Morgunblaðið - 23.07.2006, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
U
ng íslensk kona, Ingibjörg Þórð-
ardóttir, er nú stríðsfréttamað-
ur fyrir BBC í Beirút í Líbanon.
Hún fór þangað í gær, laug-
ardag, og hefur væntanlega
störf þar í dag.
„Ég þekki sögu þessa svæðis mjög vel og get
unnið þar fyrir báðar fréttastöðvar BBC, bæði
innanlandsdeildina News 24, sem ég starfa nú
við og World News, erlendu deildina, þar sem
ég starfaði áður,“ segir Ingibjörg en blaðamað-
ur ræddi við hana í þann mund sem hún var að
leggja af stað til Beirút.
Ingibjörg er með mastersgráðu í alþjóða
stjórnmálum og hefur sérhæft sig að auki í al-
þjóðlegum stríðsátökum og farið víða til frétta-
öflunar í þeim málaflokki.
Hún var spurð hvernig hún mæti ástandið í
Líbanon núna.
„Það lítur ekki vel út, ég held að tvísýnt sé
hver útkoman verður og að Ísraelar séu harð-
ákveðnir í að kveða niður Hizbollah og tilbúnir
að beita þeim aðferðum sem til þarf, þeir eru
búnir að beita loftárásum og eru nú að undirbúa
landhernað sem er næsta skref. Þær þjóðir sem
hafa ekki verið tilbúnar að fordæma þessar að-
farir algjörlega, svo sem Bretland og Bandarík-
in, hafa réttlætt afstöðu sína þannig að ekkert
annað land myndi líða það að hryðjaverkamenn
eins og Hizbollah skjóti eldflaugum inn á annað
landsvæði, en auðvitað má deila um hvort að-
gerðir Ísraela séu í réttu hlutfalli við það sem
þeir þurfa að líða.“
Hvernig leggst þessi ferð í þig?
„Þetta verður erfitt, takmarkað svæði sem
við getum unnið á af öryggisástæðum. Ég býst
við að sjá hörmungar, fólk sem á um sárt að
binda og hefur misst heimili sitt. Ég býst sem
sagt við miklum erfiðleikum en er jafnframt
fullviss um nauðsyn þess að segja umheiminum
hvað þarna er raunverulega að gerast.“
Ingibjörg mun ásamt samstarfsfréttamönn-
um annast stöðugan fréttaflutning fyrir BBC af
framvindu mála í Beirút og Suður-Líbanon.
Lærði alþjóðastjórnmál í London
En hver er Ingibjörg Þórðardóttir og hvernig
hefur hún komist í þessa stöðu hjá BBC?
„Ég fæddist 1972 og bjó fyrstu mánuðina í
Hafnarfirði en ólst svo upp í Reykjavík,“ segir
hún
Þórður Halldór Ólafsson, faðir hennar, er
umhverfisfulltrúi Íslands við Evrópusambandið
í Brussel, móðir hennar er Lilja Hilmarsdóttir,
fararstjóri hjá Express-ferðum.
Ingibjörg bjó lengst af í uppvextinum í Foss-
vogshverfi, lauk grunnskólanámi við Hvassa-
leitisskóla og stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík.
„Ég vildi endilega komast í MR og fór til
Guðna rektors með níurnar mínar úr sam-
ræmdu prófunum. Hann leit á einkunnirnar og
sagði: „Þetta er fínt, þú er komin inn.“
Menntaskólaár mín voru skemmtileg og skól-
inn stóð undir væntingum. Ég átti góða skóla-
félaga sem ég held sambandi við enn í dag. Ég
lauk stúdentsprófi frá nýmáladeild, tungumála-
kunnáttan hefur komið mér mjög vel í mínu
starfi, ég get þó alltént sagt á ýmsum málum:
„Halló, má ég taka upp hér?“
Ingibjörg er það sem kallast Senior Broad-
cast Journalist:
„Þetta stig er varla til á Íslandi, þetta er
næsta stig fyrir neðan ritstjóra, við erum þrjú
þar staðsett á News 24. Ég ber samt ritstjórn-
arlega ábyrgð á útsendingum á mínum frétta-
þáttum og þótt við séum innlend fréttastöð
sendum við út erlendar fréttir líka,“ segir hún.
„Ég set að jafnaði saman klukkutíma frétta-
þátt 5 til 6 sinnum á 10 tíma vakt, ákveð í hvaða
röð fréttirnar eigi að koma og hvernig eigi að
setja þær saman. Ég get breytt röð og efn-
istökum fram á síðustu stundu ef ég tel þess
þörf eða eitthvað nýtt þarf að komast að, einnig
er ég yfir svokölluðum „pródúsentum“, þeim
sem búa til fréttirnar.
Ég hóf fyrst störf hjá World News hjá BBC,
þeir senda ekki út í Bretlandi heldur senda þeir
út fréttir til þeirra sem hafa ensku sem annað
eða þriðja mál. Það gerir þær kröfur að frétt-
irnar séu settar fram á máli sem útlendingar
eiga auðvelt með að skilja. Þar stóð ég betur að
vígi en Bretarnir, ég var jú sjálf útlendingur. Ég
sagði einfaldlega við samstarfsfólk mitt: „Ef ég
skil þetta ekki get ég ekki ætlast til að fólk víða
um heim skilji hvað verið er að segja.“
Fréttir eru raunar alltaf nokkuð „frasas-
kenndar“, maður notar talsvert sömu orð og
orðtök, þannig að þetta kemur fljótt.
BBC er stór stöð og ég fann mig fljótlega vel í
ritstjórnarstöðu. BBC hefur mikinn fjölda
fréttamanna sem eru sérhæfðir hver á sínu
sviði. Ég þarf aftur sem ritstjóri að vera vel inni
í öllum málum, geta pikkað upp fréttir á hvaða
sviði sem er – vita frekar mikið um allt en ekk-
ert rosalega mikið um neitt, eins og það er kall-
að.“
Ingibjörg lærði stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands eftir stúdentspróf 1992.
„Ég tók þetta nám á fjórum árum, vann með
til þess að þurfa ekki að taka námslán og er feg-
in nú. Ég útskrifaðist 1996 og skrifaði lokarit-
gerð um konur í stjórnmálum, þar á meðal
Margaret Thatcher. Ég lauk ritgerðinni í Bret-
landi. Oft hef ég hugsað að skemmtilegra hefði
verið að skrifa þessa ritgerð núna, þegar ég veit
svo miklu meira um bresk stjórnmál, ég hefði
líklega tekið annan pól í hæðina núna í skrif-
unum. Thatcher setti sannarlega mark sitt á
bresk stjórnmál en hún gerði margt innanlands
sem menn eru að bíta úr nálinni með núna, vel-
ferðarkerfið varð einkum fyrir barðinu á henni
og verkamannaflokkurinn hefur verið að reyna
að snúa við ýmsu sem leiddi af ákvörðunum
hennar, svo sem hvað snertir járnbrautakerfið
sem hún lét einkavæða. Járnfrúin fyrrverandi
er ekki elskuð, nema þá hjá allra hörðustu
íhaldsmönnum, en almenningur ber enn fyrir
henni óttablandna virðingu.
Stjórnmál í Bretlandi erfið
Stjórnmál í Bretlandi eru erfið af því þau eru
tveggja flokka kerfi. Áherslurnar eru mjög mis-
munandi og það verður mikil breyting ef það
verða stjórnarskipti. Verkamannaflokkurinn
hefur í sinni tíð verið að reyna að bæta hag ein-
stæðra foreldra og láglaunafólks yfirleitt. Sam-
steypustjórnir eru að mínu mati heppilegri að
því leyti að meiri líkur eru fyrir því að ákveðin
stefna standi lengur og umskipti verði ekki eins
harkaleg við stjórnarskipti.
En þess ber að geta að verkamannaflokk-
urinn hefur ráðið í Bretlandi þau tíu ár sem ég
hef búið hér. En spillingin nær flokkum ef þeir
eru lengi við völd, það er gott að skipta um með
reglulegu millibili.“
Starfsferill Ingibjargar í fjölmiðlun hófst hjá
þýskri konu sem gerði heimildarmyndir.
„Hún gerði þætti um sérstöðu Breta, fólk
Nú verða sagðar stríð
Nú er stödd í Beirút í Líbanon Ingi-
björg Þórðardóttir sem er einn yf-
irmanna News 24 hjá breska rík-
issjónvarpinu BBC. Guðrún
Guðlaugsdóttir ræddi við Ingi-
björgu, sem hefur oft áður unnið
við fréttaöflun á átakasvæðum og
mun annast stöðugan fréttaflutning
ásamt samstarfsfólki sínu frá Beirút
næstu daga fyrir fréttastöð sína.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ingibjörg Þórðardóttir á BBC ásamt syni sínum Joshua, henni finnst erfitt að yfirgefa hann til að fara til starfa á stríðssvæði.