Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 26

Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 26
26 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ 21. júlí 1996: „Innan Fram- sóknarflokksins hefur verið mest samstaða um að við- halda kvótakerfinu að veru- legu leyti óbreyttu. Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins og utanrík- isráðherra, hefur verið einn helzti talsmaður þessa kerfis frá upphafi. Nú er að verða veruleg breyting á afstöðu margra áhrifamanna í Fram- sóknarflokknum. Á undanförnum mánuðum hafa einstakir þingmenn Framsóknarflokksins látið í það skína, að þeir teldu nauð- synlegt að gera breytingar á þessu kerfi. Í grein í Tím- anum í gær gengur Guðni Ágústsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins í Suður- landskjördæmi, lengra en flestir flokksmenn hans hafa gert í gagnrýni á kvótakerfi til sjávar og sveita. . . . . . . . . . . 20. júlí 1986: Í febr- úarmánuði sl. setti Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra reglugerð um íslenskt tal og texta í sjón- varpi þar sem sagði: „Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpi, skal jafnan fylgja íslenzkt tal eða neðanmáls- texti á íslensku eftir því, sem við á hverju sinni. Það skal þó ekki eiga við, þegar í hlut eiga erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervihnött og móttöku- stöð fréttum eða dagskrár- efni, er sýnir atburði, sem gerast í sömu andrá. Í síðast- greindu tilviki skal að jafnaði fylgja kynning eða end- ursögn þular.“ Með hliðsjón af þessari reglu- gerð hefur það komið mjög á óvart, að sjónvarpið hefur sent út íþróttaþætti, þar sem engu af þessum ákvæðum reglugerðar er fullnægt, hvorki texti né tal, kynning eða endursögn.“ . . . . . . . . . . 18. júlí 1976: „Síðastliðinn fimmtudag kom til Amst- erdam í Hollandi sovéski andófsmaðurinn Andrei Amalrik, ásamt konu sinni, Gyusel, í útlegð. Hann hafði fararleyfi aðra leiðina: að heiman. Heimkoma er honum forboðin. Það var látið heita að þau hjón hefðu fengið leyfi til að flytjast til Ísraels, enda þótt hvorugt þeirra sé gyð- ingur. Hér er verðugt íhug- unarefni. Að baki þessarar ferðar ligg- ur ekki aðeins reynsla fimm ára vistar Amalriks í þrælk- unarbúðum. Ekki einungis persónuleg harmsaga frjáls- huga manns, sem lifði í eins flokks þjóðfélagi og skoð- analegri andstöðu við hand- hafa alræðisins.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Ö ryggismál Íslands eru mjög í deiglunni um þessar mundir. Í sama mund og það er almennt viðurkennt að ríki heims, ekki sízt Vesturlönd, standa frammi fyrir nýjum ógn- um af ýmsu tagi, ekki sízt hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi, gerist það að helzta samstarfsríki okkar í ör- yggis- og varnarmálum undanfarna sex áratugi, Bandaríkin, dregur varnarlið sitt frá landinu. Það má færa rök fyrir því að vegna varnarsam- starfsins við Bandaríkin og samsetningar þess herafla, sem var hér á landi, hafi athyglin um of beinzt að hefðbundinni hernaðarógn, sem ekki er fyrir hendi lengur nema þá í mjög takmörk- uðum mæli. Að Íslendingar hafi sjálfir ekki tek- ið nægilegt frumkvæði að því bregðast við hin- um nýju hættum, enda vanir því að annað ríki sjái um varnar- og öryggismál okkar. En þeim mun meira máli skiptir að við gerum nú ráðstaf- anir til að tryggja öryggi Íslands í breyttum heimi. Við höfum áfram varnarsamning við Banda- ríkin og hljótum að gera ráð fyrir áframhald- andi samstarfi við þau um öryggi og varnir landsins á breiðum grundvelli. Við erum aðild- arríki NATO, þar sem fram fer víðtækt sam- starf á sviði öryggismála. En við verðum jafn- framt að leggja vaxandi áherzlu á samstarf við ríki Evrópusambandsins og Schengen-sam- starfsins, ekki sízt vegna þess að þar er meg- inþunginn í borgaralegu samstarfi á sviði ör- yggismála en ekki hernaðarsamstarfi. Ríki ESB hafa með sér víðtækt samstarf gegn hryðju- verkum og alþjóðlegri glæpastarfsemi, svo sem fíkniefnasmygli og mansali. Þetta samstarf er fyrst og fremst á vegum borgaralegra stofnana á borð við lögreglu og tollgæzlu og Ísland á því að geta verið þar fullgilt samstarfsríki þótt það standi utan ESB, enda stendur það til boða. Nýjar ógnir Hryðjuverkaógnin er raunveruleg og ná- læg. Öfgamenn hafa ráðizt á skotmörk í nágrannalöndum okkar, sem við höfum einna mest samskipti við. Skemmst er að minnast árásanna á New York, Washington, London og Madríd. Það getur gerzt hvenær sem er að hóp- ur Íslendinga sé staddur á fjölförnum stað í ná- lægri stórborg, þar sem hryðjuverkamenn ákveða að láta til skarar skríða. Og það er eng- an veginn hægt að útiloka að þeir beini sjónum að Íslandi, landi sem sagan sýnir að hefur verið auðvelt að ráðast inn í eða ná valdi á þegar þar hefur skort trúverðugar varnir. Viljum við að þeir geti fundið höggstað á okkur – glufu í vörn- um vestrænna ríkja gegn áformum þeirra um að ráðast gegn öllu sem vestrænt er? Viljum við að t.d. blaðamenn eða stjórnmálamenn, sem segja eða skrifa eitthvað sem öfgahópum fellur ekki í geð, þurfi að óttast um líf sitt og fjöl- skyldu sinnar vegna líflátshótana öfgamanna, eins og gerðist í skopmyndamálinu svokallaða í Danmörku og Noregi? Umræðan um hinar nýju ógnir við öryggi okkar snýst oft aðallega um hryðjuverk, en skipulögð glæpastarfsemi er ekki síðri ógnun við öryggi borgaranna. Í löndum, sem eru ekki fjarlæg okkur, eru glæpasamtök stundum eins og ríki í ríkinu. Viljum við t.d. að alþjóðlegir fíkniefnahringar nái fótfestu hér, eins og æ fleira bendir til að þeir reyni? Að fíkniefnaheim- urinn útdeili sínu eigin „réttlæti“ og „refsing- um“ eins og alltof mörg dæmi eru um nú þegar hér á landi? Viljum við að Ísland verði griðastaður fyrir glæpasamtök sem smygla fólki milli heimshluta, selja það í ánauð og þvinga til vændis? Viljum við að hér á landi þrífist veruleiki á borð við þann, sem lýst var í ógleymanlegri, sænskri kvikmynd að nafni Lilja að eilífu? Svarið við öllum þessum spurningum er auð- vitað nei, við viljum ekki að neitt af þessu ger- ist. En það dugir ekki að við óskum þess nógu heitt að það gerist ekki. Við þurfum að grípa til aðgerða til að tryggja að við eigum í fullu tré við þau öfl, sem ógna okkur og nágrannaríkjum okkar. Halda mætti að um slíkar aðgerðir ríkti pólitísk samstaða, nú þegar kalda stríðinu er löngu lokið og engin stjórnmálaöfl hér innan- lands eiga hugmyndafræðilega samleið með hin- um utanaðkomandi ógnum. Engu að síður bregður svo við, að það eru sömu raddirnar og hvöttu til varnarleysis Íslands á dögum kalda stríðsins, sem nú draga í efa þörfina á að gera sömu ráðstafanir og öll önnur vestræn ríki hafa gert til að tryggja öryggi sitt og borgara sinna. Sérsveitin sem varð her Þegar Björn Bjarna- son dómsmálaráð- herra réðst í þá eðli- legu og tímabæru ráðstöfun að efla sérsveit lögreglunnar, fékk hann skammir fyrir, meðal annars frá Ögmundi Jónassyni, formanni þingflokks Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, Ágústi Ólafi Ágústs- syni, varaformanni Samfylkingarinnar, og fleiri þingmönnum þess flokks, s.s. Helga Hjörvar og Lúðvík Bergvinssyni. Ekki stóð á upphrópunum um „íslenzkan her“ þótt fáum, sem til þekkja, hafi nokkurn tímann dottið í hug að sérsveit lögreglu, hvort sem í henni eru 20 eða 60 menn, geti talizt her. Sérsveitin er einfaldlega nauð- synlegur lágmarksviðbúnaður, annars vegar við hugsanlegum hryðjuverkum og hins vegar við vaxandi vopnaburði og ofbeldi, ekki sízt í fíkni- efnaheiminum. Vilja andstæðingar þess að efla sérsveitina bíða þess að glæpagengi yfirbugi lögregluna? Eða að fáeinir menn með byssur taki opinberar byggingar í Reykjavík? Ráðstafanir dómsmálaráðherra varðandi sér- sveitina snúa einfaldlega að því að gera eins og öll önnur vestræn ríki hafa gert; að vera viðbúin hinu versta. Sérsveitarmenn í lögreglunni sinna alla jafna venjulegum lögreglustörfum, eru óvopnaðir eins og allir lögreglumenn á Íslandi í daglegum störfum sínum og hjálpa fólki að opna bílana sína eða hafa uppi á hundinum sínum ef svo ber undir. Það hefur engin eðlisbreyting orðið á störfum löggæzlunnar. En við erum bet- ur viðbúin óvæntum uppákomum en áður. Umræðurnar um eflingu sérsveitarinnar eru eitt dæmi um það, hvernig mörgum stjórn- málamönnum á vinstri kantinum finnst alveg sjálfsagt að Ísland sé jafnvarnarlaust gegn ut- anaðkomandi hættum og þeir hafa alltaf viljað hafa það. Annað dæmi og nýlegra er umræð- urnar um störf greiningardeildar eða þjóðarör- yggisdeildar ríkislögreglustjóra. Segja má að þær umræður skiptist í tvo kafla. Annars vegar eru þær umræður, sem fram fóru um frumvarp dómsmálaráðherra til nýrra lögreglulaga. Hins vegar þær umræður, sem orðið hafa síðustu vikur um skýrslu tveggja sérfræðinga Evrópusambandsins um hryðju- verkavarnir hér á landi. Greining- ardeildin sem varð leyniþjónusta Þegar Björn Bjarna- son dómsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lög- reglulögum í febrúar síðastliðnum, útskýrði hann ágætlega hvernig ákvæði um sérstaka greiningardeild innan embættis ríkislögreglu- stjóra væru til komin. Björn rifjaði upp að í þá- gildandi lögreglulögum væru ákvæði um að rík- islögreglustjóri skyldi starfrækja lögreglu- rannsóknardeild, sem rannsakaði landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórn- völdum þess. Það væri því misskilningur að slík ákvæði væru að koma inn í lögin í fyrsta sinn. Dómsmálaráðherra sagði síðan í flutnings- ræðu sinni: „Í þessari grein frumvarpsins segir að ríkislögreglustjóri skuli „starfrækja lög- reglurannsóknardeild og greiningardeild sem rannsakar landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess og leggur mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.“ Með ákvæðinu um greining- ardeild er lögð áhersla á þær skyldur lögreglu að rannsaka ekki aðeins afbrot sem hafa verið framin, heldur stundi hún einnig rannsóknir til að koma í veg fyrir að afbrot verði framin. Mik- ilvægt er, eins og rakið er í skýrslu verkefn- isstjórnar um nýskipan lögreglumála, að hugað sé sérstaklega að leiðum til að stemma stigu við hættum á skipulagðri og alþjóðlegri glæpastarf- semi. Lögreglan verður að leggja sig fram um að greina skipulagða glæpastarfsemi, safna á einn stað upplýsingum frá innlendum og erlend- um lögregluliðum og leggja mat á hættu sem tengist t.d. fíkniefnabrotum, mansali, skipu- lögðu vændi, peningaþvætti og öðrum afbrotum sem hafa alþjóðlega vídd. Hið sama á við vegna hryðjuverka.“ Í greinargerð með frumvarpi dómsmálaráð- herra sagði um þetta ákvæði: „Deildin end- urspeglar þróun hjá lögregluembættum ná- grannalandanna og auðveldar þar með íslenskum lögregluyfirvöldum samstarf við slík- ar deildir annars staðar, það er að segja lög- regludeildir sem gegna því hlutverki að greina og meta hættu á afbrotum, sem oftast teygja sig til margra landa og kennd eru við skipu- lagða eða alþjóðlega glæpastarfsemi og hryðju- verk. Lagaákvæði um greiningardeild tryggja að þannig sé um hnúta búið hér að þeir sem fal- SVEIGJANLEIKI EÐA AGALEYSI? Í Morgunblaðinu í gær, laugar-dag, er rætt við nokkra erlendastarfsmenn á íslenzkum vinnu- stöðum. Einn þeirra, starfsmaður frá Hollandi, segir að sveigjanleikinn á íslenzkum vinnustöðum sé meiri en í Hollandi. Hann segist sérstaklega hrifinn af hugtakinu „að skreppa“, sem sé „notað sem eins konar alhliða afsökun fyrir því að þurfa að stússast, fara í banka, klippingu eða verslun og virðist vera viðurkennt meðal Íslend- inga“. Hollendingurinn segir að þetta myndi ekki þekkjast í hans heima- landi, þar sem „sveigjanleikinn“ sé minni. Glöggt er gests augað, eins og þar stendur. Sjálfsagt finnst mörgum út- lendingum þessi sveigjanleiki á ís- lenzkum vinnustöðum heillandi. Og að mörgu leyti er hann jákvætt ein- kenni á íslenzku samfélagi. En um leið ber eilíft „skrepp“ auðvitað vott um það agaleysi, sem sömuleiðis ein- kennir íslenzkt atvinnulíf. Fólk er ekki að vinna á meðan það skreppur frá, þótt það sé á launum á meðan. Þetta er ein undirrót þess, að fram- leiðni er minni á Íslandi en í sam- keppnislöndunum. Og lítil framleiðni er ástæða þess að Íslendingar þurfa að vinna lengri vinnudag til að njóta sambærilegra lífskjara og t.d. grann- þjóðir okkar í Skandinavíu. Mörgum útlendingum og Íslend- ingum, sem hafa búið og starfað í löndum, þar sem meiri agi ríkir, finnst „sveigjanleikinn“ í meðallagi heillandi. Íslenzk fyrirtæki liggja t.d. oft með miklu meiri birgðir en sam- bærileg fyrirtæki erlendis vegna þess að viðskiptavinirnir hafa ekki þolinmæði til að bíða eftir vöru eins og fjölskyldubíl eða sófasetti, verða að fá hana strax. Það má segja að það sé frábær þjónusta að geta afhent jafnvel þungavöru undir eins, en í sumum löndum sættir fólk sig ein- faldlega við að varan sé ekki fram- leidd fyrr en hún hefur verið pöntuð og biðtíminn sé nokkrar vikur. Og allt framleiðslu- og afhendingarferli verður hagkvæmara fyrir vikið, sem skilar sér í betri rekstri og bættri framleiðni í atvinnulífinu. Kannski þurfum við einn daginn að velta því fyrir okkur hvort við viljum velja sveigjanleikann eða agann, hvort við viljum t.d. sleppa því að skreppa úr vinnunni en ljúka vinnu- deginum þess í stað á skemmri tíma og eiga meiri tíma fyrir fjölskylduna. Íslenzki sveigjanleikinn hefur ver- ið hafinn til skýjanna, ekki sízt í útrás íslenzkra fyrirtækja, en útlendi aginn hefur líka sína kosti. HJÁLPUM LÍBÖNUM Alþjóðahreyfing Rauða krossinshefur sent út hjálparbeiðni og fer fram á aðstoð fólks um allan heim við bágstadda í Líbanon. Sólveig Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir í Morgunblaðinu í gær að kallað sé eftir fjárstuðningi til þess að geta haldið úti sjúkraflutn- ingum og veitt særðum læknisaðstoð. Sprengjuárásir Ísraela á landið bitni verst á óbreyttum borgurum og verði sífellt erfiðara að veita læknisaðstoð. Íslenzkum borgurum og fólki frá öðrum vestrænum löndum var bjarg- að frá Líbanon. Íbúar landsins, sem ekkert geta farið, eru varnarlausir gegn sprengjuregninu. Minnug þess að okkar eigin lands- menn voru lánsamir og eru komnir í öryggið heima á Íslandi, eigum við að hjálpa þeim, sem eftir eru í þessu stríðshrjáða landi og láta eitthvað af hendi rakna til hjálparstarfs Rauða krossins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.