Morgunblaðið - 23.07.2006, Síða 40
Kalvin & Hobbes
SLÆMAR FRÉTTIR
PABBI! ÞÚ ERT Á
NIÐURLEIÐ Í
KÖNNUNUM
KÖNN-
UNUM?
JÁ, SÉRSTAKLEGA
MEÐAL TÍGRIS-
DÝRA OG 6
ÁRA HVÍTRA
KARLMANNA
EF ÞÚ VILT HALDA ÁFRAM AÐ
VERA PABBI ÞÁ VERÐUR ÞÚ
AÐ GERA LYKILBREYTINGAR Á
ÞVÍ HVERNIG ÞÚ STJÓRNAR
EITTHVAÐ SÉRSTAKT SEM
ÞÚ MÆLIR MEÐ AÐ ÉG
GERI?
AF ÞEIM SEM TÓKU
ÞÁTT Í KÖNNUNINNI
VORU FLESTIR HLYN-
TIR VASAPENING OG
ÖKUKENNSLU
Kalvin & Hobbes
HVAÐA MORGUNKORN
ERTU AÐ BORÐA?
NÝJA UPPÁHALDIÐ MITT.
SÚKKULAÐIHÚÐAÐAR
SYKURSPRENGJUR
VILTU SMAKKA?
JÁ
TAKK
HVAAAA...
AALLLLLT...
OFFF...
SSSÆÆTT!
MÉR FINNST
ÞETTA FREKAR
BRAGÐLAUST
ÞANNIG AÐ ÉG
BÆTI ALLTAF
VIÐ SYKRI
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ ER KOMIN NÝ
STELPA Í BEKKINN
HVAÐ HEITIR
HÚN?
HVER
VEIT?!
ER HÚN
SÆT?
HVERJUM
ER EKKI
SAMA?!
ERTU
SKOTINN
Í HENNI? NEI!
Kalvin & Hobbes
ÞARNA KEMUR
NÝJA STELPAN
HEYRÐU SOLLA!
ER ÞETTA ANDLITIÐ Á
ÞÉR EÐA ERTU MEÐ
ÞVOTTABJÖRN Á
HAUSNUM?!
ÉG VONA AÐ ÞÚ
DETTIR Á HÖFUÐIÐ,
ÓGEÐIÐ ÞITT!!
HÚN ER SÆT,
FINNST
ÞÉR EKKI?
ÞEGIÐU
HOBBES
Kalvin & Hobbes
MÁ ÉG SITJA HJÁ ÞÉR Í
MATARTÍMANUM KALVIN?
NEI
ÉG ER MEÐ SÚPU Í
DAG. EN ÞÚ?
SAMLOKU MEÐ
AUGUM
NEI, ÞÚ ERT
AÐ PLATA.
ÞÚ ERT
ÓGEÐSLEGUR
LITHIMNAN
ER BARA
SVO GÓÐ
KENNARI!
KALVIN ER
ÓGEÐSLEGUR!
VILTU FÁ
BITA EÐA
VARSTU AÐ
FARA?
Kalvin & Hobbes
MÁ ÉG
FARA UPP?
NEI, EKKI
FYRR EN ÞÚ
KLÁRAR LAX-
INN ÞINN
MÁ ÉG TAKA MATINN
OG BORÐA HANN Á
MEÐAN ÉG LÆRI?
ÆTLI ÞAÐ EKKI
ÉG KOM
MEÐ MAT
HANDA
ÞÉR.
HVERNIG
GENGUR?
ÉG VAR EKKI AÐ
FATTA ÞETTA
FRÁDRÁTTAR
DÆMI. ÉG
SVARAÐI BARA:
OSLÓ, NOREGI
Dagbók
Í dag er sunnudagur 23. júlí, 204. dagur ársins 2006
Víkverji var nýlegaað pæla í því hvers
vegna borgin hans
væri svona sviplaus,
jafnvel ljót, sam-
anborið við borgir eins
og Amsterdam, Lund-
únir og París.
Það sem kom Vík-
verja fyrst í hug var
ósamræmi borg-
armyndarinnar: Úti
um alla borg standa
hlið við hlið hús byggð
á ólíkum tímum og í
ólíkum stíl. Reykjavík
dreifði úr sér í und-
arlegum vaxtarkippum
þar sem stagað var í göt fyrri tíma
með arkitektúr samtíðarinnar. Klass-
ík, fúnkís og hinn sérkennilegi ís-
lenski nútímastíll hrærast í graut.
Hver stíll er oft ágætur út af fyrir sig,
en ólíkir stílar blandast yfirleitt illa
saman.
Hitt er líka vandamál, að á helstu
blóma- og uppbyggingarskeiðum ís-
lensks efnahagslífs hefur tískan í
arkitektúr verið frekar óspennandi, á
meðan miðborgir Parísar, Lundúna
og Amsterdam mótuðust á tímum
klassískrar fagurfræði. Munurinn er
augljós, klassíkinni í hag.
Loks er það að íslensk húsagerð-
arlist er næsta gersneydd íburði. Má
í besta falli telja á fingr-
um beggja handa þau
hús í höfuðborginni sem
eru ríkulega skreytt. Í
miðborgum evrópskra
stórborga úir og grúir
af marmarasúlum, lág-
myndum og ufsagrýl-
um. Íburðarleysið á Ís-
landi orsakast eflaust af
því að hér hefur ekki
verið jafnsvakalegur
auður og í hinum borg-
unum. – Það eru auðvit-
að meiri peningar á Ox-
ford Street en á
Laugavegi.
Og þá kemur Vík-
verji að sínu aðaláhyggjuefni: Nú
þegar við eigum nóg af peningum,
menntun og biturri reynslu til að
byggja á virðumst við samt ekki geta
byggt virkilega falleg hús – hús sem
sannarlega fegra borgarmyndina.
Nýju húsin sem vellauðugar fjár-
mála- og ríkisstofnanir eru að byggja
yfir sig úti um allan bæ eru í besta
falli sæmileg. Þau eru sjaldan svo
slæm að kalla megi þau ljót, en minna
í fegurð og glæsileika helst á mjólk-
urfernur.
Það er leitt að ekki skuli vera
byggð fallegri hús á Íslandi, nú þegar
við höfum alla burði til að gera virki-
lega vel í þeim efnum.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Útivist | Viðey er sannkölluð paradís fyrir fjölskyldufólk. Siglingin til og frá
Viðey er mikil upplifun fyrir börnin og í eyjunni sjálfri hafa verið sett upp ný
leiktæki og um eyjuna alla liggur fjöldi göngustíga sem gera fólki auðvelt að
ganga um og sjá unga nýskriðna úr eggjum og fjölda jurta í blóma. Spenn-
andi tilboð fyrir gesti milli kl. 13–17: Vaffla með sultu og rjóma, kaffi/kakó og
ferjutollur á aðeins 1.100 kr. Fyrir börnin er boðið upp á vöfflu, safa og ferju-
toll fyrir einungis 600 kr.
Morgunblaðið/Golli
Viðey og vöfflur
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í
mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef
sagt yður. (Jóh. 14, 25.)