Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 29
UMRÆÐAN
STJÓRNARÞINGMENN vakna
nú af værum blundi
hver af öðrum og
skrifa um starfsnám
og brottfall. Nýjustu
dæmin eru skrif Dag-
nýjar Jónsdóttur,
varaformanns
menntamálanefndar
Alþingis, og svo 18.
júlí sl. skrif Ástu
Möller um brottfall
nemenda.
Skrif þessara þing-
kvenna bera eftirfar-
andi með sér:
Mikið og gott verk
hefur verið unnið í eflingu
starfsnáms á kjörtímabilinu.
Efling náms- og starfs-
ráðgjafar er veruleg.
Ástæða mikils brottfalls á Ís-
landi er of löng skólaganga.
Það er ekki hægt að bera sam-
an atvinnuástand á Íslandi og
umheiminum.
Brottfall er vitlaust skilgreint
af fagmönnum.
Brottfall er mun minna á Ís-
landi heldur en fagmenn halda
fram og brottfallstölur jafnvel
minni á Íslandi en umhverfis
okkur.
Kjósendum til fróðleiks
Áður en kjósendur fá sitt gullna
tækifæri til að hylla eða refsa við-
komandi þingmönnum er rétt að
upplýsa almenning um störf þess-
ara þingmanna og afkastagetu.
Það má ekki koma fram fyrir kjós-
endur korteri fyrir kosningar og
láta þannig að almenningur fylgist
ekki með þingmálum.
Á þessu kjörtímabili hefur
haugur af þingályktunartillögum
safnast fyrir á þingborðum, að-
allega frá þingmönnum Samfylk-
ingarinnar og nefni ég Björgvin G.
Sigurðsson fremstan meðal jafn-
ingja.
Þessar þingkonur hafa aldeilis
haft áhrif og völd til þess að
hreyfa málum en lítið hefur enn
gerst.
Er þá brottfall?
Það eru stór orð að segja að lít-
ið hafi gerst. Ég get því til stuðn-
ings vitnað í ræður mennta-
málaráðherra þar sem hún lýsir
því yfir (2004) að náms- og starfs-
ráðgjöf verði efld í grunnskólum
með nýjum lögum. Við það tæki-
færi sagði Pétur H.Blöndal að
frekar ætti að kalla námsráðgjöf,
fjárfestingarráðgjöf.
Þegar menn vilja svo fela vand-
ann þá fara menn alltaf út í skil-
greiningar. Það gerir
Ásta Möller rækilega
í grein sinni í Mbl. 18.
júlí sl.
Til samanburðar
eru Danir að gera
ráðstafanir vegna
brottfalls úr starfs-
námi og telja vand-
ann mikinn. Ég skal
vitna í eina setningu
úr skýrslunni Frafald
i erhvervsudd-
annelserne (2005):
– Vandinn er mikill
(brottfallið) og verður
að leita til Íslands til að sjá sam-
bærilegar tölur.
Efling náms- og starfs-
ráðgjafar – núna
Allar ályktanir fagaðila og at-
vinnulífsins kalla á eflingu náms-
og starfsráðgjafar á öllum skóla-
stigum. Því fyrr sem kynning á at-
vinnulífi og störfum er gerð því
betra.
Hvað sagði núverandi umhverf-
isráðherra Jónína H. Bjartmarz
við eina umræðuna:
– En burt séð frá því, frú for-
seti, hvert brottfallið er þá er ljóst
að það er ekki mörgum íslenskum
rannsóknum til að dreifa á þessu
sviði og ein meginheimildin um
brottfallið og ástæður þess er
skýrsla Kristjönu Stellu Blöndal
og Jóns Torfa Jónassonar frá því í
nóvember 2002 um afstöðu til
skóla og félagslega og sál-
fræðilega þætti en í niðurlagi
þeirrar skýrslu er fjallað um for-
spár um brottfall og þar segir
m.a., og það kom ekki á óvart, að
fyrri námsárangur spái fyrir um
það, en samkvæmt niðurstöðum
virðist jafnmiklu máli skipta að
nemendum finnist þeir fá stuðning
frá foreldrum sínum í námi og að
þeir upplifi samræmi á milli eigin
námsvals og áherslna foreldra
sinna.
Eigum við nokkuð að halda
áfram að þrasa um tölfræði og
skilgreiningar? Ég efast ekki um
það að allar þessar ágætu þing-
konur eiga sér draum og mein-
ingar. En þær fá ekki vængi í
þeim flokkum sem þær teljast til.
Er ekki allt í góðum gír?
Gísli Baldvinsson fjallar um
starfsnám og brottfall ’Allar ályktanir fagaðilaog atvinnulífsins kalla
á eflingu náms- og starfs-
ráðgjafar á öllum skóla-
stigum. Því fyrr sem
kynning á atvinnulífi
og störfum er gerð
því betra.‘
Gísli Baldvinsson
Höfundur er náms- og starfsráðgjafi.
OPIÐ HÚS
SÓLEYJARIMI 17
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAGINN
23. JÚLÍ MILLI KL. 14-16.
Um er að ræða 112 m2, 4ra herb.
íbúð á jarðhæð, endaíbúð nær götu,
í nýlegu húsi sem byggt er 2005.
Sérinngangur og stæði í bílageymslu.
Verð kr: 28.000.000.-
Áhugasamir kaupendur velkomnir.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, s. 550 3000, einnig á fmeignir.is
DRAUMAHÚS LEIGUMIÐLUN KYNNA:
CA. 250.000 Á MÁNUÐI.
Glæsilegt og vandað 227,5 fm, 6 herb. einbýlis-
hús á einni hæð. Húsið stendur á kyrrlátum stað
innst í botnlangagötu. Stór og fallegur garður!
Húsið sjálft er 181,6 fm en bílskúr 45,9 fm.
Frekari upplýsingar á skrifstofu Draumahúsa.
Tjarnarflöt - Garðabæ
Til leig
u
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali
FAGRAKINN
GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Fallegt og vel skipul. einbýlishús á þremur hæðum á góðum stað við
Fögrukinn í Hafnarf. Húsið er alls 153 fm, þar af 21,2 fm bílskúr. Öll gólfefni
og innréttingar eru vönduð og falleg. Fjögur svefnherb. og þrjár stofur. Tvö
baðherb. eru í húsinu. Mjög fallegur garður og viðarverönd. Stórar um 35
fm svalir. Eign sem er vönduð og falleg í alla staði. Verð 47 milljónir.Kristinn Valur Wiium sölumaður s. 896 6913 og Ólafur Guðmundsson sölustjóri s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17.
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
ÍBÚÐARHÓTEL - GLÆSIÍBÚÐIR
Íbúðirnar, sem eru alls fimm, eru staðsettar í góðu steinhúsi í miðborginni. Heildarstærð er 565,8 fm.
Möguleiki á kaupum á tveimur íbúðum í húsinu til viðbótar. Vaxandi rekstur. Miklir möguleikar.
Upplýsingar veita Dan V.s. Wiium í síma 896 4013 og Kristinn Wiium í síma 896 6913.
Glæsileg 5 herb. efri sérhæð í 3-býlishúsi í Hlíðunum. Íbúðin skiptist m.a í stofu,
borðst. og þrjú herb. Íbúðin hefur öll verið standsett á smekklegan hátt, m.a eldhús
og baðherbergi. Suðursvalir. Sérinngangur. Verð 31,9 m.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Drápuhlíð - 5 herbergja