Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 47

Morgunblaðið - 23.07.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 47 Electronic Arts munu í árs-lok 2007 senda frá sérhlutverkaleik byggðan á Hringadróttinssögu Tolkiens. Leikurinn verður hannaður fyrir Xbox 360, PlayStation 3 og PC- leikjatölvur. Ekki er gert ráð fyrir að leikurinn komi út fyrir Nin- tendo Wii-tölvuna. Framleiðendur leiksins lofa mikilli veislu í mynd- gæðum og grípandi söguþræði í bland við æsilega bardaga.    Sjónvarpsstöðin Cartoon Net-work vinnur að þróun fjölspil- unartölvuleiks sem á að vera af svipuðum meiði og World of Warcraft og Ever Quest. Eftir á að gefa leiknum nafn, en hann á helst að höfða til leikenda á aldr- inum 6 til 14 ára og er vænt- anlegur á markað árið 2008. Í leiknum munu spilendur hitta fyr- ir kunnuglegar söguhetjur af Cartoon Network, eins og Mac, Bloo og persónur þáttanna Kids Next Door. Þetta er í fyrsta skipti sem Cartoon Network framleiðir „al- vöru“ tölvuleik en áður hefur fyr- irtækið látið gera minni tölvuleiki fyrir heimasíðu sjónvarpsstöðv- arinnar. Tölvuleikir Gandalfur verður meðal þeirra sem leikmenn hitta fyrir í hlutverkaleik Electronic Arts. Sími - 551 9000 -bara lúxus ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA- FYLLSTA OG SKEMMTI- LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON Sýnd kl. 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára Sýnd kl. 2, 4 og 6 -bara lúxus Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins! Ultraviolet kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára The Benchwarmers kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Ísöld 2 m.ísl tali kl. 3 Rauðhetta m.ísl tali kl. 3 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 ENSKT TAL Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 ÍSLENSKT TAL SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Þau ætla að ná aftur hverfinu... ...einn bita í einu! 400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU eee L.I.B.Topp5.is ÞAÐ er hálfgert dósahljóð í vís- indafantasíunni Útfjólublá, sem samanstendur af heimskulegu handriti, áberandi klaufalegri tölvugrafík og Millu Jovovich í þröngum ofurhetjufatnaði sem skiptir litum. Sagan, sem sækir grimmt í hug- myndabanka alls frá X-mönnunum og The Matrix til Blade Runner, á sér stað í ímyndaðri framtíð, þar sem rannsóknarstofuframleiddur sjúkdómur sem stökkbreytir fólki hefur breytt heiminum í eitt stórt lögregluríki. Hinir sjúku eru lok- aðir inni eða látnir hverfa og á þeim gerðar siðlausar vísindatilraunir. Andspyrnuher berst fyrir rétt- indum sýktra af mikilli hörku, og er Violet, hetja sögunnar (Milla Jovo- vich), í þeirra hópi. Framvindan sem spunnin er í kjölfarið er með eindæmum ein- feldningsleg (en tekst samt að vera ruglingsleg), og samanstendur mestmegnis af slagsmála- og elting- aratriðum þar sem Milla Jovovich breytist í illa teiknaða tölvufígúru eða áhættuleikara meirihluta tím- ans sem þau standa yfir. Eitt helsta einkenni myndarinnar, fyrir utan almenna lágkúru, er það hvernig fyllt er upp í stóran hluta hennar með lélegri tölvugrafík sem brestur á í tíma og ótíma. Reynt er að búa til afsökun fyrir þessum höktandi umskiptum með því að draga fram tengsl mynd- arinnar við myndasöguformið í upp- hafskynningunni, þar sem forsíður, stafir og rammar úr ýmsum teg- undum myndasagna fljóta fram og aftur. En á meðan unnið hefur verið með slík tengsl á áhugaverðan og frjóan hátt í mörgum kvikmyndum samtímans er ekki ólíklegt að að- standendur Útfjólublárrar séu fyrst og fremst að reyna að tengja sig við það sem er einna heitast og söluvænlegast í Hollywood í dag með vægast sagt slökum árangri. Í stað þess að gefa myndinni stílfært svipmót í anda myndasagna færir tölvugrafíkin hana einfaldlega niður á plan ómerkilegs tölvuleiks með stirðbusalegum fígúrum. Ef ekki væri fyrir fyrirsætu- stjörnuna Millu Jovovich myndi lík- lega enginn fara að sjá þessa mynd sjálfviljugur, því hér er botninum sannarlega náð í kvikmyndagerð. Lélegur tölvuleikur Með Ultraviolet er botninum náð í kvikmyndagerð, að mati gagnrýnanda. KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn Leikstjórn: Kurt Wimmer. Aðalhlutverk. Milla Jovovich. Bandaríkin, 88 mín. Útfjólublá (Ultraviolet) -  Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.