Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 32

Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 32
32 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA María Magdalenahefur löngum ver-ið sveipuð ein-hverjum dular-fullum og óræðum hjúp í kirkjusögunni. Vangaveltur um þátt hennar í tilurð kristin- dómsins eru ekki nýjar, þær hafa verið lengi í umræðunni og gefið af sér ýmsar kenningar. Ástæðan er hin mikla þögn Nýja testamentisins um þessa konu, sem öll guðspjöllin segja að hafi staðið hjá krossi meistarans á Golgata forðum og komið að legstaðnum að morgni páskadags. Af þeim tekur Jóhann- esarguðspjall dýpst í árinni, þar kemur hún ein að gröfinni; annars staðar er hún fyrst í röð vitna (Mark. 16:1–11; Matt. 28:1; Lúk. 24:10; Jóh. 20:11–18 og 1. Kor. 15:5–8). Almennt er talið, að María hafi verið kennd við bæinn Magdala Nunayya á suðvesturströnd Galí- leuvatnsins, skammt frá Tíberías. Sagnir geta um kirkju þar á síðari helmingi 4. aldar, sem var helguð Maríu, og á 10. öld töldu menn sig geta bent á æskuheimili hennar. Þegar rússneski ábótinn Daníel (1106) og fransiskanamunkurinn Quaresimus (1616) fara um þær slóðir heitir bærinn Magdalia. Hann er nú á tímum kallaður El- Mejdel og er smáþorp á milli Tab- aryya og ‘Ain Tabgha. Engum blöðum er um það að fletta, að María Magdalena var áhrifamesta konan í lærisveinahópi Jesú. Fornir kirkjufeður gáfu henni snemma virðingarheitið apostola apostolorum, eiginlega „postula postulanna“, þ.e.a.s. bjuggu til kvenkynsmynd latneska orðsins apostolus (postuli); á íslensku myndi það samt útleggjast „postuli postulanna“. Enginn veit neitt um hana að ráði. Sumir kalla hana þekktustu gleðikonu sögunnar, en í raun bend- ir ekkert í frásögn Nýja testament- isins til þess, að sú hafi verið iðja hennar. Hvergi segir, að bersynd- uga konan á heimili Símonar farísea í borginni Nain, sem lesa má um í 7. kafla Lúkasarguðspjalls, sé „María, kölluð Magdalena, er sjö illir andar höfðu farið úr“, í 8. kafla sama guð- spjalls. Ekki er heldur minnst á nafn hennar í Jóhannesarguðspjalli, 8:1–11, þegar menn draga fyrir Jesú „konu, staðna að hórdómi“ og vilja að hún sé grýtt. Allt frá önd- verðu hefur austurkirkjan t.d. greint hér á milli, en Gregoríus I páfi (540?–604) taldi þær eina og sömu konu, og að auki væru þær allar María í Betaníu, systir Mörtu og Lazarusar. Þessi skoðun hans gerði það að verkum að hróður Maríu Magdalenu óx hröðum skref- um í vesturkirkjunni og fóru menn að líta á hana sem afbragðsdæmi um hinn djúpþenkjandi og iðrandi syndara. Varð hún einn vinsælasti miðaldadýrlingurinn. Á málverkum er hún gjarnan sýnd fáklædd, með sítt og mikið, rautt hár, eflaust vegna áðurnefndra meintra tengsla við bersyndugu konuna eða þá hór- seku; þetta er tákn fyrir ástríðu og beljandi lífskraft. Það var svo ekki fyrr en árið 1969, að rómversk-kaþólska kirkjan yfirgaf túlkun Gregoríusar páfa, um að allar væru Maríurnar ein og hin sama, og tók upp skoðun austur- kirkjunnar. Nú á tímum er farið að gera því skóna, að María Magdalena hafi verið mun áhrifameiri í frumkirkj- unni en talið hefur verið. Er það m.a. í kjölfar mikillar fornleifaupp- götvunar um miðja 20. öld, nærri egypska bænum Nag Hammadi, en þá fundust handrit sem geyma um fimm tugi rita frá bernskuárum kristninnar og er umtalsverður fjöldi þeirra ekki varðveittur annars staðar. Eitt þeirra er Tómasarguð- spjall, annað brot úr Maríuguð- spjalli svo kölluðu (þ.e. Magdalenu), og hið þriðja er Filippusarguðspjall, en öll eru þau af gnóstískum upp- runa og hlutu því ekki náð fyrir augum þeirra manna, sem völdu í endanlegt ritsafn Biblíunnar í kringum aldamótin 400. Þykja ritin, borin saman við guðspjöllin fjögur í Nýja testamentinu, endurspegla átök í röðum lærisveinanna, einkum hvað varðar forystu, og er Pétur sýndur í hlutverki þess afbrýðisama í garð Maríu. Hafa sumir fræði- menn jafnvel gengið svo langt að fullyrða, að Jóhannesarguðspjall sé verk hennar að mestu leyti, en það hafi síðar verið ritskoðað og áhrif hennar minnkuð í því eins og hægt var. Þar hafi karlaveldið verið með fingurna í málum. Alla vega er ljóst, að eitthvað mikið liggur á bak við það, að María er gerð að fyrsta upprisuvotti. Austurkirkjan segir, að María Magdalena hafi fylgt Jóhannesi lærisveini og postula og Maríu guðsmóður til Efesus, nærri Selçuk í Tyrklandi nútímans, og dáið þar og verið grafin og jarðneskar leifar hennar síðar, eða árið 886, verið fluttar til Konstantínópel og séu þar enn. Frakkar segja hins vegar, að María hafi kristnað allt Provens- hérað í suðaustanverðu Frakklandi og eytt síðustu 30 æviárunum í helli í frönsku Ölpunum. Á kaþólskum tíma á Íslandi var hún nafndýrlingur Deildartungu- kirkju og aukadýrlingur (þ.e.a.s. verndardýrlingur, ásamt með öðr- um, mismörgum) sex annarra kirkna: í Felli í Kollafirði, Hvammi í Hvammsveit, Meðalfelli í Kjós, Skarði á Skarðsströnd, Stað í Grunnavík og Þerney með Sundum. Einkenni þessa dýrlings eru slegið hár, eins og áður er nefnt, og buðkur með smyrslum. María Magdalena sigurdur.aegisson@kirkjan.is Maríumessa Magda- lenu var í gær, 22. júlí. Árið 2002 birt- ist hér skrif um þá ágætu konu, en vegna mistaka í um- broti féll partur út. Sigurður Ægisson ákvað því að endur- birta að mestu fyrri pistil, og rifja upp sögu þessa vinsæla dýrlings kaþólskra manna. FRÉTTIR Verslunar- og skrifstofuhúsnæði á einum besta stað í Kópavogi. Eignin skiptist í fjórar hæðir, þrjár efstu hæðirnar snúa að Hamraborg en neðsta hæðin snýr út að Hamrabrekku. Mest allt rýmið er í útleigu, tvær neðstu hæðirnar með verslunum og þjónustufyrirtækjum, efstu tvær hæðirnar með skrifstofum. Möguleiki er á að byggja eina hæð til viðbótar og liggur teikn- ing fyrir. Þar gæti verið t.d. um að ræða þakíbúð með glæsilegu, óspilltu útsýni eða skrifstofur. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Hamraborg 7 - Miðbær Kópavogs Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Við seljum atvinnuhúsnæði - mikil eftirspurn. Vantar eignir á skrá. ● Hef kaupanda að einbýlishúsi í Garðabæ eða Kópavogi, stærð 200 m2 lágmark. Má kosta allt að 100 milljónir. ● Hef kaupanda að einbýlishúsi í Hafnarfirði sem má kosta allt að 32 milljónir. Par með eitt barn. ● Hef kaupanda að 4ra herbergja íbúð í Garðabæ. ● Leita fyrir tvö pör að 3ja herbergja íbúðum í 101 Reykjavík. Rúnar S Gíslason hdl. og löggilur fast. ÁTVR veitti Umhverfisstofnun ný- lega fimm milljóna króna styrk úr Pokasjóði til framkvæmda við Gull- foss. Jónína Bjartmarz umhverfis- ráðherra tók við framlagi frá ÁTVR. Þetta er í þriðja sinn sem ÁTVR hefur milligöngu um styrkveitingu til framkvæmda við Gullfoss. Með þessu er verið að fylgja eftir því framlagi sem ÁTVR hafði milli- göngu um að veitt væri til fram- kvæmda við Gullfoss á árunum 1992–1994. Þá lögðu framleiðendur Heineken-bjórs og umboðsmaður þeirra, Rolf Johansen & co, fram rúmar 5 millj. króna fyrir milli- göngu ÁTVR til að bæta aðstöðu ferðamanna við Gullfoss. Fé þetta var nýtt til smíði útsýnispalls og stígagerðar. Árið 2004 veitti pokasjóður ÁTVR Umhverfisstofnun styrk til að vinna að gerð plankastéttar á efra plani við Gullfoss sem bætir að- gengi ferðamanna að útsýnispalli fyrir ofan fossinn. Gangstéttin tekur við ofan við tröppurnar sem tengja efri og neðri aðkomu og liggja að útsýnispalli fyrir ofan fossinn. Eldri gangstígurinn var tekinn að skemmast og orðinn illfær að hluta. Á síðasta ári var lokið við að smíða um 200 metra og nú veitir ÁTVR 5 millj. kr til að ljúka við gerð plankastéttarinnar þannig að hún nái að gestastofunni. Pokasjóður ÁTVR styrkir gerð göngustígar við Gullfoss Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.