Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 21
gamla valdahugsunarhættinum – geti ekki sætt sig við að þessi ríki séu sjálf- stæð og móti stefnu sína út frá rúss- neskum hagsmunum eins og þeir eru metnir hverju sinni. Sjálfsagt á þessi skýring við að einhverju leyti, en áhugaverðara er þó að setja afstöðuna í samband við ástandið innanlands og viðbrögð stjórnvalda við henni. Það má taka dæmi af gasdeilunni við Úkraínumenn síðasta vetur. Í orði kveðnu snerist deilan um sanngjarnt verð Úkraínumanna fyrir gas sem þeir kaupa af Rússum og um eðlilegan hagnað Úkraínumanna af gasleiðsl- unni sem Rússar nota til að koma jarðgasi sínu til Vestur-Evrópu og liggur um Úkraínu. Þessi deila varð á tímabili svo hörð að Rússar gripu til þess úrræðis, sem þó virtist ekkert til- efni til, að skrúfa að hluta fyrir gasið til Úkraínu. Þetta olli mikilli óánægju hjá kaupendum í Vestur-Evrópu sem liðu fyrir gasskortinn ekki síður en Úkraínumenn. Frá sjónarmiði heil- brigðrar skynsemi virtist aðgerðin því ástæðulaus og ábyrgðarlaus og ein- göngu til þess fallin að stærstu kaup- endur rússnesks gass myndu draga þá ályktun að þessi viðskipti við Rúss- land væru óþarflega áhættusöm og betra væri að finna aðrar leiðir til að útvega gas. En það sást vel á því hvernig Pútín kom fram í deilunni að honum var miklu mikilvægara að tryggja að for- setinn virtist sterkur innanlands en að halda trúverðugleikanum út á við. Í Kreml var staðan greinilega metin svo að dýrara væri að sæta ákúrum fyrir linkind gagnvart Úkraínu eða Evrópu en að glata trausti í Vestur- Evrópu. Miklar æsingar voru í fjölmiðlum yfir sambandinu við Úkraínu á meðan á deilunni stóð og sú skoðun var áber- andi að Úkraínumenn stæðu með pálmann í höndunum og græddu á Rússum: Ekki væri nóg með að þeir fengju orkugjafa á sérverði. Þeir væru einnig búnir að sölsa undir sig Krímskaga sem með réttu væri rúss- neskt landsvæði. Það má því vissulega hafa nokkurn skilning á tilraunum Kremlarstjórnar til að láta lands- menn sína að minnsta kosti halda að hún væri að sýna Úkraínumönnum tennurnar. Gagnrýni Vesturlanda Það er bæði skiljanlegt og eðlilegt að rússnesk stjórnvöld sitji nú undir harðri gagnrýni frá Vesturlöndum vegna valdsmannslegra tilburða gagnvart nágrönnum sínum, vaxandi valdstjórnar heima fyrir og ömurlegs ofbeldis og villimennsku í Tétsníu. Staða mannréttindamála í Rússlandi hlýtur að vekja óhug í Vestur-Evr- ópu. Það er sama hvert litið er, til ástandsins í Tétsníu, rússneska hers- ins eða almennra réttinda. En það er líka mikilvægt að setja rússneska pólitík í rétt samhengi. Þau rúmu sex ár sem Pútín hefur setið í embætti hefur þjóðfélagsþró- unin í Rússlandi frekar verið í átt að einræði en í átt að velferðarkerfi – og í rauninni má skýra þann stöðugleika sem nú ríkir í Rússlandi með tvennu: Olíuverði og valdstjórn. Líklega er ekkert evrópskt samfélag til þar sem gæðum er jafn misskipt og í Rúss- landi um þessar mundir, og litlar líkur eru á að miklar breytingar verði á því í bráð. Ekki stuðlar kapítalismi að jöfnuði og einræði ekki sjálfkrafa heldur. Moskva er um þessar mundir borg andstæðnanna, þar sem milljóna- mæringar bruna um götur á bryn- vörðum Benzum en alþýða manna sópar göturnar þeirra og bónar bílana þeirra fyrir hungurlús. Sú millistétt sem hefur smátt og smátt orðið til á undanförnum árum er enn fámenn og vön því að þurfa að berjast fyrir sínu. Í samfélaginu ber mest á eindreginni einstaklingshyggju og kröfu til stjórnvalda um að sýna hörku á öllum sviðum, hvort sem er í innanlandspóli- tík eða í utanríkismálum. Sú hug- mynd að lýðræði og öflugt velferðar- kerfi eigi ekki við í Rússlandi er einnig áberandi og talsmenn hefð- bundinna vestrænna frjálslyndisvið- horfa vekja afar takmarkaðan áhuga – málflutningur þeirra er jafnvel tal- inn einkennast af barnaskap. Við þessar aðstæður er því miður talsverð hætta á því að talsmenn eða þjónar ofsafenginnar þjóðernis- hyggju komist til valda þegar Pútín hverfur úr forsetastóli. Það eru hins- vegar nánast engar líkur á því að tals- menn lýðræðis- eða frjálslyndisvið- horfa í vestrænum skilningi nái miklum árangri í kosningum nú og það gildir um bæði þingkosningar og forsetakosningar. Nú er mikið rætt um hugsanlega stjórnarskrárbreytingu sem gæfi Pútín kost á að bjóða sig fram í þriðja sinn þegar kjörtímabil hans rennur út vorið 2008. Fáir kætast yfir þeirri til- hugsun að Rússar taki enn eitt skref í áttina frá eðlilegu lýðræði, með reglu- legum og friðsamlegum leiðtogaskipt- um. En því verður hinsvegar ekki á móti mælt að næsti leiðtogi gæti kom- ið Vesturlöndum enn óþægilegar á óvart en Pútín gerði á sínum tíma. Valkostirnir eru ekki fýsilegir. Það virðist útilokað að nokkur geti unnið forsetakosningar í Rússlandi á næst- unni án þess að höfða til þjóðernis- kenndar og boða valdsstjórn, heima fyrir og gagnvart nágrönnum. Þá kann áframhald hins sama þrátt fyrir allt að vera skásti kosturinn í stöðunni frá vestrænu sjónarmiði. Höfundur er prófessor við Háskólann á Bifröst. AP Vladimír Pútín og George W. Bush Bandaríkjaforseti sem hefðbundnar rúss- neskar trébrúður (matrjoskur). Alveg frá því Pútín tók við völdum 2000 hafa efasemdir ríkt um lýðræðisvilja rússneskra stjórnvalda á Vesturlöndum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 21 Um er að ræða glæsilegt 136,4 fm. Heilsárshús á frábærum stað í landi Kiðjabergs í Grímsnes og Grafningshrepp. (í landi Hests). Húsið stend- ur á 8.100 fm. eignarlóð niður við Hvítá með ein- stöku útsýni. 18 holu golfvöllur og öll þjónusta skammt frá. 240 fm. sólpallur er í kringum eign- ina og samþykktar teikningar af 25,1 fm. gesta- húsi (bílskúr) við hliðina á húsinu. Frábær að- staða fyrir vatnasport á Hestvatni og 50 mín. akstur frá Reykjavík. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan og einangruðu með 240 fm sólpalli. Steypt plata og tvöfalt K-gler í gluggum. Afhending í ágúst 2006. Óskað eftir tilboðum yfir 29.900.000 Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 866 0040 Fr u m — SÖLUSÝNING — SUNNUDAGINN 23. JÚLÍ FRÁ KL 16:00 - 17:00 EITT AF GLÆSILEGRI SUMARHÚSUM LANDSINS RÍS Í KIÐJABERGI (HESTUR)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.