Morgunblaðið - 23.07.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 45
MENNING
Í nafni fagurfræðinnar hafaheimspekingar í aldanna rás
reynt að leggja fram kerfisbundinn
mælikvarða á fegurð (og ljótleika).
Fagurfræði hefur hins vegar átt
erfitt uppdráttar í seinni tíð. Aug-
ljósasta ástæðan er uppgangur af-
stæðishyggju almennt og þá í mál-
efnum lista sérstaklega. Að sögn
afstæðissinna er enginn einn list-
rænn dómur eða fagurfræðilegt
mat réttara eða betra en annað.
Fegurð er á hinn bóginn háð við-
takandanum eingöngu og því af-
stæð frá einum einstaklingi til ann-
ars, eða þá einu samfélagi til
annars.
Einfalda svarið við slíkri afstæð-ishyggju er að benda á að
hvað sem öðru líður er það stað-
reynd að við fellum dóma um list-
rænt gildi hluta og færum oftar en
ekki rök fyrir þeim (leggjum þeim
til grundvallar fagurfræðilega
mælikvarða). Við reynum að sann-
færa aðra um réttmæti skoðana
okkar og föllumst ekki bar-
áttulaust á að aðrir séu ósammála
okkur. Það sem meira er, við fáum
aðra oft til að fallast á málflutning
okkar, þ.e.a.s. ef okkur hefur sjálf-
um ekki snúist hugur vegna ein-
hvers sem aðrir höfðu til málanna
að leggja. Það er eins og okkur
takist stundum að opna augu fólks
fyrir eiginleikum sem skipta máli í
listum. Og nær undantekning-
arlaust er afstæðissinninn sama
marki brenndur. Það er alltaf hægt
að nappa yfirlýstan afstæðissinna
við að fella álíka dóma um tónlist,
náttúruna eða eldhúsinnréttingar.
Ég segi að þetta sé einfaldasvarið við afstæðishyggju. Í
fyrsta lagi af því að afstæðissinn-
inn gæti einfaldlega yppt öxlum og
viðurkennt að hann falli iðulega í
sömu gryfju og aðrir. En ekki síður
vegna þess að eftir stendur nokkuð
erfið spurning. Ef fegurð er ekki
háð viðtakandanum þá liggur bein-
ast við að álykta að hún að sé bund-
in hlutnum sem athugunin beinist
að. Fegurð er með öðrum orðum
hlutlæg. Þetta er aftur á móti illút-
skýranlegt í ljósi þess að sami hlut-
urinn getur valdið mismunandi
hughrifum hjá mismunandi fólki.
Auk þess virðist sú hugsun að feg-
urð sé óháð viðtakandanum nokk-
uð langsótt ef í því felst sú hug-
mynd að heimurinn sé stútfullur af
listrænu gildi jafnvel frá einhvers
konar yfirskilvitlegu eða einsk-
ismanns sjónarhorni.
Bandaríski heimspekingurinnJohn McDowell hefur gert til-
raun til að bjarga hlutlægni feg-
urðarinnar. Hann fellur þó ekki í
þá gildru að segja að fegurð sé
óháð athugandanum en biður les-
endur sína að ímynda sér að eins sé
farið með listrænt gildi og liti.
Veruleiki lita er bæði háður athug-
andanum og ákveðnum eig-
inleikum hlutanna. Meðan litir eru
ekki til sem litir án aðkomu okkar
og upplifunar getur upplifunin
heldur ekki átt sér stað ef ekki
væri fyrir ákveðna eðliseiginleika
efnisheimsins. Með samlíkingu
sinni siglir McDowell sem sagt
milli hjákátlegrar hluthyggju um
fegurð og allsherjar afstæðis-
hyggju.
Litir geta virst mismunandi eftir
sjónarhorni athugandans. Svipað
má segja um listir (þó orðið „sjón-
arhorn“ megi e.t.v. ekki taka of
bókstaflega). Sjónarhorn okkar er
breytilegt eftir því listræna upp-
eldi og þeirri þjálfun sem við höf-
um fengið, sem útskýrir aftur
breytileikann í dómum okkar, ekki
síst frá einu menningarsamfélagi
til annars.
Ef listrænir dómar okkar helgast
að hluta til af því „sjónarhorni“
sem við höfum á tiltekið verk ætt-
um við að getað þjálfað hjá okkur
(og öðrum) næmi fyrir mismunandi
eiginleikum og þannig komið auga
á fegurð sem var okkur áður dulin,
jafnvel uppgötva ákveðnar rang-
hugmyndir sem við höfðum. Þetta
þarf ekki að þýða að við séum að
„búa til“ eitthvað sem ekki er til
staðar í listaverkinu, að við séum
að flétta inn í hlutheiminn afstæð
og huglæg gildi; frekar að við séum
að opna augun fyrir einhverju sem
er til staðar og gerast móttækileg.
Ef þetta stenst er það verkefniað leggja fram kerfisbundinn
mælikvarða á ágæti lista e.t.v. ekki
eins vonlaust og afstæðissinninn
lætur í veðri vaka. Kannski er fag-
urfræðinni viðbjargandi.
Er fagurfræðinni
viðbjargandi?
’Þetta þarf ekki að þýðaað við séum að „búa til“
eitthvað sem ekki er til
staðar í listaverkinu, að
við séum að flétta inn í
hlutheiminn afstæð og
huglæg gildi; frekar að
við séum að opna augun
fyrir einhverju sem er til
staðar og gerast mót-
tækileg.‘
Af hverju er Ópið eftir Edward
Munc svona heillandi?
floki@mbl.is
AF LISTUM
Flóki Guðmundsson
Kr. 1100 fyrir fullorðna
Ferjugjald, vaffla
og kaffi/kakó
Kr. 600 fyrir börn
Ferjugjald, vaffla
og safi
Nánari
upplýsingar
www.videy.com
533 5055
Vöfflur og
Viðey
Uppgötvaðu Viðey
Kaffisala
kl. 13 – 17