Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 35 MINNINGAR ✝ Ágústa MaríaÁgústsdóttir fæddist á Brekku í Ytri-Njarðvík 9. september 1932. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 8. júní síð- astliðinn. Hún ólst upp á Brekku hjá móðurforeldrum sínum Guðrúnu Magnúsdóttur og Georg Pétri Péturs- syni en foreldrar Ágústu Maríu voru Guðríður Elínborg Georgsdóttir og Ágúst Austmann Bjarnason. Ágústa María kynntist 1950 manni sínum Guðmundi Sverri Runólfssyni, f. 8. mars 1931, d. 17. janúar 2001. Ágústa María og Guðmundur Sverrir eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Einar, f. 20. októ- ber 1951, kvæntur Hörpu Guðmunds- dóttur, 2) Gunnar Elís, f. 17. janúar 1957, kvæntur Mundínu Freydísi Marinósdóttur, 3) Guðrún, f. 22. apríl 1958, maður henn- ar er Guðjón Svav- ar Jensen, og 4) Hrafnhildur, f. 28. ágúst 1961, gift Helga Guðmundi Jósepssyni. Barnabörn Ágústu Maríu og Guðmundar Sverris eru 13. Ágústa María var jarðsungin í kyrrþey. Trúlega er ein af fyrstu minningum mínum um ömmu, þar sem ég sit við eða nálægt eldhúsborðið sem allt var fullt af fólki. Ég man nefnilega ekki eftir öðru frá unga aldri en að Klapp- arstígur 8 væri eins og félagsheimili, þar sem alltaf var fullt af fólki frá morgni og fram eftir hádegi. Og það sem ég man líka eftir var kaffikannan. Amma var sífellt að hella upp á meira og meira kaffi og ekki varð komist hjá því að heyra hljóðið sem kemur alltaf þegar síðustu vatnsdroparnir sogast upp í trektina. Amma fæddist á Brekku í Ytri- Njarðvík 9. september 1932 og ólst þar upp hjá ömmu sinni og afa. Eitt sem kom fyrir hana mjög unga var að falla fram af húsþaki og missa meðvitund í heilan dag og margir töldu hana liðna þegar hún loksins vaknaði. Henni var ætlaður meiri tilgangur en þetta. Amma gekk fyrst í skóla í Keflavík og til er saga þar sem drengur á hennar aldri lagði hana í einelti eins og það kallast í dag. Amma var þó fljót að leysa úr málunum þar sem hún reif af honum öll fötin og jöfnuðust öll þeirra mál eftir það. Þannig varð amma mjög ung ákveðin og lét aldrei neinn valta yfir sig. Árið 1950 var amma að vinna í Hafnarfirði 18 ára gömul og kynntist afa þar. Sama ár flytur hún aftur í Njarðvíkurnar með Reykvíkingnum honum afa mínum. Þar eignast þau fjögur börn, það fyrsta fæddist árið 1951 og það síðasta árið 1961. Alla tíð voru þau iðulega á ferðalögum út um allt land og alveg fram á síðasta dag hafði amma mikinn áhuga á hverskyns ferðum jafnt innanlands og utan. Þegar ég kom í þennan heim árið 1976 var amma á Spáni og fræg er sú saga þegar senda átti símskeyti þang- að með viðkomu í Skotlandi og þar sem skeytið þurfti að vera á ensku breytist kynið úr dreng í stúlku þar sem ,,lad“ varð að ,,lady“ og gjafirnar, sem miðuðust allar við stúlkubarn, þurftu að bíða þangað til fyrsta stúlkan fæddist. Lík var sú stund þegar amma kvaddi þennan heim, þar sem ég var þá staddur í Mexikó, öðru spænsku- mælandi landi. Komið var að kveðju- stundinni. Eins og ég man eftir ömmu var hún léttlynd en þó ákveðin. Amma var ótrúlega þolinmóð við barnabörn sín, tók á ólátum með mýkt og ákveðni og gat alltaf tekið þátt í leikjum og leyft okkur að hertaka stofuna sína og snúa henni á hvolf, bara með því skilyrði að hlutir yrðu settir heilir á sinn stað aft- ur. Hvert sem ég fer og hvað sem ég mun taka mér fyrir hendur mun minn- ingin um ömmu mína fylgja mér. Á Klapparstíg 8, Ytri-Njarðvík svífur minningin ein og nú hefur verið hellt upp á kaffi í síðasta sinn, en hljóðinu úr kaffikönnunni þegar síðustu droparnir fóru upp í trektina gleymi ég aldrei. Aldrei langt undan er amma mín. Guðmundur Skarphéðinsson. Elsku amma, ekki datt okkur í hug að þú færir svona fljótt, ekki nema 73 ára gömul. Þegar síminn hringdi í hádeginu 8. maí og okkur var tilkynnt að elsku amma okkar væri dáin. Þú sem varst alltaf svo hraust og aldrei veik, síðan allt í einu veikistu og það tók ekki lang- an tíma þangað þú kvaddir þennan heim. Við munum eftir því þegar þú komst heim af spítalanum, þá komstu hingað austur á Selfoss í heimsókn til okkar og dvaldir í tvær vikur. Og þeg- ar þú tókst nokkur létt dansspor með honum Jósep afa datt engum í hug að þú ættir svo stutt eftir. Eða þegar þið pabbi voruð að gantast með ,,tryllitæk- ið“ og þú hafðir mikið gaman af. Elsku Gústa amma, þú munt ætíð verða í hjarta okkar. Fjóla María, Kristín Ósk og Jósep. Okkur datt aldrei í hug að þú færir svona fljótt. Þegar við heimsóttum þig eftir að búið var að greina þig með krabbamein varstu svo ákveðin að verða hraust aftur að við héldum að ekkert annað myndi koma til greina. Amma hafði alltaf verið til og við héld- um að hún myndi alltaf vera til. Hún var 44 ára þegar sá elsti af okkur fæddist en var að verða 59 ára þegar sá yngsti fæddist. Við munum eftir ömmu sem ákveð- inni en léttlyndri konu, alltaf til staðar og alltaf þolinmóð og var alltaf tilbúin að taka þátt í alls kyns leikjum. Tefldi mikið við þann elsta af okkur, þóttist vera hrædd við öll leikfangaskordýr sem sá yngsti af okkur átti. Nú er amma farin. Við minnumst þín með hlýju og ást og sú minning mun fylgja okkur alla okkar ævi. Guðmundur Ágúst, Einar, Guðbjörn, Valdimar og Ástþór. Til minningar um ástkæra systur og vinkonu. Þín mildhlý minning lifir, svo margt að þakka ber. Þá bjart og blítt var yfir, er brosið kom frá þér. Þú sólargeisla sendir og samúð, vinarþel. Með hlýrri vinar hendi mér hjálpaðir svo vel. Hve veglegt starf að vinna að veita þjáðum lið og sjálfur sárt til finna, er sjúkan vantar frið. Að eiga innst í hjarta til aumra kærleiksbál. Sú ástarbirtan bjarta æ blessar hönd og mál. Með hjartans þökkum hlýjum nú hrærð við kveðjum þig. Á lífsins leiðum nýjum sért leidd á gæfustig af Meistaranum mesta, sem mannkyn leysti hrjáð. Þín brúðargjöfin bezta sé blessun Guðs og náð. (Guðríður S. Þóroddsdóttir). Við sendum innilegar samúðar- kveðjur til barna og fjölskyldna þeirra. Jóna Björg Georgsdóttir og Jóhann Ólafsson. Í minningunni finnst mér hún Gústa frænka mín alltaf hafa verið brosandi og hlæjandi. Nokkrar af fyrstu bernskuminningunum eru tengdar henni Gústu þegar þær systur sátu í eldhúsinu heima hjá mömmu, hjá Ellu á Hæðarenda eða á Klapparstígnum hjá Gústu og Sverri. Þar drukku þær kaffi, spáðu í bolla, röbbuðu um daginn og veginn og skiptust á skoðunum. Stundum voru fleiri í hópnum, en sjaldan færri, því þær voru samrýnd- ar. Móðir mín og Gústa voru í raun frænkur, mamma var móðursystir Gústu og Ella systir mömmu, móðir Gústu. En Guðrún amma mín á Brekku tók Gústu að sér og ólust þær upp sem systur upp frá því en móður sína kallaði Gústa alltaf bara Ellu. Nú eru þær báðar fallnar frá, Ella og Gústa, og orðið fámennt í spákaffinu í eldhúsinu hjá mömmu. Það var hálfgert ævintýri fyrir ung- an dreng að koma heim til Gústu og Sverris og barna þeirra á Klappar- stígnum í þá daga. Þar voru páfagauk- ar í stóru búri, þar bjuggu skjaldbökur í búrum og hundurinn Bangsi sem af öllum hundum bæjarins bar af varð- andi stærð og myndugleik. Frændur mínir Einar og Gunnar, synirnir á bænum, voru töffarar sem áttu mót- orhjól og Mustang, kafarabúning og flugu flugvélum. Já, það var ekki ónýtt að eiga slíka frændur og frænkur mín- ar, Guðrún og Hrafnhildur, dætur þeirra, pössuðu mig og systur mínar endrum og sinnum og var það ætíð til- hlökkunarefni ef það stóð til. Nú er hún fallin frá þessi sómakona, fallin fyrir manninum með ljáinn sem eirir engum sem hann hefur ákveðið að fella. Það gerðist skyndilega og allt- of fljótt. Börnum hennar og fjölskyld- um þeirra sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Við minnumst henn- ar með söknuði og hlýhug. Blessuð sé minning Gústu frænku. Kristján Jóhannsson og fjölskylda. ÁGÚSTA MARÍA ÁGÚSTSDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR Þ. KRISTJÁNSDÓTTIR, Miklubraut 42, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 14. júlí, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 25. júlí kl. 13.00. Sigríður Viborg, Málfríður Viborg, Kristján Viborg, Margrét Unnarsdóttir, Gísli Jens Viborg, barnabörn og aðstandendur. Okkar ástkæri RAGNAR MARNÓ BJARNASON rafvirkjameistari, Háagerði 31, sem lést fimmtudaginn 13. júlí, verður jarðsung- inn frá Fossvogskapellu mánudaginn 24. júlí kl. 13.00. Diana Ragnarsdóttir, Þorsteinn Kárason, Sigurbjörg Laufey Þorsteinsdóttir, Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Jeffrey Sokolov. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR BJÖRNSSON, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 24. júlí kl. 15.00. Brynjúlfur Sæmundsson, Ásta Ásdís Sæmundsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN J. PETERSEN, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudag- inn 25. júlí kl. 13.00. Berglind Ólafsdóttir, Sandra Bragadóttir, Mikael Jörgensen, Hrafnhildur Arnardóttir, Arnór Dan Arnarson, Karen Arnardóttir, Heiðdís Arnardóttir og Ágústa Marý. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERMANÍA KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR, Skálagerði 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 24. júlí kl. 13.00. Andrea Danielsen, Páll Ragnarsson, Sigurþór Charles Guðmundsson, Málfríður Sjöfn Hilmarsdóttir, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Martina Gudmundsson, Þórarinn Guðmundsson, Guðbjörg Ívarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BENEDIKT BJÖRNSSON húsagagnasmíðameistari, Aratúni 38, Garðabæ, sem lést laugardaginn 15. júlí, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 25. júlí kl. 15.00. Ólöf H. Guðnadóttir, Jóhanna Benediktsdóttir, Rósa Kristín Benediktsdóttir, Gunnar Jónatansson, Hrönn Benediktsdóttir, Hörður Bjarnason, Hildur Benediktsdóttir, Björn Þór Guðmundsson, Ingvar, Pétur Smári, Guðni Bergur, Sunna Hrund, Hilmar Benedikt og Brynjar Kári, Elín Jóna Benediktsdóttir, Gylfi Ragnarsson, Björn Benediktsson, Þórdís Guðmundsdóttir, Guðbjörg Benediktsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.