Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn er yfirleitt góður í því að sýna barnslega einlægni og fyllast að- dáun þegar töframaður dregur kanínu upp úr hatti sínum. Í dag langar hann hins vegar til að vita hver galdurinn er. Hann kemst að því. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nýtt fólk sem kemur inn í líf þitt sýnir hvar þú ert í tilfinningaþroska. Ef þú heldur að þú sért ekki á réttum stað skaltu hugsa þig um tvisvar. Útgeislun þín sést best á félagsskapnum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Misskilningur gerir tvíburann brjál- aðan, ekki síst vegna þess að hann er yf- irleitt mjög flinkur í því að miðla upplýs- ingum. Deildu þörfum þínum með öðrum. Það er ekki víst að þú vitir hverjar þær eru fyrr en þú gerir það. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Viðurkenning skiptir þig máli. Þú gerir það sem tiltekinn hópur viðurkennir og færð þá staðfestingu sem þú þarft á að halda. Þegar hún er fengin getur þú lagt þig fram um að gera það sem virkilega gefur hjarta þínu byr undir báða vængi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Eyddu tíma í að skrifa niður það sem þig langar í – sama hversu yfirgengilegt og óhugsandi það kann að virðast. Sam- band við einhvern í fjarlægð kveikir ást- ríður innra með þér. Hver eða hvaðeina sem ekki gerir þér gott kemur líka við sögu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan setur met í einhverju sem yf- irleitt er ekki mælt. Eins og til dæmis fjölda brosa til ókunnugra eða umburð- arlyndi gagnvart ástvini. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin hefur fullkomna stjórn á þeirri einveru og samveru sem hún vill upplifa. Það er gott að deila með öðrum en ekki alltaf. Vogin er meistari í því að hafna félagsskap af háttvísi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Haltu þig við sérviskuna í sjálfum þér. Þú ert eins og kringlóttur snagi í fer- hyrndu gati núna. Þess vegna á einhver eftir að reyna að messa yfir þér, selja þér eitthvað, lokka þig, umbera og á endanum lofsyngja. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn þarf að mæta harðri sam- keppni en kemst á leiðarenda með því að gera það sem hann gerir alltaf, feta ókunna stigu. Hið ófyrirséða er það sem gerir kvöldið í kvöld svo spennandi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Himintunglin draga fram í dagsljósið hið vísindalega eðli steingeitarinnar. Hún gerir tilraunir, spyr, velur, raðar, tekur sundur, setur saman, smakkar, snertir, lyktar og tekur svo ákvörðun eða smíðar kenningu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hugsjónir vatnsberans verða truflaðar af skynsömu jarðarmerki á borð við naut, steingeit eða meyju, sem heimta að allar framfarir séu áþreifanlegar. Saman eruð þið hið fullkomna par. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nýttu þér tæknina til hins ýtrasta, þó að það þýði að þú þurfir að mennta þig. Ótti við framtíðina er jafnalgengur og kvef þessa dagana. Slakaðu á. Maður getur lært eitthvað nýtt án þess að eitt- hvað gamalt þurfi að víkja úr heila- búinu. Stjörnuspá Holiday Mathis Sólin er sest í hásæti sitt í ljóninu. Þegar sólin er í sínu eigin merki þurfa ljón svo sannarlega á athygli að halda og haga sér reyndar eins og kóngafólk eða hætta ekki fyrr en ósk þeirra er uppfyllt. Ljónsins gætir í stjörnukorti hvers og eins. Leyfðu ljóninu í sjálfum þér að vera svolítið kröfuhart. Kannski er kominn tími til að þú dekrir við ljónsungann innra með þér. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 afskekkt land- svæði, 8 saltlög, 9 malir, 10 afkvæmi, 11 láðs, 13 korns, 15 byltu, 18 slitv- inna, 21 lítið býli, 22 set- ur, 23 trylltir, 24 við- skotaillur. Lóðrétt | 2 guggin, 3 truntu, 4 krumla, 5 duft- ið, 6 hljóðfæraleikur, 7 tölustafur, 12 blett, 14 megna. 15 menn, 16 dáin, 17 ósannindi, 18 sæti, 19 deilu, 20 hreina. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 dútla, 4 bógur, 7 rípur, 8 rella, 9 set, 11 sorg, 13 hani, 14 ærnar, 15 þörf, 17 ótrú, 20 fró, 22 gruna, 23 Víf- il, 24 rotta, 25 tínum. Lóðrétt: 1 durgs, 2 tæpur, 3 aurs, 4 burt, 5 gilda, 6 róaði, 10 Einar, 12 gæf, 13 hró, 15 þægur, 16 raust, 18 tófan, 19 útlim, 20 fata, 21 óvit. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Akureyrarkirkja | Sumartónleikar kl. 17. Guðný Einarsdóttir orgel. Café Rosenberg | Gítarsnillingurinn Andr- eas Öberg ásamt fiðluleikaranum góðkunna Dan Cassidy og hljómsveitinni Hrafnaspark mun spila sígaunajazzsveiflu eins og hún gerist best á sunnudag kl. 21. Hallgrímskirkja | Sophie–Véronique Cauchefer–Choplin, annar organisti St Sul- pice–kirkjunnar í París, leikur á kvöld- tónleikum á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 23. júlí kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir Bédard, J.S. Bach, Mendelssohn, Pierné, Mulet, Duruflé og leikur af fingrum fram. Myndlist Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson). Á sýningunni, sem er þeirra fyrsta einkasýn- ing, eru málverk sem þeir hafa unnið saman að síðan sumarið 2005. Sýningin stendur til 12. ágúst. Opið fim. fös. og lau. kl. 13–17. Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur Hlynur“ (portret af Hlyni Hallssyni myndlist- armanni) er þriðja sýningin í röðinni af stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn- setning í rými. Sýningin stendur til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey- nomatic myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júlímánuð. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26.ágúst eða fram yfir menning- arvöku. Opið virka daga og laugardaga kl. 14–18 í sumar. Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arn- ar og Jón Garðar með sýninguna „Far- angur“. Á sýningunni getur að líta hugleið- ingar um drauma, galdra, harðviðargólf, eldhúsgólf og ástarævintýri. Til 27. júlí. Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni beinir Hafnarborg sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins und- anfarin ár. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og hafa verk hennar ætíð haft sterka skír- skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn- ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Ís- lands. Til 26. ágúst. Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur listiðn- aður og nútímahönnun úr fjölbreyttu hrá- efni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýn- ingin stendur til 27. ágúst. Aðgangur er ókeypis. Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menning- arsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning- unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal listamanna má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dag- verðará, Stórval og Kötu saumakonu. Til 31. júlí. Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmundsson sýnir hjá Jónas Viðar galleríi í Kaupvangs- træti 12, Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sérkenni- legan feril sem listamaður. Sýningin mun standa til 30. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berjalandi, Kjós með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verkum eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst. Kling og Bang gallerí | Hinn heimsþekkti myndlistarhópur Gelitin frá Austurríki sýnir í Kling & Bang gallerí, en hópurinn hefur m.a. tekið þátt í Feneyjatvíæringnum og Gjörn- ingatvíæringnum í New York. Sjá:http:// this.is/klingogbang.Opið fim.–sun. kl. 14–18. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor- kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð- urinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo- uisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýning sem haldin hefur verið á verkum Louisu og rekur allan hennar listamannsferil í sex ára- tugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri lands- lagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóð- sagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Opið í safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúru- fræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og kaffistofa Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af- mæli bankans. Til 30. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinn- aður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlut- um í skúlptúra og innsetningar. Í hópnum eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuc- hvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero Baker, Tsehai Johnson. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvern- ig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning á listaverkum sem voru valin vegna úthlut- unar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin endurspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista- menn, meðal annars listmálarinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síðast- liðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verk- anna og hefðbundin listasöguleg viðmið lát- in víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýn- ingunni sem spannar tímabilið frá aldamót- unum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portrettum Sig- urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur–Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–17. Out of Office – Innsetning. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knútsdóttir í sýningarsal Norræna hússins fram til 30. september. Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga. Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga kl. 15–17.  Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.