sigríðar Erlu eru: 1) Katrín Stefanía, f. 1959. 2) Elín Hekla, f. 1960, sambýlismaður hennar er Anton Kröyer. 3) Klemenz Geir, f. 1969, sam- býliskona hans er Svanbjörg Ólafs- dóttir. 4) Erlingur Reyr, f. 1973, sam- býliskona hans er Helma Þorsteins- dóttir. 5) Guðrún Hrafnhildur, f. 1975, sambýlismað- ur hennar er Róbert Sverrisson. Klemenz og Sig- ríður Erla eiga 15 barnabörn og eitt barnabarna- barn. Útför Klemenzar fór fram frá kapellu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi fimmtudag- inn 13. júlí, í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku pabbi minn. Óskaplega finnst mér þetta allt saman ótrúlega óraun- verulegt og erfitt. Það er einhvern veginn eins og maður hugsi stundum að þetta geti bara ekki verið satt. Þú ert bara í vinnunni að keyra ferða- menn um landið og kemur aftur eftir nokkra daga. En sú er því miður ekki raunin og ég verð að reyna að átta mig á því. Þú greindist með þinn sjúkdóm daginn fyrir þrítugsafmælið mitt. Og þvílíkt högg! Ég vildi slá veisluna af og helst liggja uppi í rúmi með breitt upp fyrir höfuð. En þú hélst nú ekki. Og auðvitað mættir þú og varst hrókur alls fagnaðar eins og þín var von og vísa. Nákvæmlega ári eftir að þú greindist birtist dánartilkynningin um þig í blaðinu. Sumir myndu segja að þetta væri kaldhæðnislegt en ég segi að þetta sé bara lýsandi fyrir það hversu nákvæmur þú varst alltaf. Nú leita ótal minningar á hugann. Manstu til dæmis eftir laginu okkar? Ef þú varst að vinna, og ég vissi að ég yrði sofnuð þegar þú kæmir heim, þá skrifaði ég þér bréf og skildi eftir á hillunni í forstofunni. Í bréfinu stóð að lagið okkar hefði komið í útvarpinu. Og manstu þegar ég skreið upp í fang- ið á þér ef mér fannst eitthvað hræði- legt í sjónvarpinu, eins og t.d. Djákn- inn á Myrká? Og manstu þegar þú kenndir mér að setja á rjómatertu og þegar þú sýndir mér hvernig ætti að halda á hamri? Og manstu þegar þú leyfðir mér að keyra Fiat-inn í sveit- inni löngu áður en ég fékk bílpróf og þegar þú kenndir mér að bakka með kerru? Þú hafðir alltaf svo mikla trú á mér og ég var alltaf svo örugg þegar þú varst nærri. Ég man að þegar ég var lítil sagði mamma alltaf að eitthvað gæti komið fyrir alla, líka þig, en það fannst mér óhugsandi. Mér fannst að þú gætir allt og kynnir allt og ekkert gat komið fyrir þig. Og alltaf var hægt að leita ráða hjá þér, hvort sem vantaði leiðbeiningar við bakstur eða bílavið- gerðir, þú vissir alltaf svarið. Eitt var það í lífinu sem þú varst ákveðinn í að gera ekki og það var að ganga inn kirkjugólf með einhverri af okkur systrunum í þeim tilgangi að gefa okkur. Svo þegar að því kom að ég ætlaði að gifta mig stóðst þú fastur á þínu, þú ætlaðir ekki að gefa mig frá þér. En það var ekki þar með sagt að þú ætlaðir ekki að ganga inn kirkju- gólfið með mér en það yrði þá bara í þeim tilgangi einum að passa að ég dytti ekki á háu hælunum því þú vissir auðvitað að það er ekki mín sterkasta hlið. En það varð aldrei úr því að við gengjum saman inn kirkjugólfið þar sem þú varst orðinn svo veikur. Þann- ig að enn og aftur stóðst það sem þú varst alltaf búinn að segja. Sennilega gæti ég haldið endalaust áfram en held að ég láti staðar numið hér. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér og allt sem við gerðum saman í lífinu, pabbi minn. Þú veist að mér þykir óendanlega vænt um þig og vona að allar góðar vættir séu með þér. Farðu í friði, elsku kallinn minn, minningin um besta pabba í heimi lifir í hjarta mér um ókomna tíð. Þín Guðrún Hrafnhildur (Stubba). Elsku afi. Mig langar að kveðja þig og segja takk fyrir samveruna. Það var nú ýmislegt sem við brölluðum saman og mikið rosalega vorum við alltaf góðir vinir. Alltaf sömu fagnað- arlætin þegar við hittumst og mátti ekki á milli sjá hvort okkar fagnaði ákafar. Ég kom nokkrum sinnum á sjúkrahúsið í heimsókn til þín þegar þú varst orðinn lasinn og alltaf knús- uðumst við jafnmikið. Og nú er nóg að mamma og pabbi keyri framhjá sjúkrahúsinu þá byrja ég að kalla á þig. En ég ætla að vera dugleg að biðja mömmu og pabba að sýna mér myndir og tala um þig við mig. Þá veit ég að ég gleymi þér aldrei. Þín Hugrún Tinna. Elsku afi. Mig langaði að segja bless við þig og þakka þér fyrir allt sem við gerðum saman. Þegar ég vissi að þú værir dáinn þá ákvað ég að skrifa til þín kveðju. Ég bjó þetta til alveg sjálf: Þú sem ert á himnum! Þetta er sorgleg saga því afi minn er farinn upp til himna. Ég sakna þín og þú veist að ég elska þig endalaust. Ég hitti þig þegar ég kem upp til himna. Sittu hjá Guði, þá finn ég þig og knúsa þig. Þín Aldís Elva. „Sæl frænka mín“ og mjúkur bangsakoss þar sem skeggið kitlaði og glettið augnaráð, þrungið umhyggju og kærleik. Og glettnin jókst og stríðnin tók við, jafnvel án þess að svipurinn breyttist. Klemmi var fjöl- skylduþráður sem snart alla stórfjöl- skylduna, hélt henni saman, með alla ættfræðina á hreinu og það var unun að heyra hann segja frá gamla ætt- aróðalinu í Grímsnesinu og af prakk- arastrikum systkinanna á Fossi. Hann þekkti alla og þá sem hann þekkti minna kynntist hann, enda kunni hann fullt af sögum, og ekki fannst honum verra að það væru skemmtisögur. Hann átti svo gott með að umgangast fólk og ekki síst fötluðu vini sína sem hann keyrði svo oft, enda héldu þeir mikið upp á hann. Það hefur alltaf ver- ið gott að koma á Birkivellina til Klemma og Erlu, frá því að ég kynnt- ist þeim fyrir 26 árum, og þau buðu mig hjartanlega velkomna inn á sitt heimili. Þar var undantekningarlaust hlegið og gantast og oft svo mikið að tárin runnu niður kinnar af hlátri. Ég minnist þeirra stunda með gleði og þakklæti og varðveiti í hjarta mér. Ég á eftir að sakna þeirra stunda með frænda og sem betur fer heldur þessi kankvísi áfram í gegnum börnin hans og Erlu. Elsku Erla mín, Kata, Hekla, Klemmi Geir, Krummi og Guðrún, ég votta ykkur og fjölskyldum ykkar mína dýpstu samúð. Öll stórfjölskyld- an hefur misst „Klettinn“ sinn. Berglind frænka og börn. Það var alltaf svo gott að vera ná- lægt honum Klemma, hann var alltaf í góðu skapi, átti alltaf til falleg orð handa manni og var óspar á þau. Hjálpsamari mann var ekki hægt að finna, hann vildi allt fyrir alla gera. Það var svo gaman að hitta þig um daginn og ég er svo þakklát fyrir þá samverustund sem við áttum og við gátum rifjað upp ferðina okkar saman sem við fórum 1989, þú sem rútubíl- stjóri og ég á eldhúsbílnum í 12 daga tjaldferð. Ég man hvað ég var ánægð þegar ég sá græna rútu koma til okkar og þú varst bílstjórinn. Þú bjargaðir þeirri ferð með því að stríða mér stanslaust þegar ég var eitthvað að kvarta. Þú varst ekkert að búa til vandamálin heldur frekar að hlæja að þeim. Þrátt fyrir að það séu 17 ár síðan við fórum í þessa ferð saman þá mund- ir þú allt frá ferðinni og mundir hvað það var sem þú gast strítt mér á. Þú hefur reynst mér og börnum mínum sem afi og vonandi næ ég að kenna þeim eitthvað af lífsviðhorfi þínu, já- kvæðnina og hjálpsemina sem ég mun alla tíð minnast. Elsku Sigríður Erla, Hekla, Kata, Klemmi, Krummi, Guðrún Hrafnhild- ur og fjölskyldur. Guð veri með ykkur. Berglind Guðmundsdóttir og fjölskylda. Fallinn er í valinn nágranni okkar, Klemenz Erlingsson. Við höfum búið hér sitt hvorum megin við götuna í röska fjóra áratugi. Þetta hefur verið einstaklega ljúft og gott nágrenni, krakkarnir á bæjunum léku sér saman og allt lék þá í lyndi. Nú eru börnin uppkomin og flogin úr hreiðrunum, en vinátta sem vel er til stofnað heldur þótt bústaðir verði fjarlægir. Það var alltaf gott að hitta hann Klemma, spaugsyrði voru títt á vörum svo maður komst í gott skap við að hitta hann og ekki vantaði gestrisnina, þar var gott að koma til að spjalla. Það er um eitt ár síðan Klemmi sagði okk- ur að læknarnir hefðu gefið sér þrjá til sex mánuði lífs, en hann gerði betur og náði næstum árinu. Hann notaði tím- ann vel að okkur sýndist, smíðaði, las og spjallaði, skoðaði gamlar myndir til að eiga í huga sér þær minningar sem þeim fylgdu. Hann tók þessu af æðru- leysi eins og lífsreyndir menn gera, þetta er jú leiðin okkar allra, þótt sum- ir fari fyrr en æskilegt er. Fjölskyldan á Birkivöllum 24 þakk- ar Klemenzi fyrir góða viðkynningu og vottar aðstandendum innilega samúð. Hergeir, Fanney og börn. KLEMENZ ERLINGSSON Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem sýndu mér samúð og hlýhug og veittu mér aðstoð við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, BALDURS KARLSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar fyrir góða umönnun og yndislegt viðmót í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Vigfúsína G. Danelíusdóttir. Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNDÍSAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, áður til heimilis í Yztu-Görðum, Kolbeinsstaðahreppi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra Borgarnesi. Markús Benjamínsson, Ölver Benjamínsson, Ragnhildur Andrésdóttir, Rut Benjamínsdóttir, Þorsteinn Benjamínsson, Rebekka Benjamínsdóttir, Þorgeir Guðmundsson, Guðmundur Benjamínsson, Ingibjörg Gústafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og útför systkinanna HJÖRDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Sólheimum 12, Reykjavík, og MAGNÚSAR JÓNSSONAR, Brekkubæ 16, Reykjavík. Aðstandendur. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug, samúð og hjálp við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, FRIÐRIKS HALLDÓRS VALGEIRSSONAR, Suðurgötu 72, 220 Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær Karitas hjúkrunarþjónustan og læknar og hjúkrunarfólk á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Hólmfríður Ragnheiður Jónsdóttir, Jón Valgeir Halldórsson, Ingþór Halldórsson, María Dögg Halldórsdóttir, Ívar Örn Magnússon og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR P. HELGADÓTTUR fyrrverandi skólastjóra, Aragötu 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Ólafur Oddsson, Dóra Ingvadóttir, Helgi Jónsson, Kristín Færseth, Jón Jóhannes Jónsson, Sólveig Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar dóttur okkar, systur og barnabarns, SIGRÚNAR KRISTINSDÓTTUR, Vesturgili 5, Akureyri. Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Kristinn Tómasson, Ragnar Páll, Baldur, Ásta Sigurlaug, Ketill, Sigurlaug Ingólfsdóttir, Gerður Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.