Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Su›urlandsbraut 22, 108 Reykjavík Sími 540 1500 www.lysing.is Klæðskerasniðnar lausnir H in ri k Pé tu rs so n l w w w .m m ed ia .is /h ip “fia› er metna›ur okkar a› veita ávallt klæ›skerasni›na rá›gjöf í bland vi› persónulega fljónustu sem byggir á sérflekkingu okkar í fjármögnun atvinnutækja. Vi› sní›um fjármögnun í takt vi› flarfir hvers og eins, enda vitum vi› a› hver vi›skiptavinur okkar er einstakur.“ Arnar Snær Kárason Rá›gjafi, Fjármögnun atvinnutækja „HUGMYNDIN er að gróðursetja listahugmyndir í sálir manna,“ segir Jóhann Eyfells um hlutverk búgarðsins EyfellsandEyfells í Texas, þar sem hann hefur búið undanfarin tvö ár. „Ég er meira að segja með lítið hús sem var gróð- urhús en í framtíðinni ætla ég mér að hafa þar aðstöðu þar sem börn geta spreytt sig á listsköpun,“ seg- ir hann. Búgarður Jóhanns stend- ur við þjóðveg og er ekki langt frá borginni Austin í Texas. Ítölsk vin- ahjón Jóhanns fundu búgarðinn og sýndu Jóhanni myndir af honum. Jóhann breytti búgarðinum í safn með verkum til þess að heiðra minningu Kristínar konu sinnar og nú hefur hann komið upp þremur sýningarsölum á búgarðinum. Um aðdraganda þess að hann ákvað að flytjast búferlum til Tex- as segir Jóhann að sér hafi litist vel á þær ljósmyndir sem vinir hans sýndu honum af staðnum. Eftir andlát konu sinnar hafi sér þótt nauðsynlegt að hefja nýtt líf, þrátt fyrir að vera kominn á ní- ræðisaldur. Því hafi hann brugðið búi í Flórída og flust til Texas. „Ég segi oft í gamni að lífið byrji um áttrætt,“ segir hann og hlær. Jó- hann kveðst þeirrar skoðunar að ætli fólk sér að lifa lífinu þýði ekki að bíða eftir hlutunum. „Maður verður að taka allt föstum tökum og drífa hlutina áfram,“ segir hann. 22 vöruflutningabílar milli ríkja Það kostaði nokkurt átak fyrir Jóhann að flytjast frá Flórída til Texas. Hann hefur í gegnum tíðina unnið marga stóra skúlptúra, en alla þá helstu flutti hann með sér til Texas. Það voru fluttir 22 vöru- flutningabílar með skúlptúrum en hver þeirra tekur 22 tonn. Þeir voru nokkuð vel hlaðnir,“ segir Jó- hann sem kveðst sjálfur hafa ekið um fimm sinnum á milli ríkjanna tveggja. Alls hafi hann sennilega flutt um 170 tonn af skúlptúrum, verkum Kristínar, búslóð og öðru milli Flórída og Texas. Jóhann segir að það sem hafi drifið sig áfram hafi verið löngun til þess að koma lífsstarfi sínu og Kristínar á framfæri svo það yrði aðgengilegt í framtíðinni. „Ég hef aldrei staðið í neinu slíku fyrr. Ég hef ekki verið mikið fyrir það að koma mér á framfæri fyrr,“ segir hann. Þrátt fyrir háan aldur hefur Jó- hann að mestu staðið í því sjálfur að gera búgarðinn upp og útbúa þar þrjá sýningarsali. „Ég er í aðalatriðum einn í þessu en keypti mér lítinn gaff- allyftara, svokallaðan Bobcat. Hann er ágætur í allskonar flutn- inga, gröft og slíkt. Hann er minn besti vinur en ég hefði aldrei getað gert neitt af þessu án hans,“ segir Jóhann og kveðst nota gaffallyft- arann daglega. Einn sýningarsala Jóhanns, sem nefnist The Sunken Museum, var formlega opnaður í maí síðastliðnum, en þar er að finna verk eftir Kristínu, konu hans. „Við opnun hans í maí voru 250 manns sem komu og heimsóttu mig,“ segir Jóhann. Stefnt sé að því að í Sunken Museum verði ný sýning á um þriggja mánaða fresti. „Það verða örugglega þrjár nýjar sýningar á ári,“ segir Jóhann. Hann kveðst sjálfur sjá um að skipuleggja sýningarnar og setja þær upp. „Ég er svo vanur að setja upp sýningar,“ segir hann. Reisti sér listabúgarð í Texas Ljósmynd/Þór Elís Pálsson Þessi stóri skúlptúr sem Jóhann Eyfells stendur fyrir framan heitir Brennipunktur. Teningar í forgrunni eru eitt af merkilegustu verkum Jóhanns. Í bak- grunni eru bæði söfnin, Open Museum og Sunken Museum. Vinnur að heim- ildamynd um Jóhann Eyfells ÞÓR Elís Pálsson kvikmyndaleik- stjóri vinnur um þessar mundir að því að gera heimildamynd um myndlistarmanninn Jóhann Ey- fells, sem hefur verið búsettur í Bandaríkjunum um langt skeið. Jóhann bjó í um það bil þrjá ára- tugi á Flórída, ásamt Kristínu Halldórsdóttur eiginkonu sinni, sem einnig var myndlistarmaður, en hún lést fyrir þremur árum. Auk þess að sinna list sinni var Jó- hann prófessor við University of Central Florida. Eftir að Kristín lést ákvað Jóhann að flytjast bú- ferlum til Texas, þar sem hann festi kaup á búgarði. Þór Elís kveðst hafa fylgst með Jóhanni í um tvö ár, frá því hann flutti til Texas. Hann segir Jóhann hafa sýnt ótrúlega eljusemi við breytingar á búgarðinum. „Hann var með opn- un núna í maí á The Sunken mu- seum, en salurinn sem það safn er í var áður kalkúnafjós. Nú er búið að endurbyggja þetta algerlega og húsið er þakið fallegum ljósum steini. Þetta er glæsilegur sýning- arsalur með fullkominni lýsingu,“ segir Þór um sýningarsalinn. Hann bætir við að það sé eins- dæmi að íslenskur listamaður reisi sér sjálfur slíkan sýningarsal og til að heiðra minningu konu sinn- ar. Spurður um hvers vegna hann hafi ákveðið að gera heim- ildamynd um Jóhann kveðst Þór Elís lengi hafa haft áhuga á mynd- list og muni vel eftir verkum Jó- hanns. „Mér fannst eins og þau kæmu utan úr geimnum, ég vissi aldrei hvernig ég ætti að meðtaka þau en það var eitthvað við þau sem heillaði mig,“ segir Þór. Myndin fjalli um „Jóhann sem persónu og sem listamann og þau bæði hjónin. Þessi mynd ætti að skila góðri mynd af þeim,“ segir hann og bætir við að stefnt sé á að ljúka við gerð myndarinnar haust- ið 2007. INGIBJÖRG Á. Johnsen, æskulýðs- frömuður og kaup- maður í Vestmanna- eyjum, andaðist á sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum síðast- liðið föstudagskvöld, 84 ára að aldri. Ingi- björg fæddist 1. júlí 1922 í Vestmannaeyj- um. Foreldrar hennar voru Árni Johnsen og Margrét Jónsdóttir Johnsen, Suðurgarði í Vestmannaeyjum. Um fimmtíu ára skeið átti og rak Ingibjörg blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum og í liðlega hálfa öld vann hún að æsku- lýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði mikið með Stórstúku Íslands, landssamtökum bind- indismanna. Hún var eldheitur sjálfstæðis- maður alla sína tíð. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og KFUM og KFUK og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vest- mannaeyjum fyrir hug- sjónir sínar. Í starfi sínu eignaðist hún ófá fósturbörn sem litu á hana sem móður. Ingibjörg bjó yfir mikilli starfs- orku fram á níræðisaldur en þá lagði að sjúkleiki. Hún var gift Bjarnhéðni Elíassyni, skipstjóra og útgerðarmanni frá Oddhól á Rang- árvöllum, en hann lést árið 1992. Börn þeirra eru Árni, Margrét Ás- björg, Þröstur og Elías. Andlát INGIBJÖRG Á. JOHNSEN ÍSLANDSVINIR hófu göngu sína um Kárahnjúkasvæðið í gærmorg- un. Að sögn Andreu Ólafsdóttur, talsmanns Íslandsvina, lögðu um 150 manns af stað í gönguna í glampandi sól og blíðu. „Þetta byrj- ar ljómandi vel,“ sagði Andrea við upphaf göngunnar. Lagt var af stað frá Töfrafossi í 625 metra hæð við efri mörk fyrirhugaðs Hálslóns. Gengið var niður með Kringils- árgljúfri að ármötum Jöklu og Kringilsár. Síðan var gengið vestan megin við Jöklu þar sem gljúfur, sethjallar, fuglalíf og fossar voru skoðaðir. Að því loknu átti að ljúka göngunni með mótmælastöðu við Kárahnjúkastíflu. Um 150 manns í Kárahnjúkagöngu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.