Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 52
Morgunblaðið/Árni Sæberg VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, var mættur ásamt fleirum í full- um herklæðum er hann setti af stað um- hverfis- og fegrunarátak Reykjavíkurborgar í gær. Breiðholtið er fyrsta hverfið sem tekið verður í gegn og var safnast saman á þrem- ur stöðum, við Breiðholtsskóla, við Breið- holtslaug og við Hólmasel í Seljahverfi, og stefnt að því að vinna fram eftir degi við að snyrta hverfin; tína rusl, hreinsa veggjakrot, sópa og bæta girðingar svo fátt eitt sé nefnt. Átakið nefnist Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík og er lögð áhersla á að virkja al- menning og fá hann til liðs við starfsmenn borgarinnar. Hanskinn tekinn upp fyrir borgina ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi MIKIL fjölgun hefur orðið á um- sóknum vinnuveitenda vegna beiðna um útgáfu kennitalna fyrir erlenda ríkisborgara hjá Þjóðskrá upp á síðkastið. Hafa umsóknir oft farið vel yfir 100 á dag. „Hjá Þjóðskrá er óbreyttur starfsmannafjöldi þannig að þessi sérstaka umsóknaaukning hefur dregið úr afgreiðsluhraða,“ segir Skúli Guðmundsson, skrifstofu- stjóri Þjóðskrár, og bætir við að mikið rýmra sé um för fólks um EES-svæðið og að meiri hreyfing virðist vera á atvinnulífinu en áður. Er Skúli er spurður að því hversu lengi afgreiðsla einnar um- sóknar taki nú segir hann að starfsmenn séu farnir að upplifa svipaðar tafir og lengi hafi verið í nágrannalöndunum. „Það getur nú tekið tvær til þrjár vikur að af- greiða mál,“ segir Skúli. „Það er álag fyrir starfsfólkið að sjá ekki út úr augum og þegar kúf- arnir eru svona háir tekur það kannski einhvern tíma að vinna úr þeim,“ segir Skúli er hann er spurður að því hvort ástandið sé farið að valda áhyggjum. En geta slíkar tafir á afreiðslu valdið því að umsækjendur séu ekki réttilega tryggðir fari þeir að vinna áður en þeir hafa fengið kennitölu? „Það að fá kennitölu er ekki sjálfkrafa ávísun á tryggingar í ís- lenska almannatryggingakerfinu fyrr en síðar. Þeir sem koma af Evrópska efnahagssvæðinu eiga í flestum tilvikum að vera tryggðir frá heimalandinu,“ segir Skúli og bætir við að vinnuveitendur eigi líka oft í samstarfi við trygginga- félög hér á landi til að tryggja við- komandi þar til hann hefur dvalið hér í sex mánuði, sem almennt sé sá tími sem taki að fá skráð lög- heimili hérlendis. „Útgáfa kennitölu verður til þess að mál viðkomandi eru á yf- irborðinu, sem þýðir að skattayfir- völd eru þá komin með upplýsingar um viðkomandi. Þetta er lykillinn að því að hægt sé að vinna með réttindi og skyldur viðkomandi. Það er góðs viti að sjá að atvinnu- rekendur keppist við að fá fólk skráð því það bendir til þess að þeir vilji hafa sína starfsemi sem best skráða gagnvart stjórnvöld- um landsins,“ segir Skúli að lokum. Umsóknir um kennitölur fyrir 100 útlendinga á dag Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is „MYNDIN um Skaftfelling hefur undið upp á sig og fer sínar eigin leiðir. Ég ferðast með skipinu, allt frá byrjun 20. aldar og fram yfir stríðsárin. En ég er farinn að sjá uppbyggingu myndarinnar skýrt fyrir mér og stefni á að ljúka henni á næsta ári,“ segir Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður í Tímariti Morgunblaðsins í dag. Helgi hefur búið í Svíþjóð í þrjátíu ár. Hann rekur fyrirtækið FelixFilm og hefur gert fjölda heimildarmynda um allan heim. Nú er hann kominn heim og að þessu sinni á slóðir móðurfjölskyldu sinnar í Vík í Mýr- dal. Þar er hann að vinna mynd um skipið Skaftfelling VE 33, sem var smíðað í Dan- mörku árið 1918 og hélt uppi samgöngum milli Reykjavíkur, Vestmannaeyja, Víkur og ýmissa staða við sanda Vestur- og Aust- ur-Skaftafellssýslu. Skaftfellingur fór einna flestar ferðir íslenskra skipa milli Ís- lands og Bretlands á árum síðari heims- styrjaldarinnar. Skipið var að grotna niður í Vestmannaeyjum þegar Sigrún heitin Jónsdóttir, kirkjulistakona og sjálf Skaft- fellingur, stóð fyrir flutningi þess heim í Vík fyrir nokkrum árum. Helgi hefur mörg járn í eldinum. Um þessar mundir er hann að leggja lokahönd á kvikmynd um sænska ljósmyndarann Marianne Greenwood og mynd um afleið- ingar kjarnorkutilrauna Frakka í Kyrra- hafi. Morgunblaðið/ÞÖK Helgi Felixsson kvikmyndagerðarmaður. Kvikmynd um Skaftfelling á næsta ári GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur hefur samið við stórkylfinginn Nick Faldo um að halda unglinga- mót í golfi á Korpuvelli dagana 7. til 9. ágúst næstkomandi. Nefnist mótið Faldo Series Icelandic Championship en áður en Opna breska meistaramótið í golfi hófst gaf Faldo sér tíma til að skrifa undir samninginn. Hann komst reyndar ekki í gegnum nið- urskurðinn en mótinu lýkur í dag. Undir samninginn fyrir hönd klúbbsins skrifuðu Gestur Jóns- son, formaður GR, og Margeir Vilhjálmsson framkvæmdastjóri. til að íslenskir afrekskylfingar geti séð strax af eigin raun hvar þeir eru staddir miðað við fremstu ungu áhugamenn Evrópu. Ísland er fyrsta landið utan Bretlands þar sem unglingamót undir nafni Nick Faldo er haldið í Evrópu, en í burðarliðnum er að halda það í fimm eða sex Evr- ópulöndum á næsta ári. Nick Faldo hefur lagt mikla áherslu á að kenna yngri kylf- ingum og beina þeim á réttar brautir í golfinu þannig að efnileg- um kylfingum takist að gera drauminn um að verða atvinnu- menn að veruleika, segir í tilkynn- ingu frá GR. Fulltrúi Faldos kom til landsins fyrr á árinu og valdi Korpuna sem keppnisvöll fyrir mótið. Markmiðið er að mótið verði árlegur viðburður hér á landi. Tveir leikmenn úr unglinga- liði Faldos munu leika á mótinu, Gestur Jónsson, Nick Faldo og Margeir Vilhjálmsson. Sömdu við Faldo AÐ MATI lögreglumanna stærstu embætta landsins hófst helgin fremur rólega. För sjö ökumanna á höfuðborgarsvæðinu var stöðv- uð í fyrrinótt og þeir grunaðir um ölvun við akstur, þrír í Hafnarfirði og fjórir í Reykja- vík. Þá var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út til að aðstoða fólk sem fast var í lyftu í útibúi Glitnis við Lækjargötu í fyrri- nótt. Grjótkast í Keflavík Í Keflavík var einn ökumaður grunaður um ölvunarakstur auk þess sem lögreglan hafði hendur í hári tveggja unglingspilta sem hún grunar um að hafa kastað grjóti í rúðu leikskólans Garðasels. Lögregla fékk greinargóða lýsingu á öðrum piltinum sem sést hafði á gangi við leikskólann og hand- tók í kjölfarið tvo 17 ára pilta þar sem lýs- ingin passaði við annan þeirra. Að sögn lög- reglu voru piltarnir báðir ölvaðir og sögðust ekkert kannast við málið. Eftir viðtal á lög- reglustöð var þeim komið í hendur forráða- manna sinna. Á Akureyri, Ísafirði og Selfossi var allt með kyrrum kjörum, aðeins einn ökumaður tekinn á Selfossi, grunaður um ölvun við akstur. Festust í lyftu í útibúi Glitnis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.