Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 44
44 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGAlþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
23. júlí kl. 12.00:
Sophie-Véronique Cauchefer-
Choplin, organisti frá París,
leikur verk m.a. eftir
Bédard, Bach, Pierne, Mulet og
Duruflé.
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi
28.-30. júlí 2006
Tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju.
Miðapantanir í síma 891 7677.
Miðasala við innganginn.
Nánari upplýsingar www.vortex.is/festival
Opnunartónleikar föstudaginn 28. júlí kl. 20.00
Tónlist eftir W.A. Mozart. Meðal flytjenda er hljómsveitin Virtuosi di Praga.
Stjórnandi Oldrich Vleck.
Miðdegistónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 15.00
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur íslensk og ítölsk lög og óperuaríur.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur með á píanó.
Tríó tónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 20.00
Trio Polskie flytja verk eftir Beethoven, Brahms, Haydn og Shostakovich.
Lokatónleikar sunnudaginn 30. júlí kl. 16.30
Virtuosi di Praga flytja m.a. verk eftir Respighi, Dvorak og Samuel Barber.
Einnig verður flutt Adagio og Rondo eftir Schubert.
10 ára
ehf
PANTIÐ MIÐA
TÍMANLEGA Í
SÍMA 437 1600
Leikstjóri: Peter Engkvist
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - kr. 4800
Sýningar
í júlí og ágúst
Fös. 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Lau. 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Sun. 30 júlí kl. 15 aukasýning
Sun. 30. júlí kl. 20 nokkur sæti
Fös. 4. ágúst kl. 20
Lau. 5. ágúst kl. 20
Sun. 6. ágúst kl. 15
Sun. 6. ágúst kl. 20
Lau. 19. ágúst kl. 20
Sun. 20. ágúst kl. 15
Sun. 20 ágúst kl. 20
Fös. 25. ágúst kl. 20
Sun. 27. ágúst kl. 15
Sun. 27. ágúst kl. 20
KATRÍN Sigurðardóttir er tilnefnd
til Sjónlistarorðunnar 2006 í flokki
myndlistar fyrir verkið High Plane
III. Verkið var til sýnis á sýningunni
The Here and Now í The
Renaissance Society í
Chicago í Bandaríkj-
unum. Um er að ræða
fimmtán fermetra hvít-
málað viðarborð með
óræðu, blálituðu hrjóstri
sem rís víðsvegar upp af
sléttum fletinum og
myndar smágert lands-
lag, „hálfraunverulegt og
hálfímyndað“, að sögn
listakonunnar. Áhorf-
endur standa sjálfir upp úr yfirborð-
inu þegar þeir lesa sig upp í annan af
tæplega fjögurra metra háum stig-
um og smeygja höfðinu í gegnum
annað tveggja gata á plankanum.
Þessi stelling áhorfandans gerir það
að verkum að landslagið er í beinni
sjónlínu, sem aflagar tilfinninguna
fyrir raunverulegum hlutföllum.
Hrjóstrið birtist stórbrotnara en það
í rauninni er og virðist breiða úr sér.
Inntakið túlkunaratriði
Í umsögn dómnefndar segir meðal
annars að það sem einkenni verk
Katrínar sé að þau eru eitt en um
leið eitthvað annað. Jafnframt segir
að hrjóstrið sé eyjar sem sæki fyr-
irmynd sína í eyjarnar á Breiðafirði.
Katrín segir að sú túlkun sé eins rétt
og hver önnur þótt það sé ekki sú
hugmynd sem farið hafi verið af stað
með. „Fyrir mér eru verkin mín í
sjálfu sér tóm, eins konar ílát fyrir
minningar, hugmyndir og túlkanir
þeirra sem horfir á þau. Það að um
eyjar sé að ræða er túlkunaratriði og
svo sem alveg rétt túlkun ef fólk
upplifir það þannig. Aðrir upplifa
verkið sem fjöll og ég var satt best
að segja meira að horfa á myndir af
fjöllum en eyjum þegar ég gerði
þetta landslag. En það er sama, það
er einnig túlkunaratriði. Aðrir sjá ís-
jaka og enn aðrir eitthvað allt annað.
Þegar ég er búin að gera verkið á ég
inntak þess í rauninni ekki lengur.
Verkið á sig eiginlega sjálft.“
Sama verkið í
mismunandi útfærslu
Katrín segir að innsetningar sínar
fylgi ákveðinni forskrift. „Það eru
viss atriði sem þurfa að framkvæm-
ast eða fyrirbæri sem þarf að skapa
eða setja inn, til dæmis blá fjöll, hvít-
ur pallur og tveir stigar. Verkin eru
svo mismunandi eftir því hvar fram-
kvæmdin á sér stað, hvernig rýmið
sem þau fara inn í er. Að því leyti eru
þau aðskilin verk en að öðru leyti má
líta á þau sem eitt verk sem tekur á
sig ólíka mynd eftir því hvar það er
sett upp. Það er þess vegna sem
High Plane er númer eitt, tvö, þrjú
eða fjögur og svo framvegis.“
Fyrsta High Plane verkið setti
Katrín upp árið 2001 í Galleríi Sæv-
ars Karls. Leikurinn var svo end-
urtekinn í galleríi í Brooklyn ári síð-
ar. Eins og áður er getið er hún svo
tilnefnd fyrir verkið sem sett var
upp árið 2005 í Chicago. Eftir það
var High Plane IV sett upp í Svíþjóð
og svo er ráðgert að setja upp
fimmta verkið í PS1 í New York,
sem er hluti af Museum of Modern
Art.
Heiður listamannsins fólginn í
tækifæri til einlægra verka
Aðspurð hvaða þýðingu tilnefn-
ingin til Sjónlistarorðunnar hefur
segir Katrín að hún sé alltaf þakklát
þegar athyglin beinist að því sem
hún er að gera. Eins sé fjárhags-
legur stuðningur ætíð dýrmætur,
það kosti jú peninga að búa til list.
„En ég get sagt það beint út að það
hefur enga meiningu fyrir mig að
vera raðað upp ásamt kollegum mín-
um í lóðrétta röð, þar sem einn er
settur ofar öðrum. Ég skil þessi
verðlaun heldur ekki þannig og ég
vona að almenningur geri það ekki
heldur. Ef svo er villir það fyrir til-
gangi starfs okkar. Það er ef til vill
eins konar almennatengslaatriði að
setja þetta svona upp en við erum
svo sannarlega ekki að keppa hvert
við annað og höfum aldrei gert. Ef
litið er á þessi verðlaun sem keppni
veit ég ekki í hverju heiðurinn er
fólginn. Það sem mér finnst skipta
mestu máli er að hafa tækifæri til að
gera verkin mín á einlægan og sann-
an hátt. Og það er miklu innrænna
ferli.“
Íslensk myndlist afburða góð
„Það er mjög mikið af góðri mynd-
list á Íslandi,“ segir Katrín þegar
hún er innt eftir skoðun sinni á stöðu
íslenskrar myndlistar. „Og ég hef al-
gjörlega samanburðinn þar sem ég
er mikið innan um erlenda lista-
menn. Ísland á sér flotta sögu í sam-
tímalist en ég held að listafólk á Ís-
landi geri sér ekki grein fyrir því
hvað það er afburða gott. Það er
mjög lifandi menning og heit deigla í
íslenskri myndlist og Listaakademi-
an okkar er á heimsmælikvarða. Það
er margir listamenn á Íslandi sem
ber ekki endilega mikið á en eru að
hugsa og gera svo flotta hluti.
Myndlist er eins og ísjaki. Það eru
aðeins tíu prósent af honum fyrir of-
an yfirborðið. Það á bæði við um list-
sköpun hvers og eins og sömuleiðis
um okkur myndlistamenn sem sam-
félag. Ég er þakklát þeim listamönn-
um sem ég hef litið upp til í gegnum
tíðina og eins er mjög inspírerandi
að fylgjast með því hvað yngri koll-
egar mínir eru að gera. Sú athygli
sem ég get fengið út á tilnefninguna
myndi ég helst vilja spegla til baka
til þeirra sem hafa verið og eru upp-
spretta minna verka og umhverfi
minnar sköpunar.“
Einkasýning í i8 í vetur
Katrín er fædd í Reykjavík árið
1967. Hún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann frá 1986–
1988 áður en hún hélt til Bandaríkj-
anna þar sem hún stundaði fyrst
nám við San Fransisco Art Institute
og síðan framhaldsnám við Rutgers-
háskóla þaðan sem hún útskrifaðist
með MFA-gráðu. Hún hefur rekið
vinnustofu í New York síðan 2001.
Fyrstu einkasýningu sína á Ís-
landi hélt Katrín árið 1993 í galleríi
Sævars Karls en hún sýndi hér síð-
ast í Listasafni Reykjavíkur árið
2004. Hún hefur haldið einkasýn-
ingar á Ítalíu, í Mexíkó og Banda-
ríkjunum, en árið 2005 tók hún þátt í
samtals tólf samsýningum í Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Fjórum sinnum hefur Katrín hlot-
ið starfslaun úr Launasjóði mynd-
listarmanna, nú síðast í fyrra, auk
þess sem hún fékk styrki frá The
Louis Comfort Tiffany Biennial
Award og The Rema Hort Mann
Foundation.
Á þessu ári eru framundan fjórar
einkasýningar á verkum Katrínar.
Ein þeirra verður á Íslandi, í galleríi
i8 í Reykjavík. Einnig tekur Katrín
þátt í ýmsum samsýningum, að
ógleymdri sýningunni í Listasafninu
á Akureyri í tengslum við Sjónlist
2006.
Sjónlist | Katrín Sigurðardóttir er tilnefnd til Sjónlistarorðunnar 2006
Ílát fyrir minn-
ingar, hugmyndir
og túlkanir
Katrín Sigurðardóttir segir að heiður listamannsins sé fólginn í því að geta
gert verk sín á einlægan og sannan hátt.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.
að verk Katrínar einkennist af
því að þau séu eitt en um leið
eitthvað annað.
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
SUMARTÓNLEIKARÖÐ á
Gljúfrasteini heldur áfram í dag og
er nú komið að hinu uppátækjasama
tríói Flís að skemmta gestum í stofu
nóbelsskáldsins. Þeir félagar Davíð
Þór Jónsson, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson og Helgi Svavar
Helgason stofnuðu tríóið árið 1998
og segir Davíð Þór að fyrst hafi verið
lögð mest áhersla á að spila í hefð-
bundnum djassstíl en það hafi fljótt
breyst. „Við byrjuðum að blanda raf-
hljóðum inn í þetta og síðan breytt-
ist tónlistin meira í einhvern rokk-
djass og við höfum líka spilað „drum
’n’ bass“, reggae og þjóðlagatónlist.
Við erum svo „kaótískir“ í þessu.
Það er það skemmtilega við þetta.“
Að sögn Davíðs Þórs er dagskráin
ekki alltaf fullmótuð þegar tríóið
kemur fram og því oft stutt í spun-
ann. „Við höfum meira að segja verið
með nokkur „gigg“ þar sem við höf-
um eingöngu búið til tónlistina á
staðnum.“
Hann spilaði á tónleikum á
Gljúfrasteini um daginn með Ragn-
hildi Gísladóttur og segir að það hafi
verið frábært að spila í stofunni
frægu. „Flís kom fram á fimmtíu ára
nóbelsafmæli skáldsins í Þjóðmenn-
ingarhúsinu fyrir skömmu og þá
sömdum við nokkur lög út frá lestri
Halldórs. Við fórum í gegnum fullt
af upptökum þar sem hann er að lesa
og það var einhver „rytmi“ í lestr-
inum sem okkur fannst alveg frá-
bær,“ segir Davíð Þór og býst við því
að tríóið muni hugsanlega taka upp á
því að spila einhver lög í þessum stíl.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og að-
gangseyrir er 500 kr.
Tónlist | Tríóið Flís spilar á stofutónleikum Gljúfrasteins í dag
„Kaótískur“ djass í stofunni
Morgunblaðið/Kristinn
Þeir Helgi Svavar Helgason, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Davíð
Þór Jónsson lögðu í upphafi áherslu á að spila í hefðbundnum djassstíl en
fóru svo að blanda alls kyns tónlistarstefnum saman.
www.gljufrasteinn.is
Fréttir á SMS