Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.07.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 49 SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI TAKTU AFSTÖÐU. GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR HREINLEGA Á KOSTUM. SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI KVIKMYNDIR.IS VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU S.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“ TOMMI KVIKMYNDIR.IS SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR. M.M.J. KVIKMYNDIR.COM eeee SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ V.J.V. Topp5.is H.J. MBL. eee FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM. Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA. OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. kl. 12 - 2 - 4 - 6 OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 SUPERMAN kl. 12:30 - 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA. SUPERMAN LUXUS VIP kl. 3:20 - 8 - 11:10 THE BREAK UP kl. 8 - 8:15 - 10:20 BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 12 - 2 - 3 - 5:30 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10:30 B.I. 12.ÁRA. 16 ÁRA 10 ÁRA DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. kl. 1 - 3 - 5 - 7 DIGITAL SÝN. OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 1 - 3 - 5 - 7 - 9 - 11:15 DIGITAL SÝN. SUPERMAN kl. 2:40 - 5:50 - 9 - 11 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN. THE BREAK UP kl. 9 EKKI er langt síðan söngkonan Sandy Thom var á allra vörum fyrir „útsendingar“ sínar yfir netið sem gert hefðu hana að stjörnu. Á daginn kom að útsendingarnar fóru líklega aldrei fram, en það segir sitt um hvað menn eru spenntir yfir þeim möguleikum sem vefurinn gefur tónlist- armönnum að allir voru tilbúnir til að trúa því. Nú hampa menn söngkonunni Lily Allen sem nýtti sér vefinn til að safna vinum og búa þannig í haginn fyrir tónlistarferil sem hófst svo með látum í vor. Þrettán skólar á tíu árum Lily Allen er dóttir breska grínarans Keith Allen, en hafði víst lítið af honum að segja sem barn þó það hafi komið til góðs síðar. Eins og hún hefur lýst æsku sinni var hún á sífelldu flandri með móður sinni, alltaf að flytja milli hverfa í Lundúnum. Hún var fædd í Hamm- ersmith en segist hafa búið einhvern tíma í öll- um hverfum meira og minna, sem sést meðal annars af því að hún var í þrettán skólum á aldr- inum fimm til fimmtán ára. Getur nærri að henni hafi reynst erfitt að eignast vini en hún fann sér fróun í bókmenntum og tónlist. Allen varð snemma sjálfri sér nóg og þótti ódæl, var rekin úr skólum og strauk að heiman, fór meðal annars á Glastonbury-hátíðina þegar hún var fjórtán ára. Þegar hún var fimmtán ára var ljóst að hún átti ekki heima í skóla og hætti, hékk heima og samdi lög. Það haust fór hún með fjölskyldunni í sólarferð til Ibiza og fékk síðan leyfi til að vera eftir, sagðist vera komin með gistingu hjá vinum, en hún var í raun ein á ferð, bjó á farfuglaheimili, vann í plötubúð á daginn og seldi e-pillur á kvöldin. Á Ibiza komst hún í kynni við útsendara plötufyrirtækis sem kom henni á samning við Warner-útgáfuna, en hún heldur því fram sjálf að samninginn hafi hún fengið vegna ætternis fyrst og fremst. Þegar til Englands var komið komst hún síðan að því að Warner var eiginlega ekki að semja við hana vegna hennar eigin tón- listar heldur voru menn þar á bæ að leita að stúlku í stúlknahljómsveit sem heita átti Suga- babes. Þetta var nokkuð annað en Allen hafði ætlað sér og kemur kannski ekki á óvart að ekkert varð úr útgáfu hjá Warner að svo stöddu og samningurinn var felldur út gildi. Hún var þó ekki hætt að fást við tónlist, hélt áfram að semja og tók upp lög. Haustið 2005 gerði hún annan samning, að þessu sinni við Regal Records, sem er reyndar í eigu sama risa og á Warner. Allen segir svo frá að þessi útgefandi hafi líka viljað móta hana eft- ir sínu höfði, fá þrautreynda lagasmiði til að semja fyrir hana lög og útlitssmiði til að kenna henni að klæða sig og hreyfa. Hún fór þó sínu fram, kom sér upp MySpace-síðu og bloggaði sem mest hún mátti á milli þess sem hún setti inn kynningarupptökur af lögum á væntanlega sólóskífu. MySpace svínvirkaði, svo vel reyndar að það varð kveikja að umfjöllun blaða og tímarita sem ýtti svo undir enn frekara umtal. Þegar fyrsta smáskífan, LDN, kom út í apríllok var hún með gríðarstóran áheyrendahóp tilbúinn sem skilaði laginu á toppinn á breska smáskífulistanum. Fyrsta stóra platan, Alright, Still, kom svo út fyrir stuttu, fyrst í takmörkuðu vínylupplagi 3. júlí sl. og síðan almenn útgáfa 17. júlí. Lily Allen = bitchpop Þegar hlustað er á Alright, Still kemur vel í ljós hve fjölbreyttan tónlistarsmekk Lily hefur. Þar ægir öllu saman, frá léttu sumarlegu poppi eins og í laginu vinsæla LDN, í skalega sveiflu eins og heyra má í upphafslagi plötunnar, Smile. Söngurinn er líka fjölbreyttur, allajafna ekki svo langt frá talsöng að hætti Mike Skinner, en hún getur líka sungið. textarnir eru svo sér- stakur kapítuli út af fyrir sig, kæruleysislegir en þó útpældir. Gjarnan er fjallað á niðrandi hátt um fyrrverandi kærasta eða fyrrverandi vinkonur og fyrir vikið flokka sumir tónlist Allen sem „bitchpop“. Hún er þó ekki bara að syngja um sína fyrrverandi – sjá til að mynda textann við LDN þar sem meðal annars er sungið um að ekki sé allt sem sýnist; strákurinn sem tekur að sér að bera þungu bónuspokana fyrir gömlu konuna er að ræna hana. MySpace hefur dugað Lily Allen vel til að komast á samning, en þó takmarkinu sé eig- inlega náð heldur hún áfram að skrifa inn á það og rétt er að benda fólki á að kíkja þar inn, hún er oft hressilega hreinskilin og skemmtilega ósvífin, sjá www.myspace.com/lilymusic. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Söngkonan knáa Lily Allen. Hæfileikaríkur æringi arnim@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.