Morgunblaðið - 23.07.2006, Qupperneq 43
Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel
Magnússon og Hildur Bjarnadóttir eru með-
al áhugaverðustu listamanna sinnar kyn-
slóðar. Tilvist mannsins er drifkrafturinn í
list Bjarkar. Daníel veltir fyrir sér sambandi
texta og ímyndunar og Hildur vinnur á nýjan
hátt úr textíl og ögrar hefðbundinni nálgun
conseptlistar.
Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guð-
rún Vaka með sýningu til 30. júlí. Dagrún og
Guðrún Vaka útskrifuðust í vor frá Mynd-
listaskólanum á Akureyri og sýna hluta út-
skriftaverka sinna.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í
Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna
nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í
eigu Safns.
Bandaríska myndlistarkonan Joan Backes
sýnir ný málverk og skúlptúra í Safni; sam-
tímalistasafni við Laugaveg 37. Einnig eru
til sýnis verk úr safneigninni. Þungamiðja
verka Joan Backes er fínleg vinna með tré
úr skógum ýmissa landa. Opið er mið–fös kl.
14–18 og lau–sun kl. 14–17. Safn er á Lauga-
vegi 37. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn á
laugardögum. www.safn.is
Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson með
sýningu í Listsýningasal til 6. ágúst. Atli
nefnir sýninguna Tákn og leikur sér þar með
línur og form.
Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr-
anna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns
Guðmundsonar í Skaftfelli, menningar-
miðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin
er opin daglega frá kl. 14–21 í sumar.
Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan Ka-
milla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís-
lensku landslagi en hún hefur síðustu vikur
fetað í fótspor langafa síns, danska listmál-
arans Johannesar Larssen, sem gerði teikn-
ingar fyrir danska Íslendingasagnaútgáfu
um 1930.
Listakonan Ingrid Larssen frá Vesterålen í
Norður-Noregi sýnir hálsskart sem hún
vinnur úr silki, ull, perlum og fiskroði. Sýn-
ingin er liður í menningarsamstarfi Austur-
lands og Vesterålen.
Skúli í túni | Þóra Gunnarsdóttir með sýn-
inguna; Upptekin!– hef annað og betra að
gera í Skúla í túni, Skúlatúni 4, þriðju hæð.
www.skulituni.com /www.thoragunn.is
Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir,
Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu
formi. Sýningin stendur til 11. ágúst. Þetta er
11. einkasýning listakonunnar auk þess hefur
hún tekið þátt í nokkrum samsýningum á Ís-
landi og erlendis.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldukon-
ur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk
tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síð-
ari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra forrétt-
inda að nema myndlist erlendis á síðustu
áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum.
Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks
Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sum-
arið 1938. Af myndum ferðalanganna má
sjá hve ljósmyndin getur verið persónulegt
og margrætt tjáningarform.
Söfn
Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur verið
opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga
byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840–
1940.
Nú eru hafin hin sívinsælu örnámskeið á Ár-
bæjarsafni. Námskeiðin eru ætluð börnum í
fylgd með fullorðnum. Þar má meðal annars
læra tálgun, glímu, þæfingu ullar og flug-
drekagerð. Athugið að sætaframboð í
hverju námskeiði er takmarkað. Frekari upp-
lýsingar og skráning í síma 411 6320.
Mánudaginn 24. júlí sýnir Brúðubíllinn á Ár-
bæjarsafni. Sýningin er kl. 14 og aðgangur
að safninu er ókeypis fyrir þá sem koma á
sýninguna.
Gamli bærinn í Laufási | Kirkjan í Laufási
var byggð 1865. Búsetu í Laufási má rekja
allt aftur til heiðni. Bærinn er nú búinn hús-
munum og áhöldum eins og tíðkaðist í
kringum aldamótin 1900. Þjóðlegar veit-
ingar í Gamla Presthúsinu. Opið daglega frá
9–18, fimmtud. 9–22. 500 kr. inn. Frítt fyrir
börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Iðnaðarsafnið | Iðnaðarsafnið var stofnað
til að minnast síðastliðinnar aldar í iðnaði á
Akureyri, enda bærinn þá oft nefndur Iðn-
aðarbærinn. Á safninu gefur að líta vélar og
verkfæri af öllum stærðum og gerðum,
framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega frá 13–17
til 15. sept. 400 kr inn, frítt fyrir börn.
Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn-
arfirði sem er bústaður galdramanns og litið
er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og
fylgst með hvernig er hægt að gera morg-
undaginn lítið eitt bærilegri en gærdaginn.
Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst.
Krókur á Garðaholti | Krókur á Garðaholti í
Garðabæ er lítill bárujárnsklæddur bursta-
bær sem var endurbyggður úr torfbæ árið
1923. Bærinn er gott dæmi um húsakost og
lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum lands-
hluta á fyrri hluta 20. aldar. Krókur er stað-
settur ská á móti samkomuhúsinu á Garða-
holti. Opið kl. 13–17. Ókeypis aðgangur.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og
misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpa-
sögum. Reykjavík hefur löngum verið vin-
sælasta sögusvið íslenskra glæpasagnahöf-
unda. Langflestir íslenskir
glæpasagnahöfundar hafa skapað sína eigin
Reykjavík þar sem myrkraverk og misind-
ismenn leynast, allt frá Granda upp í Graf-
arholt.
Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmunds-
dóttur. Sumir safna servíettum, aðrir safna
hlutabréfum. Gerður safnar bókstöfum úr
íslenskum handritum svo og laufblöðum
haustsins, þrykkir á síður og býr til handrit
og bækur.
Sýning á teikningum Halldórs Baldurssonar
byggðar á Vetrarborginni e. Arnald Indr-
iðason. Upphaflega var Halldór beðinn að
gera málverk en honum fannst eðlilegra að
halda sig við söguformið og því varð mynda-
sagan fyrir valinu. Teikningar Halldórs eru til
sölu. Opið mán.–fösd. kl. 9–17, laugard. kl.
10–14.
Listasafn Árnesinga | List, listiðnaður og
hönnun frá Færeyjum. Verk eftir 32 ein-
staklinga. Ríkey Kristjánsdóttir, textílhönn-
uður í hönnunarstofu. Aðgangur ókeypis.
Opið alla daga kl. 11–17 til 31. júlí.
Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef
þú giftist? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú
giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaupssiði
í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í sam-
starfi við Þjóðminjasafn Íslands og er opin
alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept.
Perlan | Sögusafnið Perlunni er opið alla
daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum fjölda leikmynda sem segja söguna
frá landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr og veiðitengdir munir,
skotvopn o.fl. Opið 11–18. Sjá nánar á
www.hunting.is
Víkin–Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár“.
Sýningunni er ætlað að veita innsýn í við-
burðaríka sögu togaraútgerðar og draga
fram fjölþætt áhrif hennar á samfélagið. „Úr
ranni forfeðranna“ er sýning á minjasafni
Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadótt-
ur. Molakaffi í boði og frábært útsýni yfir
höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Tvær glæsilegar nýj-
ar sýningar: Íslensk tískuhönnun sem sýnir
fjölbreytnina og sköpunarkraftinn í tísku-
geiranum og Í spegli Íslands, um skrif er-
lendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á
öldum. Auk þess helstu handrit þjóðarinnar í
vandaðri umgjörð á handritasýningunni og
Fyrirheitna landið.
Þjóðminjasafn Íslands | Fornleifauppgreftir
fara nú fram víðs vegar um land og í Rann-
sóknarýminu á 2. hæð má sjá úrval gripa
sem fundist hafa á undanförnum árum. Mikil
gróska hefur verið í fornleifarannsóknum
vegna styrkja úr Kristnihátíðarsjóði en út-
hlutana hans nýtur í síðasta sinn í sumar.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Vaxmyndasafnið hefur löngum verið sveip-
að ævintýraljóma og í sumar gefst tækifæri
til sjá hluta þess á 3. hæð safnsins. Óskar
Halldórsson útgerðarmaður styrkti íslenska
ríkið árið 1971 til að koma safninu upp í
minningu sonar síns Óskars Theodórs Ósk-
arssonar.
Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjöl-
breyttar sýningar, fræðslu og þjónustu. Þar
er safnbúð og kaffihús. Safnið hlaut sér-
staka viðurkenningu í samkeppni um safn
Evrópu árið 2006.
Uppákomur
Gásir | Miðaldamarkaður verður á Gásum í
Eyjafirði dagana 22.–23. júlí. Frá kl. 10–16
verður markaður, bardagar, söngur, forn-
leifafræðingar að störfum, leiðsögn um
svæðið og margt fleira. Friðrik V og Norð-
lenska bjóða svo í kjötsúpu að miðaldasið.
500 kr inn, frítt fyrir 15 ára og yngri.
Norræna húsið | Out of Office. Sýning
Steinunnar Knútsdóttur og Ilmar Stef-
ánsdóttur í sýningarsal Norræna hússins.
Gjörningur alla laugardaga og sunnudaga
fram til 30. september kl. 15–17.
Fyrirlestrar og fundir
Alanóhúsið | 12 spora fundir kl. 11–12, fyrir
skuldara, þar sem deilt er reynslu, styrk og
vonum og DA kynna þér lausnir. Héðinshús-
inu Seljavegi 2, herbergi 3.
Sögusetrið á Hvolsvelli | Sunnudaginn 23.
júlí kl. 15.30 flytur Einar Karl Haraldsson
ráðgjafi erindi sem hann nefnir „Nýjustu
fréttir af mér og Njálu“ í Víkingasal Sögu-
setursins á Hvolsvelli. Að loknum fyrirlestri
er boðið uppá umræður gesta og fyrirles-
ara.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | 15. ágúst
Fjallabaksleið syðri: Hvanngil – Emstrur –
Fljótshlíð 17. til 21 ágúst: Sprengisandur –
Hljóðaklettar – Raufarhöfn – Langanes –
Dettifoss – Kjölur: Allir eldri borgarar vel-
komnir. 16 ára reynsla. Upplýsingar hjá
Hannesi í síma 892 3011.
Félag eldri borgara í Hafnarfirð | Frá ferða-
nefnd: Orlofsferð 14.–19. ágúst að Laugum í
Sælingsdal. Nokkur herbergi laus. Upplýs-
ingar hjá Áslaugu í símum 555 1050 og
864 4223, eða hjá Rögnu í símum
555 1020 og 899 1023.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat-
vælum, fatnaði og leikföngum á mið-
vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla
sama dag kl. 15–17 að Eskihlíð 2– 4 v/
Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár-
hagslega, geta lagt inn á reikning 101-26-
66090 kt. 660903-2590.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er
spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstandendur?
Fáðu hjálp! Hringdu í síma 6983888.
JCI heimilið | Ljósmyndasamkeppni JCI Ís-
lands stendur nú yfir. Keppnin er opin öllum
áhugaljósmyndurum og verða úrslitin kynnt
á Menningarnótt Reykjavíkur 19. ágúst.
Keppnin er árleg, en þemað í ár er Höf-
uðborgin í ýmsum myndum. Veitt verða fern
verðlaun frá Ormsson og ljosmyndari.is. Sjá
nánar www.jci.is.
Frístundir og námskeið
Kríunes | Námskeiðin eru þrjú og kenn-
ararnir þekktar textíl- og bútasaum-
listakonur Monika Schiwy, Elsbeth Nusser-
Lampe og Pascal Goldenberg. Allar nánari
uppl. er að finna á www.diza.is Dizu, Lauga-
vegi 44, sími 561-4000. Þeim til aðstoðar
verða Gerður Guðmundsdóttir text-
íllistakona og Ásdís Loftsd. hönnuður.
Börn
Reykjavíkurborg | Í sumar verða opnir leik-
vellir á vegum ÍTR fyrir 2–5 ára börn í hverf-
um borgarinnar. Komugjald er 100 kr. Nánari
upplýsingar á www.itr.is og í síma 411 5000.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 43
DAGBÓK
Fáanleg fyrirtæki:
Þjónusta okkar felst í að tengja saman kaupendur og seljend-
ur fyrirtækja. Sem fagfólk í fyrirtækjaviðskiptum erum við í lifandi
tengslum við innlendan sem erlendan fyrirtækjamarkað.
Aðili að
Við erum sérfræðingar
í fyrirtækjaviðskiptum.
TENGINGVIÐ
TÆKIFÆRIN
H
O
R
N
/
H
a
u
k
u
r
/
2
4
0
4
A
)
Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýsingar
um fyrirtæki eru ekki gefnar í síma. Vinsamlega hringið og pantið
tíma, síminn er 414 1200 en einnig er hægt að nota tölvupóst:
jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is.
• Rótgróin heildverslun með þekktar gjafavörur.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með tæknivörur. Ársvelta 250 mkr.
• Þekkt hugbúnaðarfyrirtæki með fasta viðskiptavini. EBITDA 10 mkr.
• Lítið fyrirtæki með bílaréttingar og tvær bónstöðvar.
• Stórt málmiðnaðarfyrirtæki. Ágæt EBITDA.
• Traustur fjárfestir leitar að samstarfi við reyndan framkvæmdastjóra sem hefði hug á
að kaupa eitthvert stórt fyrirtæki, að kaupverði lágmark 300 mkr. Fjárfestirinn legði
fram eigið fé til kaupanna á móti framkvæmdastjóranum sem stjórnaði rekstrinum.
• Lítil dagvörudeild úr heildverslun. Ársvelta 50 mkr.
• Stórt innflutnings- og iðnfyrirtæki. EBITDA 100 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að meðalstóru framleiðslufyrirtæki í góðum
rekstri.
• Þekkt sérverslun með fatnað. Góð afkoma.
• Jarðvinnufyrirtæki með nýlegar vélar og góða verkefnastöðu.
• Meðalstórt iðnfyrirtæki í miklum vexti.
• Fyrirtæki með tvo stóra og vel staðsetta söluturna. Ársvelta 110 mkr.
• Rótgróin heildverslun með ýmsar vörur. Ársvelta 280 mkr.
• Þekkt útgáfufyrirtæki. Ágætur hagnaður.
• Merkjaland. Skilta- og merkjagerð. Góður hagnaður.
• Meðalstórt fyrirtæki með gluggatjöld. EBITDA 15 mkr.
• Lítið sérhæft ræstingafyrirtæki með mikla sérstöðu og vaxtamöguleika. Fastir
samningar.
• Mjög þekktur veitingastaður í nágrenni borgarinnar. Mikil sérstaða. Góð velta og
hagnaður.
• Þekkt húsgagnaverslun. Ársvelta 180 mkr.
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200
www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is
Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is, gsm 820 8658
Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is, gsm 868 8648
Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is, gsm 694 7722
Birgir Ómar Haraldsson verkfræðingur, birgir@kontakt.is, gsm 896 6070
Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is,
Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989
2ja ára nám í ilmolíufræðum
byrjar í september 2006.
Allar uppl. á heimasíðu skólans
www.simnet.is/lifsskolinn
og í s: 861 1070 og 557 7070,
tölvup: lifsskolinn@simnet.is.
Lífsskólinn Aromatherapyskóli
Íslands
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Miðvikudaginn 26.
júlí verður farið í sumarferð í Húna-
vatnssýslu. Ekið um Borgarnes,
Hvammstanga og Vatnsnes. Ýmsir
merkir staðir skoðaðir. Hádeg-
isverður innifalinn. Verð 5.300 kr.
Skráning og allar frekari upplýsingar
á Aflagranda 40 og í síma 411 2700.
Dalbraut 18–20 | Brids mánudaga kl.
14. Félagsvist þriðjudaga kl. 14. Bónus
miðvikudaga kl. 14. Hádegisverður og
síðdegiskaffi. Heitt á könnunni og
dagblöðin liggja frammi. Opið kl. 9–
16. Allir velkomnir. Upplýsingar um
sumarferðir í síma 588 9533.
Félag eldri borgara, Kópavogi,
ferðanefnd | Örfá sæti laus í 4 daga
ferð á Kárahnúkasvæðið, Austfirði og
Suðurland 24.–27. ágúst. Símaskrán-
ing og nánari upplýsingar hjá ferða-
nefnd FEBK: Bogi, s: 560 4255 /
Þráinn, s: 554 0999. Ath. Staðfesta
þarf með innborgun fyrir 24. júlí.
Upplýsingar um upphæð greiðslu og
greiðslustað hjá ferðanefnd.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skrifstofa FEB verður lokuð frá 17. júlí
til 8. ágúst. Skjaldbreiður – Hlöðufell
16. ágúst. Ekið er til Þingvalla, um Ux-
ahryggjaveg, Kjalveg skammt frá
Gullfossi. Flateyjardalur – Fjörður 19.
ágúst, 4 dagar: Ekið norður um
Sprengisand, ekið til baka um hring-
veginn. Uppl. og skráning frá 8. ágúst
í síma 588 2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Vegna
sumarleyfa starfsfólks fellur starf-
semi og þjónusta niður til þriðjud. 15.
ágúst. Sund og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, sími 557 5547, eru á
mánud. kl. 10.30 og miðvikud. kl.
9.30. Strætisvagnar S4, 12 og 17.
wwwgerduberg.is.
Hafnarfjörður | Í sumar verður pútt-
að á Vallavelli á Ásvöllum á laug-
ardögum frá 10–11.30 og á fimmtu-
dögum frá kl. 14–16. Mætum vel og
njótum hverrar stundar.
Hraunbær 105 | Ferð norður í Húna-
vatnssýslu 26. júlí nk., stoppað í
Borgarnesi, þaðan ekið til Hvamms-
tanga, hádegismatur í Þinghúsbar.
Haldið út Vatnsnes, Hvítserkur, Borg-
arvirki, stoppað í Þingeyrakirkju.
Leiðsögumaður: Hólmfríður Gísla-
dóttir. Skráning á skrifstofu eða í
síma 587 2888. Farið frá Hraunbæ
kl. 9. Verð 5.300 kr.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin.
Félagsvist mánud. kl. 13.30. Frjáls spil
miðvikudag kl. 13.30. Guðnýjarganga
kl. 10 þriðjudag og fimmtudag. Gönu-
hlaup föstudag kl. 9.30. Út í bláinn
laugardag kl. 10. Púttvöllur opinn.
Sumarbingó miðvikudaginn 26. júlí kl.
13.30. Sumarferð 15. ágúst. Nánari
upplýsingar 568 3132.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð að
Fossatúni í Borgarfirði fimmtudaginn
27. júlí kl. 13. Farið verður um Borg-
arfjörðinn, komið að Fossatúni, þar
munum við skoða hið ægifagra um-
hverfi, við snæðum kvöldverð áður
en haldið er heim. Leiðsögumaður
Helga Jörgensen og Sigríður sér um
harmónikkuna. Allir velkomnir. Uppl. í
síma 411 9450.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Félagsvist mánudaga
kl. 13. Stund í kirkjunni miðvikudaga
kl. 11. Brids kl. 13. Foreldramorgnar
fimmtudagsmorgna kl. 10–12. Pútt-
völlur. Verið velkomin.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn